Morgunblaðið - 31.10.1984, Page 22

Morgunblaðið - 31.10.1984, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 Leonard Baily yfirskurðlæknir. Bavíanahjartaþegiim heldur heilsu: Skurðlæknar sæta háværri gagnrýni Loma Linda, Kaliforníu. 30. október. AP. FAE LITLA, kornabarnið sem í var grætt hjarta úr bavíana um helgina, gerir það gott og vax- andi vonir eru um að hún muni ná sér aö fullu og lifa eðlilegu lífi. Læknar, sem stóðu að að- gerðinni á hinni þá dauðvona Fae, sæta nú harðri gagnrýni fyrir að athuga ekki að hjarta úr öðru barni var til reiðu. Hvað svo sem gagnrýni líður, eru læknar litla barnsins afar ánægðir með árangurinn til þessa. Fae hefur verið tekin úr öndunarvél sem hún var sett í strax að aðgerð lokinni og hún er ekki lengur í ströngustu gjör- gæslu. En gagnrýnisraddirnar eru af- ar háværar sem stendur. Komið hefur í ljós, að hjarta úr tveggja mánaða gömlu barni hafi verið til reiðu sama dag og aðgerðin á Fae var gerð. Læknar hennar segja að það hefði engu breytt, þvi umrætt hjarta hafi verið of stórt. Gagnrýnendur segjast vita það mæta vel, en nefna það til þess að undirstrika að kannski hefði verið hægt að fá manns- hjarta ef leitað hefði verið. Paul Teraski, prófessor í skurðlækn- ingum við UCLA, fordæmdi að- gerðina, hann sagði: „Þeir leituðu ekki einu sinni að mannshjarta því þeir höfðu ákveðið að nota bavíana." Lucy Shelton, talsmað- ur dýraverndarsamtaka í Kalif- orníu, sagði að læknar Fae litlu hefðu ætlað sér að gera þessa til- raun hvað sem það kostaði. „Þetta er hræðilegt, ekki það besta fyrir barnið, fjölskyldu þess, hvað þá það besta fyrir full- komlega heilbrigðan bavíana að vera fórnað með þessum hætti," sagði frú Shelton. En ekki eru allir á eitt sáttir. Robert Levine, doktor við lækna- deild Yaleháskóla, sagði: „Flestir hjartagjafar eru fólk sem ferst af slysförum. Algengast er að um bílslys sé að ræða og sjaldgæft að smábörn á þessum aldri farist með þeim hætti. Ég skil því vel að ekki skyldi hafin leit að hjartagjafa með þeim fyrirvara sem var, það hefði aldrei gengið upp.“ Og Jack Provoshna, yfir- maður læknadeildar þeirrar sem umræddir skurðlæknar starfa við, sagði það hæpið að fara að leita að hjarta sem passaði um öll Bandaríkin og finna það kannski ekki, en standandi frammi fyrir því að barnið muni deyja á næstu klukkustundum, „þeir urðu að grípa til þess sem til var og þeir stóðu sig aðdáun- arlega," sagði Provoshna. HELCAR Helgarreisur veita einstaklingum, fjölskyldum og hóp- um tækifæri til að njóta lífsins á nýstárlegan og skemmti- legan hátt, fjarri sinni heimabyggð. Fararstjórnin er í þín- g um höndum: Þú getur heimsótt vini og kunningja, farið í leikhús, á óperusýningu, hljómleika og listsýningar. Síðan ferðu út að borða á einhverjum góðum veitinga- stað og dansar fram á nótt. Stígðu ný spor í Helgarreisu Flugleiða! Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flug- leiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.