Morgunblaðið - 31.10.1984, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
43
1 f t j,|ni * « - x
KKn * ? wwSsSíB * *
Verum ánægð á meðan
stórborgarbragurinn
er enn ekki mikill
Mikið var ég undrandi er ég sá
bréf, sem „borgarbúi" ritaði í
Velvakanda á sunnudag. Þar er
skammast yfir því, að Austur-
stræti sé fullt af skranhlutum og
fatadruslum, sem bréfritari seg-
ir að sé í hróplegu ósamræmi við
þann stórborgarbrag, sem er að
koma á Reykjavík. Ég get ekki
orða bundist: Veit bréfritari
ekki, hvernig lífið er í svo mörg-
um strætum stórborganna, sem
hann vill að Reykjavík líkist?
Hvar sem komið er í stærri
borgir heims má sjá flóamarkaði
og söluskála eins og bréfritari er
sem mest á móti og þykir sá
þáttur borgarlífsins einatt einn
hinna líflegustu. „Borgarbúi"
virðist hins vegar ekki gera sér
grein fyrir, að við erum blessun-
arlega laus við annað einkenni
stórborga, klámbúllumar og
vændið. Vill bréfritari máski
skipta, losna við skranið og fata-
druslurnar, sem hann segir ein-
kenna Austurstrætið og fá í
staðinn klámbúllurnar, þar sem
fólk er rúið sjálfsvirðingu? Vill
bréfritari fremur sjá „stór-
borgardömur" bíða eftir við-
skiptavinum en þá, sem selja
saklausa hluti á útimarkaði
Austurstrætis? Nei, bágt á ég
með að ímynda mér það. Við
skulum ekki fjasa yfir smábúð-
um, sem engan saka, heldur vera
þakklát fyrir það, að Reykjavík
skuli ekki enn vera orðin eins og
svo margar stórborganna. Það
vill oft gleymast, hve lánsöm við
erum hér á Islandi. Við skulum
keppast við að gera borgina
okkar stórborgarlega að því leyti
sem vel er, t.d. með fjölskrúðugu
lífi í göngugötunni, en jafnframt
vara okkur á því sem miður er.
Lengi lifi útimarkaðurinn í
Austurstræti, á meðan starfsemi
hans miðast einungis við „skran
og fatadruslur".
Þessir hringdu . .
„Hve langt
nær hugsunin?"
Gömul kona hringdi og kvaðst
vilja leggja nokkrar spurningar
fyrir þá, sem nú eru að karpa um
laun og kjör opinberra starfs-
manna:
„Hafið þið gert ykkur grein
fyrir því að yfirstandandi verk-
fall bitnar miskunnarlaust á
þeim sem síst skyldi?
Hvað eigum við, sem erum
bíllaus og höfum ferðast með
strætisvögnum, nú að gera?
Hafið þið hugsað til þeirra,
sem eru blindir og geta ekki lesið
og hafa haft ánægju af því að
hlusta á útvarp?
Og þeirra, sem eru lamaðir og
njóta sjónvarpsins þegar það er í
gangi?
Getið þið sett ykkur í spor fá-
tæks fólks og farlama, hvernig
þetta allt bitnar á því?
Hafið þið hugsað til þeirra,
sem eru í sjúkrahúsum og lang-
legudeildum?
Ég bið guð að fyrirgefa þeim,
sem bera ábyrgð á því hvernig
þessu fólki líður nú.“
Drottinsdegi ...“
LV. hringdi og hafði þetta að
segja:
„Sunnudaginn 28. okt. 1984
stendur á stðu 94 í Morgunblaðinu:
„Boðskapur Jesú felst ekki í
hnyttnum, skörulega fluttum ræð-
um, heldur ...“ o.s.frv. „Og Jesú
væntir þess ekki að við tileinkum
okkur svo og svo mikið af kenning-
um hans eða sýnum þess merki að
við höfum skilið trixið i þessari
eða hinni frásögninni. Nei, ...“
o.s.frv.
Þessi skrif samrýmast ekki
boðskap Biblíunnar. Er þetta
kennsla í guðfræðideild Háskólans
í dag? Ég vil biðja Félag guðfræði-
nema og aðra umsjónarmenn síð-
unnar, sem ábyrgir eru, að svara
því.“
ftbmbou
t)aó þehKist á bragóinu
Föm/FRI
FEwumm
FERÐAMMÖÐINNI
FARSEÐLAR UM ALLAN HEIM!
OSLO
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla fimmtudaga
STOKKHÓLMUR
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla fimmtudaga
1 JJlili
.835.
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði, akstur frá flugvelli og
fararstjóri.
Verð í tvíbýli frá kr.
GLASGOW
HELGARFERÐIR: brottför fimmtudaga
og laugardaga. Flug og gisting
m/morgunverði á fyrsta flokks hóteli. Verð
8.935.
í tvíbýli frá kr.
mmn
9.370.
HELGARFERÐIR: Brottför fimmtudaga
og laugardaga. Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 9.370.00
LUXEMBOURG 10.765.
Helgar- og vikuferðir.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.765.00.
um
14.241.
HELGAR- OG VIKUFERÐIR
Flogið um Luxembourg til Parísar.
HELGARFERÐ: Flu gog gisting
m/morgunv. Verð í tvíbýli frá kr. 14.241.00.
KAUPM.H0FN 10.334.
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.334.00.
k I
15.568.
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga. Flogið um
Luxembourg.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 15.568.00.
EHM
Flogið um Luxembourg. Flug og gisting í
Agadir í tvær vikur auk 3ja nátta gistingar
í Luxembourg — 17 daga ferð.
Verð í tvíbýli frá kr. 23.909.00.
Alltaf er nú notaiegt að skreppa til
Kanaríeyja úr skammdeginu á Islandi. -
Fjölbreytt úrval gististaða, margskonar
ferðamöguleikar. Fáðu upplýsingar hjá
okkur um ferðamátann, sem hentar þér.
SKIDAFERDIR 22.098.
— Viku-, 2ja vikna og 3ja vikna ferðir.
Beina flugið til Austurríkis byrjar 26. janúar.
— Góðir gististaðir í Mayrhofen.
Verð í tvíbýli m/hálfu fæði í 2 vikur frá kr. 22.098.00.
FERÐA..
MIÐSTOÐIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
lanvaravo wmvtb