Morgunblaðið - 31.10.1984, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 31.10.1984, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 Sinfóníutónleikar: Jón Leifs, Lalo og Prokofíev á efnisskránni AÐRIR tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands i þessu starfsári verða í Háskólabíói á morgun, nmmtudaginn 1. nóv. 1984, og hefj- ast þeir kl. 20.30. Efnisskráin verður sem hér seg- ir: Jón Leifs: Geysir, forleikur; Edouard Lalo: „Symphonie Esp- agnole" fyrir fiðlu og hljómsveit; Sergei Prokofiev: „Rómeó og Júlía“ svíta nr. 1. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er franski hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre Jacquillat. Hann hef- ur verið fastur aðalstjórnandi Sin- fóníuhljómsveitar fslands síðan 1980. Hann hefur stjórnað ýmsum hljómsveitum í mörgum stórborg- um Evrópu. Ennfremur óperusýn- ingum víða um lönd, m.a. í Metro- politan-óperunni í New York. Einleikari er franski fiðlusnill- ingurinn Pierre Amoyal. Hann er einn af eftirsóttustu fiðluleikurum í heiminum í dag. Hann hóf ungur nám í fiðluleik í sínu heimalandi og síðar var hann í 5 ár nemandi hins heimskunna fiðluleikara Jascha Heifetz í Los Angeles. Pierre Amoyal hefur haldið tón- leika í flestum stærstu borgum Evrópu og Ameríku svo og Japan. Hann hefur auk þess komið fram með ýmsum þekktum hljómsveit- um svo sem Lundúna Fílharmón- íunljómsveitinni, Berlínar Fíl- harmóníunni o.fl. og leikið undir stjórn George Solti, Seiji Ozawa og von Karajans svo einhverjir séu nefndir. Ragnar Jóhannesson, fyrrum forstj. látinn RAGNAR Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri, lést í Borgarspítalanum þann 29. október síóastliðinn, 66 ára að aldri. Ragnar fæddist í Reykjavík þann 26. janúar 1918. Hann hóf ung- ur verslunarstörf og árið 1942 hóf hann nám í Bandaríkjunum í versl- unarfræðum. Þar kvæntist hann eft- irlifandi konu sinni, Stasíu Jóhann- Árið 1946 stofnaði hann fyrir- tækin Tékkneska bifreiðaumboðið hf. og síðar Jöfur hf. og R. Jóhann- esson hf. Hann veitti þessum fyrirtækjum forstöðu til ársins 1972 er hann lét af störfum sökum heilsubrests. Athugasemd frá ritstjóra NT 1 FRÉTT Morgunblaðsins á bls. 2 í dag 30.10. undir fyrirsögninni „Vit- leysa“ — segir forsætisráðherra um leiðara NT í gær, kemur m.a. eftir- farandi fram: „Ég hef verið að reyna að ná í ritstjórann til að fá að vita, hvaðan hann hefur þessa vitleysu, því ég er manna harðastur gegn því að tekn- ar verði upp kaupmáttartrygg- ingar,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra. í fréttinni kemur einnig fram, að tilefni spurningar Mbl. sé leiðari NT þar sem fram á að hafa komið, að forsætisráðherra á að hafa heimilað fjármálaráðherra að setja uppsagnar- eða verðtryggingar- ákvæði í samninga BSRB og ríkis- ins. Öllum þeim sem fylgst hafa með þessu máli er ljóst, að sé rétt eftir forsætisráðherra haft, hefur hann ekki lesið viðkomandi íeiðara NT. Varla getur það talist ásökunar- vert en hitt er verra að Mbl. skuli bera upp leiðandi og villandi spurn- ingar. Staðreyndin er sú, að í áður- nefndum leiðara NT er hvergi minnst á hugtakið „verðtryggingar- ákvæði", heldur aðeins uppsagnar- ákvæði, en á þessum tveimur hug- tökum er grundvallarmunur eins og öllum er Ijóst. Reyndin hefur einnig orðið sú, að í samningi BSRB og ríkisins er upp- sagnarákvæði, nákvæmlega eins og sagt hafði verið til um í leiðara NT. Með þökk fyrir birtinguna, Magn- ús Ólafsson, ritstjóri NT. Aths. ritstj.: 1 forystugrein NT á mánudag sagði: „Samkvæmt heimildum NT hefur forsætisráðherra nú heimilað fjármálaráðherra að setja uppsagn- arákvæði, þ.e. rautt strik í samning- inn til að greiða fyrir gerð hans. Þetta atriði verður varla metið til fjár fyrir BSRB-menn þvi svo mik- ilvægt er það til að vernda kaupmátt- araukningu samningsins.** (Letur- breytingar Mbl.) Eins og sjá má af þessari tilvitn- un hélt NT því fram, að forsætis- ráðherra hefði fyrir sitt leyti sam- þykkt verðtryggingarákvæði í samningunum við BSRB. Athuga- semd Magnúsar Ólafssonar, rit- stjóra NT, er gersamlega út í hött og engu líkara en að hann hafi ekki lesið forystugrein blaðs síns! Sfldarútvegsnefnd: BLskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, setur kirkjuþingið í Safnaðarsal Hallgrímskirkju. Mbl./Júlíus. Kirkjuþingið hafið: Þjóðkirkjan kaupir hús Krabbameinsfélagsins 15. KIRKJUÞING Þjóðkirkjunnar var sett í Safnaðarsal Hallgríms- kirkju í gær, að lokinni guðþjón- ustu, þar sem sr. Þorbergur Krist- jánsson predikaði. í setningarræðu sinni minnt- ist biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, sérstaklega Ólafs Jóhannessonar, fyrrverandi kirkjumálaráðherra, sem lést á árinu. Þá flutti biskup sérstakar þakkir til Baldurs Möller, ráðu- neytisstjóra í kirkjumálaráðu- neytinu, fyrir áratugastörf hans og þjónustu að kirkjunnar mál- um, en hann lætur af embætti innan mánaðar. Að setningarræðunni lokinni flutti kirkjumálaráðherra, Jón Helgason, ávarp. Þar kom fram að aðeins eitt mál sem varðar kirkjuna fékk afgreiðslu á Al- þingi á síðasta ári. Ráðherra sagði þó að þau mál sem döguðu uppi hefðu verið endurflutt og kvaðst hann vonast til þess að þau mál fengju afgreiðslu á þessu þingi. Þá greindi ráðherra frá því að sérstök kirkjueigna- nefnd væri starfandi sem gerði könnun á eignum kirkjunnar og var starfsmaður í fullu starfi mest allt síðasta ár, sem aflaði sögulegra heimilda um þessi mál. í lok fundarins var kosið i nefndir þingsins og varaforsetar voru kjömir, sr. Jón Einarsson prófastur í Saurbæ og Gunn- laugur Finnsson frá Hvilft í ön- undarfirði. Fundir kirkjuþingsins verða haldnir í Safnaðarsal Hallgríms- kirkju og mun þinghald standa í 10 daga. Þingfulltrúar eru kjörn- Hús Krabbameinsfélagsins við Suðurgötu sem þjóðkirkjan hefur nú fest kaup á. Mbl./Friðþjófur. ir úr kjördæmum landsins og eru jafnmargir leikmenn og prestar. Auk þess eru fulltrúar frá guðfræðideilda Háskólans og prestum í sérþjónustu. Vígslu- biskupar og kirkjumálaráðherra eiga einnig sæti á kirkjuþingi auk biskups sem stýrir þinginu, en alls eru kirkjuþingmenn 23 i ár. Að sögn sr. Bernharðs Guð- mundssonar liggja þegar fyrir kirkjuþinginu mörg mikilvæg mál. Kirkjuráð leggur fyrir sex mál til umfjöllunar og má þeirra á meðal nefna svonefnt starfs- mannafrumvarp kirkjunnar, sem kveður á um verksvið og stöðu hinna ýmsu starfsmanna kirkjunnar. Þá má nefna frum- varp um innheimtulaun al- mennra kirkjugjalda og um veit- ingu prestsembætta, en síðar- nefnda fumvarpið hefur hvað eftir annað dagað uppi á Alþingi, að sögn Bernharðs. Þá leggur kirkjuráð fyrir þingið tillögu um að samstarfsnefnd kirkju og þingflokka, sem skipuð er af Al- þingi, verði falið að skipa undir- búningsnefnd fyrirhugaðra há- tíðarhalda árið 2000, í tilefni af þúsunda ára kristni á íslandi. Sagði Bemharður að ekki væri ráð nema í tíma væri tekið enda kræfust slík hátíðahöld mikils undirbúnings. Auk mála kirkju- ráðs leggja einstakir þingmenn frumvörp fyrir þingið, sem síðar verða kynnt. Kirkjumálaráðherra upplýsti í ræðu sinni að fest hefðu verið kaup á húsi Krabbameinsfélags- ins við Suðurgötu í Reykjavík sem Kristnisjóður mun eignast með aðstoð ríkisins. í þessu húsi mun Biskupsstofa, Hjálpar- stofnun kirkjunnar, Æsku- lýðsstarf þjóðkirkjunnar og fleiri hafa aðsetur. Staðfesting fengin á sölu 225.000 tunna af saltsíld söltun á mánudagskvöld nam 130.000 tunnum NÚ HEFUR fengist staðfesting á sölu i 185.000 tunnum af saltsíld til Sovétríkjanna. Er það meira magn en nokkru sinni hefur verið selt af Suðurlandssfld þangað. Alls liggja nú fyrir staðfestir samningar um fyrirframsölu á 225.000 tunnum á salLsfld af yfirstandandi vertíð. í frétt frá Sfldarútvegsnefnd segir, að á mánudagskvöld hafi verið lokið við að salta í 130.000 tunnur. Hér fer á eftir frétt Síldarút- vegsnefndar um stöðu söltunar og sölu saltsíldar: Hinn 9. þ.m. var undirritaður í Reykjavík fyrirframsamningur um sölu á 200.000 tunnum af salt- aðri Suðurlandssíld til Sovétríkj- anna, þar af 160.000 tunnur til af- greiðslu á 1. ársfjórðungi 1985 og 40.000 tunnur til afgreiðslu í des- ember nk. Eins og áður hefir verið skýrt frá var samningurinn undirritað- ur með þeim fyrirvara af hálfu sovézku samninganefndarinnar að formlegt samþykki viðkomandi sovézkra stjórnvalda þyrfti fyrir þeim 40.000 tunnum sem afgreið- ast eiga í desember. Síldarútvegsnefnd hefir nú ver- ið tilkynnt að staðfesting sovézkra stjórnvalda liggi nú fyrir varðandi 25.000 tunnur af desemberaf- greiðslunni, þannig að heildarstaðfesting sé nú fengin fyrir kaupum á 185.000 tunnum en óvissa ríkir enn um það hvort staðfesting sovézkra stjórnvalda fæst fyrir mismuninum eða 15.000 tunnum. Það saltsíldarmagn sem þegar hefur fengist staðfesting á er meira en nokkru sinni áður hefur verið selt af Suðurlandssíld til Sovétríkjanna. Auk þessa hafa samningar tek- izt um fyrirframsölu á um 40.000 tunnum til Svíþjóðar og Finnlands og á sú síld að afgreiðast á tíma- bilinu frá desemberbyrjun til marzloka. Hluti af síldinni, sem afgreiða á til Svíþjóðar, er sér- verkuð flök. Samtals liggja nú fyrir staðfest- ir fyrirframsamningar um sölu á 225.000 tunnum af saltaðri Suður- landssíld frá yfirstandandi vertíð. I gærkveldi var lokið við að salta í um 130.000 tunnur og mjög mikil söltun stendur nú yfir á svo til öllu söltunarsvæðinu. Heildar- söltun á allri vertíðinni í fyrra var um 245.000 tunnur og fóru þá um 60% síldaraflans til söltunar, 37% til frystingar og 3% til bræðslu en það sem af er þessari vertíð hefir svo til allur síldaraflinn farið til söltunar. Fituinnihald síldarinnar hefur verið mun minna en á sama tíma í fyrra og sáralítið hefir verið af stórri síld í aflanum. Þá hefir það víða valdið erfiðleikum við söltun í ár hve mikil áta hefir verið í síld- inni frá sumum veiðisvæðunum, og er það óvenjulegt miðað við árstíma. Vegna langvarandi verkfalls er nú orðin hætta á að söltun geti stöðvast vegna skorts á ýmsum rekstrarvörum sem tilsíldarsölt- unarinnar þarf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.