Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 48
~~mSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI. SÍMI ’tm?
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
AUSTURSTRÆtl 22
INNSTRÆTI, SlMI 11340
SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Gullskipsmeim:
Losun þilsins
hefst í dag
GULLSKIPSMENN ráðgera að hefja í
dag lo.sun stálþilsins á Skeiðarársandi
en undanfarnar vikur hafa þeir unnið
að undirbúningi verksins, lagt veg
niður á fjörukambinn og komið fyrír
Uekjum og búnaði. Stálþilið, sem er
milljónavirði, er orðið fullt af sandi
síðan siðastliðið haust en nauðsynlegt
var að fylla það af sandi til að ná því
upp.
Gullskipsmenn hafa átt i nokkr-
um erfiðleikum með vegarlagning-
Afbragðs-
góð vertíð
137 hvalir eru
komnir á land
una niður 15 kílómetra langt vatna-
svæði Skeiðarár vegna ágangs ár-
innar. Tækjabúnaður hefur verið
sérstaklega útbúinn til þessa verks
og meðal annars smíðaður sérstakur
krani á spilbíl. Átta menn vinna að
verkinu og búa þeir í búðum gull-
skipsmanna á Lækjarbakka á miðj-
um sandinum, en flugvöllurinn á
Brúsastöðum er nú undir vatni.
Reiknað er með að það taki eina til
tvær vikur að koma þilinu af sand-
inum. Að því loknu hefst annar kap-
ítuli gullskipsmanna á þessu sumri,
en stefnt er að því að hefja þá leit að
nýju að Het Wapen van Amsterdam
á hinum nýja loftpúðabíl sem
gullskipsmenn hafa smíðað i vetur
og verður búinn fullkomnum leitar-
tækjum. Svifnökkvinn á að vera
jafnvígur yfir landi og vatni, en að-
alvandinn hefur verið að leita á
svæðum þar sem sandbleyta er mik-
il.
Forskot á tívolísæluna
UNDIRBÚNINGUR að tívolí á Melavelli er nú hafinn
og verður það rekið af Kauplandi sf., sem einnig rekur
leiktækjasali í borginni. Ætlunin er að opna tívolíið um
næstu mánaðamót og að sögn annars eiganda Kaup-
lands sf., Pálmars Magnússonar, verður það látið ráð-
ast hversu lengið það verður rekið, sem fer að sjálf-
sögðu eftir aðsókn og veðri. Meðfylgjandi mynd tók
Ijósmyndari Morgunblaðsins, Júlíus, af reykvískum
krökkum, sem tóku smá forskot á tívolísæluna.
Hagkaup og Vörumarkaðurinn:
Vilja taka sláturhús KS
á Sauðárkróki á leigu
Treysta sér til að greiða bændum fullt verð
„ÞETTA hefur verið afbragðsgóð
vertíð. Að undanfbrnu hafa þokur
hrellt okkur lítillega, en bátarnir
þrír hafa alltaf verið að veiðum.
Því eru nú komnar 129 langreyðar
og 8 sandreyðar á land, sem er
mun betra en í fyrra,“ sagði Magn-
ús Gunnarsson á skrifstofu Hvals
hf. í samtali við Morgunblaðið i
g*r, laugardag.
Magnús sagði, að veiðin væri nú
djúpt út af Vesturlandi og virtist
hvalurinn vera að færa sig norðar,
en veiðin hefði hafizt út .af
Garðskaga. Enn sem komið væri
beindist veiðin í langreyðina, en
ein og ein sandreyður slæddist
með. Sandreyðurin gengi venju-
lega seinna á miðin, ekki fyrr en í
ágúst.
Samkvæmt ákvörðun Alþjóða-
hvalveiðiráðsins má nú veiða 167
langreyðar og mest 100 sandreyð-
ar. Samkvæmt úthlutun veiði-
kvóta áttu íslendingar rétt á 131
sandreyði alls á þessu ári og
næsta, en aldrei má veiða meira
en 100 sandreyðar árlega.
Hagkaup hf. og Vörumarkaóurinn
hf., sem reka eins og kunnugt er
stórar verslanir í Reykjavík og víðar,
hafa skrifaó stjórn Kaupfélags
Skagfiróinga bréf og óskað eftir vió-
ræóum um möguleika á aó fyrirtækin
fái siáturhús KS á Sauðárkróki leigt
næsta haust, ásamt nægjaniegum
frystigeymshim, í því skyni aó taka
að sér sauófjár- og stórgrípasiátrun,
kjötgeymslu og söhi. Ef samningar
um sanngjarnt leigugjald nást telja
þessir aóilar mögulegt aó greiða
bændum fullt grundvallarveró en KS
treysti sér ekki til aó greiða bændum
fullt veró vegna innlagðra sauðfjáraf-
urða vió síðasta uppgjör. Bréfið verð-
ur tekið fyrir á næsta fundi í kaupfé-
lagsstjórninni en formaður stjórnar-
innar sagði í samtali við Mbl. í gær
að sér litist ekki vel á þessa hug-
mynd.
„Með þessu viljum við gera til-
raun til að opna þetta kerfi, sem
hingað til hefur verið misnotað af
einokunaraðilum og þá á ég við
Sambandið og Sláturfélagið,"
sagði Gísli Blöndal fulltrúi fram-
kvæmdastjóra hjá Hagkaup hf. er
hann var spurður af hverju fyrir-
tækin sæktust eftir þessu. „Við
teljum að þau sláturhús sem ekki
hafa greitt fullt verð til bænda
hafi þar með haft geysilegar fjár-
hæðir af bændum og tími til kom-
inn að leyfa öðrum að spreyta sig á
þessum rekstri og sýna fram á að
hægt sé að reka þetta vel eins og
hvert annað fyrirtæki."
í bréfi fyrirtækjanna segjast
þau vera eignaraðilar að slátur-
húsum sem hafi greitt bændum
fullt grundvallarverð undanfarin
ár og jafnframt skilað góðum
hagnaði. Telja þeir sig því hafa
nægjanlega reynslu til að taka
þetta verkefni að sér og sölumögu-
leika fyrir allt kjötið. Gisli sagði
nánar spurður um þetta að Hag-
kaup væri hluthafi í Höfn á Sel-
fossi en það sláturhús hefði skilað
fullu verði til bænda og jafnframt
hagnaði. Vörumarkaðurinn væri
aðili að sláturhúsi í Þykkvabænum
sem jafnframt hefði greitt fullt
verð. „Við teljum að sláturkostn-
aður hafi verið allt of hátt metinn
á undanförnum árum og sex-
mannanefndin aldrei haft aðstöðu
til að vefengja þær tölur sem fyrir
fyrir hana hafa verið lagðar,"
sagði Gísli er hann var spurður að
því með hvaða móti þeir teldu sig
geta borgað bændum hærra verð
en sláturleyfishafar almennt gera.
„Við teljum einfaldlega að við get-
um rekið þessi hús miklu betur og
slátrað með minni tilkostnaði,"
sagði Gísli einnig um þetta atriði.
Gunnar Oddsson bóndi I Flata-
tungu í Skagafirði, formaður
stjórnar Kaupfélags Skagfirðinga,
sagði að bréfið hefði ekki verið
rætt í stjórninni en það yrði vænt-
anlega gert á næsta stjórnarfundi
um eða uppúr næstu mánaðamót-
um. Gunnar sagði að sér litist ekk-
ert sérstaklega vel á þetta í fljótu
bragði séð. Hann gæti ekki séð að
þessir aðilar hefðu aðstöðu eða
getu til að vinna þetta ódýrara en
gert er nú. Er Gunnar var spurður
að því hvort það skipti bændur
nokkru máli hver sæi um slátrun-
ina ef þeirra hagsmunum væri bet-
ur borgið, sagði hann að í sjálfu
sér væri ekkert á móti því en þeir
þyrftu þá að setja tryggingar og
athuga þyrfti hvað þetta væru
ábyggilegir menn því bændur ættu
allt sitt undir þessu.
Skattseölar
bornir út
eftir helgina
DREIFING á álagningarseðlum
frá Skattstofunni i Reykjavik
hefst eftir belgina og á miðviku-
dag, 25. júlí nk., verður skatta-
skráin lögð fram, að sögn Gests
Steinþórssonar, skattstjóra i
Reykjavík.
„Það verður byrjað að dreifa
álagningarseðlum á mánudag
og á miðvikudag eiga allir að
vera búnir að fá sína seðla,"
sagði Gestur í samtali við Mbl.
í gær. Gestur sagði að engar
umtalsverðar breytingar væru
á álagningunni frá þvf sem
verið hefði og yrði fjölmiðlum
birtar helstu niðurstöður á
miðvikudaginn nk.
Morgunblaðid/Arni Sæberg.
Nú er unnið við að talui í sundur flak TF Rán, þyrlu Landhelgisgæslunnar sem fórst í Jökulfjörðum í haust, en í
athugun er að selja það til útlanda, þar sem hægt yrði að nota það sem nýtilegt er úr því.