Morgunblaðið - 31.10.1984, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
Morgunblaðið/SUS.
• Úr úrslitaleik Nordurlandamótsina í karlaflokki. Það eru Finnar sem smassa hér yfir þriggja manna blokk
hjá Svíum, en Finnar höfóu mikla yfirburöi á þessu móti.
Noröurlandamótiö í blaki:
Maraþonhlaup í Dublin:
Pétri og Steinari
tókst ekki vel upp
„ÉG ÆTLAÐI að veröa meðal 10
fyrstu í mark, en fór of geyst og
kom þaö niður á mór eftir 15 kíló-
metra. Fókk óg þá hlaupasting
sem óg losnaðí ekki viö fyrr en
löngu seinna, varð aö sleppa
fremsta hópnum og hægja á ferð-
inni. Og þótt óg reyndi seinna að
bæta við mig náði 6g mór aldrei á
strik aftur,“ sagöi Sigurður Pótur
Sigmundsson, langhlaupari úr
FH, sem keppti í maraþonhlaupi í
Dublin á mánudag ásamt Steinari
Friögeirssyni, ÍR, en hátt í 10 þús-
und manns tóku þátt í hlaupinu.
Siguröur Pétur kvaöst hafa
ákveöiö aö Ijúka frekar hlaupinu
en hætta, þó svo hann yröi eitt-
hvaö frá sínu besta, og hafnaöi
hann í 24. sæti í hlaupinu á 2:29,46
stundum. Er Siguröur Pétur ís-
landsmethafi í greininni, hljóp í vor
á rúmlega 2:21 stundum. Steinar
lenti einnig í erfiðleikum og hljóp á
2:39,12. Var hann í hópi fyrstu 100
manna í mark. Aö sögn Siguröar
Péturs náöist ekki sérstaklega
góöur árangur í hlaupinu, enda aö-
stæöur erfiöar, vindasamt meöan
hlaupiö fór fram og hlaupaleiöin
erfiö.
Aburöarverksmiöjan
sigraöi í firma-
keppni KR-inga
HIN vinsæla firma- og stofnana-
keppni KR í knattspyrnu fór fram
í september. Aö þessu sinni var
fjöldi liða takmarkaöur við 32 liö
og komust því færri að en vildu.
Keppnin gekk mjög vel aö
vanda og ekki spillti góöa veöriö
fyrir. Aö þessu sinni virtust liöin
vera frekar jöfn aö getu og kom
þaö berlega fram í úrslitakeppn-
inni. Til úrslita léku Aburöarverk-
smiöjan og Hagkaup og sigraöi
Áburðarverksmiðjan í bráöabana,
en staöan var jöfn, 1 —1, aö venju-
legum leiktíma loknum. Huröaiöjan
sigraöi Hraöfrystistööina 4—0 í
keppni um þriöja sætiö. Leikmenn
þriggja efstu liða fengu verðlauna-
peninga fyrir árangurinn auk þess
sem sigurvegararnir fengu eign-
arbikar og svo farandbikar til varö-
veislu í eitt ár.
Finnar meistarar í
karla- og kvennaflokki
í BYRJUN októbermánaöar hóldu
bæði karla- og kvennalandsliö ís-
lands í blaki til Norðurlanda til að
taka þátt í Noröurlandamóti í
íþrótt sinni. Karlaliöið hólt til Nor-
egs en stúlkurnar til Álandseyja,
en þetta var í fyrsta sinn sem
kvennalandslið frá íslandi tók
þátt í Norðurlandamóti í blaki.
Þeir sem í þessa ferö fóru læröu
ýmislegt og það var greinilegt aö
viö megum ýmislegt læra af ná-
grannaþjóöum okkar í biakíþrótt-
inni. Úrslit á mótinu uröu þau aö
karlaliöiö hafnaði í fimmta sæti af
sex þjóöum og þaö sama er aö
segja um kvennaliöiö. Finnar uröu
Noröurlandameistarar á báöum
vígstöövum, höföu geysilega yfir-
buröi í karlaflokki en kvenna-
keppnin var mun jafnari.
Úrslit leikja hjá karlaliöinu uröu
þannig aö fyrst tapaöi liöiö gegn
Finnum, 3:0 (15:2, 15:2 og 15:0),
síöan gegn Dönum 3:0 (15:2, 15:7,
15:2) en síöan vann liöiö báöa leik-
ina gegn Færeyingum. Fyrri leikur-
inn endaði 3:2 (15:11, 13:15, 15:9,
7:15, 15:10) og var það ein lengsta
viöureignin í mótinu. Seinni leikinn
unnu íslensku strákarnir fremur
auöveldlega 3:0(15:8, 15:9, 15:8).
Þess má geta að Finnar unnu
alla leiki sína á mótinu 3:0, þurftu
aöeins aö leika 12 hrinur og þrjár
þeirra unnu þeir 15:0. Þeir mættu
Svíum í úrslitaleik og unnu hann
15:8, 15:2 og 15:4. Danmörk varð í
þriöja sæti, Noregur í fjóröa og
Færeyingar ráku lestina í sjötta
sæti, næstir á eftir íslandi.
Kvenfólkiö sem hélt til Álands-
eyja hafnaöi í fimmta sæti eins og
karlaliöiö, léku fjóra leiki, töpuöu
tveimur og unnu tvo. Stúlkurnar
byrjuðu á aö tapa fyrir Finnum,
15:2, 15:4 og 15:0 og gegn norsku
stúlkunum töpuöu þær einnig 3:0
(15:2, 15:5 og 15:0) en þess má
geta hér aö norska liöiö kom mjög
á óvart í þessari keppni og skaut
því sænska ref fyrir rass og hafn-
aöi í ööru sæti eftir æsispennandi
úrslitaleik viö Finna. Þeim leik lauk
meö 3:2 sigri þeirra finnsku (15:10,
12:15, 15:9, 13:15, 15:9).
Islenska liöiö sigraði í tveimur
leikjum og voru þeir báöir gegn
Færeyingum. Fyrri leikinn unnu
stúlkurnar 3:1 (15:6, 11:15, 15:12,
15:4) og þann seinni 3:2 (15:7,
15:6, 12:15, 8:15, 15:5) og meö
þessum sigrum tryggöi liöiö sér
fimmta sætiö í mótinu. Finnar
unnu mótiö, Norömenn uröu í ööru
sæti, Svíar í því þriöja, Danir í
fjóröa, ísland í fimmta og Færey-
ingar í sjötta.
Mótin tókust mjög vei á báöum
stööunum og næst þegar Noröur-
landamót i blaki karla veröur hald-
iö, áriö 1986, kemur það í hlut ís-
lendinga aö sjá um þaö.
Knattspyrnufélagið Valur
— Knattspyrnudeild —
Ráðstefna um
félagsmál
Knattspyrnudeild Vals heldur opna ráöstefnu
um málefni deildarinnar laugardaginn 3. nóv-
ember n.k. kl. 10:00. Fundarstaður: Salur í kjall-
ara við Hallveigarstíg. Kaffiveitingar verða á
staðnum og gefið stutt matarhlé í hádeginu.
Ráðstefnan sem er opin öllum Valsmönnum
stendur til kl. 16:00.
Nú er tækifærið fyrir áhugasama Valsmenn að
kynnast starfinu, koma hugmyndum á framfæri
og tengjast félaginu sterkari böndum.
Mætum stundvíslega og tökum þátt!
Stjórn knattspyrnudeildar Vals
• Lið Áburðarverkamiöjunnar aigraði (firmakeppni KR.
• Huröaiöjan hlaut þriöja aæti.
• Hagkaup, aem varð í öðru aæti.