Morgunblaðið - 31.10.1984, Side 1

Morgunblaðið - 31.10.1984, Side 1
48 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 210. tbl. 71. árg. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins OPEC semur um niðurskurð Genf, 30. nóvember. AP. OLÍURÁÐHERRAR OPEC-ríkjanna náðu í kvöld bráðabirgðasamkomu- lagi um að minnka olíuframleiðslu um tæplega 9% frá 1. nóvember. Áður höfðu Nígeríumenn lýst því yfir að þeir mundu ekki taka þátt í niðurskurði, en Suborto sagði að allir mundu eiga aðild að honum. Líklegt er talið að samkomulag- ið komi í veg fyrir verðfall í vetur. En sumir sérfræðingar telja að orkukostnaður muni halda áfram að lækka, ef OPEC stenzt ekki þá freistingu að auka framboð á olíu þegar eftirspurn eykst yfir vetr- armánuðina. Búizt er við að Saudi-Arabar minnki framleiðslu sína mest, þar sem þeir eru stærsti framleiðand- inn. Olíuráðherra sagði að Nígería, frak og íran mundu ekki taka þátt í niðurskurðinum. AP/Símamynd Francois Mitterrand Frakklandsforseti (t.v.) og Helmut Kohl kanzlari Vestur-Þýzkalands á bladamannafundi við lok viðræðufunda þeirra. Sjá nánar frétt um fund þeirra... „Hvetja til viðræðna milli stórveldanna" á bls. 21. Evrópubandalagið: Stórfelld aðstoð til hungursvæða Briimrl. 30. oklóbef. AP. EVRÓPUBANDALAGIÐ gerði opinbert í dag, að það hygðist senda gögn og nauðsynjar að and- virði 41,6 milljónir dollara til þurrkasvæðanna í Eþíópíu, Márit- aníu, Níger, Mali og Chad, þar sem milljónir manna búa við hungurs- neyð. Edgar Pisani, talsmaður bandalagsins, sagði á frétta- mannafundi í dag, að neyðin væri ótrúleg. f Eþíópíu blasti Hnugginn Pólverji leggur blóm við mynd af Jerzy Popieluszko presti, sem fest hefur verið í múrinn umhverfis kirkju heilags Stanislaws Kosta í Varsjá. Lík prestsins fannst síðdegis í gær í uppistöðulóni í ánni Vislu, 11 dögum eftir að honum var rænt. Þrír starfsmenn pólsku leynilögreglunnar stóðu að ráninu og morðinu. Lík prestsins lá í jökulkaldri ánni Varsjá, 30. október. AP. LECH Walesa leiðtogi Samstöðu sagði að „það versta sem fyrir gat komið hefði gerst“ skömmu eftir að fréttist í kvöld að lík pólska prestsins Jerzy Popieluszko hefði fundist í jökulköldu uppistöðulóni í ánni Vislu, 11 dögum eftir að þrír leynilögreglumenn rændu honum og myrtu. Walesa hvatti til stillingar og bauðst til að segja af sér sem leið- togi Samstöðu, óháðu verkalýðsfé- laganna, ef það mætti verða til að greiða götuna fyrir nýjum viðræð- um yfirvalda og þjóðarinnar um aukin lýðréttindi, en Popieluszko var kunnur fyrir stuðning sinn við málstað Samstöðu. Yfirvöld ýjuðu að þvi í dag að banamenn Popieluszko kynnu að hafa verið viðriðnir víðtækara samsæri. Einn þeirra var höfuðs- maður í leynilögreglunni og hinir tveir lautinantar. Höfðu þeir bruggað launráð sín „fyrir löngu" og reyndu að hylma yfir með því að falsa lögregluskýrslur. For- sprakki þeirra dró fyrr í dag til baka fyrri vitnisburð sinn og neit- aði því að hafa vegið prestinn, heldur hefðu þeir skilið hann eftir á þjóðvegi nærri ránsstaðnum. Líkið fannst hins vegar á þeim stað sem morðingjarnir höfðu áð- ur vísað á. Vestrænir sendifulltrúar í Varsjá spáðu því að mál þetta muni leiða til hreinsana og breyt- inga í forystu pólska kommúnista- flokksins. Þremenningarnir hafa verið settir í einangrun og yfir þeim öflugur vörður til að koma í veg fyrir að samsærismenn, sem kynnu að leika lausum hala, reyni að koma í veg fyrir að þeir geti ljóstrað upp um þá. hungurdauði við 6 milljónum manna, eða 15% þjóðarinnar, og svipað væri ástatt fyrir nær þremur milljónum íbúa annarra ríkja Sahel-svæðisins. Með þessu hafa ríki Evrópu- bandalagsins varið jafnvirði 100 milljóna dollara til hjálparstarfs á hungursvæðunum í Afríku á árinu, mest af því við Eþíópíu. Á næstu dögum verður byggð loftbrú flugvéla til að flytja 3.000 lestir af matvælum og öðrum hjálpargögnum til Eþíópíu, og eru það ýmsar kirkjudeildir sem að því standa. Búist er við því að í nóvember og desember verði fluttar 160.000 lestir af korni til Eþíópíu, en aðeins er hægt að skipa upp 30 þúsund lestum á mánuði í höfnum landsins og vörubílar í landinu geta ekki flutt meira en 15.000 lestir á mánuði til hungursvæðanna. Tal- Afganistan: Náðu vopnum frelsisaflanna Nýja-Dehlhí, 30. október. AP. STJÓRNARIIERMENN i AfganisUn tóku til fanga hóp frelsissveitarmanna í dag í bardaga við sovézku landamær- in, að sögn útvarpsins í Kabúl. Einnig fundu hermennirnir vopnabúr frelsissveitanna og gerðu upptækt mikið magn vopna og skot- færa, að sögn útvarpsins. ið er að 45.000 lestir þurfi á mán- uði til að fæða sveltandi Eþíópíu- menn. Útvarpið í Addis Ababa sagði að Konstantin Chernenko hefði tjáð Mengistu Haile Mariam í dag að Sovétmenn ætluðu að gefa Eþíópíumönnum 300 vörubíla, 12 flutningaflugvélar og 24 þyrlur til þess að auðvelda hjálparstarf í Eþíópíu. Stúlkubarn úr lífshættu Loma l.inda, 30. október. AP. Sm’lLKUBARNlÐ Fae er ekki lengur i lífshættu, fjórum dögum eftir að grætt var í hana bavíana- hjarta, og hefur enginn, sem þegið hefur dýrshjarta, lifað lengur. Drakk stúlkan, sem er 18 daga gömul, vatn úr pela í dag og tók brjóst síðdegis. „Hún tekur miklum framför- um og þetta er mjög spennandi," sögðu læknar í læknadeild Loma Linda-háskólans i Kaliforníu, þar sem aðgerðin var fram- kvæmd. Er hún ekki lengur í öndunarvél. „KCn hefur þegar lifað lengur en við gerðum ráð fyrir og sér- hver klukkustund er kraftaverk," svöruðu læknarnir er þeir voru spurðir hversu lengi stúlkan kynni að lifa. Hefur aðgerðin og hvernig að henni var staðið verið gagnrýnd. Sjá „Skurðlæknar sæta há- værri gagnrýni" á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.