Morgunblaðið - 25.05.1984, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
Óljós minning
í kvikmyndalíki
Kvikmyndír
ÓlafurM. Jóhannesson
Nafn á frummáli: Persecution.
Handrit: Robert B. Hutton.
Kvikmyndun: Hugh Attwool.
Leikstjórn: Don Chaffey.
Sýningarstaður: Regnboginn.
Stundum kemur það nú fyrir
kvikmyndagagnrýnandann þá
hann yfirgefur bíóhús, að honum
er nánast fyrirmunað að rifja
upp þá bíómynd er hann hefir
rétt lokið við að skyggna. Ekki
vegna þess að gagnrýnandinn
hafi sofnað á myndinni af ein-
skærum leiðindum, heldur
kannski miklu fremur vegna
þess að hann hafði séð myndina
svo oft áður að hún rann á skjá
hugans saman við fjölda ann-
arra mynda um svipað efni. Svo
var um nýjustu kvikmynd
Regnbogans: Ofsóknaræði. Þessi
mynd er svo óhugnanlega lík
fjölda hryllingsmynda er hér
hafa riðið bíóhúsum undanfarin
ár að ekki tókst mér að greina
þar — þó ekki væri nema eina
einustu frumlega senu. Það er
helst að mér hafi þótt ögn frum-
leg sú krufning er fram fór á
aðalillfyglinu Carrie Masters,
hálffimmtugri, bæklaðri hefðar-
frú. En kona þessi var slíkt dus-
ilmenni að vart er hægt annað
en brosa í kampinn yfir ósljósri
endurminningunni. Virtist hún
ekki hafa neitt til að bera er ger-
ir mannfólk eiskulegt og aðiað-
andi utan hrífandi limaburð og
andlit slíkt er geislar af í millj-
ónaborgum.
Það er kannski ekki að furða
Lana Turner sem getið er um í texta sést hér til hægri á myndinni,
andspænis Trevor Howard sem bregður þar fyrir sekúndubrot.
þótt kvikmyndagagnrýnandinn
hafi hrifist af fegurð þessarrar
„hálfsjötugu" konu því engin
önnur en Lana Turner leikur
Carrie Masters. Þegar haft er í
huga að Lana Turner er fædd
1920 og á að baki sér ótrúlega
annasaman feril í kvikmyndum
og sjónvarpi, þá verður manni
orðs vant — hvílík fegurð! Það er _
raunar oft svo með fagrar konur
að þær verða eins og fágaðir eð-
alsteinar, með aldrinum markist
andlit þeirra sólskinshrukkum.
Lana Turner hefir hinsvegar
greinilega lagt hart að sér við að
hylja hrukkurnar. Þykir mér
næsta víst að hún hefi látið
strekkja húð sína all hressilega
aftur á hnakka. En þetta getur
ríka fólkið gert, það getur haldið
æskublómanum lengur en við
hin með aðstoð hinna færustu
manna og svo er sagt að hinir
fátæku erfi jörðina.
Æ ég gleymdi því að ég ætlaði
víst að lýsa örlítið nánar aðal-
persónu þessarar nýjustu mynd-
ar Regnbogans, hinni ágætu frú
Carrie Masters er hin guðdóm-
lega Lana Turner leikur, en nú
er ég bara alveg búinn að gleyma
þeirri persónu. Þegar haft er í
huga að Carrie Masters er eina
persóna myndarinnar sem
eitthvað kveður að þá má ljóst
vera að hér er ekki feitan gölt að
flá fyrir bíógesti. En til hvers þá
að skrifa um svona mynd? Ég er
þeirrar skoðunar að kvikmynda-
rýni eigi ekki bara að fjalla um
afreksmyndir heldur einnig um
ruslið. Réttsýn gagnrýni á ekki
síður að vara vid óæti en benda á
lostæti. Þótt undarlegt megi
virðast er þessi verkháttur ekki
síður kvikmyndahússeigandan-
um í hag en kvikmyndahússgest-
inum, því menn leggjast síður i
bíóferðir, hafi þeir glapist af bíó-
auglýsingu.
Skagafjörður:
Vel heppnaðir vortón-
leikar Tónlistarskólans
Jón Pálsson, skólastjóri, afhendir skákverðlaun í yngri flokki.
(Morgu nblaAid/ÓB.)
Skólaslit á
Skagaströnd
Skagaströnd. 18. maí.
Skagaströnd, 18. maí.
MIÐVIKUDAGINN 16. maí var
Hörðaskóla slitid. Viö þetta tækifæri
afhenti sveitastjóri Höfðahrepps,
Lárus Æ. Guðmundsson, skólastjór-
anum Jóni Pálssyni, formlega ný-
byggingu þá sem byggð hefur verið
við gamla skólahúsið á undanfiirn-
um árum.
Með nýbyggingunni má segja að
öll aðstaða til skólahalds hér á
Skagaströnd hafi gjörbreytst. í
Nýbyggingunni eru meðal annars
kennslueldhús, smíðastofa, eðlis-
fræðistofa, stofa til teikni- og
tónlistarkennslu, auk bókasafns-
aðstöðu.
Nýja byggingin hefur verið
nokkuð lengi í smíðum og kemur
þar margt til. í fyrstu neitaði t.d.
Menntamálaráðuneytið að viður- .
kenna 9. bekk á staðnum og tafði
það málið framanaf.
Við skólaslitin var skólastjóra
einnig afhent veifa frá UMFi með
kveðju og þakklæti fyrir góðar
móttökur í vetur er stjórn UMFÍ
hélt fund sinn í skólanum.
í skólaslitaræðu skólastjóra
kom fram að í vetur stunduðu 130
nemendur nám við skólann og er
það nokkur fækkun frá árinu áð-
ur. Kennarar skólans voru 11, þar
af voru 7 fastráðnir í fullar stöður.
en áðrir voru stundakennarar. 10
nemendur voru brautskráðir úr 9.
bekk. ÓB.
ÁTTUNDU vortónleikar Tónlist-
arskóla Skagafjarðarsýslu voru
haldnir á Hofsósi föstudagskvöldið
11. mai og í Árgarði, Lýtingsstaða-
hreppi sunnudagskvöldið 13. maí.
Með þessum tónleikum var skólan-
um slitið að þessu sinni.
Nemendur skólans sáu um vand-
aðan tónlistarflutning, sem bar þeim
og kennurum skólans gott vitni.
Margrét Stefánsdóttir frá Víðidal
hlaut hæstu einkunn yfir skólann,
9,4, og hún fékk einnig úthlutun úr
minningarsjóði Aðalheiðar Erlu
Gunnarsdóttur frá Syðra-Vallholti,
en sá sjóður styrkir efnilega nem-
endur til tónlistarnáms.
Skólinn hefur haft úrvals
starfskröftum á að skipa undan-
farin ár. Kennarar skólans voru
fimm í vetur, en nemendur um 120
talsins. Kennt var á píanó, orgel,
gítar, blokkflautu, klarinett,
harmoniku og auk þessara hljóð-
færa var söngkennsla við skólann.
Kennarar skólans hafa auk starfs-
ins við skólann sinnt tónlistarmál-
um s.s. kórstjórn, organistastörf-
um við messur o.fl. Ljóst má því
vera, hversu mikill fengur er í
slíku hæfileikafólki þegar litið er
til tónlistarmála á breiðum
grundvelli. Norskur maður, Einar
Schwaiger, hefur starfað við skól-
ann frá árinu 1978 og undanfarin
tvö ár veitt honum forstöðu með
mjög góðum árangri. Einar hefur
nú sagt starfi sínu lausu og mun-
um við Skagfirðingar sjá á bak
mjög hæfum tónlistarmanni og
stjórnanda.
Formaður Tónlistarfélags
Skagafjarðar, Heiðmar Jónsson,
kennari við Steinsstaðaskóla,
þakkaði farsæl störf Einars, þegar
hann var kvaddur á tónleikunum á
Hofsósi. Einn skólanefndar-
manna, sr. Þórsteinn Ragnarsson,
prestur á Miklabæ, færði Einari
og frú hans málverk eftir Elías B.
Halldórsson, listmálara, að gjöf
frá Tónlistarskólanum, sem
þakklætisvott fyrir vel unnin störf
í þágu menningar- og tónlistar-
mála í Skagafirði. Málverkið er
olíumálverk af isl. landslagi málað
í rammíslenskum litum og þótti
vel við hæfi að þannig hefðu þau
hjónin Island með sér til Noregs.
Kennarar við skólann, auk Ein-
ars, eru: Anna K. Jónsdóttir frá
Mýrarkoti, Anna Einarsson,
Skaatan, prestsfrú á Hólum, og
tékknesku hjónin Iri og Stanislava
Hlavacek, sem starfað hafa við
skólann í tvo vetur.
Þess skal að lokum getið að góð
aðsókn var að þessum tónleikum
og mjög góður rómur gerður að
tónlistarflutningi nemenda.
Kaffiveitingar og hugguleg
samvera var síðan lokaþáttur
þessara velheppnuðu tónleika.
Þórsteinn.
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Og meira stuð
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
HÁSKÓLABÍÓ: FOOTLOOSE
AUSTURBÆJARBIÓ:
BREAKDANCE
Þessar tvær myndir eiga ým-
islegt sameiginlegt. Þær fjalla
um unglinga, hverra aðaláhuga-
mál eru fjörug tónlist og dans.
Báðar eru þær í einfaldari kant-
inum hvað efnisþráð og handrit
snertir, eru e.k. nútíma ævintýri;
pilturinn í Footloose dansar
ánægju og endurvekur lífsgleði I
hjörtu heils bæjarfélags og
krakkarnir í Breakdance hafna á
leiksviði á Broadway. Minna
mátti ekki gagn gera. Það má
segja að samtöl og söguþráður
beggja myndanna þjóni j>eim til-
gangi einum að vera rammi utan
um innihald þeirra, sem er eftir-
lætisáhugamál allra frískra
krakka á öllum aldri, á öllum
tímum — dans og dúndurtónlist.
Footloose er víða ein af vinsæl-
ustu myndum þessa árs, afbrigði
af Flashdance, en hér er það pilt-
ur sem fer með aðalhlutverkið.
Þessi útfærsla hefur tekist
sæmilega, einkum þegar rokkið
er á fullum krafti. Myndin
þvældist nokkuð fyrir brjóstinu
á kvikmyndaframleiðendum, til
að byrja með. Upphaflega ætlaði
Fox að gera hana undir stjórn
Michael Cimino — af öllum
mönnum — og hefði myndin þá
orðið fyrsta leikstjórnarverkefni
hins' umdeilda leikstjóra, eftir
Heaven’s Gate. Útkoman hefði
vissulega orðið forvitnileg, en
Paramount, sem að lokum fjár-
magnaði Footloose, áleit öruggara
að fá til verksins gamalkunna
hönd við gerð söngva- og dans-
mynda, Herbert Ross.
Mörg atriðin í Footloose bera
þess glöggt merki að vera unnin
af langreyndum choreographer,
eins og upphafið undir titlunum,
sem er ári vel gert og skemmti-
legt. Og ekki skaðar hresst stuð-
lag Kenny Loggins.
Eins og fyrr segir er nafnið
órökrétt, vægast sagt, enda
þjónar það takmörkuðum til-
gangi. Leikurinn er ágætur hjá
Bacon, það kemur ekki á óvart
því hann var einn af þeim minn-
isstæða hóp ungra leikara sem
gerðu garðinn frægan í Diner.
Lithgow passar vel inn í hlut-
verk (sýnir samt á sér mun betri
hliðar I Terms of Endearment).
Þá kemur ung leikkona, Lori Si-
nger, nokkuð á óvart með frís-
klegum leik.
í Breakdance hefur svo nánast
allri dramatískri uppbyggingu
verið varpað fyrir borð. Sögu-
þráðurinn útþvældur og slitinn,
svo ekki sé meira sagt, persón-
urnar einungis stereotýpur og
samtölin rétt til að tengja sam-
an ný músík- og dansatriði. En
það er engin ástæða til að láta
það fara fyrir brjóstið á sér, hér
er verið að bjóða upp á dans en
ekki Dostoevsky.
Eins og nafnið gefur til kynna,
þá fjallar myndin um uppgang
þessa makalausa strætisballetts,
sem er eins konar blanda af
hreyfilist, uppákomum, djass-
ballett, látbragðsleik o.fl. o.fl.
Hann fer nú sem eldur um sinu
um Vesturlönd, þrátt fyrir kall á
raikla hæfni og hugmyndaflug
þátttakandans. Einkar líflegt
fyrirbrigði (sem undirrt. er þó
hæstánægður að komst ekki í
tísku á hans unglingsárum,
tjúttið reyndist skrattans nógu
harðsnúið).
Það má segja að Breakdance sé
ein allsherjarsýning á þessum
hálf-lygilegu danssviptingum
þar sem þátttakendur dansa
ekkert síður á höndum, höfði, nú
eða þá rassi, en fótum. Hún er
fjörug og myndirnar báðar prýð-
isafþreying fyrir alla þá sem
gaman hafa af líflegri músík og
dansi. Það hefði ekki verið ónýtt
að sjá þá Kelly og Astaire
„breika" hérna um árið!
Flashdance: Leikstjóri: Herb-
ert Ross. Tónlist: Ýmsir. Titillag:
Kenny Loggins. Handrit: Dean
Pitchford. Aðalhlutverk: Kevin
Bacon, Lori Singer, Dianne Wi-
est, John Lithgow. Dolby. Para-
mount ’84. ★ ★ xh
Breakdance: Leikstjóri: Joel
Siberg. Dansar: Jamie Rogers.
Aðalhlutverk: Lucinde Dickey,
Adolfo Quinones, Michael Cham-
bers. Dolby. Cannon Films ’84.
★ ★ V4