Morgunblaðið - 31.10.1984, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIK UDAGUR 31. OKTÓBER 1984
33
Oldrimarþjónusta
í Reykjavík
Reykjavíkurborg, fjöldi félagasamtaka og safnaða sinna málefnum aldr-
aðra í Reykjavík. Samt er fjöldi fólks sem veit ekki hver þjónustan er né
hvar hún er veitt. Upplýsingaþjónustu og fræðslu um málefni aldraðra
hefur of lítið verið sinnt fram til þessa.
Málefni aldraðra
Félagsmálastofnu n
Reykjavíkurborgar
Eins og áður hefur verið getið
er yfirstjórn félagsmála í
Reykjavík í höndum félagsmála-
ráðs Reykjavíkurborgar. For-
maður þess er Markús Örn Ant-
onsson. Félagsmálastjóri er
Sveinn H. Ragnarsson.
Fjöldi aldraðra Reykvíkinga
vex hröðum skrefum. Háaldraðir
Reykvíkingar hafa aldrei verið
fleiri. Árið 1982 voru 204 konur 90
ira og eldri og 84 karlar eða sam-
tals 288. Á sama ári voni íbúar
Reykjavíkur 80—89 ára samtals
2.198. Á árinu 1982 voru því íbúar
Reykjavíkur 80 ára og eldri sam-
tals 2.486.
1. des. 1983 voru íbúar í Reykja-
vík 67 ára og eldri 9.819.
Við Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar starfar sér-
stök deild sem sinnir málefnum
aldraðra og hefur deildin skrif-
stofur sínar að Tjarnargötu 11, í
sama húsi og heimilisþjónusta
Reykjavíkurborgar hefur
skrifstofur sínar. Deild sú sem
sinnir velferðarmálum aldraðra
hefur einnig méð uppbyggingu
og skipulagningu ásamt rekstri
félags- og tómstundastarfs aldr-
aðra að gera. Verður hér stiklað
á stóru varðandi þátt Reykjavík-
urborgar á þessu sviði.
Félags- og tómstunda-
starf aldraóra
Félags- og tómstundastarf
aldraðra hefur verið rekið um 15
ára skeið. Er starfið rekið bæði
yfir vetrar- og sumarmánuði og
öllum íbúum Reykjavíkurborgar
67 ára og eldri heimil þátttaka í
starfinu.
Reynt hefur verið að sinna
þessum þætti öldrunarþjónustu
sérstaklega og gefa honum sér-
stakan gaum þar sem augljóst er
2. grein
að með hækkuðum lífaldri verða
æ fleiri sem þurfa á aðstoð, um-
önnun, ráðgjöf og þjónustu að
halda.
Á árinu 1984 rekur Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar fjórar
félagsmiðstöðvar í borginni og
jafnframt rekur Reykjavíkurborg
félags- og tómstundastarf fyrir
aldraða í Breiðholti í Menningar-
miðstöðinni við Gerðuberg.
Fjölbreytni í starfi er mikil og
nægir að nefna: handavinnu af
ýmsu tagi, smíði, útskurð,
smelti, leirkerasmiði, bókband,
leðurvinnu og skermagerð,
enskukennslu, leikfimi, sund-
námskeið og þannig mætti lengi
telja, að ógleymdri félagsvist og
dansi.
Ættu því flestir að finna
eitthvert starf við hæfi.
Þá er einnig um hársnyrtingu
og fótaaðgerðir að ræða á þess-
um stöðum ásamt með and-
litssnyrtingu og böðun fyrir þá
sem eiga erfitt með eða geta ekki
komist í bað hjálparlaust.
Á eftirtöldum stöðum fer fram
félags- og tómstundastarf fyrir
aldraða á vegum Reykjavíkur-
borgar:
1. Norðurbrún 1. Þar eru höfuð-
miðstöðvar félags- og tóm-
stundastarfs Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar.
Forstöðumaður er Helena
Halldórsdóttir, sími 686960.
2. Lönguhlíð 3. Félags- og tóm-
stundastarf hefst þar kl. 13.00
e.h. Forstöðumaður er Lára
Vilhelmsdóttir, sími 24161.
3. Furugerði 1. Þar hefst starfið
einnig að öllu jöfnu kl. 13.00.
Forstöðumaður er Anna
Þrúður Þorkelsdóttir, sími
36040.
4. Oddfellow-húsið við Vonar-
stræti. Þar hefur starf verið
rekið einn dag vikunnar, - á
mánudögum, frá kl. 13.00-
—17.00 og sér forstöðumaður
í Norðurbrún 1 um starfið
ásamt aðstoðarforstöðu-
manni, Kristínu Jónasdóttur.
5. Menningarmiðstöðin við Gerðu-
berg. Þar hefur starfið verið
rekið á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 13.00-
—17.00. Forstöðumaður er El-
ísabet Þórisdóttir, sími 79140.
Matarþjónusta
Margir aldraðir eiga erfitt
með að elda sér hádegismat.
Reykjavíkurborg hefur reynt að
koma til móts við þarfir þessa
fólks með þvi að gefa því kost á
að kaupa sér máltíðir i félags-
miðstöðvum aldraðra.
í Norðurbrún 1, Lönguhlíð 3,
og Furugerði 1 er unnt að fá
heita máltið í hádegi alla virka
daga vikunnar. Við Þjónustu-
íbúðir aldraðra á Dalbraut og á
vistheimilinu að Droplaugar-
stöðum er unnt að fá máltíð alla
daga vikunnar.
Er starfíö nógu öflugt
og fjölbreytt?
Hér hefur verið stiklað á stóru
í þessum mikilvæga þætti öldr-
unarþjónustu. Meðan aldraðir
eru virkir í starfi þjálfast bæði
hugur og hönd, vellíðan eykst og
þeir geta notið lífsins í ríkara
mæli.
Því er eðlilegt að spurt sé: Er
starfið nógu fjölbreytt? Hvað
um sérnámskeið fyrir aldraða og
verðandi ellilífeyrisþega? Er
þörf á námsflokkum fyrir aldr-
aða?
Fáir launaðir starfsmenn byggja
starfið á þátttöku á um 100 sjálf-
I»órir S. (Juóbergsson
„Vér göngum svo léttir í lundu".
Leikfími er afar mikilvægur þáttur
í heilsurækt aldraðra
boðaliða sem leggja ómetanlegan
skerf að mörkum og verður starf
þeirra seint fullþakkað. Þjálfa
þarf góða starfsmenn, greiða
þeim sómasamleg laun fyrir
mikilvægt starf, efna til nám-
skeiða fyrir sjálfboðaliða og
meta starf þeirra enn betur en
gert hefur verið.
Og hvað segja síðan aldraðir
sjálfir? Þeir eiga að njóta þjón-
ustunnar. Hvar kreppir skórinn?
Hvar má betur gera? Hvað er vel
gert og á hvað þarf að leggja enn
meiri áherslu?
Grænland:
Drykkjuskap-
urinn keyrir
um þverbak
(■rænlandi, 29. október.
Frá NiLs Jörgen Bruun, rréCUriUra Mbl.
BÆJARSTTJÓRNIN í Scoresbysund
á austurströnd Grænlands hefur
ákveðið að banna alla áfengissölu í
bænum. Er ástæðan sú, að mikið
hefur verið þar um morð og sjálfs-
morð að undanförnu vegna óhófíegs
drykkjuskapar á bæjarbúum. Geng-
ur bannið í gildi nk. fímmtudag.
Á grænlenska landsþinginu eru
nú ákafar umræður um hvernig
unnt er að draga úr drykkjuskapn-
um í landinu en ekki er búist við
ákveðnum tillögum um það að svo
stöddu. Verður beðið niðurstaðna
sérstakrar ráðstefnu um vanda-
málið, sem brátt verður haldin.
Otto Steenholdt, leiðtogi stjórnar-
andstöðuflokksins Atassut, hefur
beitt sér mjög fyrir þessu máli og
sagði á þingi, að hann vildi heldur,
að Grænlendingar gætu sér orð
erlendis fyrir góðan fisk en fyrir
það að eiga heimsmet í drykkju-
skap, morðum, sjálfsmorðum og
líkamsmeiðingum.
Engin eftir-
mál af
sprengju-
leiknum
London, 29. október. AP.
FRANSKl öryggislögregluforinginn,
sem kom fyrir sprengjum til að
kanna árvekni breskra starfsbræðra
sinna, verður ekki látinn svara til
saka fyrir uppátækið. Talsmaður
Scotland Yard skýrði frá þessu í
gær, en sprengjunum kom Frakkinn
fyrir á lóð hússins þar sem franska
sendinefndin dvaldist meðan á
heimsókn Mitterrands Frakklands-
forseta stóð.
„Við gerum okkur að góðu út-
skýringar hans og þar með er mál-
ið úr sögunni," sagði talsmaður
Scotland Yard. Franski lögreglu-
foringinn var yfirheyrður í fjóra
tíma hjá bresku lögreglunni en
ekkert hefur verið gert uppskátt
um ástæðurnar, sem hann hafði
fyrir verknaðinum. Franskir emb-
ættismenn segja, að sprengjunum
hafi verið komið fyrir til að prófa
getu Bretanna og segja sumir, að
þeir siðarnefndu hafi vitað hvað
til stóð.
Þetta mál setti leiðindasvip á
heimsókn Mitterrands til Bret-
lands og Thatcher hafði þau orð
um það, að það hefði verið „al-
rangt" að koma sprengjunum
fyrir.
BRunmði
-AFÖRYGGISÁSTÆÐUM
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055
/