Morgunblaðið - 25.05.1984, Side 24

Morgunblaðið - 25.05.1984, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984 Vindmyllan í Grímsey — eftir Örn Helgason Inngangur Um átján mánaða skeið hafa staðið yfir tilraunir í Grímsey með beislun vindorku til húshit- unar. í tilraunamyllu er reynt að nýta vindorku beint til hitunar vatns með núningi í svonefndri vatnsbremsu. Myllukerfið er tengt tveimur húsum syðst á eyjunni og ætlunin er að hita þau með þessari aðferð og nota olíukyndingu sem varaafl. Þessi áðferð er í mörgum mikilægum atriðum frábrugðin hefðbundnum rafmagnsmyllum. Tilraunir með vatnsbremsu hafa verið gerðar erlendis og hefur ver- ið stuðst við þær, svo langt sem þær ná. Hins vegar er ekki vitað til að reynt hafi verið að stjórna afli myllu með vatnsbremsu með breytilegri hemlun, sem er aðal- inntakið í tilrauninni í Grímsey. Að mínu mati opnar þessi aðferð leiðir til nýtingar vindorku við hærri vindhraða en annars staðar hefur verið gert. Tel ég að þetta geti skipt sköpum við það veðurfar sem ríkir hér víða. Þá vil ég nefna að allt stjórnkerfi í mastrinu, þar sem veðuráraun er mest, er miklu einfaldari í þessu kerfi og myllu- smíðin öll verður viðráðanlegri ís- lenskum iðnaði. í tilrauninni hafa komið upp margskonar erfiðleikar. Gildir það bæði um þá þætti, sem taldir voru vel kannaðir annars staðar, og nýjungar, sem bryddað var upp á hér. I kjölfar þessara tilrauna hafa orðið nokkrar umræður um gang verksins, hvernig staðið hef- ur verið að málum og hvort ekki megi einfaldlega fá þetta allt er- lendis frá. Ég tel því rétt að gera nokkra grein fyrir þessu verki, jafnframt því sem ég hef tekið saman stutt yfirlit um tilraunir og verð á nokkrum erlendum raf- magnsmyllum. Erlendar myllur til rafmagnsframleiðslu Nýting vindorku á að baki langa sögu, sem ekki verður rakin hér. Hins vegar er ekki nema einn ára- tugur liðinn síðan raunverulegar tæknirannsóknir komu hér inn í myndina. Danskar skýrslur um bilana- tíðni í nýjum myllum sýna vel, hve miklar framfarir hafa orðið á síð- ustu fjórum árum. 1980 voru um 50% líkur á alvarlegum bilunum og örðugleikum í hverri nýrri myllu, en þessi tala var komin niður í um 5—10% á síðasta ári í þeim gerðum sem best hafa reynst. Danir framleiða um 300 myllur á ári um þessar mundir og eru sjö til átta fyrirtæki stærst í þessari grein. Þeir virðast hafa nokkuð forskot fram yfir aðrar þjóðir um þessar mundir og eru einu útflytjendur til Bandaríkj- anna, sem nokkuð kveður að. Þær myllur sem náð hafa bestum ár- angri eru millistórar myllur, með „Það er því of snemmt að ræða hvort og hvar nýting vindorku með þessar aðferð verði hag- kvæm. Sennilega má með núverandi gögnum fá sæmilega mynd af stofnkostnaði myllu sem þessarar, en keyrslu um lengri tíma þarf til að fá áreiðan- lega mynd af rekstrar- kostnaði og þar með raunverulegt orkuverð.“ 15—18 metra þvermál á spaða og um 20 metra háan turn. Hámarks- aflið er 30—55 kw og eru þær tengdar beint við rafnetið. Snún- ingshraðinn vex með auknum vindstyrk í um 12—13 m/s (tæp sex vindstig) en þá er fullu afli náð og síðan breytist hann ekki og rafnetið er látið halda við í stað þess að breyta skurði blaða. Þessi aðferð hefur stórbætt rekstrarör- yggið, en krefst þess að aflrafnetið sem stýrir myllunni sé a.m.k. 10 sinnum stærra en hámarksafl myllunnar. Þessi stýring kemur því ekki til greina hér á landi, nema í beinum tengslum við aðalrafkerfí landsins. Verð orku frá slíkum myllum í Danmörku er enn sem komið rúmlega tvisvar sinnum hærra en verð á orku frá olíuraf- orkuverum. Hins vegar leiða ýms- ar ívilnanir, í sköttum og á lána- markaðnum, til að þetta getur verið hagstætt fyrir kaupandann. Að baki liggja pólitískar ákvarð- anir t.d. um eflingu iðnaðar, bar- átta gegn atvinnuleysi, öryggi í orkumálum og samkeppnisaðstaða á erlendum mörkuðum. í Bandaríkjunum hafa einnig verið gerðar víðtækar tilraunir með netstýrðar myllur. Kaliforn- íumenn eru hér langstærstir í sniðum, t.d. eru Suður-Kaliforn- ísku rafveiturnar með 400 Fayette myllur í Altamont-skarði. Þessar myllur eru um 50—70 kw, en ein- faldar í sniðum vegna stöðugrar vindstefnu. Fyrsta árið, 1981, voru að jafnaði um 120 myllur í lama- sessi, en með stöðugum endurbót- um og framförum var þessi tala í fyrra komin niður í um 40. Spaða- og gíraskemmdir eru algengustu vandræðin. Framleiðsluverð á kwst er þar um 10 cent eða 3 kr, en þar eins og í Danmörku hlaupa skattaívilnanir undir bagga. Með stofnkostnaði er kwst. metin á 17 cent (5 kr.), en mjög erfitt er að meta forsendur þessa verðs, m.a. vegna lítillar reynslu um raun- verulegan rekstrarkostnað. Til eru einnig myllur sem fram- leiða gæðarafmagn, þ.e. rafmagn með stöðugri tíðni og spennu, án þess að tengjast rafnetinu. Þessar myllur eru með flókin stjórnbúnað á skurði spaða og eru þær enn sem komið er bæði öllu dýrari og hafa mun lakara gangöryggi. Þær myll- ur af þessu tagi sem eitthvað kveður að eru flestar reknar sem tilraunamyllur af opinberum aðil- um. Þá má nefna að í gangi er norrænt samvinnuverkefni, þar sem dísilstöð kemur inn sem bakstýring, en þetta er enn á til- raunastigi. ( Þá komum við að myllum sem framleiða rafmagn einungis til hitunar. Slíkar myllur eru í raun öllu einfaldari, en þó verður ekki komist hjá stjórnun á snúnings- hraða, þar sem vindafl vex hraðar með vindhraðanum en afl rafals- ins vex með snúningshraða. Er- lendis er þetta leyst t.d. með að skjóta inn aukaálagi og láta nægja að fylgja fullum afköstum í 12—16 m/s (6 til 7 vindstig), enda gefur vindfar ekki tilefni til annars víð- ast hvar. Af því sem hér hefur komið fram held ég að ljóst megi vera að nýting vindorku er enn á tilraunastigi erlendis, þó mikið hafi miðað síðustu fjögur árin. Erlendar myllur á Islandi En hvernig henta þessar myllur við veðurfar á þeim stöðum hér á landi þar sem nýting vindorku er áhugaverð? Til að svara þessari spurningu langar mig að sýna myndir til skýringa. Á mynd 1 er ársorka vinds flokkuð eftir vind- stigum á tveimur stöðum, annars vegar í Reykjavík og hins vegar í Grímsey. Af myndinni má vel ráða hve aðstæður geta verið mis- munandi. Næst skulum við líta á mynd 2. Þar er sýnt hvernig vind- afl breytist með vindhraða. Heila línan sýnir að vindafl vex mjög hratt með auknum vindstyrk. T.d. er aflið við 20 m/sek vindhraða (um 8 stig) átta sinnum meira en við 10 m/sek (5 vindstig). Á mynd- inni er einnig sýnt hvernig hefð- bundin rafmagnsmylla vinnur og er þá gert ráð fyrir að hún sé kom- in í hámarksafköst við 13—15 m/sek. Þetta er lárétti ferillinn á mynd 2. í Reykjavík, á Akureyri og víðast erlendis skilar þetta sér ágætlega, en hvað með Grímsey? Hér er vindafar allt annað og á mynd 3 er sýnt hvernig slík mylla nýtir vindinn þar. Dökku súlurnar sýna framleiðslu á hefðbundinn hátt, en þær ljósu eru hvað mætti fá með hönnun, sem næði valdi á hærri vindhraða. Hér er eftir svo miklu að slægjast, að spurningin vaknaði hvort ekki væri rétt að leita nýrra leiða. Ef þetta tækist, þyrfti mylla, sem tæki inn fullt afl í um átta vindstigum, aðeins að hafa þvermál spaða 8—9 metra, til að ná svipaðri ársorku og mylla með 15 metra spaða, sem fer í fast afl við 6—7 vindstig. Þetta er mjög mikilvægt atriði, ekki síst ef við vjljum huga að hvort innlend myllusmíði kemur til greina. Það voru hugleiðingar sem þess- ar sem ollu því að spurt var hvort aðrar leiðir en raforkuframleiðsla komi til greina? Bæði í Danmörku og Bandaríkjunum voru gerðar ýmsar tilraunir með vatnsbremsu fyrir um 6—8 árum síðan. Þessar tilraunir sýndu ýmsa ákjósanlega eiginleika, t.d. fylgir afl brems- unnar vindaflinu eftir við alla vindhraða og fræðilega þarf því aðeins að stilla kerfið af einu sinni. (Svo fremi að unnt sé að taka við allri orkunni og myllan þoli áraunina). í öðru lagi reyndist nýtnin hærri en við raforkufram- leiðslu. Munurinn á þessum tveim- ur aðferðum er lítill þar sem vindafar er svipað og menn hafa t.d. á Akureyri, en öðru máli gildir um Grímsey og eiga súlurnar á mynd 3 einmitt að sýna þennan mun. Einnig má segja að þessi mynd sýni, hvernig hefðbundin mylla, án aðlögunar að aðstæðum nýtir vindorkuna, borið saman við þær hugmyndir sem við gerðum okkur. Ljóst er að um verulegan ávinning er að ræða ef þetta tekst. En hvað um kostnaðinn? Þá má einnig spyrja hvort við getum flutt inn erlenda myllu án þess að aðlaga hana aðstæðum hér og ef ekki hver yrði kostnaðurinn við aðlögunina? Verð á rafmagnsmyllum Erfitt er að gefa tæmandi upp- lýsingar um verð á erlendum myll- um, með tilliti til samanburðar á hugsanlegum kostnaði við inn- lenda myllusmíði. Mér vitanlega hefur ekki verið leitað ákveðinna tilboða. Ég vil þó nefna fjögur dæmi um verð erlendis, án þess að leggja dóm á gæði og valið ákvarð- ast af því, að allir þessir aðilar hafa verulega sölu og reynslu. Þrjú þau fyrstu eru dönsk og tekin í norrænum verðlista (3), en Cat- ermyllan er bandarísk. Allar þessar myllur eru stærrí hvað spaðaþvermál snertir en myllan í Grímsey, en sambæri- legar í hámarksafli. Þá má nefna að skýrslur (3) sýna að verðið á orkueiningu er allt að tvisvar sinnum hærra í litlum myllum (minna en 10 kw), en meðalstór- um. Verðið er í öllum tilvikum við verksmiðjudyr, án flutnings og uppsetningar. Þá er smíði á undir- stöðu og lagnir frá myllu ekki innifalið. Um ábyrgð og varahluti gilda mismunandi reglur. Ekkert liggur fyrir um aðlögun- arkostnað, en smá dæmi frá reynslu okkar með Grímseyjar- mylluna mætti nefna. Eins og myllur almennt eru hannaðar er snúningshraði spaða, sem eru um 7 metrar að þvermáli oftast um 100 til 180 snúningar á mínútu. Nordtank NT 30/7,5 11 Bonus 55/11 15 Kuriant KE/4 EH 11 Carter M25 10 30 kw við 14 m/s 55 kw við 15 m/s 18 kw við 12 m/s 30 kw við 14 m/s 220 þús. D.kr 372 þús. D.kr. 137 þús. D.kr. 25 þús. $ „BrúttóafT vindvarmaveitu með vatnsbrem.su getur fylgt þriðja veldisferlin- um á stóru hraðabili. Punktalínan sýnir til samanburðar afl vindrafstöðvar. Munurinn á þessum tveimur aðferðum er orðinn verulegur, þegar komið er í 7—8 vindstig. Súlurit, sem sýnir ársvindorku á fermetra samkvæmt tíðni einstakra vind- stiga í Reykjavík og Grímsey. Reiknað samkvæmt gögnum á mynd 1 og gert ráð fyrir 40%nýtni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.