Morgunblaðið - 22.07.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984
39
Júlía Newhouse, módir Lillian, á unga aldri.
Með Sergei Eisenstein í Moskvu 1945.
söguna um Jóhönnu af Örk og
Candide eftir Voltaire.
Árið 1960 var frumsýnt nýtt leik-
rit eftir hana, „Tovs in the Attic",
en það var fyrsta frumflutta verk
hennar frá 1951. Leikritið hlaut
verðlaun gagnrýnenda sem besta
leikrit ársins 1960.
Þann 10. janúar 1961 lést Dashi-
ell Hammett úr krabbameini, sem
hafði uppgötvast aðeins tveim
mánuðum fyrir dauða hans. Það
var þá komið á það stig að upp-
Rithöfundarnir Dashiell Hammett og Dorothy Parker, bestu vinir Lillian
Hellman í gegnum tíðina.
skurður gat engu bjargað. Hellman
gaf út úrval verka hans 1966. í ævi-
sögu sinni, „An unfinished Wom-
an“, lýsir hún síðustu dögum þeirra
saman, þegar hún reynir að gera
ýmislegt til að lina kvalir hans,
hann fær sér m.a. martiniglas fyrir
kvöldmatinn að undirlagi hennar,
og hafði þá ekki bragðað áfengi í 12
ár.
Dorothy Parker
Dashiell Hammett opnaði Lillian
Hellman dyr að heimi skálda og
rithöfunda, hún varð ein besta
vinkona Dorothy Parker, þekkti
Ernest Hemingway, F. Scott Fitz-
gerald, Sergei Eisenstein og Norm-
an Mailer. í ævisögu sinni, „An
unfinished Woman", lýsir hún öllu
þessu fólki. Sérstaklega eru
skemmtilegar lýsingar hennar á
kynnum þeirra Dorothy Parker
sem var ein besta vinkona hennar
til fleiri ára. Dorothy Parker hitti
Hellman í fyrsta sinn 1931, stuttu
eftir að hún flutti til New York
með Hammett. Þau voru þá stödd í
samkvæmi með frægum skáldum
og rithöfundum. Skyndilega birtist
kona nokkur á sjónarsviðinu, lítil
og grönn, kynnti sig fyrir Hamm-
ett, féll á kné fyrir framan hann og
kyssti á hönd hans. Þetta atvik átti
að vera hvort tveggja í senn, al-
varlegt og fyndið, en missti marks,
og gerði Hellmann auk þess gramt
í geði, og hún segist hafa séð hvern-
ig það væri í hnotskurn að vera ung
óþekkt kona í félagsskap hinna
frægu. Að loknu samkvæminu
ásakaði hún Hammett fyrir að
hafa látið þessa konu dást að sér,
hann þrætti hinsvegar fyrir það og
sagðist á engan hátt hafa „látið"
neinn dást að sér og sjálfum fund-
ist þetta afar óþægilegt.
Þær Dorothy Parker og Lillian
Hellman hittust ekki aftur fyrr en
í Hollywood veturinn 1935, og eftir
að hafa gefið hvor annarri auga í
smá tíma tóku þær tal saman,
Hellman kunni vel við Parker og
þær áttu eftir að hittast oft, eða
þar til Parker dó í júní 1967. í
endurminningum sínum segist
Hellman oft hafa furðað sig á því
hversu vel þeim hafi komið saman,
og að þeim skyldi aldrei verða
sundurorða öll þau ár sem þær
voru vinkonur. Hún segir þær hafa
verið mjög ólíkar, tilheyrðu ekki
sömu kynslóðinni, skrifuðu ekki
samskonar bækur, lifðu ákaflega
ólíku lífi, höfðu ólíkar skoðanir á
fólki, bókum og karlmönnum, og
voru að sögn Hellmans báðar ákaf-
lega „erfiðar" konur. Parker var
gift Álan Campbell árið 1935,
manni sem Hellman geðjaðist síður
en svo að, og hún segir Parker hafa
haft gaman af að segja gamansög-
ur af honum, oft blandaðar ákveðn-
um biturleika, og skipti þá ekki
máli hvort áheyrendur voru einn
eða fleiri, sérstaklega ef Parker
hafði fengið sér nokkra drykki. En
hún bar miklar tilfinningar til
hans, og giftist honum m.a. tvisvar.
Á sama hátt og Hellman hafði ekki
skap fyrir Campbell, var Parker
ekki ýkja hrifin af Hammett, og
Hammett var heldur ekkert um
Parker gefið, síðustu árin var hann
vanur að yfirgefa húsið er von var
á Parker í heimsókn.
Hellman skrifaði nokkrar ævi-
sögur sem vöktu talsverða athygli
og unnu til verðlauna. I lok bókar-
innar „An unfinished Woman“,
sem gefin var út í fyrsta sinn 1969,
segist hún sakna Hammetts gífur-
lega, hann hafi verið einn athyglis-
verðasti maður sem hún hafi
kynnst. „Ég hlæ enn að því sem
hann sagði og hefði sagt, og rífst
enn við hann, svo mikil áhrif hefur
hann haft á líf mitt. Ég er þó ekki
orðin nógu gömul til að meta for-
tíðina betur en nútíðina, en ég
sakna þess að hafa eytt of miklum
tíma í að reyna að finna einhvern
„sannleika", reyna að finna eitt-
hvert „vit“. Ég hef aldrei almenni-
lega vitað að hverju ég var að leita.
Enn á ég eftir að gera svo margt
við líf mitt vegna þess að ég hef
eytt of miklum tíma í annað.“
Akureyri:
Eldvarnarkerfi fór
í gang í Sunnuhlíö
Akureyri, 17. júlí.
Slökkvilið Akureyrar var kallad
að hinni nýju verslunarmiðstöð
Sunnuhlíð klukkan 12.33 í dag.
Hafði eldvarnarkerfi, sem er í
verslunarmiðstöðinni, gefið til
kynna eld, en í Ijós kom við athug-
un, að bilun hafði orðið í kerfínu að
þessu sinni og því engan eld að
finna.
Kristinn Lórensson varðstjóri,
tjáði Mbl. að nú væru alls 19 fyrir-
tæki og stofnanir í bænum bein-
tengd við slökkvistöðina, þannig
að þeir gætu brugðist við um leið
og eitthvert þeirra færi í gang. Er
þá lögð bein símalína frá viðkom-
andi eld- og reykskynjarakerfi til
slökkviðstöðvarinnar sem gefur
samband strax og eitthvað fer úr-
skeiðis. Sagði Kristinn þetta
ómetanlegt öryggisatriði fyrir
stærri vinnustaði og þar fengist
ódýr vakt allan sóiarhringinn.
Alls hefur slökkvistöðin nú tæki
til þess að beintengja á þennan
hátt alls 24 fyrirtæki, þannig að
enn er hægt að bæta við fimm, auk
þess sem með litlum fyrirvara
mætti bæta við núverandi kerfi.