Morgunblaðið - 30.10.1984, Síða 48
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Drög að samkomulagi milli
forystumanna BSRB og ríkis
Sex manna vinnunefnd beggja aðila falið að ræða óleyst atriði
UM MIÐNÆTTI var samkomulag í sjónmáli í kjaradeilu
ríkisins og BSRB. Forystumenn aðila höfðu samið um flest
atriði væntanlegs samnings og hann verið kynntur í 10
manna nefnd BSRB sem lagði til við 60 manna samninga-
nefnd BSRB að fundahöldum yrði haldið áfram og þrír menn
frá hvorum aðila ræddu saman. Var það samþykkt. Fulltúar
Vinnuveitendasambandsins og Alþýðusambandsins sátu þá
enn á fundi, á þeim vettvangi hafa menn ekki horflð frá
skattalækkunarleiðinni svonefndu, en yfir helgina hafa
skattalækkanir heldur vikið fyrir hugmyndum um hærri laun.
Morgunblaftið/RAX.
Félagar í BSRB fóru í gærkvöldi í blysfor að Karphúsi sittasemjara við Borgartún og afhentu þar Kristjáni
Thorlacius áskorun með kröfu um mannsæmandi laun. Myndin er tekin af hópnum. Með í förinni voru félagar úr
Lúðrasveit verkalýðsins og sungu fundarmenn ættjarðarsöngva.
Loðnukvótinn aukinn
um 200 þús. lestir?
Sáttafundur rikisins með full-
trúum BSRB hófst klukkan 13 J
gær og var Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra, þá í forystu
fyrir nefnd ríkisins. Var fundað
allt fram að kvöldmat og síðan
aftur frá 20.30. 1 kvöldmatarhléi
barst þaö út að líkur stæðu til
þess að fljótlega myndu menn
komast að endanlegri niðurstöðu.
Um sama leyti létu aðilar innan
'BSRB boð út ganga til almennra
félagsmanna að þeir skyldu koma
til fundar við hús sáttasemjara
við Borgartún í því skyni að sýna
samningamönnum samstöðu og
hvetja þá til að láta ekki deigan
síga á lokasprettinum. Urðu
nokkur hundruð manns við þeim
tilmælum og stóðu með blys
framan við Karphúsið þegar
Kristjáni Thorlacius, formanni
BSRB, var afhent áskorunarskjal
með tilmælum um að eftirfarandi
yrði komið til fulltrúa ríkisins:
Við krefjumst mannsæmandi
launa. Kristján ávarpaði komu-
menn og sagði að heimsókn
þeirra væri til marks um ómet-
anlegan styrk í baráttunni sem
haldið yrði áfram til sigurs.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins byggjast þau drög að
samkomulagi sem lágu fyrir um
miðnætti á kauphækkun sem er
sambærileg við niðurstöðu samn-
ingsaöila i Kópavogi. Á samn-
ingstíma hækka laun um u.þ.b.
20%. Síðustu daga hafa fulltrúar
BSRB ítrekað kröfur um kaup-
máttartryggingu, en þeim hefur
ríkisstjórnin alfarið hafnað. í
viðræðunum í nótt voru uppi hug-
myndir um að semja ekki til 1.
janúar 1986 eins og aðrir aöilar
hafa gert eða að hafa svonefnda
„útgönguleið" á samningstíman-
um, svo að aðilar gætu tekið upp
þráðinn að nýju.
Á fundi 60 manna samninga-
nefndar BSRB komu strax í upp-
hafi fram efasemdir um að rétt
væri að að halda viðræðum áfram
og gerði að minnsta kosti einn
ræðumaður það að tillögu sinni
að viðræðum yrði hætt þá strax,
því að það væri ætlan ríkisins að
þreyta menn til samninga. En
eins og áður sagði var ákveðið að
skipa vinnunefnd 3ja manna frá
hvorum aðila til að átta sig á
óleystum atriðum. Fyrir hönd
BSRB voru Kristján Thorlacius,
Haraldur Steinþórsson og Albert
Kristinsson settir í nefndina en
Indriði H. Þorláksson, Guðmund-
ur Karl Jónsson og Þorsteinn
Geirsson af hálfu ríkisins. Biðu
aðrir samningamenn aðila, þeirra
á meðal fjármálaráðherra, eftir
niðurstöðum í vinnunefndinni,
þegar Morgunblaðið fór í prent-
un.
Fulltrúar VSl og ASÍ sátu á
fundum alla helgina. Hagfræð-
ingar og sérfræðiaðilar reiknuðu
þær leiðir sem helst kæmu til
álita. Tóku viðræðurnar þá stefnu
að rætt var um meiri launahækk-
anir en áður og minni skatta-
lækkanir, einnig voru nýjar hug-
myndir um lengd samningstíma á
lofti. Þessum fundahöldum var
ekki lokið þegar Morgunblaðið
fór í prentun.
ÍSLENZKIR flskifræðingar
hafa nú lagt til við Alþjóðahaf-
rannsóknaráðið að leyfllegur
loðnuafli íslendinga verði um
400.000 lestir á yflrstandandi
vertíð til bráðabirgða. Fyrr í
haust hafði hlutur íslendinga
úr loðnustofninum verið
ákveðinn tæplega 200.000 lest-
ir. Tillaga flskifræðinganna
hefur enn ekki verið tekin
fyrir, en búizt er við að það
verði á morgun, miðvikudag.
Alls eru nú komnar um 90.000
lestir loðnu á land.
ið er nú aðallega út af Vestfjörð-
um, en loðnan hefur einnig veiðzt
út af Skaga. Nær allar verksmiðj-
ur landsins hafa nú tekið á móti
loðnu. Mestu hefur verið landað í
Siglufirði, en lítið sem ekkert hef-
ur borizt til Raufarhafnar, Seyð-
isfjarðar og Neskaupstaðar.
Háskólinn í skaða-
bótamál við BSRB
Krefst 300 þús. kr. vegna lokunar skólans í byrjun verkfalls
HÁSKÓLI íslands hefur höfðað
skaðabótamál i hendur BSRB vegna
þess að verkfallsverðir BSRB hindr-
uðu kennslu í háskólanum fyrstu
daga verkfallsins. Krefst háskólinn
300 þúsund kr. í skaðabætur vegna
aukakostnaðar við stundakennslu.
Guðmundur Magnússon, rektor
háskólans, sagði í samtali við blm.
Mbl. að skaðabótakrafan sjálf
væri þó aukaatriði. Aðalmarkmið-
ið með þessu máli væri að fá úr
því skorið hvort hægt væri að
hindra forstöðumann stofnunar-
innar í því að hleypa nemendum
og kennurum inn í hús skólans,
þannig að hægt sé að halda uppi
kennslu, þó húsverðir væru í verk-
falli. Sagði Guðmundur að kröfu-
upphæðin væri byggð á þeim
aukakostnaði sem orðið hefði við
stundakennslu vegna þess að
kennsla var hindruð í 5 daga í
upphafi verkfallsins. Sagði hann
að ýmsan annan kostnað hefði
verið hægt að tína til, en það hefði
ekki verið gert vegna þess að
skaðabótakrafan sjálf væri auka-
atriði í málinu.
Stefna háskólans var birt í Bæj-
arþingi Reykjavíkur fyrir um það
bil viku, en lögfræðingur BSRB
fékk þá tveggja vikna frest til að
svara. Guðmundur sagðist vona að
málarekstur þessi tæki sem styst-
an tíma og málið lægi þá Ijóst
fyrir í næsta BSRB-verkfalli.
Verkfall BSRB hefur til þessa
komið í veg fyrir hefðbundinn
loðnurannsóknarleiðangur Haf-
rannsóknastofnunar. „Rannsókn-
arskipin liggja enn í höfn með
gesti innanborðs," eins og einn af
deildarstjórum sjávarútvegsráðu-
neytisins sagði í samtali við Morg-
unblaðið, en ákvörðun um endan-
legt aflamagn á vertíðinni hefur
byggzt á niðurstöðum þessa árlega
leiðangurs.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru einhver skip að ljúka
aflakvóta sínum eða búin að því og
hefur þeim verið heimilað að
halda veiðum áfram upp í væntan-
lega aukningu. Að sögn Andrésar
Finnbogasonar, hjá loðnunefnd,
var bræla á loðnumiðunum á laug-
ardag og komu þá flest skip inn,
sem afla höfðu fengið. Alls var þá
landað um 13.000 lestum af 26 bát-
um og heildaraflinn þá orðinn um
90.000 lestir. Auk þess hefur loðnu
verið landað fjórum sinnum er-
lendis á þessari vertíð. Veiðisvæð-
Rjúpnaveiði
minni en
búizt var við
RJÚPNAVEIÐIN hefur gengið sæmi-
lega það sem af er veiðitfmanum, en þó
ekki eins vel og menn höfðu búist við
að sögn Sverris Scheving Thorsteins-
sonar, formanns Skotveiðifélagsins. Þó
hafa menn fengið upp í 30 rjúpur í dags
veiðiferð.
Veiðitímabilið hófst þann 15.
október síðastliðinn og að sögn
Sverris var veður þá óhagstætt og
veiði minni en menn höfðu vonast til.
Sverrir sagðist hafa heyrt nokkrar
góðar veiðisögur af Norðurlandi, en
sunnan lands og vestan væru þær
fremur fátæklegar. Menn hefðu ver-
ið að fá allt frá einni rjúpu og upp í
30 á mann á dag á Holtavörðuheið-
inni og einnig hefðu menn verið að
fá 20 til 30 á dag í nágrenni borgar-
innar þannig að heildarveiðin væri
rétt þokkaleg.