Morgunblaðið - 30.10.1984, Síða 26

Morgunblaðið - 30.10.1984, Síða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984 Morgunblaðið/RAX. Talið frá vinstri: Rúnar Skarphéðinsson, ráðgjafi, Þorvaldur Þorsteinsson, textagerðarmaður, Saevar Guðbjörnsson, auglýsingateiknari, Gunnar Steinn Pálsson, forstjóri og við borðið Tómas Jónsson, auglýsingateiknari. Auglýsingastofan Tímabær: Edlileg og tímabær nýjung — segir Gunnar Steinn Pálsson forstjóri Ný auglýsingastofa, Tímabær, tók til starfa í gær. Þar mun verða boðið upp á einfaldari og ódýrari þjónustu en almennt þekkist á auglýsinga- stofum. Tímabær er deild innan Auglýsingaþjónustunnar hf. og starf- ar í tengshim við hana. Blaðamaður Morgunblaðsins hafði samband við Gunnar Stein Pálsson, forstjóra, og spurði hann að hvaða leyti þessi auglýsinga- stofa væri frábrugðin öðrum. „Það má líkja þeim auglýsinga- stofum, sem hér starfa, við fína veitingastaði sem eru dýrir og mjög góðir,“ sagði Gunnar Steinn. „Við erum að setja upp skyndi- bitastað, þar sem aftur á móti er boðið upp á ódýra þjónustu og hraða afgreiðslu. Við bjóðum upp á ókeypis ráðgjöf fyrir smærri fyrirtæki, sem hingað til hafa ekki treyst sér til eða haft efni á sam- starfi við auglýsingastofurnar. Einnig munum við bjóða stærri fyrirtækjum, sem hafa mótaðar hugmyndir, upp á að ljúka verk- efnum fyrir þau á sem stystum tíma.“ Gunnar Steinn sagði að við- brögðin fyrsta daginn hefðu upp- fyllt þeirra björtustu vonir. „Það hefur verið hringt frá mörgum fyrirtækjum í allan dag og við- skiptavinir hafa litið inn og lýst yfir hrifningu sinni á þessari nýj- ung í auglýsingaþjónustu á land- inu. Þetta er í rauninni ekki aug- lýsingastofa i þeirri merkingu, sem lagt hefur verið í það orð hingað til. Þetta er eðlileg og tímabær nýjung miðað við það ástand sem er í þjóðfélaginu í dag. Pólk hefur minni peninga og meiri aðhaldssemi er í allri peninga- eyðslu. Þetta ástand kallar á ódýr- ari og hagkvæmari leiðir fyrir auglýsendur eins og aðra. Við er- um mjög ánægð með viðbrögðin og munum standa við gefin loforð um hraða afgreiðslu. Sá möguleiki er alltaf fyrir hendi að nota aðstöð- una í Auglýsingaþjónustunni og nú höfum við kost á að fá 15—20 lausráðna starfsmenn sem eru til- búnir til að vinna á kvöldin og á nóttunni til að takast megi að Ijúka þeim verkefnum sem lofað hefur verið. En hér á stofunni verða 2 auglýsingateiknarar, einn textagerðarmaður og einn ráð- gjafi sem vinna undir eftirliti Auglýsingaþjónustunnar að því marki sem þúr þurfa á að halda. Þannig að oaki þessari stofu stendur rótgróin og traust auglýs- ingastofa." Gunnar Steinn var spurður að því hvort þessi nýjung hafi valdið einhverjum óróa á auglýsinga- markaðnum. Hann kvað svo hafa verið. „Það var kannski við því að búast að okkar aðferð til þess að kynna þessa nýju þjónustu myndi valda einhverjum óróa. Við riðum á vaðið og birtum fyrstir allra auglýsingastofa ákveðna verðskrá. Þjónustan er boðin á miklu lægra verði en á öðrum auglýsingastof- um. En rétt er að taka það fram að við erum ekki að bjóða upp á sömu vinnu og þar. Við ætlum að vinna vel og við ætlum að vinna hratt. Viðskiptavinirnir hljóta að gera sér grein fyrir því, að við leggjum ekki eins mikið í auglýsingarnar og aðrar stofur. Við ætlum að bjóða upp á einfaldari og fljótlegri vinnubrögð, sem að sjálfsögðu lækka kostnað. Þessi órói sem komið hefur í ljós á örugglega eft- ir að líða hjá, þar sem við erum í raun ekki að keppa við eða undir- bjóða vinnu annarra auglýsinga- stofa. Heldur erum við fyrst og fremst að opna fleirum leið inn í faglega auglýsingaþjónustu. Hér mun ekki verða um nein föst viðskipti að ræða, en við munum taka við einstökum verkefnum frá viðskiptavinum, sem áður hafa verið hjá öðrum auglýsingastof- um. Þetta hefur ekki tíðkast áður, að minnsta kosti ekki á jafn opinskáan hátt Ég vil taka það fram að vinna hjá íslenskum aug lýsingastofum hefur verið mjög vönduð og viðskiptavinunum dýrmæt. Það verður alltaf þörf fyrir góðar, traustar og vandaðar auglýsingastofur, sem leggja allt í sölurnar fyrir árangur viðskipta- vina sinna,“ sagði Gunnar Steinn að lokum. Morgunblaðið hafði samband við Ólaf Stephensen, formann Sambands íslenskra auglýsinga- stofa, en hann vildi ekki tjá sig um viðbrögð SÍA við þessari nýju auglýsingastofu fyrr en eftir stjórnarfund í dag. Sovéska bensínskipið: U ndanþágubeiðni enn óafgreidd ITREKUÐ undanþágubeiðni frá olíufélögunum um losun á bensíni og gasolíu úr sovéska skipinu, sem hingað kom á föstudaginn sl. er enn til umfjöllunar hjá verkfallsstjórn BSRB. Olíufélögin sóttu um undanþágu á afgreiðslu skipsins við komu þess á föstudaginn, en þeirri beiðni var þá hafnað. f annað sinn var sótt um undanþágu til losunar skipsins og var sú beiðni ítrekuð í gær. Hjá BSRB fengust þær upp- lýsingar í gær, að ekki væri enn búið að taka ákvörðun um af- greiðslum þessarar undanþágu- beiðni. Bjarni Snæbjörn Jónsson, markaðsstjóri hjá Skeljungi sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að það væri aðeins spurning um nokkra daga hversu lengi bensín- birgðirnar entust úr þessu, en hann kvaðst þó vongóður um far- sæla lausn þessa máls. Sovéska skipið er með um 15 þúsund lítra af bensíni og um 6 þúsund lítra af gasolíu. Samningar samþykktir í þremur bæjarfélögum BÆJAROTARFSMENN í Kópavogi og Hafnarfirði hafa samþykkt í at- kvæðagreiðslu nýgerða kjarasamn- inga og bæjarstjórn ísafjarðar sam- þykkti í gær kjarasamning, sem gerður hafði verið við opinbera starfsmenn í bænum. Kópavogssamningarnir voru samþykktir með 210 atkvæðum gegn 38, en 3 seðlar voru auðir. Af 211 bæjarstarfsmönnum í Hafnar- firði greiddu 180 atkvæði og þar af voru 116 samþykkir samningunum en 60 greiddu atkvæði á móti. Fjórir seðlar voru auðir. Bæjar- stjórn fsafjarðar samþykkti áður- gerða samninga við þæjarstarfs- menn, eftir að afgreiðslu málsins hafði verið frestað vegna þeirrar óvissu sem ríkti í samningamálun- um fyrir helgi, þ.e. hvort farin yrði „skynsemisleiðin eða verð- bólguleiðin", eins og bæjarstjór- inn á fsafirði, Haraldur L. Har- aldsson, komst að orði í samtali við Morgunblaðið. Alvarlegt ástand fyrir norðan: Kjúklingabændur orðnir fóðurlausir Undanþága fæst ekki fyrir Laxá að sigla frá Reykjavík NEYÐARÁSTAND er að skapast á alifuglabúum á Norðurlandi vegna skorts á fóðri. Fóðurvörudeild KEA og KSÞ sf. á Akureyri á fóður í MS Laxá en skipið er í verkfallskví í Reykjavík. Ekkert er því til fyrir- stöðu að losa skipið á Akureyri en verkfallsnefnd BSRB hefur ekki vilj- að veita undanþágu til brottfarar þess úr Reykjavík. Hjá Fóðurvörudeild KEA og KSÞ sf. á Akureyri er allt kjúkl- ingafóður búið og eiga bændur að- eins fóður til fóðrunar fuglanna í dag, að sögn Gylfa Pálssonar deildarstjóra Fóðurvörudeildar- innar. Varpfóður dugir fram í miðja vikuna en svínafóður fram að næstu helgi. Verkfallsnefnd BSRB veitti í síðustu viku undan- þágu til losunar fóðurs sem sunn- lenskir bændur áttu í Laxá. Gylfi sagði að undanþágubeiðni norðan- manna hefði verið hafnað fyrir helgi og aftur í gær. Hefði um- sóknunum verið hafnað vegna ein- hvers ágreinings á milli BSRB og skipafélaganna. Þá hefði þeim verið sagt að ná í fóðrið á bílum en það væri óframkvæmanlegt, þeir ættu hvorki fóður í Reykjavík né bílakost til að sækja það. „Hvers eiga norðlenskir bændur að gjalda?“ spurði Gylfi. Karpov tekur enga áhættu Skák Margeir Pétursson TÍUNDA jafnteflið í röð í einvígi Sovétmannanna Anatoly Karpovs heimsmeistara og Gary Kasparovs blasir nú við, en nítjánda einvíg- isskák þeirra fór í bið í gær í Moskvu eftir 44. leik Karpovs. Heimsmeistarinn, sem hafði hvítt, fékk betri stöðu eftir byrjunina sem var drottningarbragð. í mið- taflinu urðu töluverðar sviptingar en síðan einfaldaðist taflið mjög mikið og eftir það spáðu bæði Tal og Polugajevsky, heimsfrægir sov- éskir stórmeistarar, því að skákin yrði jafntefli. Möguleikarnir voru að vísu ávallt Karpovs megin, en þegar skákin fór í bið var Ijóst að Kasparov myndi halda jafntefli, léki hann ekki gróflega af sér. Á föstudaginn slógu þeir Kar- pov og Kasparov 57 ára gamalt jafnteflamet þeirra Aljechins og Capablanca, en þeir gerðu átta jafntefli í röð í einvígi sínu um heimsmeistaratitilinn í Buenos Aires 1927. Svo virðist sem bæði heims- meistarinn og áskorandinn séu um þessar mundir að bíða færis. Kasparov teflir nú af mun meira öryggi en í upphafi einvígisins og hefur ekki gefið Karpov neitt færi á því að ljúka því. Eftir að staðan varð 4—0 Karpov í vil eftir aðeins níu skákir, bjuggust fáir við að tefla þyrfti 20 skákir, sem sá sem vinnur fyrr sex sinn- um sigrar. Nú eru hins vegar all- ar horfur á því að einvígið drag- ist á langinn og ólíklegt að þeir Kasparov og Karpov geti verið í sovéska liðinu á Ólympíumótinu í Saloniki í Grikklandi sem hefst 18. nóvember. 19. skákin: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Gary Kasparov Drottningarbragð 1. RÍ3 - d5, 2. d4 - Rf6, 3. c4 — e6, 4. Rc3 - Be7, 5. Bg5 — h6, 6. Bxf6 Þessi leikur hefur ekki sést áð- ur í einvíginu, en kapparnir hafa báðir leikið 6. Bh4 í stöðunni. — Bxf6, 7. Dd2 — Rc6, 8. e3 04), 9. Hcl Undanfarna mánuði hefur það yfirleitt gefist vel að langhróka í þessari stöðu, en val Karpovs er mjög vel skiljanlegt með tilliti til stöðunnar í einvíginu. Heims- meistarinn ætlar greinilega að tefla af ýtrustu þolinmæði og bíða eftir úrslitamistökum and- stæðingsins. — a6,10. Be2 — dxc4,11. Bxc4 — e5, 12. d5 — Ra7!?, 13. Dc2 — Rb5, 14. Rxb5 Eftir 14. Bxb5 — axb5, 15. Rxb5 - Hxa2, 16. Ra3 - Dxd5 nær hvítur ekki að vinna hvíta hrókinn á a2. — axb5, 15. Bb3 — e4! Svartur varð að fórna peði í stöðunni og þar sem Karpov hef- ur ekki hrókað nær Kasparov viðunandi gagnfærum. 16. Rd4 Öruggasta leiðin. 16. Rd2 — Bf5, 17. Rxe4 — Bxe4, 18. Dxe4 — Bxb2, hefði leitt til lítils, en til greina kom 16. Dxe4!? — Bxb2, 17. Hc2 - Df6, 18. Hxc7, því 18. - Bc3+, 19. Ke2 - Bf5 má svara með 20. De7! — Bxd4, 17. exd4 - c6l, 18. dxc6 — Dxd4, 19. 04) 19. c7 er vindhögg vegna 19. — Bd7! — bxc6, 20. Dxc6 — Bd7, 21. Dd5! Tryggir hvítum varanlega stöðuyfirburði í endatafli, en staðan er orðin svo einföld að Kasparov tekst að verjast. — Dxd5, 22. Bxd5 — Ha6, 23. Hfdl — Be6, 24. a3 — Bxd5, 25. Hxd5 — Hb8, 26. Hd4 — Ha4, 27. Hcdl — Hc8, 28. Kfl Svartur heldur sínu eftir 28. Hd8+ Hxd8, 29. Hxd8+ Kh7, 30. Hb8 - Hd4, 31. Kfl - Hd5 — Hc2, 29. H4d2 — Hxd2, 30. IIxd2 - Hc4, 31. Ke2 - b4, 32. Kdl — Bxa3, 33. bxa3 Nú er komið upp mjög svipað endatafl og í sjöttu skákinni þegar Karpov vann með kantfrí- peð í hróksendatafli. En nú standa menn Kasparovs mun betur til varnar en þá. — Ha4, 34. Ha2 — f5, 35. Kc2 — f4, 36. Kb3 - Hd4, 37. Hal!? Eftir 37. a4 — e3, 38. fxe3 — fxe3 39. He2 — He4! eða 39. a5 — Hd3, heldur svartur augljóslega jafntefli svo Karpov reynir óvæntari leik. — Kf7, 38. a4 — e3, 39. Kc3 — Hd8, 40. fxe3 — fxe3, 41. Hel — Ha8, 42. Kb3 — Hb8+, 43. Kc2 — Ha8, 44. Hf1+ Hér fór skákin í bið og Kasp- arov lék biðleik. Einfaldasta jafnteflisleiðin er 44. — Kg6, 45. Hal - Hd8!, 46. a5 - e2, 47. a6 — Hd7! og hvítur kemst ekki lengra áleiðis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.