Morgunblaðið - 31.10.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
5
Kjarasamningur BSRB
HÉR Á EFTIR fer aðalkjarasamn-
ingur BSRB og fjármálaráðherra
sem undirritaður var um klukkan 22
í gærkveldi:
Fjármálaráðherra f.h. ríkis-
sjóðs og Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja gera með sér svo-
felldan aðalkjarasamning.
1. gr.
Aðalkjarasamningur aðila frá
29. febrúar 1984 ásamt bókunum
framlengist til 31. desember 1985
með þeim breytingum sem í samn-
ingi þessum greinir.
2. gr.
Frá 1. nóvember 1984 gildir eft-
irfarandi launatafla sem miðast
við að 3,5% séu á milli launa-
flokka og að heildarhækkun sé
10% reiknuð frá þeirri launatöflu
sem gilti í ágúst 1984.
Lfl. 1. þrep 2. þrep 3. þrep
1 11.287 12.063 12.177
2 11.714 12.177 12.365
3 12.063 12.365 12.795
4 12.177 12.795 13.243
5 12.510 13.243 13.706
6 12.795 13.706 14.186
7 13.243 14.186 14.683
8 13.706 14.683 15.197
9 14.186 15.197 15.729
10 14.683 15.729 16.280
11 15.197 16.280 16.850
12 15.729 16.850 17.440
13 16.280 17.440 18.050
14 16.850 18.050 18.682
15 17.440 18.682 19.336
16 18.050 19.336 20.013
17 18.682 20.013 20.713
18 19.336 20.713 21.438
19 20.013 21.438 22.188
20 20.713 22.188 22.965
21 21.438 22.965 23.769
22 22.188 23.769 24.601
23 22.965 24.601 25.462
24 23.769 25.462 26.353
25 24.601 26.353 27.275
26 25.462 27.275 28.230
27 26.353 28.230 29.218
28 27.275 29.218 30.241
29 28.230 30.241 31.299
30 29.218 31.299 32.394
31 30.241 32.394 33.528
32 31.299 33.528 34.701
33 32.394 34.701 35.916
34 33.528 35.916 37.173
35 34.701 37.173 38.474
36 35.916 38.474 3. gr. 39.821
inganefndin féllist á samkomulagið.
Umræður um það hófust strax og
var haldið áfram, með stuttu mat-
arhléi, fram eftir kvöldinu. Klukk-
an um tíu í gærkvöld var loks geng-
ið til atkvæða: 36 greiddu atkvæði
með samningnum, 13 voru á móti, 2
sátu hjá. Atkvæði voru ekki fleiri
— fjarstaddir voru að sjálfsögðu
fulltrúar þeirra sveitarfélaga, sem
þegar hafa gert samninga heima i
héraði.
Það var erfitt að meta stemmn-
inguna eftir atkvæðagreiðsluna.
Andstæðingar samkomulagsins
voru sárir og reiðir. — Við þurfum
greinilega að standa í samningavið-
ræðum við einhverja aðra en ríkis-
valdið, sagði dugmikil kona úr
verkfallsvörslunni. — Reiðin og
vonbrigðin niðrá Grettisgötu eru
alveg ótrúleg. Fólk trúir varla að
þetta sé að gerast. Við stöndum
jafn illa eftir verkfallið og fyrir
það. Það var þá ekki til neins eftir
allt saman ...
Ánægður? svaraði einn úr
forystusveitinni. Það veit ég ekki.
Nei, eiginlega ekki en ég sé ekki að
við förum lengra í þessari atrennu.
Því miður. Hitt er annað mál, að
baráttunni verður haldið áfram —
samtökin eru líklega sterkari nú en
nokkru sinni áður.
Um stundarfjórðungi eftir klukk-
an tíu var skrifað undir. Verkfall-
inu var frestað og fjármálaráðherr-
ann, sem að vísu sagðist „hund-
óánægður", kvaðst vonast til að nú
gætu menn farið til síns heima og
tekið upp eðlilegt líf á nýjan leik.
— ÓV.
4. gr.
Um miðjan nóvember 1984
greiðist sérstök persónuuppbót að
upphæð 4.000 kr. þeim starfs-
mönnum í fullu starfi sem hófu
störf eigi síöar en 1. september
1984 og eru enn í starfi. Gegni
starfsmaður hlutastarfi skal hann
fá greitt miðað við starfshlutfall.
5. gr.
1. desember 1984 hækka mánað-
arlaun samkvæmt launatöflu í lið
2 um 800 krónur.
6. gr.
1. maí 1985 hækka allir starfs-
menn um 1 launaflokk.
7. gr.
Vaktaálag skv. grein 1.6.1 mið-
ast við 15. lfl. 2. þrep. Lágmarks-
upphæð orlofsfjár skv. grein 1.6.5
miðast við 13. lfl. 3. þrep. Persónu-
uppbót skv. grein 1.1.13 verður
25% af desemberlaunum í 13. lfl.
3. þrepi.
8. gr.
Nefnd skipuð fulltrúum aðila
skal vinna að endurskoðun á
launakerfi ríkisins og skili áliti
' eigi síðar en 1. júní 1985. Endur-
skoðunin skal m.a. taka til:
1. Endurmats og samræmingar á
bili milli launaflokka.
2. Einföldunar og samræmingar
starfsaldursreglna. Gerð verði
hreinni skil í því efni milli aðal-
kjarasamnings og sérkjara-
samninga.
3. Endurmats á vægi ýmissa
álaga svo sem álags fyrir yfir-
vinnu, vaktir, útkallsvaktir o.fl.
4. Meginreglna til viðmiðunar um
röðun í launaflokka.
9. gr.
Gerð sérkjarasamninga fari
fram þegar aðilar hafa staðfest
aðalkjarasamning þennan. Gild-
istími þeirra verður frá 1. nóv-
ember 1984 til 31. desember 1985.
10. gr.
Samningur þessi gildir til 31.
desember 1985. Aðilar eru sam-
mála um að fylgjast sameiginlega
með þróun kaupgjalds og verðlags
á samningstímanum og leggja mat
á kaupmáttarbreytingar.
Hvor aðili um sig getur óskað
viðræðna um kaupliði samnings-
ins eftir 1. júní 1985. Náist ekki
samkomulag milli aðila fyrir 1.
júlí 1985 um breytingar kaupliða
skal heimilt að segja upp liðum
samningsins frá og með 1. sept-
ember 1985.
Fyrirvari BSRB
Aðalkjarasamningur þessi, milli
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
og Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, sem gildir til 31. desem-
ber 1985 er af hálfu BSRB
undirritaður með fyrirvara um
samþykki félagsmanna í
allsherj aratkvæðagreiðslu.
Reykjavík, 30. október 1984.
Kristján Thorlacius
Fyrir septembermánuð 1984
skal starfsmaður í fullu starfi fá
greiddar 2.500 kr. Gegni starfs-
maður hlutastarfi, skal hann fá
greitt miðað við starfshlutfall.
flutningaþjónustu
Jafnskjótt og Eimskip er bundið við bryggjupolla
í einhverri af 122 viðkomuhöfnum sínum er það
orðinn hluti af stórri og flókinni heild.
Fullkomin flutningstæki hafa verið búin undir
komu skipsins og eru reiðubúin að dreifa
farminum undir tölvustýrðu eftirliti 306 umboðs-
manna og aðalskrifstofu Eimskips í Reykjavík.
Sérhæfð tæki í landi tryggja skjóta og örugga
losun. Áður en síðasti flutningsbíllinn hverfur af
hafnarsvæðinu er lestun nýs farms langt komin
og í næstu höfn er undirbúningur fyrir móttöku
skipsins þegar hafinn. Þannig er unnið í öllum
höfnum samkvæmt þaulhugsaðri áætlun Eimskips.
Við höfum valið viðkomustaði okkar af kostgæfni
og myndað þéttriðið þjónustunet áætlunarhafna,
þjónustuhafna og umboðsmanna í 22 löndum.
Þannig tryggjum við farsælan flutning um allan
heim.
Flutningur er okkar f ag
EIMSKIP
Sími 27100
*