Morgunblaðið - 25.05.1984, Page 32
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SÍMI 11630
npmAu fimuti inAns- Ffis-rtinArís-
INNSTRÆTI, SlM111340
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Reykinga-
bann aukið
„Tókbaksreykingar eru óheimilar
í þeim hluta af húsnæði stofnana,
fyrirtækja og annarra þar sem al-
menningur leitar aógangs, I sam-
bandi við afgreiðslu eða þjónustu
sera þessir aðilar veita." Þetta giidir
ekki um veitinga- og skemmtistaði.
Þó skulu þeir á hvcrjum tíma hafa
afmarkaðan fjölda veitingaborða
fyrir gesti sína, sem verði sérstak-
lega merktur að tóbaksreykingar
séu bannaðar. Þetta er ákvæði í nýj-
um lögum um tóbaksvarnir, sem
samþykkt voru frá Alþingi í síðustu
viku.
Samkvæmt lögunum má ekki
auglýsa tókbak né reykfæri. Tób-
ak má ekki selja einstaklingum
undir 16 ára aldri. Bannað er að
selja tóbak í sjálfsölum, í skólum
eða stofnunum fyrir börn og ungl-
inga. Þá er tóbaksnotkun óheimil f
grunnskólum, dagvistun barna og
húsakynnum, sem eru fyrst og
fremst ætluð börnum og ungling-
um yngri en 16 ára til félags- og
tómstundastarfs, sem og í far-
þegarýmum almenningsfarar-
tækja sem rekin eru gegn gjald-
töku. Heimilt er forráðamönnum
flugvéla að leyfa reykingar í hluta
farþegarýmis í atvinnuflugi milli
landa. Skylt er að verja tveimur
prómillum brúttósölu tóbaks til
tóbaksvarnarstarfs.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar á
næsta ári.
Ríkisskattstjóra-
embættið:
Beiðni um
25 nýja
starfsmenn
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Albert
Guðmundsson, afgreiðir eftir helgi
beiðni ríkisskattstjóra um fjölgun
starfsmanna hjá embættinu. Fyrir
liggur beiðni um að starfsmönnum
til skattaeftirlits verði fjölgað um
25, en hjá embætti ríkisskattstjóra
starfa nú 15 manns, við skattaeft-
irlit. Með fjölgun starfsmanna er
fyrirhugað að efla til muna eftirlit
með skattgreiðslum og þá sérstak-
lega hvað varðar skil á söluskatti.
Samkvæmt heimildum Mbl.
gerir beiðnin ráð fyrir að um 20
manns verði ráönir til viðbótar á
þessu ári, en fimm á því næsta.
Ætlunin mun sú að dreifa starfs-
mönnum þessum á skattstofur
landsins, en að þeir lúti yfir-
stjórn frá embætti ríkisskatt-
stjóra. Fjármálaráðherra sagði i
viðtali við blm. Mbl. í gær, að
hann myndi afgreiða mál þetta
eftir helgi.
Hvítu kollarnir settir upp
MEÐ sumarkomunni útskrifast nú stúdentarnir hver á fætur
öðrum víðs vegar um landið. Alls verða stúdentar í ár um 1.300
talsins samkvæmt tölum frá menntamálaráðuneytinu. í Háskóla-
bíói í gær foru skólaslit Menntaskólans í Reykjavík fram og tók
Ijósmyndari Morgunblaðsins þessa mynd þar, er stúdentarnir
höfðu fengið prófskírteinin í hendur og settu upp „hvítu koll-
ana“, tákn „hins fullgilda stúdents“.
Sjá nánar á miðsíðu.
Kartöflustríð innflytjenda og landbúnaðarráðuneytis:
Innflytjendur flytja
áfram inn kartöflur
— hafa undirbúið samstarf við íslenzka kartöflubændur
INNFLUTNINGSAÐILAR, sem leitað hafa eftir leyfi landbúnaöarráðuneytis-
ins fyrir frjálsum innflutningi á kartöflum, hafa með bréfi til landbúnaðarráð-
herra lýst yfir því, að þeir muni halda áfram þeim kartöfluinnflutningi, sem
þeir hafa þegar hafið, með tilliti til yfirlýsinga stjórnvalda, um að einokun á
þessu sviði verði aflétt. Jafnframt segjast innflutningsaðilarnir sjálfir taka
ábyrgð á því, að ekki verði í landinu umframbirgðir af kartöflum þegar íslensk
„gæðaframleiðsla“ kemur á markaðinn. Segjast þeir þegar hafa undirbúið
samstarf við íslenska kartöflubændur um sölu á uppskeru þeirra á næsta
hausti.
1 bréfi forsvarsmanna fyrirtækj-
anna sex, sem eru Bananar hf.,
Bananasalan sf., Björgvin Schram
hf., Dreifing sf., Eggert Kristjáns-
son hf. og Hagkaup hf., segjast þeir
m.a. hafa skilið bréf landbúnaðar-
ráðherra frá því 23. þessa mánaðar
á þann veg, að hann hyggist enn
hamla gegn frjálsum innflutningi
garðávaxta. Þá segir orðrétt: „Með
tilliti til yfirlýsinga stjórnvalda
um að einokun verði aflétt á þessu
sviði munum við halda áfram inn-
flutningi svo sem verið hefur. Mun
þá á það reyna hvort þér og ríkis-
stjórnin ætlið enn að ganga í ber-
högg við vilja almennings um að
hafa óskemmdar kartöflur á borð-
um, sem aldrei hefur komið jafn
skýrt í ljós og nú með undirskrift
rúmlega 20 þús. neytenda."
í niðurlagi bréfsins segir: „Við
munum sjálfir taka ábyrgð á, að
ekki verði umframbirgðir af kart-
öflum, þegar íslensk gæðafram-
leiðsla kemur á markaðinn enda
höfum við þegar undirbúið sam-
starf við íslenska kartöflubændur
um sölu á uppskeru þeirra á næsta
hausti."
í öðru bréfi, sem landbúnaðar-
ráðuneytinu barst í gær, frá Eggert
Kristjánssyni & co. hf. kemur fram
að fyrirtækið hefur þegar gert
samninga um kaup á um 150 tonn-
um af nýjum kartöflum frá ftalíu,
Spáni og Israel, og hefur hluta þess
magns nú þegar verið skipað um
borð í skip, en 150 tonn voru það
magn, sem landbúnaðarráðherra
hafði veitt leyfi fyrir að innflutn-
ingsaðilar á kartöflum skiptu með
sér. Er frá því greint í bréfinu að
samningarnir hafi verið gerðir í
góðri trú og er vfsað til yfirlýsinga
stjórnmálaforingja og alþing-
ismanna í því sambandi, auk þess
sem fyrirtækið vísar til yfirlýs-
ingar almennings, sem gefin hafi
verið með þátttöku í undirskriftum
á lista til stjórnvalda.
Ríkisstjórnin:
Landhelgisgæzlunni
heimiluö þyrlukaup
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gærmorgun að heimila
Landhelgisgæzlunni að semja um
kaup á þyrlu. Segir í samþykkt rík-
isstjórnarinnar að þyrlukaupin séu
heimiluð á grundvelli hagstæðustu
tilboða sem borizt hafa.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Útflutningsverðmætið tvö-
faldaðist á síðasta ári
— Tekjuafgangur nam 65 milljónum króna
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á síðasta ári
varð rúmlega tvöfalt meira en árið áður og tekjuafgangur síðasta árs samtals
rúmar 65 milljónir króna. Útflutningsverðmæti síðasta árs var samtals 4.56
milljarðar en fluttar voru út um 92.000 lestir. Útflutningsverðmæti ársins 1982
var alls rúmir 2 milljarðar króna.
Coldwater Seafood Corporation í
Bandaríkjunum seldi alls á síðasta
ári fyrir rúmlega 5,5 milljarða
króna og Icelandic Freezing Plants
í Bretlandi seldi fyrir um 690 millj-
ónir króna. Hjá báðum fyrirtækj-
unum varð veruleg aukning og
sömuleiðis hjá söluskrifstofu SH í
Hamborg. Hins vegar reyndust
gjöld Coldwater á síðasta ári um 34
milljónir króna umfram tekjur
fyrir skatta, en gert er ráð fyrir
endurgreiddum 3köttum. Tekjuaf-
gangur Icelandic varð rúmar 2
milljónir króna og tekjuafgangur
söluskrifstofunnar í Hamborg tæp
ein milljón króna.
Þessar upplýsingar komu fram á
aðalfundi Sölumiðstöðvarinnar í
gær, en þar fluttu framkvæmda-
stjórar einstakra deilda, forstjóri
og stjórnarformaður skýrslu um
gang mála. í dag verða á fundinum
rædd framleiðslumál, tillögur af-
greiddar og stjórn og endurskoð-
endur kosnir.
Gunnar Bergsteinsson for-
stjóri Landhelgisgæzlunnar
sagði í samtali við blm. Mbl. í
gær, að hagstæðustu tilboðin
sem borist hafa væru franskt og
ítalskt. Franska tilboðið væri í
þyrlu af gerðinni Dolphin SA
365-N og það ítalska væri þyrla
að gerðinni Agusta AB 412.
Gunnar sagði ekki afráðið hvaða
tilboði yrði tekið, enda hafði
honum ekki borist samþykkt
ríkisstjórnarinnar, er rætt var
við hann.
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sagði það hlut-
verk dómsmálaráðherra og
Landhelgisgæzlunnar að taka
ákvörðun um hvaða gerð af
þyrlu yrði keypt. Til þyrlukaup-
anna verður nýtt heimild á fjár-
lögum til lántöku.