Morgunblaðið - 25.05.1984, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
31
Fyrsti meistaratitill
Stuttgart í sjónmáli
Stuttgart 24. maí. Frá Þórarni Ragnarssyni, blaöamanni Morgunblaösins.
• Valsstúlkurnar urðu Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu, eins og karlalið félagsins, á dögunum. Eftir
síðasta leik liösins í mótinu I fyrrakvöld tók fyrirliði liðsins viö Reykjavíkurmeistarabikarnum og var
myndin tekin við þaö tækifæri.
áhangendum sínum.
Sjónvarpsmenn voru mættir á
æfinguna og tóku viðtal við Karl-
Heinz Förster, fyrirliða Stuttgart,
og þjálfarann, Helmut Benthaus.
Veröi Stuttgart þýskur meistari í
ár verður það í fyrsta skipti síðan
deildarkeppni var tekin upp í land-
inu. Liöiö varð tvívegis meistari áö-
ur en þaö var gert: 1950 og 1952.
Stuttgart varö bikarmeistari
1954 og 1958, þarmig aö það er
langt síðan liöiö hefur unniö til
verölauna.
Ailir leikir
verða kl. 17
ALLIR leikir morgundagsins á
íslandsmótinu í knattspyrnu
hafa verið færðir til kl. 17
vegna beinu útsendingarinnar
frá leik Stuttgart og Hamburg-
er í Þýskalandi. Á morgun eru
þrír leikir í 1. deild: ÍA og ÍBK
leika á Akranesi, KA og Vík-
ingur á Akureyri og í Laugar-
dal Valur og KR.
Morgunblaöiö/KÖE
ÞAO VERÐUR mikil knattspyrnu-
hátíð hér í Stuttgart á laugardag-
inn ef aö líkum lætur, er núver-
andi meistarar, Hamburger SV,
mæta Stuttgart sem aö öllum lík-
indum tekur við meistaratigninni
eftir leikinn.
Ég fylgdist meö æfingu Stutt-
gart í dag, næstsíöustu æfingu liö-
sins fyrir leikinn, á hinu glæsilega
æfingasvæöi félagsins viö Neck-
arstadion. Liöið æföi í tvær
klukkustundir og tekiö var á af full-
um krafti. Þaö er mikill hugur í leik-
mönnum Stuttgart og geysilegur
áhugi stuöningsmanna liösins fyrir
leiknum. Fjöldi manns fylgdist meö
æfingunni i dag og áttu leikmenn
erfitt meö að komast til og frá bún-
ingsherbergjum vegna fólks sem
vildi fá eiginhandaráritanir þeirra.
Ásgeir er greinilega mjög vinsæll
hér — hann haföi engan friö fyrir
Guðmundur rændi tveimur
stigum af Þrótturum
- og tryggði Fram eitt er hann jafnaði er fimm mín. voru fram yfir venjulegan leiktíma
FLESTIR ÁHORFENDUR á Laugardalsvelli voru búnir aö bóka Þróttar-
sigur í leiknum gegn Fram í gærkvöldi og margir þeirra farnir heim er
Guðmundur Steinsson skoraöi sitt annaö mark í leiknum og jafnaöi 2:2
— en þá voru fimm mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma á
vallarklukkunni. Já, það mátti ekki tæpara standa hjá Frömurum —
annað tap þeirra í tveimur leikjum blasti við, en Guðmundur bjargaöi
stigi fyrir þá á síöustu stundu, og stal þar með tveimur stigum af
Þrótti.
Skömmu fyrir markiö haföi Páll
Ólafsson komist einn í gegn hinum
megin eftir frábæran einleik, en
eftir aö hann haföi leikiö á mark-
vöröinn missti hann knöttinn of
langt frá sér og tækifæriö rann út í
sandinn. Hann kom knettinum aö
vísu fyrir markiö en enginn Þróttari
var nálægur. Staöan heföi því get-
aö orðiö 3:1 fyrir Þrótt en var
nokkrum andartökum seinna 2:2.
Já, þaö er oft stutt milli hláturs og
gráturs í íþróttum. „Þaö var aga-
legt aö skora úr þessu — en jafn-
vel enn verra aö halda ekki foryst-
unni,“ sagöi Páll Ólafsson eftir
leikinn.
Jóhannes Atlason, þjálfari
Fram, var ekki ánægöur meö sína
menn. „Viö lékum nokkuö vel í fyrri
hálfleik og réöum þá gangi leiksins
en síöari hálfleikurinn var til
skammar. Þá vantaöi allan slag-
kraft í strákana. Þeir voru alveg
máttlausir. Og eins og málum var
komið í seinni hálfleiknum máttum
viö þakka fyrir annað stigiö,” sagöi
Jóhannes.
Samþykkja veröur þaö sem Jó-
hannes sagöi um seinni hálfleikinn
hjá Fram. Einhver doöi var þá í
leikmönnum liösins og Þróttarar
sóttu mun meira. Vörnin var ekki
allt of sannfærandi og framlínan
ekki heldur. Ungu strákarnir á
miöjunni, Kristinn Jónsson og
Bragi Björnsson voru þá bestu
menn liðsins. Spiluðu boltanum vel
og voru hreyfanlegir, en ennþá
virðist Ómar Jóhannsson ekki falla
nægilega vel inn í leik liðsins. Hann
er ekki nema skugginn af sjálfum
sér miöaö viö frammistööuna meö
ÍBV í fyrra.
Þróttararnir voru sprækari í
seinni hálfleik eins og áöur sagöi.
Páll Ólafsson átti góöa spretti, en
þyrfti aö hafa þvottaklemmu í vas-
anum til aö smella utan um varirn-
ar þegar dæmt er á hann. Eöa þá
aö venja sig á aö bölva í hljóði.
Ásgeir Elíasson stjórnaöi leik
Þróttarliösins eins og herforingi —
og óhætt er aö fullyrða aö liöiö var
óþekkjanlegt í gærkvöldi frá því í
fyrsta leik mótsins — gegn Breiöa-
blik. Leikmenn böröust af miklum
krafti — staöráönir í aö sigra, og
ekki munaöi miklu aö þaö tækist.
Staöan í hálfieik var 1:1. Guö-
mundur Steinsson skoraöi fyrir
Fram strax á 5. mín. af stuttu færi
eftir fyrirgjöf Ómars Jóhannsson-
ar. Páll Ólafsson jafnaöi á 23. mín.
Hann fékk knöttinn utan vítateigs,
lék á tvo varnarmenn og skoraöi í
bláhornið niöri. Óverjandi fyrir
Hauk.
Opið öldunga-
mót hjá Leyni
Golfklúbburinn Leynir á Akra-
nesi heldur opiö öldungamót á
sunnudaginn — fyrir 50 ára og
eldri, karla og konur. Keppni
hefst kl. 11, eftir komu Akraborg-
ar frá Reykjavík.
Á 58. mín. kom Pétur Arnþórs-
son Þrótti yfir. Páll tók hornspyrnu,
varnarmaöur skallaöi frá út í miöj-
an teig, þar sem Pétur skallaöi
viöstööulaust til baka í bláhorn
marksins. Guömundur Steinsson
jafnaöi svo þegar nokkrar mín.
voru komnar fram yfir venjulegan
leiktíma, eins og áöur sagöi, en
dómarinn bætti viö leikinn vegna
tafa. Guömundur skoraöi meö
góöu skoti utan úr teig eftir þunga
sókn Fram.
i stuttu máli, Laugardalsvöllur 1. deild
Fram-Þróttur 2:2 (1:1)
Mörk Fram: Guömundur Steinsson á 5 og 95.
mín.
Mörk Þróttar: Páll Ólafsson á 23. min. og Pót-
ur Arnþórsson á 58. mín.
Dómari var Kjartan Ólafsson og stóó hann sig
vel.
Aminningar: Jóhann Hreióarsson, Þrótti, fókk
gult spjald.
Áhorfendur: 558.
Einkunnagjöfin. FRAM: Haukur Bragason 6,
Þorsteinn Vilhjálmsson 6, Þorsteinn Þor-
steinsson 6, Trausti Haraldsson 6. Ómar Jó-
hannsson 5, Sverrir Einarsson 6, Kristinn
Jónsson 7, Bragi Björnsson 7, Guómundur
Steinsson 7, Lárus Grótarsson 5, Steinn Guö-
jónsson 5 ÞRÓTTUR: Guömundur Erlingsson
6, Arnar Frióriksson 6, Kristján Jónsson 6,
Jóhann Hreiöarsson 5, Arsæll Kristjánsson 6,
Pétur Arnþórsson 6, Haukur Magnússon 5,
Páll ólafsson 6, Sverrir Pótursson 4, Asgeir
Eliasson 7, Daöi Haröarson 6, Júlíus Julíusson
(vm.) 6.
—SH.
Asgeir hefur
leikið fyrir
báða þjálfara
Stuttgart 24. msl Frá Þórarni
Ragnarstyni Wm. Morgunblaóeins.
ÁSGEIR Sigurvinsson verður
eini maðurinn á vellinum í leik
Stuttgart og Hamburger á
laugardag, sem leikiö hefur
undir stjórn beggja þjálfar-
anna. Hann lók undir stjórn
Ernst Happel, sem nú þjálfar
Hamburger, þegar hann var
hjá Standard Liege í Beigíu.
Mark Ómars
það besta
Knattspyrnudómarar hafa
ákveðið að velja SEIKO-mark
hverrar umferöar 1. deildar-
innar í sumar. Þeir völdu mark
Ómars Ingvarssonar, KR-ings,
gegn Víkingum, mark 1. um-
ferðar. I lok mótsins verður
síöan valiö SEIKO-mark árs-
ins.
Á landsliðið í handknattleik
siðferðislegan rétt á þátttöku?
FYRIR atllöngu lýati ólympíunefndin því yfir aö hámarksfjöldi kepp-
enda íslands í Los Angeles myndi vera á bilinu 12—14. Nefndin ákvaö
lágmörk fyrir hinar ýmsu greinar í mars sl. Mörgum fannst sú ákvörö-
un vera heldur seint á feröinni, en flestir sættust á þetta aö ég held. Nú
hefur þaö hins vegar gerst aö ólympíunefndin hefur ákveöiö aö velja
einstaklinga, sem ekki hafa náö tilskyldum árangri. Látum þaö nú
vera, en nefndin hefur einnig samþykkt aö landslióiö í handknattleik
taki þátt í leikunum — lið, sem ekki haföi unnið sór rétt tii þess.
Af hverju þessi flýtir?
Ólympíunefndin tilkynnti 22. maí
sl. svo til endanlegt val á keppend-
um í einstaklingsgreinum. Sú
ákvöröun var ekki tímabær, —
þeim 3—4 einstaklingum, sem
standa næst fyrir utan val og eru
rétt aö hefja keppnistímabil sitt,
eru þar meö settir harðir kostir.
Möguleikar þeirra á vali eru skertir
áöur en þeir fá tækifæri til aö bæta
árangur sinn, og hugsanlega ná
betri árangri en þeir, sem valdir
hafa veriö.
Nú síöast voru valdir 5 einstakl-
ingar til viöbótar þeim 8, sem vald-
ir höföu verið áöur. Engar athuga-
semdir hef ég heyrt um val frjáls-
íþróttamannanna þriggja og lyft-
ingamannsins enda höfðu þeir allir
náö alþjóölegu lágmarki. Hins veg-
ar er erfitt aö átta sig á því á hvaöa
forsendum þriöji sundmaöurinn er
valinn. Hann er hlutfallslega veru-
lega lengra (% frávik) frá lágmarki
en þeir, sem næstir standa, Jón
Diöriksson (1500 m), Siguröur P.
Sigmundsson (maraþon), Siguröur
T. Sigurösson (stangarstökk) og
Þorvaldur Þórsson (400 m gr.).
Varla er sanngjarnt aö gagnrýna
ólympíunefndina vegna þessa, því
þaö var alltaf vitaö aö erfitt yröi aö
meta jaðartilvik fyrst á annaö borö
er farið út fyrir lágmörkin. Hins
vegar væri leitt til þess aö vita ef
þrýstingur hefur valdiö hér ein-
hverju um, — árangur á alltaf aö
vera númer eitt.
Þátttaka hand-
boltamanna?
Þegar íþróttafolki hefur veriö
sagt aö ganga út frá því aö einung-
is 12—14 keppendur veröi sendir
á leikana, m.a. vegna mikils kostn-
aðar, hlýtur þaö aö vekja spurn-
ingar þegar allt í einu er hægt aö
bæta viö heilu handknattleiksliöi
meö öllu sem því tilheyrir — liði,
sem ekki hefur í raun unniö sér rétt
il þess. Enginn handknattleiks-
maöur haföi gert ráö fyrir því aö
keppa á leikunum og þaöan af síö-
ur undirbúið sig til þess. Eins og
viö var aö búast hafa handbolta-
frömuöir látiö í sér heyra og hróp-
aö „stórkostlegt tækifæri* 1', „verö-
um aö fara“, „megum ekki lenda í
sterkum B-riöli á HM" o.s.frv.
Þeirra rök eru svipuð því aö ég
teldi mig nú hafa þátttökurétt þar
sem maraþonhlauparar austan-
tjaldslanda koma ekki til leiks, eóa
aö fá lágmarkiö lækkaö vegna
fjarveru þeirra.
Staöreyndin er aöeins sú aö
landsliðiö hefur nú öölast þátt-
tökurétt á leikunum, sem það haföi
ekki áöur. Stóra spurningin er hins
vegar sú af hverju ólympíunefndin
telur svona sjálfsagt, undir þessum
kringumstæöum, aö velja liöiö til
þátttöku. Ég veit ekki betur en aö
nefndin hafi rétt til aö senda einn
einstakling til keppni í hverri grein,
óháö lágmarki. Er þaö annars kon-
ar réttur? Hefur handboltinn e.t.v.
einhver forréttindi meöal íslenskra
íþrótta?
Þeir, sem hafa veriö að reyna
viö lágmörkin hafa alltaf gert ráö
fyrir því aö svo gæti fariö, aö þeir
yröu aö sitja heima þó litlu munaöi.
Viö því er ekkert að segja, en þeg-
ar fyrirvaralaust er hægt aö bæta
20 manna hópi viö, vaknar spurn-
ing hjá því fólki, sem stefnt hefur
að þessu markmiöi i nokkur ár og
æft, á hvaöa grundvelli réttlætiö í
þessu öllu saman sé byggt.
Ólympíunefndin er aö sjálfsögöu
ekki öfundsverö af hlutverki sínu,
sem oft og tiöum er mjög erfitt.
Athugandi væri þó hvort „prinsip-
in“ hvaö varöar val og þátttökurétt
ættu ekki aö vera í fastari skoró-
um.
24. maí 1984.
Sigurður P. Sigmundsson.