Morgunblaðið - 06.07.1984, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.07.1984, Qupperneq 31
íris og Árni á Ól: Fjörutíu og sex manna hópur frá íslandi fris Grönfeldt spjótkastari og Árni Sigurðsson keppa fyrir ís- lands hönd á Ólympíuleikunum í sumar. Ólympíunefnd íslands samþykkti tillögu þess efnis á fundi sínum í g»r. Ólympíullö Islands er þar meö fullskipað — meö vali þeirra tveggja og siglingakappanna tveggja sem annars staöar er greint frá. Keppendur á leikunum frá íslandi veröa alis 32, 15 hand- boltamenn og 17 í öörum greinum. Sveinn Björnsson forseti ÍSf veröur aöalfararstjóri hópsins en flokksstjórar hinna einstöku íþróttagreina veróa 11 talsins, og eru þar meö taldir Örn Eiösson, blaöafulltrúi íslenska hópsins á leikunum, og Þorvaldur Árnason, gjaldkeri hópsins. Auk þess fara þeir Gísli Halldórsson, formaöur íslensku ólympíunefndarinnar, og Bragi Kristjánsson utan — þeir sitja ólympíuþingiö fyrir Islands hönd. Þaö fer því 46 manna hópur frá islandi til Los Angeles í tengslum viö Ólympíuleikana. • Ólympíufarar íalanda í aiglingum, Jón Péturason til vinstri og Gunnlaugur Jónasson. Leikur Pétur í Grikklandi? forráðamenn AEK vilja fá hann FORRÁOAMENN kunnasta knattspyrnufélags Grikklands, 1. deildarliösins AEK Aþena, hafa nú sett sig í samband viö Pétur Ormslev í þeirri von um að fá hann til liðsins. Pétur er nú staddur í Þýska- iandi, þar sem hann lék sem kunnugt er meö Fortuna Dúss- eldorf, til að athuga tilboö sem félaginu hafa borist i hann, en hann mun ekki leika áfram meö Fortuna næsta vetur. Liö úr 2. deild í Þýskalandi hafa sýnt áhuga á Pétri en ekki er talið aö þau hafi bolmagn til aö kaupa hann. Einnig hafa liö í Sviss sett sig í samband við Fort- una Dússeldorf vegna Péturs. En forráöamenn AEK í Aþenu eru þeir einu sem talaö hafa persónulega viö Pétur og það ætti aö koma i Ijós fljótlega hvort hann veröur fyrsti islendingurinn til aö leika í grísku knattspyrn- unni. Þess má geta aö þjálfari AEK er Þjóðverji. Pétur tilkynnti félagaskipti yfir i Fram eftir aö keppnistímabilinu lauk í Þýskalandi og er oröinn löglegur meö liöinu en hann mun ekki koma heim i bráö til aö leika meö sínum gömlu félögum. • Pétur Ormslev Gunnlaugur og Jón á Ólympíuleikana — íslenskir siglingamenn í fyrsta skipti á meðal keppenda þar Ólympíunefnd íslands ákvað á fundi sínum í gær aö senda sigl- ingamennina Gunnlaug Jónasson og Jón Pétursson á Ólympíu- leikana í Bandaríkjunum í sumar. Þeir félagar hafa stundaö sigl- ingar í fjölda ára — og er árangur mikilla æfinga síöastiiöin fjögur ár nú aö skila sér. Þeir keppa í báta- flokki „470“ sem er langfjölmenn- asti flokkurinn á Ólympíuleikunum. I hann eru þegar skráöir 60 bátar frá fjölmörgum löndum, og hafa keppendur i „470“-flokknum aldrei veriö fleiri. Að sögn Ara Bergmann Einars- sonar, sem veður flokksstjóri meö siglingamönnunum ytra, hefur Siglingasambandiö haft ráögef- andi þjálfara hér á landi ööru hvoru undanfarin ár, Englending- inn Keith Musto, fyrrum meölim breska ólympíúliðsins. „Hann hef- ur veriö ráögefandi viö þjálfun strákanna. Þeir hafa æft eftir ákveðnu prógrammi síöastliðin fjögur ár og nú hefur von þeirra ræst. Þaö var langtímamarkmiö Siglingasambandsins aö koma mönnum á Ólympíuleika — a.m.k. eftir fjögur ár, en þaö aö þeir skyldu hafa verið valdir núna er mjög ánægjulegt. Árangurinn af þjálfun þeirra hefur skilað sér fyrr en viö áttum von á,“ sagöi Ári Bergmann í samtali viö blm. Mbl. í gær. Gunnlaugur er stýrimaöur á bátnum og Jón háseti. Siglingakeppni Ólympíuleikanna fer fram í Santa Barbara, um 200 km noröan við Los Angeles. Iþróttir eru á fjórum síðum í dag: 28, 29, 30 og 31 Lloyd og Navratilova í úrslit einliðaleiksins Tékkneska tennisstúlkan Hana Mandlikova vakti reiði fjölda fólks — ef ekki allra viöstaddra — í gær eftir að hafa tapað fyrir Chris Evert Llyod í undanúrslit- um Wimbledon-keppninnar ( London. Hún gekk ein burt fré vellinum að búningsklefa sínum án þes aö hneigja sig fyrir her- toganum og hertogaynjunni af Kent eins og siður er aö kepp- endur geri eftir leiki keppninnar. Ul-mót í frjálsum Meistaramót íslands í frjélsum íþróttum 15—18 éra unglinga fer fram á Akureyri dagana 21.—22. júlí. Þétttökutilkynningar verða aö hafa borist skrifstofu UMSE eða Vilhjálmi Björnssyni é Dalvík fyrir 13. júlí é skréningakortum FRÍ. Evert Lloyd haföi sigrað Mandl- ikova auöveldlega, 6:2, 6:1. Venjan er aö keppendur hneigi sig saman fyrir fyrir hertoganum og hertoga- ynjunni og gangi síöan samsiöa af velli. Mandlikova hins vegar tók spaöa sin og gekk rakleiöis í burtu eftir aö Chris haföi sigraö hana. Martina Navratilova, tékkneska stúlkan sem nú er meö bandarísk- an ríkisborgararétt, sagöi aö hegö- an Mandlikova væri „óþolandi“. Menn gera ekki slíkt hér á Wimble- don. Mér væri sama þó ég heföi tapaö 6:0, 6:0 — ég biöi eftir mót- herja mínum og hneigöi mig síöan fyrir hertoganum og hertogaynj- unni. Þetta er mjög óatvinnu- mannslega gert af henni. Ég hélt aö þaö væri óhugsandi aö slíkt gæti gerst hér á Wimblsdon," sagöi Navratilova. Navratilova sigraöi Kathy Jord- an í hinum undanúrslitaleiknum, 6:3, 6:4, og mætir því Chris Evert Lloyd í úrslitaleiknum á morgun. Lloyd hefur átta sinnum leikiö til úrslita á Wimbledon-mótinu og þrisvar sigraö. • Sigurður Grétarsson. Styrkur til HSÍ Fyrirtækiö VISA-ISLAND styrkti Handknattleikssam- band islands í gær vegna þátttöku landsliösins í Ólymp- iuleikunum í Los Angeles i sumar. Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri VISA- ISLAND, mætti á æfingu liös- ins í íþróttahúsi Seljaskóla í gær og afhenti Jóni Hjaltalín Magnússyni 100.000 króna ávísun. Stjórn HSÍ hefur nú hafið skipulagt átak í fjáröflun til aö standa straum af þátttöku í leikunum í sumar og aö sögn forráöamanna sambandsins viröist vera mikill stuöningur viö málefniö hjá almenningi og undirtektir hjá fyrirtækjum eru góðar. Á meðfylgjandi mynd eru Jón Hjaltalín Magnússon, for- maöur HSÍ, og Einar S. Ein- arsson. Sigurður til Þýskalands — ræðir við forráðamenn Blau Weiss Berlin „ÞAÐ ER alveg Ijóst að ég spila ekki með Blikunum á morgun. í fyrsta lagi verð ég ekki lögiegur fyrr en 12. júlí og í öðru lagi stend ég nú í samningaviðræðum viö Blau Weiss fré Berlín, sem leikur í 2. Bundesligu,1* sagöi Siguröur Grétarsson þegar við spuröum hann að því í gær hvort hann léki með Blikunum é morgun. Blau Weiss lék i „Oberligunni“ í fyrra og átti þá í baráttu viö Tennis Borussia Berlin, liöiö sem Siguröur lék meö í fyrra. Blau Weiss haföi sigur í þeirri viöureign og leikur því í Bundesligunni í ár, annarri deild hennar. „Ég fer líklega til Þýskalands á þriöjudaginn til aö reyna aö ná samningum. Ef þeir takast þá leik ég ekkert meö Blikunum í sumar, ef þeir takast hinsvegar ekki þá gæti ég leikiö meö þeim um leiö og ég kem aftur og þá tæki þaö mig einn mánuö aö verða löglegur meö því félagi sem ég kæmi til meö aö leika meö, ef af einhverju þannig verður," sagði Siguröur aö lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.