Morgunblaðið - 30.10.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984
55
Erfðalögin:
Maki fái rétt til að
halda eigin húsnæði
LAGT hefur verið fram í
neðri deild Alþingis frum-
varp til laga um breytingu á
erfðalögum, þannig að eftir-
lifandi maki eigi ævinlega
rétt til að halda eigin heimili,
það er íbúðarhúsnæði sínu
Persónu-
afsláttur
tvöfaldaður
TVEIR þingmenn Alþýðuflokks, þau
Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Bald-
vin Hannibalsson hafa lagt fram
frumvarp til laga um breytingu á lög-
um um tekju- og eignarskatt, en þar
er lagt til að þeim, sem eru að kaupa
eigið húsnæði í fyrsta sinn, verði
veittur tvöfaldur persónuafsláttur, er
dregst frá reiknuðum skatti.
1 greinargerð með frumvarpinu,
kemur fram að fyrir hjón eða
sambúðarfólk, sem sameiginlega
er að afla sér húsnæðis, yrði um 59
þúsund króna viðbót að ræða, er
gengi upp í greiðslu álagðra
skatta. Að mati flutningsmanna
má lauslega áætla að ákvæði
frumvarpsins um tvöfaldan per-
sónuafslátt þýði um 55—60 millj-
ón króna skattalækkun til hús-
byggjenda.
ásamt húsmunum, sem þar
voru við andlát maka, þó að
búskipta sé krafist á öðrum
eignum búsins.
Flutningsmenn eru Guðrún
Helgadóttir, Alþýðubandalagi,
Birgir Isleifur Gunnarsson,
Sjálfstæðisflokki, Guðmundur
Einarsson, Bandalagi jafnað-
armanna, Guðrún Agnarsdóttir,
Kvennalista og Jón Baldvin
Hannibalsson, Alþýðuflokki.
Endurskoðun erfðalaganna
stendur nú yfir, en í greinargerð
segja flutningsmenn að sú
endurskoðun geti tekið langan
tíma og því sé nauðsynlegt að
stöðva nú þegar það óréttlæti,
sem getur viðgengist við bú-
skipti.
Frá þingsetningu
Talið frá vinstri: Halldór Reynisson, forsetaritari, Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, en þetta var hans
fyrsta þingsetning, Ingvi S. Ingvarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, Baldur Möller, ráðuneytisstjóri í
dómsmalaráðuneytinu, og séra Ólafur Skúlason, dómprófastur.
Úrskurði Kjaradeilunefndar
hægt að áfrýja til Hæstaréttar
FRUMVARP til laga um breytingu á
lögum um kjarasamninga Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja hefur ver-
ið lagt fram í neðri deild Alþingis.
Flutningsmenn eru Jón Baldvin Ha-
nnibalsson, Alþýðuflokki, og Guð-
mundur Einarsson, Bandalagi jafn-
aðarmanna. f frumvarpinu er gert
ráð fyrir að ef ágreiningur rís vegna
úrskurðar kjaradeilunefndar geti
deiluaðilar kært úrskurðinn til
Hæstaréttar, er kveði án tafar upp
Starfsheiti kennara
verði lögverndað
FRUMVARP til laga um lögverndun
á starfsheiti kennara hefur verið lagt
fyrir neðri deild Alþingis. Flutn-
ingsmenn eru Hjörleifur Guttorms-
son, Alþýðubandalagi, Jóhanna Sig-
urðardóttir, Alþýðuflokki, og Kristó-
fer Már Kristinsson, Bandalagi jafn-
aðarmanna. í greinargerð með frum-
varpinu segir, að með því að setja
lög þess efnis, að eingöngu þeir, sem
hafi tilskilin réttindi beri starfsheit-
ið kennari, megi ætla að staða kenn-
ara eflist og að meiri áhersla verði
lögð á að búa vel að þeim svo unnt
sé að manna skólana fólki sem hef-
ur undirbúið sig undir kennarastarf-
ið.
í frumvarpinu er lagt til að
óheimilt sé að ráða til kennslu-
starfa á vegum opinberra aðila
aðra en þá sem rétt hafa að bera
starfsheitið kennari, þó er gert
ráð fyrir að veita megi þeim sem
þegar stunda kennslu án réttinda
þegar lögin öðlast gildi tímabund-
ið leyfi til að sinna henni áfram.
Lág laun og erfiðar vinnuað-
stæður ráða, að mati flutnings-
manna, mestu um það, að aðeins
hluti þess fólks sem aflað hefur
sér kennararéttinda sækist eftir
kennslustöðum. Þá hafa engar
hömlur verið settar við ráðningu
réttindalausra til kennslu, og seg-
ir í greinargerðinni að nú séu um
400 réttindalausir kennarar starf-
andi á grunnskólastigi.
fullnaðarúrskurA.
Kæru vegna vanhæfni nefnd-
armanna í kjaradeilunefnd í ein-'
stökum málum ber með sama
hætti að skjóta til Hæstaréttar.
í lögum um kjarasamninga
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja er, eins og segir í greinar-
gerð með frumvarpinu, ekki að
finna neitt ákvæði er kveður á um
að unnt sé að áfrýja úrskurðum
kjaradeilunefndar og að mati
flutningsmanna hefur þessi mis-
smíði komið berlega í ljós í yfir-
standandi kjaradeilu. Þá benda
flutningsmenn á, að þær deilur
sem risið hafa upp vegna ein-
stakra nefndarmanna vegna
tengsla þeirra við hagsmunaaðila
hafi átt sinn þátt í að tefja fyrir
samningaviðræðum.
AIÞinGI
Frumvarp um
tannlækningar
HeilbrigAisráAberra, Matthías
Bjarnason, mælti fyrir frumvarpi til
laga um tannlækningar í efri deild Al-
þingú síAastliAinn mánudag, en þar er
gert ráA fyrir aA þeir einir fái aA stunda
tannlækningar á fslandi og kalla sig
tannlækna, sem hafa til þess leyfi heil-
brigAisráAherra. Leyfi þetta verAur
veitt þeim, sem lokiA hafa prófum frá
tannlæknadeild Háskóla íslands, og
skal leita umsagnar deildarinnar um
hæfni umsækjanda. Sé hún neikvæA er
ráAherra beimilt aA synja um leyfi.
í 3. grein frumvarpsins er heimild
til ráðherra að veita þeim tann-
læknaleyfi, sem að mati tann-
læknadeildar Háskóla íslands hefur
lokið sambærilegu prófi erlendis og í
tannlæknadeild. Umsækjandi kann
aö þurfa að sanna deildinni hæfni
sína með próftöku. Ef um erlendan
ríkisborgara er að ræða verður hann
að sanna hæfni sína i íslenskri
tungu.
KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyöa 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM DULUX handhægt Ijós þar
sem mikillar lýsingar er óskaö. Mikiö Ijósmagn, einfalt í
uppsetningu og endist framar björtustu vonum.
OSRAM CIRCOLUX ” stílhreint,
fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar
stundum í eldhús, stundum í stofu eöa hvar annars
staöar sem er - allt eftir þínum smekk.
OSRAM COMPACTA - (y,s, og
fremst nytsamt Ijós sem varpar Ijósgeislunum langt og
víöa jafnt innanhúss sem utan.
*
GLÓEY HF. OSRAM
LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR