Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984 7 HUGVEKJA eftir séra Guðmund Óskar Ólafsson „MeisUri — hvar býr þú?“ Jóh. 1:39 Það eru ýmsir, já líklega fleiri en tölu verður á komið, sem hafa spurt eftir bústað meistara síns einhverntíma. í ritum Sören Kierkegaard má á einum stað lesa eftirfarandi: „Hvar er ég? í heiminum? Hvað merkir þetta orð? Hver hefur ginnt mig hingað og skil- ið mig hér eftir? Hver er ég... ? Hvernig varð ég hlut- hafi í þessu mikla fyrirtæki, sem menn kalla veruleika? Hversvegna á ég að vera hlut- hafi? ... Og ef ég er tilneydd- ur, hvar er þá forstjórinn? Ég leyfi mér að gera athugasemd: Er kannski enginn forstjóri? Hvert á ég að snúa mér með umkvörtun mína?“ Eitthvað ámóta hefur lík- lega flogið um huga hjá flest- um, það þarf ekki einu sinni skakkaföll til í lifinu að hvarfli að hversu notalegra væri að vita einhver skil á því hver eða hvað réði þeim ósköpum að senda mann inn í þessa veröld. En þrátt um þessa þörf að vita til uppruna síns og markmiðs i för, þá höfum við trúlega öll uppgötvað að hér þýðir ekki að skjóta máli til dóms, ekki held- ur dugir að skrifa Velvakanda, því svörin verða ætíð legio- óteljandi, með allskonar lausn- ir, en enga endanlega og sann- aða. Það hefur enginn til þess afl eða auðnu að leiða fram meistarann eða forstjórann fyrir lífinu, að við megum á honum þreifa og krefjast svara augliti til auglitis. Maður verð- ur að gjöra svo vel og búa við það fús eða tregur að fá ekki að sjá þennan hæstráðanda yf- ir lífi manns — vel að merkja ef hann þá einhver er. En hætta menn þá að leita hans? Það er ekkert sem bendir til þess. Fremur að nú sem áður vilji menn allt til gefa og selja hvað þeir eiga til að finna. Meistarans er leitað í töfrum nýrra og nýrra kenninga og kerfa sem kenna eiga ham- ingju og gleði af hinum og öðr- um toga og ýmsir leita vitandi eða óafvitandi í heillandi blossum skammvinnra sælu stunda, sem sumar hverjar brenna svo aldrei verður bætt. En forstjórinn hefur dulist, hvað sem menn hafa sogað til sín, teygt sig hátt eða hugsað djúpt og raunin ætíð orðið sú að þessi varð niðurstaðan á einn eða annan veg: „Ekkert eins takmarkalaust takmarkað og hugsunin.* Hún er óþreytandi og frið- laus en fær þó aldrei ró í þeim meistara, sem hún skapar sjálf. Meistarinn hefur ætíð reynst stærri en svo, huldari en það, að menn gætu litið hann augum eða hugsað hann upp á yfirborðið í sínum eigin krafti. Hver væri hann líka að mætti og mikilleika, sá sem stýrir himni og jörðu ef að við gætum gert hann að þeirri vasaútgáfu sem okkur þóknað- ist með þenkingum okkar? Og hverskonar meistari væri hann eiginlega, ef að það væru aðeins þeir, sem hafa djúpu gáfurnar og kunnáttusamlegu æfingarnar, sem gætu fundið hann? Hvers ættu þeir vesal- ingar að gjalda, sem hann hefði sent út í lífsveruleikann svo fátæklega nestaða móts við aðra, aö geta aldrei til hans vitað? Þetta er nú orðinn all rauna- legur pistill hjá mér, kominn tími til að lita á bjartari hlið á málinu. Því hefur stundum verið kastað fram að kristin- dómurinn væri barnalegur og mér hefur í rauninni alltaf lík- að sú athugasemd vel á sinn Leitin mikla hátt. Þar er nefnilega gert ráð fyrir að spekingarnir þurfi að gerast barnalegir til að með- taka hann og það er langtum auðveldara heldur en að öll börnin verði að spekingum. Þegar menn spurðu um for- stjórann fyrir lífinu fyrir nær tvö þúsund árum og þegar menn spyrja hins sama á Reyðarfirði eða í Reykjavík á þessum degi, þá er komið svar í kristinni boðun af vörum Jesú Krists: „Ég og faðirinn erum eitt... Hver sem hefur séð mig hefur séð föðurinn" Komið til mín ... Trúið á Guð og trúið á mig. Hér þarf enga yfirburða speki framar, engar æfingar, sem einum eru léttar og öðrum ófærar, heldur hefur forstjórinn fyrir lífinu gert sig kunnan börnum sínum, hefur látið þekkja sig, vilja sinn, ljúfleika elsku sinnar og mis- kunnar á jörðu. Þeir eru grát- lega margir, sem hafa heyrt þetta, hafa numið þetta frá bernsku, en róa stöðugt á önn- ur mið til leitar að meistara sínum. Ekki þar fyrir, margt er fallegt að finna víðsvegar, en það er bara svo takmarka- laust takmarkað sem hugsunin getur borið okkur í átt til for- stjórans, ef að við höfnum Honum sem hefur borið him- ininn á jörðu niður. Víst veit ég að við lifum á tímum þeirr- ar fjölhyggju, þegar fast er haldið að okkur vel auglýstum hamingjuleiðum af hverskyns toga og það á vel við um slíkt er Ólafur Jóhann kveður: „Þúsund bumbur eru barftar þér við hlift galdranornir beina að þér gjallandi hljððfæmm málmkynjaðir tónar setjast að i eyrum þtnum hinir onJiuryioðu aðngvarar ávarpa þig f sífellu.” Já, hann er megn slátturinn í eyrum, sem flytur þann boðskap að meistarinn sé á þessu leitinu eða hinu, helst á hverju horni, nema þar sem kirkjan er með tíðindin um að Guð hafi komið til lítilmagn- ans og látið hann þekkja sig. Okkur hættir svo til þess að vilja hafa þetta eitthvað miklu öðruvísi og finna, eitthvað örð- ugra, eitthvað sem bara út- valdir geta aflað sér. Meira að segja þeir sem trúa á Guð og telja sig þekkja hann i Kristi Jesú, þeir eru oft á tíðum ekki í næmari snertingu en það, að vera að argast hver út í annan fyrir blæbrigði í túlkun á þessu eða hinu. Það er hollt að rökræða og hafa skiptar skoð- anir, en engum er það til góðs og allra sist kristninni að vera með fjas, sem hneykslar hina trúarveiku. Það sagði einu sinni við mig kona eftir að hafa lesið eitt dellubréfið um trúmál í lesendadálki dag- blaðs: „Mikið vildi ég að fólkið rifist frekar um simaskrána, það mundi gera minni skaða.“ Hjartanlega var ég henni sam- mála. Við þurfum nefnilega á öllu okkar að halda i samstöðu við að segja frá þeirri stað- reynd sem ein skiptir sköpum að meistarinn býr hér, hann er með oss á jörðu og hefur geng- ið inn í torkennilegan veru- leikann með okkur og leyst okkur frá þeirri sáru spurn i eitt skipti fyrir öll að efast um tilgang og mark með þessari vegferð okkar. Hin sára spurn- ing er nefnilega ekki nema ein, hún er þessi: Hver á mig og stjórnar öllu og hvernig er hann. Á meðan við spyrjum út i tómið þá verður svarið svona — svo ég vitni nú aftur i ólaf Jóhann: Einn er að spyrja sjálfan sig svarar þvf hjartað fáu. — Það er vfst hætt að hugsa um mig handan við fjðllin bláu. En þegar við spyrjum Guð í nafni Jesú Krists, leitum til hans í bæn, upplýsumst i orði hans og vitjum helgunar af elsku hans, þá erum við orðin þau börn, já, svo barnaleg að hann getur gefið okkur þann hjartans frið sem við þráum og leitum og vitum hann meistara og Herra yfir lífi okkar og veru. Við höfum þá eignast þann auð í lífsfyrirtækið sem hvorki mölur né ryð getur grandað. „Og ef Drottins perlu dýpst í sál þú geymir/ og Drottins náð og kærleik aldrei gleymir/ þig sjálfan geymir Guð í sínu hjarta." rkaíi Fj<Z£P*** « stfíSÍgSíg sinn ' Samanburöur á óvöxtun Júlí 1984 Ávðxtun ééri T*gund Bindi- Art- 15% 20,0% 25% rjantiiingar tfmf ivðxtun vöröbótga Verðtr veöskuldabr. 1-10 ár 11-12,00% verfttr. 28,8% 34,4% 40,0% Eklri spariskirt 2m-4ár 5,80% + verðtr. 21,7% 27,0% 32,3% Happdr skuidabr 5m-3ár 8,00% + verfttr. 24,2% 29,6% 35,0% Ny spariskírt 3ár 5,08% + verfttr. 20,8% 26,1% 31,4% Gengistr. sparisk. 5ár 9,00% + gengistr. ? ? ? Rikisvixlar 3 m 25,57% 25,6% 25,6% 25,6% Banka + sparisj.skirt. 6m 22,10% 22,1% 22,1% 22,1% Iftnaöarb. + bónus 6m 21,60% 21,6% 21,6% 21,6% Sparisj.reikn. 3 m 17,70% 17,7% 17,7% 17,7% Alm. sparisj.bók 0 15,00% 15,0% 15,0% 15,0% SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 23. júlí 1984 Spariskírteini og happdrættislán ríkissjóös Veðskuldabréf — verðtryggð Ar-flokkur Sölugengi pr. kr. 100 Avöxtun-1 arkrafa Dagafjöldi til innl.d. 1970-2 17.415,64 Innlv. f Seftlab. 5.02.84 1971-1 15.933,47 5,80% 1 ár 52 d. 1972-1 14.441,32 5,80«/. 1 ár 182 d. 1972-2 11.622,31 5,80«/. 2 ár 52 d. 1973-1 8.733,96 5,80% 3 ár 52 d. 1973-2 8.458,71 5,80«/. 3 ár 182 d. 1974-1 5.458,64 5,80«/. 4 ár 52 d. 1975-1 4.289,72 5,80% 167 d. 1975-2 3.202,52 5,80% 182 d. 1976-1 2.954,80 5,80«/. 227 d. 1976-2 2.397,34 5,80«/. 182 d. 1977-1 2.122,16 Innlv. í Seftlab. 25.03.84 1977-2 1.825,11 5,80% ó 47 d. 1978-1 1.438,89 Innlv. f Seftlab 25.03.84 1978-2 1.165,97 5,80% 47 d. 1979-1 982,01 5,80% 212 d. 1979-2 757,45 5,80«/. 52 d. 1980-1 652,85 5,80% 262 d. 1980-2 501,30 5,80% 1 ár 92 d. 1981-1 428,54 5,80% 1 ár 182 d. 1981-2 315,37 5,80% 2 ár 82 d. 1982-1 300,50 5,80«/. 218 d. 1982-2' 222,04 5,80«/. 1 ár 68 d. 1983-1 170,84 5,80% 1 ár 218 d. 1983-2 110,84 5,80% 1 ár 128 d. 1974-D 5,319,50 Innlv. f Seftlab. 1984 1974-E 3.811,03 8,00% 128 d. 1974-F 3.811,03 8,00«/. 128 d. 1975-G 2.436,56 8,00% 1 ár 128 d. 1976-H 2.245,45 8,00% 1 ór 247 d. 1976-1 1.709,00 8,00% 2 ár 127 d. 1977-J 1.525,42 8,00% 2 ár 248 d. 1981-1.«. 330,31 8,00% 1 ár 278 d. Sölugengi m.v. 2 afb. á ári Nafnvextir (HLV) Ávöxtun umtram verötr. 1 ár 95,46 4% 10,75% 2 ár 92,56 4% 10,87% 3 ár 91,27 5% 11,00% 4 ór 88,94 5% 11.12% 5 ár 86,67 5% 11,25% 6 ár 84,49 5% 11,37% 7 ár 82,36 5% 11,50% 8 ár 80,32 5% 11,62% 9 ár 78,34 5% 11,75% 10 ár 76,45 5% 11,87% 11 ár 74,61 5% 12,00% 12 ár 72,87 5% 12,12% 13 ár 71,17 5% 12,25% 14 ár 69,57 5% 12,37% 15 ár 68,03 5% 12,49% Veðskuldabréf óverðtryggð Sölug.m/v 1 afb a an 18% 20% (Hlv) 21% Þak 20% 1 ár 84 85 86 82 2 ár 72 74 75 69 3 ár 62 64 65 58 4 ár 54 56 57 49 5 ár 48 51 52 43 Sölug.m/v 2 afb. á ári 18% 20% (Hlv) 21% Þak 20% 1 ár 88 90 90 87 2 ár 78 80 80 75 3 ár 68 70 71 64 4 ár 60 62 63 56 5 ár 54 56 58 49 Daglegur gengisútreikningur Vcrðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaóarbankahúsinu Sími 28566

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.