Morgunblaðið - 31.10.1984, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
Dóra Ingvadóttir, formaður
Starfsmannafélags útvarpsins:
Vildum fá inn
ákvæði um kaup-
máttartryggingu
„VIÐ GREIDDUM atkvæði gegn
þessum samningi í samræmi við
eindreginn vilja okkar félags-
manna,“ sagði Dóra Ingvadóttir,
formaður Starfsmannafélags út-
varpsins, í samtali við blaðamann
Mbl. að lokinni atkvæðagreiðslunni
í gærkvöld. „Það, sem einkum réði
afstöðu okkar, var að ekki skuli
vera í samningnum ákvæði um
kaupmáttartryggingu. Við það erum
við alls ekki sátt. Það var ekki það,
að við vildum fá meiri kauphækk-
anir heldur að við vildurn tryggja
betur, að kauphækkunin nú verði
ekki strax tekin af okkur aftur.“
Dóra sagði að starfsmenn
Ríkisútvarpsins hefðu viljað
halda baráttunni áfram og
freista þess að ná fram þessari
tryggingu- „Það er mikill
baráttuandi í fólkinu og það hef-
ur lagt feiknarlega mikið á sig í
verkfallinu. Það hefur alltaf verið
reiðubúið að taka þátt í þeim að-
gerðum, sem skipulagðar hafa
verið. Það er að vísu orðið mjðg
þröngt í búi hjá mörgum opin-
berum starfsmönnum en samt
hefur mikill fjöldi fólks lýst sig
reiðubúinn til að halda barátt-
unni áfram. Það er nefnilega
staðreynd, að það vantar enn
mikið upp á, að við séum með
tærnar þar sem aðrir hafa hæl-
ana kjaralega séð,“ sagði Dóra
Á göngum Karphússins síödegis í gær: Albert Guðmundsson og Kristján Thorlacius skiptast á plöggum, Guðlaugur
Þorvaldsson kemur af tveggja manna tali, blaðamenn bíða átekta. Mbl / Friðþjófur.
Formaður BSRB um stuðning við samninginn:
Mjög
stöðu
í samræmi við niður-
60 manna nefndarinnar
KRISTJÁN Thorlacius, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja,
sagði m.a. á blaðamannafundi, sem
Erfítt tíma-
bil framundan
— segir Albert Guðmundsson
„ÞAÐ ER mér afskaplega mikill létt-
ir að þessari deilu er lokið, þótt ég
geti ekki beint sagt, að ég sé ánægður
með samninginn, því hann á eftir að
verða ríkissjóði þungur í skauti,"
sagði Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, eftir að samningar
ríkisins og BSRB höfðu verið undir-
ritaðir í gærkvöldi.
„Ég held að framundan sé ákaf-
lega erfitt tímabil. Menn gera sér
grein fyrir því og þess vegna held
ég að BSRB-fólk sé ekkert ánægt
með þessa niðurstöðu heldur,"
sagði fjármálaráðherra ennfremur.
„En það varð að ná samkomulagi.
Launþegar innan BSRB þoldu
áreiðanlega illa þetta langa verk-
fall og hefði það staðið mikið leng-
ur, hefði það áreiðanlega riðið
mörgum heimilum að fullu. Það
sem mér hefur verið ofarlega í
huga þennan mánuð, sem verkfall-
ið hefur staðið, er dapurlegt
hlutskipti þeirra öldruðu einstakl-
inga, sem hafa misst af fjölmiðla-
þjónustu útvarps og sjónvarps og
hafa búið í algjörri einangrun á
meðan þetta ástand ríkti. En nú er
þessu lokið og menn geta snúið aft-
ur til sinna starfa. Ég vona að allir
fagni því að hjól þjóðfélagsins fara
nú að snúast eðlilega á ný,“ sagði
Albert Guðmundsson.
hann hélt eftir undirritun samninga
BSRB og rikisins í gærkvöldi, ásamt
þeim Haraldi Steinþórssyni og Albert
Kristinssyni, að hann teldi niðurstöðu
allsherjaratkvæðagreiöslu BSRB um
samninginn verða mjög í sama hlut-
falli og afgreiðsla 60 manna
samninganefndarinnar í gær. 36
greiddu þar atkvæði með samningn-
um, 13 voru á móti en tveir sátu hjá.
Þeir félagar sögðu, að þessi
samningur væri ekki nógu góður að
þeirra mati, en þó það besta sem
þeir gætu fengið. Aðspurðir um
hvort þeir teldu þennan samning
hagkvæmari fyrir umbjóðendurna
heldur en ef farin hefði verið
skattalækkunarleið sögðu þeir, að
þeim hefði aldrei staðið til boða
skattalækkunarleiðin. Aðeins hefði
verið rætt í upphafi um 600 millj.
kr. lækkun, en þrátt fyrir ítrekaðar
óskir hefðu þeir aldrei fengið dæm-
ið sundurliðað. Þetta hefði síðan
komið mjög óljóst á borð til þeirra
á ný, án nokkurra útreikninga.
Kristján sagði ennfremur, að þeim
hefði fundist allt mjög óljóst í
kringum þessa leið, svo hún hefði
aldrei orðið raunhæf til umræðu.
Þeir voru þá spurðir, hvort BSRB
hefði átt einhverja samvinnu við
ASÍ varðandi val á leiðum. Kristján
varð fyrir svörum og sagði að þeir
hefðu borið saman bækur sínar, en
BSRB hefði á þeim tíma orðið að
vinna samkvæmt þeirri leið, sem
þeir fylgdu.
Samningamenn BSRB bíða eftir niðurstöðum vinnunefndar snemma í gær-
morgun, sumir spila, aðrir leggja sig. Mbi / Arní Sæberg.
Kristján var spurður, hvort hann
teldi ekki hættu samfara því for-
dæmi, að semja um nokkurs konar
sakaruppgjöf, eins og gert var í
gær. Hann sagði að ekki hefði verið
samið um sakaruppgjöf. Aftur á
móti þyldu samtök sem BSRB ekki
að einstaklingum innan þeirra væri
hótað, eins og gert hefði verið. Þess
vegna hefði verið knúin fram yfir-
lýsing ríkisstjórnarinnar um að
hún myndi ekki beita einstaklinga
hörðu vegna aðgerða í verkfallinu.
Þeir félagar voru spurðir, hvort
BSRB væri ekki orðið of viðamikið í
íslensku þjóðlífi, þegar litið væri til
þeirrar lömunar þjóðlífsins sem
verkfall þeirra hefði valdið. Krist-
ján sagði svo alls ekki vera. Nauð-
synlegt væri að hafa sterk öfl
launamanna gegn einræði ríkis-
valdsins. Þá kvaðst hann ætla, að
BSRB kæmi sterkara út úr þessari
baráttu en ella.
Þeir félagar báðu í lokin fyrir
þakkir til allra þeirra sem lagt hafa
BSRB lið. Þeir sögðu félaga marga
hverja hafa lagt dag við nótt og
BSRB hefði notið mikils stuðnings
jafnt innlendra sem erlendra. Þeir
tiltóku sérstaklega, að stuðningur
frá Norðurlöndum hefði aldrei ver-
ið meiri en nú.
*
A lokasprettinum f Karphúsinu í gær:
Beðið, drukkið kaffi, prjónað, talað,
reyktar vondar sígarettur og beðið enn
Þriðjudagsmorgunn klukkan lið-
lega tíu. Tómir kaffi- og súpuboilar
um öll borð. Samninganefndar-
menn rauðeygir og syfjulegir, illa
rakaðir. Tóbaksleysið hafði ágerst
— einhverjir þóttust hafa komist í
öskubakka samninganefndar ríkis-
ins og veifuðu digrum vindlastubb-
um.
Enn ekki komið samkomulag —
en forystumenn úr báðum hópum
töldu líklegt að málið yrði komið í
höfn um hádegi. Ljósrit af
samkomulagsdrögum farin að leka
út frá einstökum aðildarfélögum.
Til hvers var eiginlega verið að fara
í verkfall ef við eigum svo að taka
við þessu? spurði bálreiður Ríkisút-
varpsmaður og veifaði plagginu.
Otvarpsmenn voru harðir gegn
drögunum en kennarar í samninga-
nefndinni flestir fylgjandi þeim.
Um hádegi var loks haldinn fund-
ur í 10 manna viðræðunefnd BSRB
og síðan voru samkomulagsdrögin
borin upp á fundi í sextíu manna-
nefndinni. Þegar umræður höfðu
staðið í um þrjá stundarfjórðunga,
og fréttir sagðar í hádegisútvarpi af
því að undirritun samninganna
væri örskammt undan, bar að hóp
af verkfallsvörðum BSRB með
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðing í broddi fylkingar. Verk-
fallsverðirnir sögðu frá því að í höf-
uðstöðvum bandalagsins við
Grettisgötu hefði fólk orðið sem
steini lostið við fréttirnar og því
væri fólk komið til að kanna hvort
virkilega hefði rétt verið sagt frá,
hvort það væri satt að fjögurra
vikna verkfall skilaði ekki meiri
árangri en fælist í samkomulaginu.
Varð af talsverður hávaði við dyr
salarins, þar sem samninganefndin
stóra var á fundi, og endaði með því
að ríkissáttasemjari bað alla óvið-
komandi að víkja úr húsinu. Blaða-
og fréttamenn gengu í „sóttkví" í
fundarherbergi f vesturenda húss-
ins.
Umræðum frestað
Þangað barst skyndilega sú
fregn, að Kristján Thorlacius, sem
hafði mælt með samkomulaginu við
félagsmenn sína, hefði frestað frek-
ari umræðum þar til skýr svör
hefðu komið frá ríkisstjórninni um
að verkfallsaðgerðir skyldu ekki
hafa neina eftirméla gagnvart ein-
staklingum innan BSRB. Fjármála-
ráðherra hefði gefið yfirlýsingu
hvað varðaði starfsfólk fjármála-
ráðuneytisins „en við erum ekki að
tala um þessar fáu hræður hjá Al-
bert heldur alla einstaka félaga,"
sagði Haukur Helgason, skólastjóri
og viðræðunefndarmaður.
Spennan í húsinu fór vaxandi.
Samninganefndarmenn stungu
saman nefjum á göngum og í skot-
um. Forystumenn lágu í símanum
og Kristján Thorlacius lokaði að sér
á meðan hann ræddi við forsætis-
ráðherra í tvígang og fógeta á ísa-
firði vegna hugsanlegrar málshöfð-
unar á hendur símastúlkum við ísa-
fjarðardjúp, sem sagt var frá f blöð-
um í gær.
í stóra salnum var heldur rólegt,
konurnar prjónuðu eða gripu í spil
á milli þess sem drukkið var mikið
kaffi, reyktar bragðdaufar sígarett-
ur og málin rædd. Kennarahóp bar
að húsinu og samninganefndar-
mönnum var færð áskorun á áskor-
un ofan um að fella samkomulags-
drögin. Látlausar sögusagnir svifu
um húsið: ríkisstjórnin er á fundi —
nei, fundinum hefur verið frestað
— Albert er farinn á ríkisstjórnar-
fund — Steingrímur er á leiðinni í
húsið til að leysa málið ...
Búgf vúgí
Tíminn leið og plastmálin undan
kaffi og pakkasúpum fylltu hverja
ruslakörfuna á fætur annarri. And-
stæðingar samkomulagsins urðu æ
harðari í afstöðu sinni. — Hvernig
á að vera hægt að ná aftur upp
dampi í verkfallið ef þetta verður
samþykkt og verkfallinu frestað?
spurði samninganefndarmaður
utan af landi. — Núna fyrst, eftir
fjórar vikur, er verkfallið farið að
hafa áhrif. Hvað tæki langan tíma
að ná upp þeirri stöðu, sem við er-
um í núna? Aldrei minna en mánuð!
Uppi í sal reyndu útvarpsmenn-
irnir Ólafur Þórðarson og Ævar
Kjartansson að hressa upp á móral-
jnn með píanóbúgí og „When the
Saints Go Marching In“. Þá hafði
fundurinn staðið i rúma 26 tíma og
fæstir sofið dúr eða hvílst að
nokkru ráði. Merkilegt hvað Óli var
fingrafimur og röddin í Ævari tær!
Loks barst staðfesting á því aö
ríkisstjórnin væri á fundi og að
væntanleg væri yfirlýsing, sem full-
nægði kröfum Kristjáns Thorlaci-
usar og annarra forystumanna
BSRB. Enn var beðið og allt í einu
komnar kvöldfréttir. Ekki minna en
tólf tímar síðan raunsæismenn í
samninganefndum töldu ljóst að
hægt yrði að hefja umræður um
samkomulagsdrögin. Á slaginu sjö
barst fregn um að ríkisstjórnar-
fundinum væri lokið. Fimm mínút-
um síðar kom Guðlaugur Þor-
valdsson út úr skrifstofu sinni og
ávarpaði Kristján Thorlacius, sem
sat og hlustaði á fréttir: „Kristján,
ég er hér með yfirlýsingu, sem for-
sætisráðherra hefur beðið mig að
lesa fyrir 60 manna nefndina. Getið
þið komið upp?“ Hann tók svo
strikið og strollan á eftir honum.
Reiði og vonbrigði
á Grettisgötu
Uppi las Guðlaugur svolátandi
yfirlýsingu: „Af hálfu ráðherra inn-
an ríkisstjórnarinnar eru ekki uppi
áform um að beita einstaklinga inn-
an BSRB aga- eða bótaviðurlögum
vegna atvika, sem upp hafa komið
við framkvæmd verkfalls BSRB.“
Nú hlaut að fara að koma að þvf
að úr því fengist skorið hvort samn-