Morgunblaðið - 25.05.1984, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
AP/Símamynd
Bob Hope og Twiggy
Skemmtikraftarnir Bob Hope og Twiggy við óveniulegar kringumstæður. Hér eru þau um borð í
tilraunageimskutlu á heimssýningunni í Louisiana. I tilefni 81 árs afmælis Hope nk. mánudag verður
NBC-sjónvarpsstöðin með sérstaka dagskrá um afmælisbarnið og verða útsendingar frá heimssýning-
Bombay á Indlandi:
Um 200 hafa
látist í trúar-
bragðaóeirðum
Bomhay, 24. maí. AP.
HERSVEITIR indversku stjórnarinnar eru í viðbragðsstöðu í Bombay og
nágrenni eftir bardaga hindúa og múhameðstrúarmanna, sem undanfarna
átta daga hafa leitt til dauða um 200 manna.
Óeirðirnar hafa einkum verið í
Bombay og nágrannaborginni
Bhiwandi, en þar hófust þær 10.
maí sl.
Yfirvöld hafa veitt lögreglu og
hersveitum sérstakan rétt til að
skjóta á þá sem uppvísir verða að
því að stofna til óspekta og út-
göngubann hefur verið fyrirskipað
í nokkrum hverfum borganna
tveggja.
í morgun fréttist af tveimur
íkveikjum á óeirðasvæðinu, en til
meiriháttar átaka hafði ekki kom-
ið á ný.
Kveikja óeirðanna var ummæli
eins af leiðtogum hindúa í Bhiw-
andi um spámanninn Múhameð,
sem múhameðstrúarmenn töldu
svívirðu. Þeir efndu til mótmæla-
stöðu fyrir utan skrifstofu her-
skárra trúarsamtaka hindúa í
borginni og áður en varði var allt
komið í bál og brand.
Hindúar eru í miklum meiri-
hluta á Indlandi. í landinu búa um
730 milljónir manna og er talið að
83% þeirra séu hindúar og 11%
múhameðstrúarmenn.
UNITA býst brátt við
miklum átökum í Angóla
Jamha, 24. maí. AP.
SKÆRULIÐAR UNITA, sem berjast gegn stjórnvöldum í Angóia, segjast
búast við meiriháttar bardögum á næstunni við stjórnarhermenn, sveitir
kúbanskra hermanna og sovézkra foringja.
Uppreisnarmennirnir búast við
átökum í miðii Austur-Angóla, í
nágrenni borganna Luena og Lua-
cano, þ-.- sem sveitir, sem styðja
Jose Eduardo dos Santos forseta,
hafa safnað saman miklu magni
vopna og MIG-orrustuflugvélum.
Hermt er að 22 þúsund hermenn
hliðhollir yfirvöldum séu undir
vopnum á þessum slóðum. Vest-
rænar leyniþjónustuheimildir
herma að um 25 þúsund kúbanskir
hermenn, og um 3.000 sovézkir og
austur-þýzkir foringjar séu í Ang-
óla.
Talsmenn UNITA segja tilgang
aðgerða stjórnarhersins að reyna
að stía í sundur sveitum UNITA í
austurhluta landsins. í fyrsta sinn
reyni á hvernig sveitir UNITA
standist hefðbundna bardaga, þar
sem andstæðingurinn beitir stór-
skotavopnum og loftárásum. Segja
Þeir stjórnarherinn telja 60 þús-
und menn, en sjálfir hafa 20 þús-
und hermenn og álíka marga
skæruliða.
Jafnframt segja talsmenn UN-
ITA, að verulega muni reyna á
baráttuþrek stjórnarhermanna og
lagsmanna þeirra frá Kúbu,
A-Þýzkalandi og Sovétríkjunum
vegna mikils manntjóns að undan-
förnu. I apríl hafi fallið 728
stjórnarhermenn í átökum, 69
Kúbumenn og 545 stjórnarher-
menn gerzt liðhlaupar, en UNITA
hafi misst 43 menn í sama mán-
uði.
Talsmenn UNITA segjast hafa
algjör yfirráð á þriðjungi lands í
Angóla, í suðausturhluta landsins,
og einnig hafi þeir umsvif í suð-
vestur- og norðausturhlutum
landsins, en stjórnarherinn ráði
svæðinu umhverfis höfuðborgina,
Luanda, og norðvesturhlutanum.
Foringjar í
ísraelsher
fyrir rétt
Tel Aviv, 24. m*í. AP.
TVEIR foringjar í ísraelsher
hafa verið ákærðir fyrir aðild að
neðanjarðarhryöjuverkasamtök-
um gyðinga, sem efnt hafa til að-
gerða gegn Palestínumönnum á
Vcsturbakkanum. Hafa þá 27
menn verið sakaðir um aðild að
samtökum af þessu tagi.
Foringjarnir tveir eru sakað-
ir um aðild að tilraun til að
ráða þrjá borgarstjóra úr röð-
um Palestínumanna af dögum
fyrir fjórum árum síðan. Tveir
borgarstjóranna týndu lífi er
bílsprengjur sprungu fyrir
utan heimili þeirra.
Foringjarnir eru m.a. ákærð-
ir fyrir að láta hjá líða að til-
kynna lögreglu um sprengjurn-
ar, sem þeir vissu af. Voru for-
ingjarnir báðir vitni að því er
sprengjurnar sprungu.
Kúbumenn ekki til
Ól. að ráði Rússa
þing Evrópuráðsins vill framtíð-
arstað leikanna í Grikklandi
Meiíkóborg, 24. maí. AP.
Lítil von um sættir í
deilu málmiðnaðarmanna
Kúbumenn ákváðu að fara að áskorun Sovétmanna og hætta við þátttöku
í Olympíuleikjunum í Los Angeles í sumar og báru því við að framkvæmda-
aðilar leikanna hefðu „brotið ólympíureglur". Ákvörðunin, sem ólympíuleið-
togar segja af pólitískum toga, kemur ekki á óvart.
Stult(*rt. 24. maí. AP.
Samningaviðræður hófust að nýju
í deilu málmiðnaðarmanna, en full-
trúar deiluaðila voni fremur vonlitlir
að árangur næðist. Verkfallsmenn
krefjast 35 stunda vinnuviku í stað
40 og að laun verði ekki skert við
vinnustundafækkunina. Vinnudeil-
urnar eru hinar verstu í V-Þýzka-
landi í sex ár. Vegna þeirra eru 250
þúsund manns verklausir, hluti
þeirra vegna verksmiðjulokunar,
sem vinnuveitendur hafa grípið til.
Þannig hyggst Volkswagen loka
samsetningarverksmiðjum sfnum
í næstu viku vegna skorts á ýms-
um bifreiðahlutum. Hefjast lokan-
ir á mánudag og missa 113.500
starfsmenn í sex verksmiðjum þá
tekjur. Stjórnin í Bonn hefur úr-
skurðað að vinnuveitendur séu
ekki skyldugir að greiða starfs-
fólki laun, sem þeir loka úti vegna
verkfallsaðgerða málmiðnaðar-
manna.
Talsmenn málmiðnaðarmanna
segjast ekki slaka á kröfunni um
35 stunda vinnuviku, en myndu þó
fallast á aðlögunartima, þannig að
vinnuvikan styttist f 39 stundir á
fyrsta ári, 38 á öðru o.s.frv. Að
þeirra sögn myndu starfstækifæri
opnast fyrir eina milljón manna
með styttingu vinnuvikunnar inn-
an tveggja ára. Atvinnurekendur
segja launakostnað hækka milli 14
og 18% ef af styttingunni yrði og
þar með yrði framleiðsla þeirra
ósamkeppnishæf á stórum mörk-
uðum.
1 tilkynningu kúbönsku
ólympíunefndarinnar sagði að að-
búnaður f Los Angeles fyrir
fþróttamenn, dómara og aðra leið-
toga, væri óviðunandi og öryggi
ótryggt. Eru það sömu viðbárur og
hjá Rússum, en menn, sem kunn-
ugir eru málum, segja kommún-
fska ráðamenn óttast fjöldaflótta
íþróttamanna.
Tilkynning Kúbumanna var birt
á sama tfma og leiðtogar Alþjóða-
ólympíunefndarinnar komu til
Prag til að reyna fá kommúnista-
ríkin ofan af þvf að hætta við þátt-
töku f sumarleikunum. Ræða þeir
þar við ólympfuleiðtoga 11 ríkja,
en níu þessara ríkja hafa sfðustu
daga ákveðið að hætta við að fara
til Los Angeles.
Á fundinum eru einnig fulltrúar
Norður-Kóreu og Rúmeníu, en
Rússar hafa lagt hart að þeim síð-
arnefndu að hætta við þátttöku.
Fundað er á hóteli, sem eingöngu
er notað til að hýsa kommúnista-
leiðtoga og aðra fyrirmenn, sem
koma til Prag. öflug girðing er
umhverfis bygginguna og strar.g-
ur vörður um húsið og lóðina allan
sólarhringin. Sfmanúmerum hót-
elsins er haldið leyndum.
Þing Evrópuráðsins skoraði í
dag á Alþjóðaólympfunefndina að
ákvarða ólympiuleikunum fastan
samastað til frambúðar í Grikk-
landi til þess að komast megi hjá
pólitískri heimasetu þátttöku-
þjóða f framtíðinni. f ráði er að
leikarnir fari fram í Grikklandi
1996, en þar fóru þeir fram 1896,
er leikarnir voru endurreistir úr
fornum sið.
Meginmarkmið EFTA að
draga úr atvinnuleysi
Visby 23. m*í. Frá bladarainni Mbl., Magnúai Sigurfttwyni.
MKGINMARKMIÐ okkar hlýtur að vera að draga úr
atvinnuleysinu, sagði Olaf Palme, forsætisriðherra
Svfþjóðar, í upphafl fundar með blaðamönnum þar
sem hann gerði grein fyrir yfirlýsingu þeirri, sem
samþykkt var i fundi EFTA-riðherranna er lauk hér í
Visby í dag. I yfírlýsingu þessari var m.a. lögð ihersla
i að EFTA ætti ifram að gegna mikilvægu hlutverki f
efnahagssamvinnu þjóðanna, bæði innan Evrópu og í
heiminum í heild.
í yfirlýsingunni segir ennfremur að vinna beri
að aukinni framleiðni, efnahagsöryggi, batnandi
Iffskjörum fólks og aukinni heimsverslun og
áframhaldandi afnámi á hvers konar hömlum f
viðskiptum þjóðanna. Um allan heim hafi atvinnu-
leysi komist á alvarlegt stig. Stjórnir EFTA-
landanna hljóti þvf að leggja áherslu á að auka
þann efnahagsbata, sem nú hefur orðið í heimin-
um. Stjórnir EFTA-landanna lýsa jafnframt yfir
eindregnun stuðningi við alla viðleitni til afnáms á
þeim verndarráðstöfunum sem nú eru fyrir hendi.
Ekki verða lagðar hömlur á ferðamannastarfsemi
rfkja og þar haft f huga mikilvægi slfkrar starf-
semi bæði fyrir efnahagslff hinna einstöku landa
en einnig fyrir mannleg samskipti yfirleitt.