Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
215. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ronald Reagan:
„Eg
mér
spái ekki sjálfum
sigri fyrirfram“
Lokaspretturinn
Ronald Reagan og varaforsetinn
George Bush veifa til fagnandi
mannfjölda, en á myndinni fyrir
neðan lyftir Walter Mondale
höndum er fólksfjöldi fagnar
ræðu hans-
Símamyndir AP.
Sandinistar
lýsa sigri
Managua, Niearagua. 5. nóvember. AP.
FOHSETA- og almennar þing-
kosningar voru haldnar í Nicar-
agua um helgina, þær fyrstu síð-
an ad hinir vinstri sinnuöu sand-
inistar steyptu Somoza af stóli.
Þrír stærstu stjórnarandstöðu-
flokkarnir tóku ekki þátt í kosn-
ingunum, sögðu þær „farsa“ og
einungis nokkrir litlir miðflokk-
ar öttu kappi við sandinista, en
fylgi þeirra er lítið.
Tölur lágu ekki fyrir í dag,
talning var í fullum gangi og
ekki var búist við að talningu
yrði lokið fyrr en í fyrsta lagi
á fimmtudaginn. Samkvæmt
því sem talið hafði verið, benti
þó ailt til þess að sandinistar
hefðu unnið öruggan sigur,
þeir höfðu hlotið rúmlega 70
prósent atkvæða og sögðu þeir
kjörsóknina hafa verið góða.
Stjórnarandstaðan sagði hana
hins vegar hafa verið lélega.
Sjá nánar um kosningnrnu á
blaðsíðu 22.
Daniel Ortega, leiðtogi sandin-
ista.
Mondale boðar „óvænt úrslit“
Washington. Sacramento og Loo Angelen. 6. nóeember. AP.
„ÉG GENG ekki fram fyrir skjöldu
og lýsi mig sigurvegara nú, en fari ég
með sigur af hólmi mun ég beita
mér fyrir heimsfriði, afvopnun og
uppbyggingu efnahagslífsins," sagði
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti í
ræðu sem hann flutti i Sacramento í
Kaliforníu í gær, mánudag, en með
þeim degi má segja að kosningabar-
Chile:
Stjórnin öll
sagði af sér
Snntiago, Chile, S. nóvember. AP.
ALLIR ráðherrar í ríkisstjórn Chile
hafa sagt af sér embætti í kjölfarið á
óeirðarviku í landinu þar sem 14
manns létu lífið. Alfonso Marques De
La Plata, forsætisráðherra, greindi frá
afsögn ráðherranna og sagði ástæð-
una þá að „ástandið í innanlandsmál-
um væri slíkt að betra væri að Pino-
chet forseti hefði frjálsar hendur um
úrbætur".
De La Plata sagði afsagnirnar
ekki endanlegar, ráðherrarnir væru
tilbúnir að taka ráðherrasæti á ný
ef Pinochet teldi sig geta notað
krafta þeirra. Innanrikisráðherr-
ann, Sergio Onofra Jarpa, mun þó
líta á uppsögn sína sem endanlega.
Hann hefur oftar en einu sinni
greint á um veigamikil mál við
Pinochet og hann er sagður hafa
ákveðið að hætta ráðherrastörfum
er Pinochet íhugaði að koma á her-
lögum í síðustu viku meðan óeirð-
irnar voru sem mestar.
áttunni hafi lokið í Bandaríkjunum,
því kosning hefst í dag.
Keppinauturinn, Walter Mon-
dale, frambjóðandi Demókrata-
flokksins, hélt ræðu í Los Angeles
á sama tíma og Reagan flutti
ofangreinda tölu. Hann sagði m.a.:
„Repúblikönum og því fólki sem
framkvæmir og fer eftir skoðana-
könnunum á eftir að bregða heift-
arlega í brún, ég finn það nefni-
lega á mér að við vinnum þetta
kjör.“ Þrátt fyrir kokhreysti
Mondales, voru skoðanakannanir
ekki á sama máli, niðurstöður
nokkurra voru birtar í gær, á síð-
asta degi kosningabaráttunnar, og
voru þær allar á þá leið að Reagan
hefði alls staðar örugga forystu
nema í Minnesota og District of
Columbia. Þó voru kannanir sam-
dóma um að meirihlutafylgi Reag-
ans hefði dvínað nokkuð.
Tugmilljónir Bandaríkjamanna
munu ganga að kjörborðinu í 50.
forsetakosningunum og verður þá
úr því skorið hvor hefur betur,
Reagan eða Mondale. í kosningun-
um verður ekki aðeins valinn for-
seti, heldur einnig 33 þingmenn
öldungadeildarinnar, sem skipuð
er 100 mönnum, allir 435 þing-
menn fulltrúadeildarinnar, 13 af
50 ríkisstjórum og fjöldinn allur
af embættismönnum í bæ og borg.
Bandaríkin eru víðlend og tíma-
munur því mikill. Kjörfundur
hófst fyrst í Dixieville, litlu þorpi
í New Hampshire, klukkan 5 í
morgun, en lýkur síðast á Hawai-
i-eyjum og í Alaska, í 8000 kíló-
metra fjarlægð, klukkan 6.00 I
fyrramálið.
Popieluzsko pyntaður fyrir morðið:
Kirkjan þagði um krufn-
ingu af ótta við uppþot
VarNjá, 5. nóvember. AP.
Andófsmaóurinn og sagnfræóing-
urinn Jan Jozef Lipsky sagði vest-
rænum fréttamönnum í dag, að hann
hefði fyrir satt að kirkjunnar menn í
Póllandi hefðu vísvitandi stungið
upplýsingum varðandi krufningu
Popieluszkos undir stól. „Skýrslan
var svo hroðaleg að klerkarnir töldu
efni hennar betur geymt, sérstak-
lega þar sem andrúmsloftið er enn
svo rafmagnað eftir morðið," sagði
Lipsky. Hann sagði að áverkar á
prestinum, sem var mjög grannvax-
inn, hefðu verið þess eðlis að Ijóst
væri að hann hefði verið pyntaður.
Voru hendur hans og höfuð þakin
Ijótum áverkum og auk þess hafði
blætt inn á lungu prestsins. Dánar-
orsökin hafi hins vegar verið kyrk-
ing. Krufningsmenn stjórnvalda
staðfestu ekki framburðinn, en
nokkrir háttsettir guðsmenn, sem
ekki vildu láta nafns getið staðfestu
þetta þó í öllum aðalatriðum. Útlor
Popieluszko fór friðsamlega fram.
Yfirvöld í Póllandi hafa hand-
tekið ofursta að nafni Adam Pi-
etruszka, embættismann við inn-
anríkisráðuneytið, og gefið honum
að sök að hafa verið í vitorði með
þeim sem þegar hafa verið hand-
teknir og sakaðir um að hafa rænt
og myrt prestinn Jerzy Popiel-
uszko sem jarðsettur var á laug-
ardaginn. Pietruszka er fjórði og
hæst setti aðilinn sem handtekinn
hefur verið til þessa. Fyrir helgina
var jafn háttsettur maður yfir-
heyrður og leystur frá störfum, en
ekki handtekinn vegna skorts á
sönnunargögnum.
Jerzy Urban, talsmaður pólsku
stjórnarinnar, sagði það ekki ljóst
enn sem komið væri hvort hinir
handteknu yrðu sakaðir um morð-
ið sjálft þó ljóst væri að þeir væru
viðriðnir mannránið. Einn hinna
handteknu hefði nefnilega játað á
sig morðið, en síðan dregið fram-
burð sinn til baka og neitaði nú
öllu. Stjórnvöld hafa til þessa ekki
gert nákvæma grein fyrir því við
hvaða deild innanríkisráðu-
neytisins fjórmenningarnir
starfa, en ónafngreindar heimildir
hafa þó fullyrt að um kirkjudeild
ráðuneytisins sé að ræða.