Morgunblaðið - 30.10.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.10.1984, Blaðsíða 44
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984 Ast er ... \' ' / ... að lofa honum að öskra. TM fWg U.S. Pat. Off.—All rlghls rassrved C 1977 Lo« AngMM Tlmas Lj' Með morgunkaffinu þessa leið: Vinur, þú þarft ekki að takast á við þetta, enda vafa- samt fyrir mann á þínum aldri. — Og þá ... bara ... HÖGNI HREKKVtSI C 1*84 MeNa'ig’ t Synd.. Inc. ,,‘HAnjn tekoí? LJtís^ir 4F hi/eisri /vu)s sem HANN VElE>tR." Fundur samninganefndar BSRB hjá sáttasemjara. Verkfalls- og sáttafundavísur Guðmund A. Finnbogason, Hrafnistu í Hafnarfirði, langar að koma á framfæri verkfalls- og sáttafundavísum sem hann eitt sinn orti og nú eiga vel við á þessum verkfallstímum. / Sátu þeir á sáttafundum, syfjaðir um iangar nætur á hámögnuðum hörkustundum, heilavitið undan lætur. Þegar komið svo var sinni sættir fóru brátt að vakna, skortur varð á skynseminni, skyldi fljótt úr öllu rakna. Það sem áður þótti frekja, það var engum nú til miska, syfjaðir þeir sundur rekja sínar kröfur á að giska. Hver vill annars byrðar bera, brátt nú munum semja drengir, allir skulum vinir vera, verkfallið oss saman tengir. Þar var ei í mysu myglan, miklu vildu allir fórna, hvers eins brotin hrokasiglan, í heiðarleika best að stjórna. Allir fá, og allir láta öllu hreint að jöfnu skipta, friðarandinn fram úr máta fjandans girndum burt kann svifta. Syfjaðir loks samning skráðu, sá var ekkert klaufatetur, allur hreint á efstu gráðu, engum hefði tekist betur. Heim svo allir héldu glaðir hlæjandi með sigur fenginn, og settust brátt í sínar raðir, um sigurlaunin veit þó enginn. Svona fór um sáttgjörð þessa, sæla minning best að geyma, upp á land og lýðinn hressa, lagfæringar gerðar heima. Háþróuðum hæfir menning hálu þótt á svelli standi, syfjaöra hin sanna kenning sæmir best á voru landi. Illa þýddar myndir Markús skrifar: Sjaldan hef ég farið jafn oft í kvikmyndahús og að undanförnu þar sem skrúfað hefur verið fyrir ríkisfjölmiðlana og ég er ekki svo lánsamur að eiga myndsegulband, sem ég gæti setið við á tilbreyt- ingarlausum haustkvöldum. Því hef ég sem fyrr segir lagt leið mína óvenju oft í kvikmyndahús frá því að verkföll hófust og séð margar misgóðar myndir. En ef það væri nú bara vanda- málið, að myndirnar væru oft á tíðum lélegar, þá hefði mér ekki fundist ég hafa tilefni til að taka mér penna í hönd og hella úr skál- um örvæntingar minnar, heldur er það svo, að í öllu mynda- og myndbandafárinu virðist texta- Haustvísa Sólveig frá Nikur hringdi og langaði til að koma eftirfarandi vísu á framfæri sem varð til á Víf- ilsstöðum fyrir stuttu: Ég er að fagna fegurðinni og fínna til með blómunum, því haustið er í hógværðinni að hrekkja þau með gómunum. Þá kunni Sólveig aðra vísu sem hún vildi koma á framfæri, en hún fjallar um afleiðingar verkfalls BSRB. Ég syrgi ekki sjónvarpið sitthvað mér líkar betur, ég elska meira útvarpið í það minnsta Jón og Pétur. þýðingin oft fara fyrir ofan garð og neðan. Fyrir mitt leyti kemst ég vel af, er vel að mér í tungu- málum og greini því það sem rangt er farið með á augabragði. Öðruvísi er því þó farið með marga, sérstaklega ungt fólk, sem minna kann í framandi tungum og hlýtur oft á tíðum að misskilja margt í myndum. Um daginn fór ég t.d. ásamt kunningja mínum í kvikmyndahús og var myndin með ensku tali. Kunninginn, sem vart getur talist sleipur í ensku, var sífellt að mis- skilja gang myndarinnar, og vissi að lokum ekki hvað var að gerast. Hann átti til að mynda bágt með að skilja hvers vegna morðinginn var allt í einu orðinn „hún“. Hafði „hún“ virkilega dulbúið sig sem maður allan tímann eða var hann kynhverfur? Margt annað fór fyrir ofan garð og neðan hjá bless- uðum manninum og fór svo að lok- um að ég varð að endursegja sögu- þráðinn fyrir hann og kom þá margt annað kyndugt í ljós. Þykir mér þetta bagalegt þegar svona er og þó bitnar það alls ekki á mér, heldur er ég með hina í huga sem minna kunna í tungu- málum. Ekki má heldur gleyma því þegar textinn kemur á tjaldið löngu áður en leikarinn fer með hann og oft jafnvel löngu á eftir. Áður en ég læt lokið máli mínu má ég til með að skjóta öðru að sem ergir mig ekki síður, og það nær daglega. Á ég hér við þýð- ingar á erlendum fréttaskeytum í dagblöðum en þar þykir mér oft sem að slæmar þýðingarvillur slæðist inn í. Má raunar oft á tíð- um sjá úr hvaða erlendu orði hef- ur verið þýtt og hvaða íslenskt orð hefði betur staðið þar. Slíkt hefur jafnvel komið fyrir í okkar ágæta og virta blaði, Morgunblaðinu, sem þó má teljast til fyrirmyndar hvað fréttaflutning og annað efni varðar. Með von um að tungumálasér- fræðingum þjóðarinnar takist bet- ur upp í framtíðinni. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekkí við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfong verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.