Morgunblaðið - 22.07.1984, Síða 20

Morgunblaðið - 22.07.1984, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984 AF INNLENDUM VETTVANGI eftir HJÖRT GÍSLASON ENDANLEGA lokaður vítahringur! Þetta var svar flestra viðmælenda undirritaðs er þeir voru inntir eftir stöðunni í sjávarútveginum í dag. Eftir síðustu fiskverðsákvörðun telja hagsmunaaðilar í sjávarútvegi útgerð rekna með allt að 10% tapi, vinnsluna í heild með allt að 6% tapi. Með áframhald- andi rekstri aukist því tapið á öllum sviðum og fyrir marga sjálfstoppað án þess að um einhvers konar mótmæli sé að ræða. Þeir geti hreinlega ekki meira. FALLVOLT UNDIRSTAÐA VELMEGUNAR ÞJÓÐARINNAR Með stoppi vinnst hins vegar ekki neitt, nema að hugsanlega verði gripið til einhverra aðgerða af hálfu stjórnvalda til leiðréttingar á rekstrargrundvelli. Ljóst er, að meö stöðvun veiða og vinnslu í einhverjum mæli, kemur fljótt að því, að gjaldeyristekjur þjóöarinnar dragist saman Jjrátt fyrir veru- legar birgðir sjávarafurða eins og stendur. A síðasta ári námu gjaldeyristekjur af útflutningi sjávarafurða 12,7 milljörðum króna og voru þá 68% af heildinni, 18,6 milljörðum króna. • • Afskipti stjórnvalda aðalorsök vandans? En hverju er um að kenna? Skiptar skoðanir eru um það. Sjávarútvegsráðherra hefur sagt, að það leysi engan vanda að stoppa og það þýði ekkert fyrir talsmenn útvegsins að biðja stjórnvöld um 'aðstoð. Þeir verði að leysa sín mál sjálfir. En hvaða áhrif hafa stjórnmálamenn haft á gang þessara mála á undanförn- um árum? Hafi þau verið einhver og á verri veginn, hlýtur að koma til kasta stjórnvalda að laga það sem miður hefur farið við stjórn- un þeirra á málum sjávarútvegs- ins. Nokkrir af viðmælendum und- irritaðs tóku það sterkt til orða, að afskipti stjórnvalda væru megin orsök vandans. Fælust þau í at- höfnum misviturra stjórnmála- manna, sem fram kæmu í misskil- inni byggðastefnu og landshluta- poti. Ein afleiðing þess væru allt of margir skuttogarar, sem útveg- aðir hefðu verið með einstökum lánafyrirgreiðslum. Hins vegar hefði það gleymzt við „atkvæða- kaupin", að mönnum hefði nánast verið gert skylt að taka lánin í dollurum með þeim afleiðingum að skuldir margfölduðust vegna handahófskennds spils við geng- isskráningu. Á undanförnum ár- um hefði sífellt verið spilað á gengisskráningu með tilliti til verðbólgu og vísitölu án þess að huga að framtíðinni. Ein ákvörðun af þessu tagi væri geng- isstefna núverandi ríkisstjórnar, sem miðaðist við fast gengi til að vinna bug á verðbólgunni. Síðan töluðu menn um það, að iaunafólk hefði staðið straum af kostnaði við herferðina gegn verðbólgunni. Það væri alrangt. Með núverandi gengisstefnu hefði verðmæti út- flutningsvara sjávarútvegsins far- ið sílækkandi. Ekki hefði tekizt að halda dollaraverði í Bandaríkjun- um og hækkun krónunnar, sem nú væri sterkasti gjaldmiðill Evrópu, sem þýddi, að nánast vonlaust væri að framleiða fisk á Evrópu. Því hefðu tekjur útvegsins farið minnkandi á sama tíma og „þjón- ustuverðbólgan" heima fyrir æddi áfram. Við síðustu fiskverðs- ákvörðun hefði fiskvinnslan ekk- ert fengið á móti hráefnisverðs- hækkuninni annað en lækkandi afurðaverð í kjölfar rangrar gengisskráningar. Leiðir til úrbóta — mál útvegsins sjálfs, stjórnvalda eða allrar þjóðarinnar? Hverjar leiðir eru þá til þess, að koma sjávarútveginum á það stig, sem hann var á fyrir nokkrum ár- um, er hann gat staðið undir vel- megun þjóðarinnar? Svör við þessu hafa lengi vafizt fyrir mönnum. Ljóst er, að fyrrnefndu markmiði verður að ná. Samdrátt- ur í sjávarafla hlýtur að bitna á þjóðinni allri. Því verður þjóðin öll að taka þátt I lausn þess vanda, sem hún er í. Viðmælendur undir- ritaðs voru að sjálfsögðu ekki sammála um lausnir. Sumir telja að sjávarútvegurinn verði að leysa sín mál sjálfur. Aðrir telja, að þar verði að koma til afskipti stjórn- valda, en hvað geta þau gert? Sumir telja að gengi verði að lækka til að auka tekjur vinnsl- unnar, en það megi ekki gera án þess, að þess verði gætt að geng- isbreytingin gangi ekki af fullum krafti út í verðlagið. Til að koma til móts við útgerðina þarf að taka mið af stórviðskiptum við olíufé- lögin og láta útveginn hætta að niðurgreiða olíu- og raforkuverð. Rangri lánafyrirgreiðslu Fisk- veiðasjóðs, Byggðasjóðs og viðskiptabankanna í formi lána til fyrirtækja með neikvæða eigin- fjárstöðu verði hætt. Draga verði úr sóknarþunga með tilliti til minnkandi afraksturs fiskistofna, til dæmis með fjárhagslegri að- stoð við að taka skip úr rekstri innan einhverra ákveðinna marka. Sem sagt, það verði að minnka álögur á útgerðinni og gera allt sem hægt er til að takmarka sókn- ina, þannig að þeir, sem eftir verði nái því aflamagni, sem tryggi rekstrargrundvöll og getu til greiðslu lána og skulda. Skuldir sjávarútvegsins greiði enginn annar en hann sjálfur, en til þess að það geti orðið þurfi verulegar breytingar. Flotinn of stór — hvers sök, hvernig má minnka hann? Útgerðin hefur verið rekin með tapi mörg undanfarin ár. Full- trúar útgerðarinnar telja tapið allt að 10% en Þjóðhagsstofnun metur það talsvert minna. Að baki því liggja fjölmargar ástæður. Þorskafli landsmanna hefur dreg- izt mjög saman síðustu ár og afla- samsetning jafnframt orðið óhagstæðari. Því hefur hlutfall olíukostnaðar í aflaverðmæti skip- anna, einkum togskipa, farið ört vaxandi og er nú komið upp i allt að 50% af aflaverðmæti í einstök- um veiðiferðum, en sókn með slík- um hætti hlýtur að teljast athuga- verð. Nú eru í landinu rúmlega 100 skuttogarar og hefur þeim fjölgað um 20 síðan 1980 og enn meira síðan 1978. Haft hefur verið eftir Eyjólfi ísfeld Eyjólfssyni, for- stjóra SH, að í fjölgun skuttogar- anna séu áhrif Framsóknarflokks- ins við stjórnvölinn að koma i ljós. Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, hefur einnig látið hafa það eftir sér að flotinn sé of stór miðað við núverandi aðstæð- ur og aflamöguleika. Skuldastaða flotans er geigvænleg og rekstrar- afkoma nýrri togaranna talin vonlaus i flestum tilfellum. Þar vilja menn kenna um þeirri stefnu lánastofnana að erlend lán til út- gerðar skyldu tekin í dollurum, en hún hefur á undanförnum árum haft í för með sér margföldun skuldanna vegna tiðra gengisfell- inga án nauðsynlegra hliðarráð- stafana. Hafa sumir líkt gengis- spilinu við það, að pissa i skóinn sinn til að hlýja sér. Þótt volgni í fyrstu verði óþægindin öllu meiri en fyrr, áður en langt um líður. Til marks um tap útgerðarinnar má nefna, að á fyrstu 5 mánuðum þessa árs var tap á togurum Út- gerðarfélags Akureyringa 20 milljónir króna eða það sama og allt árið áður. Ennfremur er það athyglisvert, að eini togari ÚA, sem á síðasta ári skilaði bókfærð- um hagnaði, lá bundinn við bryggju allt árið. — Þó slíkt geti verið til, er víst að sú aðferð skilar ekki verulegum hagnaði fyrir þjóðarbúið. * Útgerð einstaklinga, ríkis og sveitarfélaga eða Sambandsins Nú vofir yfir stöðvun 10 skut- togara á Austfjörðum og eflaust eru menn komnir í þrot víðar, þó áfram sé haldið. Hafa menn þar í nauðum sínum orðið að gripa til þess ráðs, að láta skipin sigla með aflann. Bæði vegna þess, að fisk- vinnslan hefur ekki getað greitt fyrir hann, og hins vegar til þess að afla reiðufjár og olíu, sem nú er 48% ódýrari til fiskiskipa í Bret- landi en hér. Eiríkur Tómasson, útgerðarstjóri Þorbjörns hf. í Grindavík, hefur sagt í samtali við Morgunblaðið að rekstur skipanna sé vonlaus með þessu olíuverði. Ennfremur hefur nú komið fram, að hafnar eru viðræður LÍÚ og olíufélaganna um hugsanlega endurskoðun á olíuviðskiptunum. Þeir þættir, sem áður voru nefndir sem hugsanleg lausn á vandanum hafa flestir komið fram í Morgun- blaðinu áður í samtölum þess við hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Hins vegar hefur verið hljótt um athafnir stjórnvalda, þó í gangi sé skuldbreyting fyrir útgerðina. Vanskilaskuldir útgerðarinnar eru nú taldar nálægt 2 milljörðum króna og 300 milljónir til skuld- breytinga gagna lítið. Viðmælend- ur Morgunblaðsins voru margir á því máli, að við aðstoð við útgerð- ina yrði að taka tillit til þess, hvernig rekstri viðkomandi væri háttað, ekki væri rétt að aðstoða menn við slælegan rekstur. Hins vegar er nú svo komið, að fjár- magnsflótti frá sjávarútveginum er farinn að gera vart við sig og vegna gangs undanfarinna ára eru mörg, áður vel stæð, einkafyrir- tæki að komast i þrot. Einn einka- rekstrarmaður sagði, að nú væru nær allar lánastofnanir slíkum fyrirtækjum lokaðar. Hins vegar stæði ekki á lánum og styrkjum til útgerðar og fiskvinnslu f eigu ríkis og bæjarfélaga. Það hlyti til dæm- is að vera þægilegt að reka fyrir- tæki, sem fengi milljón á viku til stuðnings rekstrinum. Þá væri það ljóst að fyrirtæki á vegum Sam- bandsins ættu mun greiðari að- gang að fjármagni í krafti þeirra möguleika á millifærslum. Héldi fram sem horfði, legðist einka- rekstur í sjávarútvegi niður og flyttist á hendur Sambandsins, sveitarfélaga og rfkis. Þá yrði það ekki lengur á ábyrgð einstaklinga að halda uppi atvinnu f heilum bæjarfélögum. Það kynni að koma annað hljóð f strokkinn, þegar málum væri svo komið. Hallarekstur, afurða- verðslækkun og feiki- leg birgðasöfnun Þjóðhagsstofnun telur frystingu í lok síðasta mánaðar með halla- lausan rekstur að kalla, en vinnsl- una í heild rekna með 1 til 2% halla. Hins vegar telja verkendur, að tapið gæti numið allt að 6% af tekjum og með tilliti til mark- áðsstöðu og mikils smáfisks í afla, megi ætla að tapið aukist á næst- unni. Ætla má, að birgðir frystra sjávarafurða og óseldra séu nú um 4,2 milljarðar króna. Verð afurða hefur lækkað á árinu og mikið framboð á fiski í Bandaríkjunum vegna hinnar styrku stöðu dollars- ins eykur enn hættuna á frekari verðlækkunum. Framleiðsla á Bretland hefur nú verið hafin eftir nokkurt hlé, þrátt fyrir, að við- mælendur undirritaðs telji það vonlaust fjárhagsdæmi. Birgða- söfnun á Bandaríkjamarkað hefur tvennt í för með sér. Annars vegar mikinn geymslu- og vaxtakostnað, sem þó er ekki svo mikill að heldur borgi sig að framleiða á Bretland. Hins vegar felst í mikilli birgðas- Eydal til Mallorca HLJÓMSVEIT Ingimars Eydal hef- ur nú í sumar skemmt dansglöðum Sjallagestum. Sjallinn hefur verið fjölsóttur og hefur þar verið margt ferðamanna, enda veður með ein- dæmum gott á Akureyri í sumar. Auk þess að spila í Sjallanum hefur hljómsveitin komið fram á sumarsæluviku Skagfirðinga og á skemmtun ómars Ragnarssonar í Veitingahúsinu Broadway. Þann 25. júlí heldur hljómsveitin til Mallorca á vegum Ferðaskrifstof- unnar Atlantik. Þar mun hún leika fyrir íslendinga og aðra sumarleyfisgesti á hótelunum Royal Playa del Palma og Jardin del mar. Einnig mun hljómsveitin leika í grísaveislu á herragarðin- um Son Amar. Hljómsveit Ingi- mars Eydal skipa þau Þorleifur Jóhannsson, sem leikur á tromm- ur, Grímur Sigurðsson, sem leikur á bassa og syngur, Inga Eydal söngkona og Brynleifur Hallsson, sem leikur á gítar og syngur, auk Ingimars sem leikur á hljómborð. Að lokum má geta þess að í bígerð er hljómplata með hljómsveitinni. (Fréttatilkynning) I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.