Morgunblaðið - 22.07.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. jULl 1984
5
Sjónvarp kl. 22.25:
Aija Saijonmaa á Listahátíö
Síðasti dagskrárliður sjón- unnar Arja Saijonmaa sem hún
varpsins í kvöld er upptaka frá hélt á vegum Listahátíðar í
hljómleikum finnsku söngkon- Broadway þann 5. júní sl.
Sjónvarp mánudag kL 2125:
Hún
Winnie
okkar
Á mánudagskvöld kl. 21.25
verður á dagskrá sjónvarpsins,
breskt sjónvarpsleikrit, „Hún
Winnie okkar“ (Our Winnie),
cftir Alan Bennett.
Leikritið fjallar um unga
þroskahefta stúlku, Winnie, og
samskipti hennar við móður
hennar sem er ekkja. Hún er
ósátt við lífið og á erfitt með að
sætta sig við þá staðreynd, að
dóttir hennar sé þroskaheft,
eða „ekki í lagi“, eins og hún
sjálf orðar það.
Skagaströnd:
Útvarp Kántríbær
fékk að senda út
Útvarp kl. 19.35:
Eftir fréttir
Þátturinn „Eftir fréttir" er á
dagskrá útvarpsins kl. 19.35 f
kvöld, f umsjá Bernharðs Guð-
mundssonar. Þátturinn fjallar um
réttlKtismál í heiminum, mann-
réttindamál, þróunarmál og frið-
armál.
Knútur Árnason, eðlisfræð-
ingur, verður gestur þáttarins,
en hann er i samtökum eðlis-
fræðinga gegn kjarnorkuvá.
Knútur mun fjalla um friðar- og
afvopnunarbaráttu þeirra í sam-
tökunum, en kjarnorkusprengj-
an var eins og kunnugt er fundin
upp af eðlisfræðingum.
Þá mun Bernharður fjalla um
misskiptingu matvæla f heimin-
um og afleiðingar þess, því þó að
framleidd séu í heiminum næg
matvæli handa öllum jarðar-
búum, svelta margar þjóðir.
Þá verður spjallað um mann-
réttindabaráttu Amnesty Inter-
national, en þau samtök berjast
sem kunnugt er fyrir frelsi
manna um heim allan, sem af-
plána fangelsisdóma vegna trú-
ar- eða stjórnmálaskoðana.
Sr. Bernharður Guðmundsson
Bernharður mun síðan gera
grein fyrir föngum júlímánaðar,
sem áðurnefnd samtök berjast
fyrir, að leystir verði úr haldi.
„ÉG VANN stríðið og það er aðalat-
riðið, þótt þetta auki mjög kostnað-
inn við hátíðina, því ég þarf að hafa
hér Ueknimann frá útvarpinu til að
fylgjast með útsendingunni,“ sagði
Hallbjörn Hjartarson, kántrísöngv-
ari á Skagaströnd, í samtali við Mbl.
í gær. Kántríhátíðin stóð þá sem
hæst og sagði Hallbjörn, að mikil
stemmning væri ríkjandi og hefði
hátíðin heppnast vel fram til þessa.
„Það var mikil umferð hérna á
föstudaginn, svo að þess eru fá
dæmi, og geysilegt fjör. Gautar
frá Siglufirði spiluðu á ballinu og
við útvörpuðum kántrímúsík til
klukkan þrjú um nóttina og það
tókst mjög vel,“ sagði Hallbjörn
ennfremur. Aðalskemmtunin var
svo í gær, laugardag, og hófst hún
með hópreið hestamanna um
svæðið með Hallbjörn í broddi
fylkingar. Síðan var bílasýning,
þar sem valið var fallegasta „átta
gata tryllitækið". Þá voru sýndar
kvikmyndir úr „villta vestrinu", og
farið var í hestaíþróttir af ýmsu
tagi. Um kvöldið var svo ætlunin
að efna til „ródeó“-keppni, sem
kalla má „gandreið“ á íslensku, og
er það að sögn Hallbjörns í fyrsta
skipti sem keppni í þeirri grein fer
fram hér á íslandi. Um kvöldið
var svo ætlunin að efna til hæfi-
leikakeppni og kántríhljómleika
þar sem fram áttu að koma auk
Hallbjörns kántrísöngvararnir
Johnny King og Siggi Helgi, og svo
átti að vera dansleikur í Félags-
heimilinu.
„Hátíðin endar svo á sunnudag
með útimessu og síðan mun ég lík-
lega taka eitt eða tvö lög á eftir og
kveðja svo fólkið og slíta hátíð-
inni,“ sagði Hallbjörn og var hinn
hressasti með gang mála á þessari
fyrstu „kántríhátíð" á Skaga-
strönd.
VILTU OKEYPIS
TIL HOLLANDS 31. AGUST?
Viljiröu fara ókeypis í stórglæsi-
lega golfferð til Hollands þá er
tækifærið nákvæmlega núna! Og
viljirðu sameina ósvikna golfferð
og upplagða fjölskylduferð í
einum og sama pakkanum þá er
tækifærið ekki síðra. Taktu
fjölskylduna með til sæluhúsanna
í Hollandi 31. ágúst nk. og í eina
eða tvær vikur þræðir hinn góð-
kunni kylfingur, Kjartan L. Páls-
son, fararstjóri okkar í Kemper-
vennen, með þér hvern glæsi-
golfvöllinn á fætur öðrum.
Fjölskyldan er að sjálfsögðu
velkomin á völlinn á hverjum degi
en það væsirheldurekki um hana í
sæluhúsunum með sundlaugina,
íþróttavellina, reiðhjólabrautirnar,
sólbaðsaðstööuna og öll hin
þægindin í seilingarfjarlægð.
ÓKEYPIS FYRIR EINN!
Nú söfnum við saman áhuga-
sömum kylfingum af öllum gæða-
flokkum, förum í golf á hverjum
degi og efnum að sjálfsögðu til
SL-golfmóts með forgjöf og öllu
tilheyrandi. Verölaunin eru ekki
af lakara taginu: Ókeypis flug og
gisting fyrir þann sem ber sigur
úr býtum og sá hinn sami fær
ferðakostnaðinn endurgreiddan
strax við heimkomu!
Verö frá kr. 9.670
miöað viö 6-8 manns saman i sumarhúsi
(t.d. tvær fjölskyldur sem slá sér saman).
Innifaliö er flug Keflavik - Amsterdam -
Keflavík, akstur til og fráflugvellierlendisog
gisting í sumarhúsunum i Kempervennen í
eina viku. Moguleiki er á aö framlengja
dvölina um eina viku. Barnaafsláttur
kr. 3.600 fyrir börn 2ja - 11 ára.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727