Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984 Helstu óperuhúsin í Evrópu Það er oft meiri við- burður að fara í óper- una en á tónleika eða í leikhús. Margar list- greinar koma þar sam- an (einn gagnrýnandi hefur sagt að óperunni takist að eyðileggja þær allar) og hafa alveg sér- stök áhrif á tilflnningar og fegurðarskyn. Áhorfendur vilja oft helst ekki yfirgefa óperusalinn að sýningu lokinni og margir reyna að bera frammistöðu IEvrópu eru nokkur óperuhús sem hafa aðstöðu og fjármagn til að setja frægustu óperum- ar veglega á svið. En jafnvel þar tekst misjafnlega vel til og venju- legar sýningar eru oft ekki nema þokkalegar og stundum sveita- legar og þaðan af verra. Óperu- gestir fá þó alltaf eitthvað út úr ferð í helstu óperuhús Evrópu, þótt sýningin sé ekkert sérstök. Hefðir þeirra eru rótgrónar og saga húsa eins og La Scaia í Míl- anó, Wiener Staatsoper í Vín, Cov- ent Garden í London og L’Opéra de Paris nær aftur á 18. öld. And- ar gamalla alþjóðastjarna, sem höfðu oft ekki útlitið með sér en bjuggu yfir stórkostlegri rödd, svífa enn í þessum húsum og gest- irnir geta fundið það. Að sumu leyti er gamli tíminn auðfinnanlegastur í Parísaróper- unni, þar sem enn eimir eftir af Gounod og Massenet. Byggingin var reist 1875 í anda ríkidæmis og hefðarfólks. Prjálið er mikið, for- salurinn og stiginn stór og mikill, en salurinn ótrúlega lítill og sætin heldur óþægileg fyrir nútíma bakhluta. Þýsku og austurrísku óperuhús- in eru hversdagslegri. Ríkisóperan í Vín er að mörgu leyti tákn um ysinn og þysinn á götunum, kjaftaganginn og þóttafullan braginn í borginni. Vínarbúar taka tónlistina mjög hátíðlega og gleyma aldrei að Mozart, Haydn, Beethoven, Schubert, Brahms, Bruckner, Mahler og fleiri bjuggu eins eða annars söngv- ara saman við söng ein- hvers gamals uppá- halds. Kunnáttumenn velta einstökum atrið- um fyrir sér og spyrja sjálfa sig hvort hraðinn hafí verið réttur, skrautmunirnir hafí átt við, hvaða lokatónar þetta hafa verið hjá ein- um söngvaranum og hvort að stjórnandinn hafí ekkert vitað um sýningarvenjur á dög- um Mozarts. þar. Þeir eru uppteknir af tónlist- arpólitíkinni og taka afstöðu til ákveðinna söngvara, stjórnenda, framkvæmdastjóra og höfunda. Heimsfrægir listamenn hafa kom- ið fram í Vínaróperunni og stjórn- að henni og má þar til dæmis nefna Richard Strauss og Herbert von Karajan. — Gamla Volk- óperan í Vín er enn í'gangi. Sagt er að Vínaróperettur séu hvergi betur fluttar en þar. Og sýningar eru einnig enn fluttar í Theater an der Wien, þar sem Fidelio eftir Beethoven var frumflutt. Þjóðleikhúsið í Múnchen er fal- leg og virðuleg bygging. Óperusýn- ingarnar þar eru ávallt mjög vel æfðar og á heimsmælikvarða, en það vantar eitthvað á flottheitin. Gamla Cavillies-leikhúsið er skammt frá. Það er fullkomnasta Roccocco-leikhúsið í Evrópu. Moz- art setti Idomeneo á svið þar árið 1781 og byggingin hefur sama og ekkert breyst síðan. Þjóðverjar tóku leikhúsið í sundur í heims- styrjöldinni síðari og settu í ör- ugga geymslu og röðuðu því síðan saman aftur að styrjöldinni lok- inni. Berlín var ein af helstu óperu- borgum heims á 3ja áratugnum. Það hefur breyst þótt Deutsche- óperan í Vestur-Berlín hafi uppá mjög margt að bjóða og heimsins bestu söngvarar komi þar fram. Byggingin var vígð árið 1961 og hún höfðar ekki til sömu tilfinn- inga og gömlu óperuhúsin í Evr- ópu. — Fólk gerði sér sérstakar ferðir í Komische-óperuna í Austur-Berlín á meðan Walter Felsenstein lifði. Hann stjórnaði óperunni með glæsibrag, en fátt hefur heyrst þaðan síðan hann lést árið 1975. Hið sama má segja um Ríkisóperuna í Berlín og mjög fáir Vesturlandabúar komast í hina víðfrægu Dresden-óperu. Stór hluti óperuhúsa er frægur fyrir góða höfunda eða stjórnend- ur, en Konunglega óperan í Stokkhólmi er þekktust fyrir fyrsta flokks söngvara. Jenny Lind, Birgit Nilsson, Kerstin Thorborg, Jussi Björling, Set Svanholm og Elisabeth Söder- ström stigu sín fyrstu skref þar. Húsið var vígt 1898 og æ síðan hafa ungir söngvarar á uppleið komið þar fram. i Óperan í Prag ber af öðrum óperum í Austur-Evrópu. Bygg- ingin stendur við Vltava-ána eða Moldau, sem Smetana samdi um í tónverki sínu „Föðurland rnitt". Þar gefst Vesturlandabúum tæki- færi til að heyra óperur sem eru yfirleitt ekki fluttar annars stað- ar, en þó sérstaklega tóntist eftir Smetana og Dvorák á tékknesku. Bolshoi þýðir „stór“ og allt í sambandi við Bolshoi-óperuna í Moskvu er stórt. Hún er ein ör- fárra staða þar sem óperur eru enn fluttar eins og þær voru flutt- ar á síðustu öld. Allt er haft sem raunverulegast og hermenn í ein- um þætti óperunnar The Dec- embrists skjóta alvöru byssukúl- um í bardagaatriði. Sovéskir áhorfendur skemmta sér konung- lega þegar borgir virðast brenna til kaldra kola og skip í óperunni Sadko eftir Rimsky-Korsakov virðist sökkva og hetjan situr á hafsbotni. Óperur eftir Tchaiko- vsky, Glinka og Mussorgsky eru enn fluttar í Bolshoi í sama bún- ingi og þegar þær voru frumflutt- ar. Verk eftir Verdi og öll önnur verk eru flutt á rússnesku. Saga Feneyjaóperunnar nær aftur til 1792 og er uppáhaldsóp- era margra. Þar voru frumflutt mörg verka Rossinis, Bellinis og Donizettis upp úr 1820, en starf- semi óperunnar var ekki flutt í Te- atro la Fenice-bygginguna fyrr en 1854. Byggingin er næstum jafn fullkominn minjagripur og Cu- villies-byggingin í Múnchen. Hún er lítil, en mikill fjöldi stórverka hefur verið frumfluttur þar. Nokkur verk eftir Verdi voru frumflutt þar og árið 1883 var Der Ring des Nibelungen eftir Wagner fyrst sett þar á svið á Ítalíu. óperusöngvarar eru yfirleitt glorhungraðir að sýningum lokn- um og þekkja bestu matsölustað- ina sem enn eru opnir í nágrenni óperuhúsanna. Þeir fara á Vier Jahreszeiten eða Franziskaner Keller í Múnchen, oftast á Hotel Sacher I Vín og stórstjörnurnar fara á Savoy í London. Nag’s Head-kráin við Covent Garden er þó einnig vinsæl og Café de la Paix í París. Söngvararnir í Berlín leita sér að stað við Kúrfúrstendamm og Aragvi-matstaðurinn er vin- sæll í Moskvu. Eftir sýningu í La Scala fara margir söngvarar á Biffi Scala, en þar ku þjónninn skræla appelsínur af jafnmikilli list og Michaelangelo skapaði höggmyndir. (Endursagt úr grein í Her- ald Tribune eftir Harold C. Schonberg. — ab.) Arnaldur Arnarsson heldur gítartónleika Arnaldur Arnarsson gítarleikari heldur tónleika í Norrcna húsinu þriðjudaginn 24. júlí og í Menning- armiðstöðinni vid Gerðuberg fimmtu- daginn 26. júlí. Hefjast báðir tónleik- arnir kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk eftir John Dowland, Benjamin Britten, Alexander Tansman og Joaquin Rod- rigo. Arnaldur hóf gítarnám tíu ára að aldri í Svíþjóð. Hann hélt áfram hjá Gunnari H. Jónssyni við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í Reykjavík og við Konunglega tón- listarskólann í Manchester. Þar var Gordon Crosskey kennari hans í gít- arleik. í vetur var hann við fram- haldsnám hjá José Tomás í Alicante á Spáni. Hann er nú búsettur í Barcelona og starfar bar við tónlist. Á tónleikunum leikur Arnaldur verk John Dowland á ellefu strengja altgítar sem sérstaklega er hannað- ur til flutnings á lútutónlist. Arnaldur Arnarsson gítarleikari Eiðfaxi SJÖUNDA tölublað tímaritsins Eið- faxa er komið út. Meðal efnis 1 blaðinu er frásögn Hjalta Jóns Sveinssonar af hesta- mönnum á Varmalæk í Skagafirði. Rætt er við Svein Runólfsson, land- græðslustjóra, fjallað um hugmynd- ir um Reiðkennaraskóla íslands að Hólum í Hjaltadal og Þorgeir Guð- laugsson skrifar um hestanöfn. Knú- ið er dyra á Skarði í Landssveit og spjallað við þá feðga Guðna Krist- insson og Kristin Guðnason. Auk þessa eru fastir þættir svo sem Hitt og þetta og Orð f eyra. Ritstjóri Eiðfaxa er Hjalti Jón Sveinsson. EI-pFAXIzS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.