Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984
47
Ford Escort, mest seldi bíll í heimi þriðja árið í röð.
Ljósm. Mbl. Árni.
Björn Jónsson, sem nú er hættur
búskap.
Stykkishólmur:
Björn á Innri
Kóngsbakka
hættir búskap
BJÖRN Jónsson fyrrum bóndi að
Innri Kóngsbakka í Helgafellssveit,
hefir fyrir nokkru hætt búskap og er
fluttur til Stykkishólms ásamt
bræðrum sínum Jóni og Lárusi.
Björn bjó lengi á Kóngsbakka í
samstarfi við systkini sín, hann
var um skeið oddviti, einnig sýslu-
nefndarmaður og fleiri opinberum
störfum hefir hann gegnt. Hann
hefir verið alla tíð ákveðinn bind-
indismaður, skildi snemma það
böl og þau vandræði sem áfengið
veldur. Um skeið hefir Björn ritað
ýmsan fróðleik úr sínum átthög-
um og eru handrit geymd í Amt-
bókasafninu í Stykkishólmi. Fyrr
á árum fékkst Björn við smíðar,
hyggði íbúðar- og útihús, auk ann-
arra algengra starfa.
Björn heimsótti undirritaðan nú
fyrir skömmu og þá voru þessar
myndir teknar. Ræddu þeir saman
um ýms málefni nú á döfinni og
minntist Björn þá á ýmsa siði og
atriði sem voru í hefð í ungdæmi
hans, meðal annars hvernig menn
nýttu sér allar breytingar á lofti
og spáðu þannig í veður. Hann bar
saman aga dagsins í dag og áður
og hefir hann ritað um heimilislíf
æsku sinnar meðal annars.
Björn er nú 82 ára gamall. Hann
var kvæntur Sigurborgu Magn-
úsdóttur en hún er látin fyrir
nokkrum árum.
Árni
Hijómtnltlakvnnlng: AIWA V 1100 »natsoðan
SASIC o« (Mrl tölvumM
CDsptiarar Fjonrtýringar - TAkninýjungar
Nýtt ,í (Twrkaðnum
Rafeindin
ÍIT ER komið tímaritið Rafeindin 3.
tbl. annars árgangs.
Meðal greina í Rafeindinni að
þessu sinni má nefna: Saga hljóð-
ritunar frá 1802—1983, hljómtækja-
kynning, greinar um Digital-plötu-
spilara, tölvumálið BASIC, fjarstýr-
ingar, teikningar og leiðbeiningar
um smíði á ódýrum magnara. Sagt
frá ýmsum tækninýjungum s.s.
nýjum minnisgeymslum, rafknún-
um bílum og nýjum leiftursnögg-
um samrásum. Að lokum skal get-
ið greinar um meðferð á hljóm-
plötum og hljóðböndum.
Greinahöfundar: Einar Erlends-
son, Níels Kristjánsson, Páll
Theódórsson, Sigurður Reynisson
og Steinþór Þóroddsson.
Rafeindin er 48 síður að stærð,
útgefandi er útgáfufélagið Raf-
eind hf. Ritstjóri er Steinþór
Þóroddsson.
Ford Escort er
mest seldi bfll
f heimi 1983
ALLS seldust 827.000 bílar af
gerðinni Ford Escort á árinu 1983
og er sú bílategund þar með sú
mest selda í heiminum þriðja árið
í röð. Næst á eftir fylgir Renault
R-9, en af þeirri tegund seldust
alls 727.000 bílar á síðasta ári. f
þriðja sæti er Toyota Corolla,
707.000 bflar seldir á árinu 1983.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá Sveini Egilssyni
hf. sem hefur Ford-umboðið hér
á landi. í tilkynningunni segir
að þetta sé þriðja árið í röð sem
Ford Escort er mest seldi bíll
heimsins. Þar segir ennfremur
að enginn bíll sé framleiddur á
jafn mörgum stöðum, en Es-
cortinn er framleiddur í níu
löndum. Þá segir að þetta sé
fyrsti og eini bíllinn sem hlotið
hafi nafnbótina „bíll ársins"
austan hafs og vestan sama ár-
ið.
Síkhar gera
fyrirsát
Nýju Delhí, 20. júlí. AP.
SEX síkhar, sem grunaðir eru um
hryðjuverk, gerðu þjóðvarðliðum
fyrirsát í dag í Punjab-héraði á Ind-
landi.
Að sögn hinnar opinberu frétta-
stofu landsins féll einn úr hópi
síkhanna, og tveir særðust í skot-
bardaga, sem sigldi i kjölfar fyrir-
sátursins.
Talsmaður indverska hersins
sagði í dag að 25 herdeildir mundu
gæta 473 skóla, þar sem háskóla-
nemar þreyta próf á mánudag.
Var þessum prófum frestað fyrir
þremur mánuðum vegna þess að
stúdentasamtök síkha hótuðu að
fremja hryðjuverk yrðu þau hald-
in.
(FrétUtilkynning.)