Morgunblaðið - 25.05.1984, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
*
Ovenju-
legt bruna-
útkall á
Fáskrúðs-
firði
Fáskrúðsfirði, 24. maí.
FREMUR óvenjulegt brunaút-
kall átti sér stað hér á Fá-
skrúðsfirði, þar sem starfsmenn
Rafmagnsveitna rikisins voru
að brenna rusli rétt við höfuð-
stöðvar sínar, hér utan við bæ-
inn. Ekki viidi betur til en svo að
það kviknaði í tjörubornum há-
spennustaurum sem þar voru
rétt hjá. Það voru hæg heima-
tökin að kalla út slökkviliðið og
slökkva eldinn, þar sem raf-
veitustjórinn og slökkviliðs-
stjórinn eru einn og sami mað-
urinn. Gekk slökkvistarfið fljótt
og vel, en háspennustaurarnir
eru eitthvað skemmdir.
Albert
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamióill!
Úrval flytur
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval flutti höfuðstöðvar sínar yfir í Póst-
hússtræti 13 um síðustu helgi. Myndin var tekin við það tækifæri af
starfsfólki ferðaskrifstofunnar og forstjóranum, Karli Sigurhjartarsyni,
ásamt Eiríki Fjalar, sem lék hlutverk „barnafararstjóra“ sl. laugardag
og stjórnaði ókeypis skoðunarferðum um borgina.
Starfandi á hinni nýju skrifstofu Úrvals eru nú 16 manns og sölu-
stjóri er Ingibjörg Engilbertsdóttir.
Bandarísk rannsókn
á styrkveitingum í
sjávarútvegi Kanada
ÓTHAR Hansson, solustjóri Cold-
water Seafood Corporation, var í upp-
hafi þessa mánaðar kjörinn forseti
American Seafood Distributors As-
sociation, hagsmunasamtaka þeirra,
sem hlynntir eru haftalausum inn-
flutningi sjávarafurða til Bandarfkj-
anna. Othar er nú staddur hér á
landi í tengslum við aðalfund SH og
ræddi blm. Morgunblaðsins við hann
af því tilefni.
Óthar sagði, að félag þetta hefði
miklu hlutverki að gegna hvað
varðaði hagsmuni okkar í Banda-
ríkjunum. Það hefði upphaflega
verið stofnað fyrir atbeina Jóns
Gunnarssonar og hefði annað
hvort íslenzku félaganna ætíð átt
futtrúa í stjórn þess. Félagið væri
aðili að Fiskifélagi Bandaríkjanna
og sem forseti félagsins ætti hann
sæti í framkvæmdaráði Fiskifé-
lagsins, en hann hefði áður verið
forseti 1972 til 1974.
Othar Hansson, sölustjóri Cold-
water og forseti American Seafood
Distributers Association.
MorKunblaðið/Ól.K.M.
Þá sagði Othar, að samkvæmt
bartdarískum lögum væri heimilt
að setja tolla á innfluttar vörur,
sem ættu í samkeppni við innlend-
an iðnað, væri það sannað, að inn-
flutningurinn og sá iðnaður, sem
stæði að baki honum, nyti opin-
berra styrkja í heimalandinu og
nyti þannig betri stöðu en banda-
rískur iðnaður. Nú hefðu sjó-
mannasamtökin í Nýja Englandi
krafizt rannsóknar á styrkveiting-
um til kanadísks sjávarútvegs og
yrði það sannað, að hann nyti
styrkja, þýddi það tolla á kan-
adíska fiskinn. Það væri ekki vafi á
því, yrði sú raunin, að við og Norð-
menn myndum sæta sams konar
rannsókn. Bezt væri að íslendingar
kæmust hjá því, að þurfa að út-
skýra fyrir rannsóknarnefnd í
Bandaríkjunum hvernig sjóðakerfi
sjávarútvegsins væri háttað. Nógu
erfitt væri að útskýra það fyrir
okkur sjálfum.
í Húsi verslunarinnar vid Kringlumýrar&ravI
Borðapantanir
í síma 30400
i Húsi verslunarinnar viö KringlumýrárSravt
Sex ára börn
gróðursetja tré
SEX ARA börn í Árbæjarskóla munu
á morgun gróðursetja tré í sérstök-
um reit skammt frá skólanum.
Hvert barn mun gróðursetja eina
plöntu og munu börnin fylgjast með
vexti og viðgangi trjánna á meðan
þau verða f skólanum.
Sérstakt svæði hefur verið tekið
frá og er áætlað að reiturinn dugi
til gróðursetningar næstu 10 árin
og munu sex ára börn gróðursetja
tré ár hvert. Jón Árnason, skóla-
stjóri Árbæjarskóla, mun gróð-
ursetja fyrstu plöntuna klukkan 9
í fyrramálið. Foreldra- og
kennarafélag Árbæjarskóla á
hugmyndina að gróðursetningu
plantnanna. Foreldrar sex ára
barna eru hvattir til að koma í
skólann og hjálpa börnum sínum
að gróðursetja plönturnar.
Ahríf „símvirkjafrísins“ óveruleg:
Verða símvirkj-
ar hýrudregnir?
„ÞRIGGJA daga fríi“ simvirkja lauk í gær og er þess vænst að símvirkjar
hjá Pósti og síma mæti á nýjan leik til vinnu í dag, en þeir hafa látið í veðri
vaka að þeir muni fara sér hægt við störf sín, til þess að árétta kröfu sína um
að þeir fái samskonar yfirborgun og félagar í BHM hjá Pósti og síma.
Samkvæmt því sem Sigurður Þorkelsson, deildarstjóri tæknideildar Pósts og
síma, sagöi, er áhrifa þessa „frís“ símvirkjanna ekki farið að gæta í miklum
mæli enn sem komið er.
Sigurður sagði að framkvæmd-
ir, sem í gangi væru, hefðu eitt-
hvað tafist, en ef engar meirihátt-
ar bilanir kæmu upp á, þá gætti
áhrifa af þessum aðgerðum sím-
virkjanna í takmörkuðum mæli.
Aðspurður um fjölda þeirra sem
tekið hefðu þátt í þessum aðgerð-
um símvirkjanna, svaraði Sigurð-
ur: “Ég tel að um 60 símvirkjar
hafi verið í þessu verkfalli sem
símvirkjarnir boðuðu. Ég get ekki
talið með þá, sem þegar höfðu afl-
að sér leyfis til þess að taka hluta
af sumarfríi sínu nú, né heldur þá
sem tilkynnt hafa veikindi."
Sigurður var að því spurður
hvort ákvörðun hefði verið tekin
um það hvernig tekið verður á
þessari „frítöku" símvirkjanna og
sagði hann þá: „Það hefur ekki
verið endanlega ákveðið. Við verð-
um að bíða þar til símvirkjarnir
koma aftur til vinnu og skýra sitt
mál. Ef þeir tilkynna veikinda-
forföll eftir á, þá verður afstaða
tekin til þess síðar. Þegar sím-
virkjar voru síðast með svona að-
gerðir, og það var til umræðu
hvernig skyldi tekið á þeim, þá
kom skipun frá ráðuneytinu um að
dregið skyldi af launum þeirra
sem tóku sér frí, þannig að þeir
misstu einn tíma í yfirvinnu fyrir
hvern tíma sem þeir voru fjarver-
andi.“
Hinir ranglátu fengu
ljósálf til að lýsa
sér til betri vegar
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók tvo pilta á þriðjudag og
hafa þeir viðurkennt að hafa brotist
inn í skrifstofu Rauða krossins
kvöldið áöur. Þeir stálu þaðan ávís-
anahefti og búnka af happdrættis-
miðum úr smámiðahappdrætti
Rauða krossins. Sátu þeir með
sveittan skallann frameftir nóttu og
tóku upp miða í von um stóra vinn-
inginn. Hinir ranglátu fengu aðeins
einn vinning — lítinn Ijósálf,
væntanlega til þess að lýsa þeim til
betri vegar.
Piltarnir höfðu áður brotist inn
í fyrirtækið Heinko í Suðurgötu og
stolið þremur leðurjökkum,
myndavél og þremur linsum.
Einnig brutust þeir inn í tízku-
verzlunina í Fjalakettinum og
stálu þaðan fötum.
Tveir menn voru handteknir í
fyrrakvöld eftir að hafa brotist
inn í fyrirtæki á Laugavegi 66.
Einn eigandanna kom að þjófun-
um og gerði lögreglu viðvart.
Mennirnir höfðu brotið upp hurðir
og rótað í hirzlum, en haft lítið
upp úr krafsinu.
„Tender Mercies“
í Regnboganum
REGNBOGINN hefur tekið til
sýninga kvikmyndina „Tender
Mercies". Aðalhlutverk leika Rob-
ert Duval, Tess Harper, Allan
Hubbard og Betty Buckley. Mynd-
in fjallar um vinsælan söngvara,
sem vegna áralangrar ofdrykkju
og ólifnaðar er á niðurleið. Hann
giftist í annað sinn og með sinni
nýju eiginkonu nær hann að sigr-
ast á vonbrigðum, sorgum og ýms-
um erfiðleikum.
Ilannes Sigurðsson
Guðni Franzson
Ú tskriftartónleikar
Tónlistarskólans
Tvennir útskriftartónleikar verða
á vegum Tónlistarskólans í Reykja-
vík nú fyrir helgina.
Þeir fyrri verða í dag kl. 6 síð-
degis í sal skólans í Skipholti 33.
Þá tekur Hannes Sigurðsson
burtfararpróf í flautuleik og leik-
ur verk eftir C. Ph. E. Bach,
Rachmaninoff, John Speight og
Hindemith. Guðrún Anna Tóm-
asdóttir leikur með á píanó.
Á laugardag kl. 2.30 lýkur
Guðni Franzson síðari hluta ein-
leikaraprófs síns og leikur í Aust-
urbæjarbíói verk eftir Milhaud,
Weber, Messiaen, Brahms og
Hróðmar Sigurbjörnsson. Snorri
Sigfús Birgisson leikur með á pí-
anó.
Aðgangur að báðum tónleikun-
um er ókeypis og öllum heimill.