Morgunblaðið - 25.05.1984, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
Minning:
Brynjólfína Jensen
frá Isa firði
Fædd 7. desember 1897
Dáin 16. maí 1984
f dag er kvödd vestur á fsafirði
Brynjólfína Jensen. Hún var fædd
á ísafirði, dóttir hjónanna Mál-
fríðar Magnúsdóttur f. 1872, d.
1914, og Jens Friðriks Jensen f.
1874 í Sandey í Færeyjum. d. 1932.
Brynjólfína ólst upp á Isafirði í
stórum systkinahópi, og 61 þar all-
an sinn aldur.
Hún giftist 28. des. 1918 Árna
skipstj. Magnússyni, f. 7. júlí 1894,
d. 24. sept. 1973, Arnórssonar
prests í Vatnsfirði, Jónssonar
prests á Mosfelli.
Þau Brynjólfína og Árni eignuð-
ust fjögur börn, þau eru: Málfríð-
ur, f. 14. okt. 1918, d. 15. nóv. 1942.
Magnús, f. 14. ág. 1920, skipstj., nú
kaupm. á ísafirði. Kvæntur Esth-
er Hafliðadóttur. Stella, f. 4. sept.
1921, d. 17. ág. 1955. Gift undirrit-
uðum. Karl, f. 24. febr. 1923,
kaupm. í Rvík. Kvæntur Margréti
Eyjólfsdóttur.
Ennfremur ólu þau upp tvo
dætrasyni sína, þeir eru: Hjalti
Már, f. 19. maí 1940, skipstj. á ísa-
firði, sonur Málfríðar og Hjalta
Guðmundssonar. Kvæntur Guð-
rúnu Guðmundsdóttur. Árni
Brynjólfur, f. 16. apríl 1942, iðnað-
arm. í Rvík, sonur Stellu og undir-
ritaðs. Kvæntur Guðrúnu Berg-
mann.
Nú, þegar „Ferðinni er lokið,
seglið fellt“, hrannast minn-
ingarnar í hugann, sem fáar verða
þó taldar í stuttri minningargrein.
t
Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir,
ELÍN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Fáfnisnesi 11,
andaöist á heimili sínu þriöjudaginn 22. mai.
Benedikt Jónsson,
börn og barnabörn.
t
Móöir okkar,
GRÓA ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR,
áóur til heimilis aö Noröurbrún 1,
andaöist á Droplaugarstööum 23. mai.
Sigrún P. Smith, Björn Pálsson.
t
Útför eiginmanns mins,
SIGURJÓNS VALDASONAR,
Vallargötu 8, Vestmannaeyjum,
veröur gerö frá Landakirkju laugardaginn 26. maí kl. 14.00.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Mínerfa Kristinsdóttir.
t
Móöir mín og systir okkar,
KRISTÍN I. EYFELLS,
veröur jarösungin mánudaginn 28. maí kl. 13.30 frá Dómkirkjunni.
Dóra Hjólmarsdóttir,
Einar Eyfells,
Jóhann K. Eyfelis,
Elin R. Eyfells.
t
Ástkær dóttir okkar, dótturdóttir, sonardóttir og systir,
ÁGÚSTA RANDRUP SVAVARSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 26. maí kl.
16.00.
Sigríöur Helga Georgsdóttir, Svavar Júlfus Gunnarsson,
Hrefna Sif Svavarsdóttir,
Ágústa Randrup, Georg Ormsson,
Svava Júlíusdóttir, Gunnar Einarsson.
t
ÞORVALDUR GÍSLASON
frá Hrauni, Grindavfk,
veröur jarösunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 26. mai kl.
14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Siguróur Gtslason.
Ég minnist þess er ég sá Brynj-
ólfínu í fyrsta sinn. Ég var á gangi
á Silfurgötunni á ísafirði, og
mætti þar hjónum, sem ég vissi þá
engin deili á. Mér varð starsýnt á
þessa glæsilegu, prúðbúnu konu; á
íslenskum búningi. Mig óraði ekki
þá, og ekki fyrr en mörgum árum
síðar, fyrir því, að ég ætti eftir að
tengjast þessum hjónum sterkum
böndum.
Og ekki gleymist dagurinn þeg-
ar við Stella opinberuðum, og
Binna bauð mig velkominn i fjöl-
skylduna.
Þau hjón, Árni og Brynjólfína,
voru áhugafólk um þjóðmál, sér-
staklega verkalýðsmál, enda lífs-
baráttan hörð á þeirra mann-
dómsárum. Árni var .t.d. formað-
ur Sjómannafélags ísfirðinga um
árabil.
Auk húsmóðurstarfa og barna-
uppeldis stundaði Brynjólfína
vinnu við fiskverkun (fiskþvott,
reitavinnu og síldarsöltun).
Slík störf voru ekki heiglum
hent, við starfsskilyrðin sem þá
tíðkuðust.
Helga Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 22. júlí 1923
Dáin 18. maí 1984
I
Stjórn og félagskonur Verka-
kvennafélagsins Framsóknar
þakka frú Helgu Guðmundsdóttur
ómetanlegt starf í þágu félagsins
og vænta þess, að mikill baráttu-
hugur og óeigingjarnt starf um
árabil gleymist ekki, en verði haft
að leiðarljósi um ókomin ár.
Félagið sendir börnum, tengda-
börnum, barnabörnum, systkinum
og öðrum ættingjum Helgu inni-
legar samúðarkveðjur.
f dag kveðjum við ötula og góða
konu, sem skipaði sér í sveit hins
sanna íslendings og barðist fyrir
velferð og mannsæmandi lífi fyrir
þann sem minna mátti sín. Skip-
aði hún sér þannig í sveit sem
sannur verkalýðssinni. Við, sem
unnum með henni lýsum aðdáun
okkar á víðsýni hennar og vilja-
þreki, en þeir kostir voru henni
eðlislægir.
Frú Helga var árum saman í
stjórn Verkakvennafélagsins
Framsóknar og var það sæti vel
skipað. Fáum við seint þakkað
henni glaðværð og gott samstarf.
Á ferðalögum og í samstarfi var
hún hrókur alls fagnaðar. Með
söng sínum og glaðværð var hún
sannanleg perla, sem hafði þannig
áhrif á aðra, að allir sem voru í
kringum hana fylltust fögnuði og
gleði.
Ég, sem þessar línur rita mun
geyma ljúfar endurminningar um
góða vinkonu, sveitunga og sam-
starfskonu. Persónulega sendi ég
börnum, tengdabörnum, barna-
börnum og systkinum innilegar
samúðarkveðjur. Ennfremur inni-
legar samúðarkveðjur frá Krist-
ínu dóttur minni og Jónu Guð-
jónsdóttur.
Sérstök kveðja er til Helgu frá
formanni félagsins, Rögnu Berg-
mann. Þakkar hún henni trausta
vináttu og samstarf árum saman.
Því miður getur hún ekki verið í
hópi okkar, sem kveðjum hana í
dag, þar eð hún er nú stödd er-
lendis, en hún biður fyrir innileg-
ar samúðarkveðjur til barna,
tengdabarna, barnabarna og ann-
arra ættingja.
Þar sem góðir menn fara eru
guðs vegir.
Þórunn Valdimarsdóttir.
„Og þótt hún ætti þungt og margt að vinna
og þyldi stundum él á löngum vegi,
þá var hún okkur hlý á hverjum degi
og mild og viðkvæm móðir barna sinna.“
(Þ. Erl.)
Eftir erfið veikindi er hún
Helga amma dáin. Hún sem áður
t
Innilegar þakkir öllum þeim fjölmörgu sem vottaö hafa okkur
samúö vegna fráfalls
EINARS HELGASONAR
frá Bjarnabæ,
Hólabraut 8, Hafnarfiröi.
Ragnheiður Guölaugsdóttir,
Helgi Einarsson, Sólveig Einarsdóttir,
Aöalsteinn Einarsson, Ólöf Guöjónsdóttir,
Erna Einarsdóttir, Guömundur E. Jónmundss.,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkir sendum viö öllum er vottuöu okkur samúö og
hlýhug viö andlát og jaröarför dóttur okkar og systur,
ELFU BORG JÓNSDÓTTUR,
Víöigrund 22, Akranesi.
Sérstakar þakkir eru til alls starfsfólks á deild 20 Kópavogshæli
fyrir frábæra umönnun á liönum árum.
Jón Sigurósson, Rún Elfa Oddsdóttir,
Siguröur Arnar Jónsson, Inga Magný Jónsdóttir.
t Þökkum innilega auösýnda samúö viö eiginmanns míns og afa, andlát og jaröarför
KRISTJÁNS EINARSSONAR,
Karlagötu 5. Elín Pálsdóttir, Elfn Davióadóttir.
Ef ég ætti að lýsa skaphöfn
Brynjólfínu, kæmu mér í hug orð
eins og táp, kjarkur, heiðarleiki,
hreinskilni.
Úr því ég nefndi reitavinnuna,
er mér næst að halda að Binna
Jensen hefði brugðist við atvikinu
á reitnum ekki ósvipað Jóu í Veg-
húsum: „Læturðu snúa þér við?“
Brynjólfína var einn af þessum
sterku stofnum í skógi mannlífs-
ins, sem „bognar aldrei — brotnar
í bylnum stóra seinast".
Á erfiðleika- og sorgarstundum
var hún alltaf sterkust, og gat tal-
ið í mann kjark og huggun.
Nú, á kveðjustund, er mér efst í
huga þakklæti — þakklæti fyrir
að hafa eignast þessa konu að
móður og vini, og fyrir allt, sem
hún gerði fyrir mig og mína.
Blessuð sé minning Brynjólfínu
Jensen.
Guðm. Guðmundsson
var svo kát og glöð hefur nú öðlast
frið á himnum við hliðina á Hauk
afa. Áður en heilsan brast var það
hún sem ávallt gaf öðrum styrk
með glaðværð sinni og krafti. Hún
lagði allt á sig fyrir okkur hin og
við tókum það sem sjálfsagðan
hlut. Því bregður okkur nú þegar
hún er farin frá okkur að við finn-
um það svo vel hve ráð hennar
voru góð, nú þegar hennar nýtur
ekki lengur við. Við eigum góðar
minningar um hana og það er það
besta sem nokkur manneskja get-
ur skilið eftir í þessum heimi.
Minningar um góðar stundir
heima hjá ömmu þegar bakað var
laufabrauð — þegar borið var
fram heitt súkkulaði og nýbakað-
ar kökur — þegar fjölskyldan kom
öll saman og nóg var að sýsla hjá
ömmu, þá leið ömmu vel og þá leið
okkur vel. Þá var oft glaðst og
amma söng. Hún sem söng svo oft
á hverju sem gekk og nú er söngur.
hennar hljóðnaður. Nú er hún
Helga amma hjá Guði og við þökk-
um henni allar ógleymanlegu
stundirnar sem hún gaf okkur og
við biðjum góöan Guð að geyma
hana.
Lífs meðan ljósið skín
ljúft munu börnin þín
minnast þín, móðirin góða.
(Þ. Erl.)
Ömmubörnin.
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargrcinum skal hinn
látni ckki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.