Morgunblaðið - 25.05.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
15
Bjargað á síðustu stundu
Segja má, að hurð hafi skollið nærri hælum þegar aðstoðarnautabaninn Manuel Rodriguez féll kylliflatur beint
fyrir framan óða bolann, sem gerði sig að sjlfsögðu líklegan til að reka Manuel i gegn. Aður en honum tókst það
kom hins vegar aðalnautabaninn, Damaso Gonzales, á vettvang og tældi til sín tuddann með rauðu dulunni
sinni. Atburðurinn átti sé stað í Madrid um síðustu helgi. AP.
Launahækkun til
sænskra ráðherra
Stokkhólmi, 24. maí. Frá Erik Liden, frétUriUra Mbl.
LAUN SÆNSKRA ráðherra hækka 1. janúar næstkomandi úr 18
þúsund krónum sænskum á mánuði í 26 þúsund, sem jafngildir
tæplega eitthundrað þúsund krónum.
Jafnframt hafa laun ráðherra
verið hækkuð um fjögur þúsund
krónur frá 1. janúar sl. að telja.
Að þessari niðurstöðu komst sér-
stök nefnd, sem fyrrum forsvars-
maður sænsku launþegasamtak-
anna, LO, veitti forstöðu.
Einnig var ákveðið að ráð-
herralaun skuli framvegis vera
25% hærri en laun hæstaréttar-
dómara, og laun forsætis-
ráðherra 10% hærri en annarra
ráðherra. Ráðherrar sem búa
lengra en 70 km frá Stokkhólmi
fá einnig sérstakan skattafrá-
urau, sem nemur o. rzu Kronum
sænskum á mánuði.
Danskir ráðherrar hafa jafn-
virði 33 þúsunda sænskra króna í
mánaðarlaun, finnskir 27 þúsund
og norskir 24,5 þúsund. Laun
sænskra ráðherra hafa verið svo
til óbreytt frá 1977.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Nóbelsnefnd talar
máli Sakharovs
Ostó, 24. maí. AP.
Nóbelsnefndin norska hefur sent
Konstantin Chernenko, formanni
sovézka kommúnistaflokksins, bréf,
þar sem látnar eru í Ijós áhyggjur og
vonbrigði með þá meðferð sem And-
rei Sakharov og kona hans, Yelena
Bonner, hafa hlotið.
„Nefndin telur það skyldu sína
að óska eftir því að Andrei Sakh-
arov og Yelena Bonner fái að yfir-
gefa Sovétríkin ef þau kjósi," segir
í bréfi nefndarinnar.
Einnig segir í bréfinu að ef þeim
hjónum yrði leyft að yfirgefa Sov-
étríkin yrði litið á það sem mann-
úðarverk, og slík ákvörðun yrði til
að draga úr spennu og auka frið-
arvonir.
Tékkóslóvakía:
Leiðtogi Charta ’77
dæmdur í fangelsi
London, 24. maí. AP.
LADISLAV Lis, helsti leiðtogi hinna bönnuðu tékknesku mannréttindasam-
taka Charter 77, hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að
óhlýðnast fyrirmælum um að gefa sig daglega fram við lögregluna í Prag.
Það var Palach Press, stofnun í
London sem sérhæfir sig í upplýs-
ingum frá Tékkóslóvakíu, sem
greindi frá þessu í gær.
Lis, sem er 58 ára að aldri, var
látinn laus úr haldi 5. mars sl. eft-
ir að hafa setið inni í 14 mánuði
fyrir óleyfilega stjórnmálastarf-
semi. Honum var hins vegar gert
að hafa daglegt samband við lög-
reglu og skýra henni frá öllum
ferðum sínum næstu þrjú árin.
Dvöl Lis í sumarhúsi í Bæheimi
tvær helgar í röð, sem honum láð-
ist að skýra lögreglunni í Prag frá,
varð tilefni handtöku hans og hins
nýja dóms.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings:
Bannar íhlutun
í Mið-Ameríku
Washington, 24. maí. AP.
Fulltrúadeild Bandarfkjaþings
samþykkti í gærkvöldi með mikl-
um meirihluta atkvæða, að banna
bandarískum hersveitum að taka
þátt í hernaðaraðgerðum í El
Salvador og Nicaragua, nema til
komi sérstök samþykkt Banda-
ríkjaþings eða, við sérstakar að-
stæður, annarra valdhafa í land-
inu.
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti sagði á blaðamannafundi
á þriðjudag, að hann sæi ekki
fram á að neinar þær aðstæður
myndu skapast sem heimtuðu
hernaðarleg afskipti Banda-
ríkjamanna í ríkjum Mið-
Ameríku.
Fyrsta vasa-
litasjónvarpið
JAPANSKA rafeindafyrirtækið Seiko
hefur framleitt vasalitasjónvarp, hið
fyrsta sinnar tegundar, að sögn fram-
leiðendanna.
Talsmenn fyrirtækisins segjast
hafa tveggja ára forskot á aðra
framleiðendur, sem ekki hafa náð
tökum á tækni til framleiðslu sjón-
varpsskjásins.
Vasalitasjónvarp Seiko vegur 450
grömm og er með tveggja tommu
skjá. Verðið verður á bilinu 500—550
dollarar. Tækið kemur á markað i
ágústmánuði. Fyrst um sinn verður
einvörðungu hægt að taka á móti
sjónvarpsmerki á tæki þetta í Japan
og Bandaríkjunum, en tæki fyrir
evrópska kerfið ætti að vera komið á
markað eftir um tvö ár, að sögn
talsmanna Seiko.
Kalmar
hefur það sem þarf
í nýja Kalmar-eldhúsinu sameinast nútímaþægindi, skemmtileg
hönnun og síöast en ekki síst hagstætt verö.
Viö bendum húsbyggjendum og öörum sem þurfa aö endurnýja
gamlar innréttingar á, aö viö getum nú vegna hagstæöari samn-
inga boöið betra verö en áöur á nokkrum geröum eldhúsinnrétt-
inga og fataskápa.
ATHUGIÐ að pantanir sem eiga að afgreiðast fyrir sumarleyfi
þurfa að hafa borist fyrir 10. júní nk.
Líttu viö í sýningarsal okkar eöa fáöu heimsendan bækling.
Kaímar
Skeifan 8 Reykjavík
Sími 82011