Morgunblaðið - 12.07.1984, Blaðsíða 45
: MöKGTfJNBUftÐIÐ*, ’PfMMTtfDAGITR M.‘ JÚLÍ 1084
/HELDURÐU ÞO TÖLTIR EKKII
RlKI£>,SI6GRMlNI,06
^VKRUPIR FYRlR MI6
1>V\ÞRJRR FJÓRPR/
\/>V BOKKURVV
*:45
Þad er margt um mannmn á Austurvelli þegar vel viðrar.
Austurvöllur á
fallegum degi
2722-1424 hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Mér liggur mikið á hjarta að fá
að vita hvað gengur á í þessu þjóð-
félagi.
Ég fór niður í bæ í yndislegu
veðri um daginn, gekk niður
Laugaveginn og þaðan út á Aust-
urvöll sem er vanalega blómum
skrýddur og fallegur grænn reitur
að sumri. En hann var sannarlega
ekki fagur þennan dag. Hann var
morandi af ræflum bæjarins. Þeir
lágu þarna fyrir hunda og manna
fótum og maður gat ekki þverfót-
að fyrir betli og fólki sem var með
ofstopa eða í slagsmálum. Ég tók
eftir að útlendingar urðu sérstak-
lega fyrir barðinu á þessu fólki.
Nú eru örfáir metrar til mið-
bæjarstöðvar lögreglunnar en ég
sá hana aldrei svo mikið sem aka
framhjá til að kanna aðstæður. Ég
talaði við kunnugan lögregluþjón
sem sagði að ástandið væri hræði-
legt en ekki væri vitað hvað væri
til úrræða. Lögreglan er fáliðuð á
þessu svæði og múgurinn svo æst-
ur að hann gæti ráðist á lögregl-
una ef hún reyndi að spyrna við
fótum. Þetta leðurjakkafólk virð-
ist í góðu veðri koma sér á almenn
útivistarsvæði og fæla aðra frá að
fara þangað.
Ég ferðast mikið með strætis-
vögnum borgarinnar og kem oft á
Hlemm. Þar horfir maður á vesal-
inga þessa þjóðfélags en vakt-
menn og lögreglan líta hreinlega
fram hjá þessu ógnvekjandi
vandamáli.
Mér er ekki alveg ljóst hvað er
til úrbóta en fyrst og fremst verð-
ur þó að vera til fólk innan lög-
reglunnar sem þorir og hefur tíma
til þess að vakta svona staði eins
og Austurvöll, þegar vel viðrar. Ég
er alveg handviss um að hvergi (
heiminum viðgengst það að svona
óþjóðalýður fái að tröllríða
stærstu torgum og þekktustu
svæðum höfuðborgar landsins. Við
eigum ekki marga bletti eins og
Austurvöll en ég væri ekki hissa á
því að eldra fólk þyrði ekki að lát.a
sjá sig nálægt þessu fólki.
Það verður að vera til mann-
skapur sem getur þrifið til og látið
þetta fólk eitthvert annað þar sem
það er ekki fyrir augum á al-
mennilegum borgurum hér. Við
vitum að margt af þessu fólki er
einstæðingar og á hvergi heima en
það minnsta sem hægt er að gera
er að fjarlægja þetta fólk á góðum
dögum.
Saga skipanna
Sigríður Gísladóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
Ég bý í Hafnarfirði og rölti
niður í bæ í góða veðrinu um dag-
inn. Þá slysaðist ég inn á sýningu
sem nú stendur yfir í sýningar-
salnum Háholt og nefnist „Saga
skipanna" og nú sé ég alls ekki
eftir tímanum sem ég eyddi þar
inni meðan sólin skein úti við.
Saga skipanna er mjög vönduð í
alla staði, fróðleg og hæfir öllum
aldurshópum. Nú hef ég frétt að
hún sé framlengd um viku og
hættir því ekki fyrr en um næstu
helgi. Ég hvet alla sem mögulega
geta til að skoða sýninguna.
Að lokum vil ég færa Jóni
Gunnarssyni sérstakar þakkir
fyrir hans framlag. Hann á hug-
myndina að sýningunni og er for-
stöðumaður hennar.
Að merkja
blindhæðir
Þorsteinn Guðmundsson hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
Fyrir skömmu varð harður
árekstur norður í Skagafirði þar
sem fólk stórslasaðist og bílar
gjöreyðilögðust. í grein sem ég las
um atvikið er þess getið að slys
hafi orðið á blindhæð sem sé
ómerkt með öllu. Áður hafa orðið
slys á sömu slóðum og margir far-
ið illa en samt hefur ekki verið
sett upp nein viðvörun. Nú langar
mig að spyrja hvernig svona nokk-
uð geti gerst hjá siðaðri þjóð, sem
telur sig vera. í framhaldi þess
vaknar sú spurning hvernig sé
fyrir útlending að aka um vegi
þessa lands. Leiðirnar eru stór-
hættulegar fyrir íslendinga sem
þó þekkja aðstæður margfalt bet-
ur en útlendir ferðamenn.
Mér skilst að vegurinn hafi ver-
ið malbikaður nýlega og hverjir
bera þá ábyrgðina á því að gera
vegfarendum ljósa hættuna sem
verður á vegi þeirra. Það væri
gaman að kanna hvort eins sé
ástatt víðar um landið.
Matthías Bjarnason, heilbrigð-
is- og samgöngumálaráðherra,
ætti að taka á sig rögg og lagfæra
svona reginmistök. Það er nokkuð
viturlegra að fylla upp í fjárlaga-
gatið með lækkun sjúkrakostnað-
ar og setja upp viðvörunarskilti
frekar en að plokka gamalmenni
og sjúklinga inn að skinni með
hækkun lyfja og lækniskostnaðar.
íslensk embættismannastétt
Starfsmaður Tryggingastofnunar
ríkisins skrifar:
Kæri Velvakandi.
Að undanförnu hefur verið veg-
ið ótæpilega að embættismanna-
stéttinni hér á landi og margt lát-
ið fjúka sem frekar mætti kyrrt
liggja.
Þegar ríkisreknar stofnanir sem
verða fyrir þessum árásum eru
skoðaðar ofan í kjölinn kemur í
ljós að margir embættismenn þar
hafa unnið í þágu ríkisins áratug-
um saman. Þessi tryggð er horn-
steinn lýðveldisins og starfsfólkið
hefur tekið virkan þátt í uppbygg-
ingu þess í 40 ár og jafnvel lengur.
Hvers konar aðdróttanir í garð
góðra starfsmanna eru því með
öllu tilhæfulausar og sýna einung-
is þekkingarskort á því efni sem
til umfjöllunar er. Öryggi okkar
allra er best tryggt með áfram-
haldandi embættismannastétt og
því öflugri sem hún verður því
styrkara verður lýðræði í okkar
landi.
S2P S\G€A V/OGA £ A/LVEgAU
hafiim
Norðurlanda-
meistarinn
í rúmasölu
er kominn aftur
Viö vorum aö fá sendingu af þess-
um vinsælu rúmum, tegund Anna í
Ijósri og lútaðri furu.
Takiö eftir
90x200 cm m/dýnum ö.zuu,- a.ö/u,-
100x200 cm m/dýnum 9.410,- 9.870,-
120x200 cm m/dýnum 10.740,- 11.390,-
140x200 cm m/dýnum 12.490- 13.140,-
170x200 cm m/dýnum 14.270,- 14.810,-
Náttborö 1.420,- 1.590,-
Og irel á minnst
Viö erum aö taka heim furusófasett 3+1+1 á kr.
9.530
Já níuþúsund fimmhundrud
og þrjátíu allt settiö
2ja ára ábyrgö
HÚSGAGNAUÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK « 91-81199 Ofl 81410
B^fjorrr visky,
FJÓRRR GIN 06 FJ0RRR
5ÉNEVER