Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 215. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ronald Reagan: „Eg mér spái ekki sjálfum sigri fyrirfram“ Lokaspretturinn Ronald Reagan og varaforsetinn George Bush veifa til fagnandi mannfjölda, en á myndinni fyrir neðan lyftir Walter Mondale höndum er fólksfjöldi fagnar ræðu hans- Símamyndir AP. Sandinistar lýsa sigri Managua, Niearagua. 5. nóvember. AP. FOHSETA- og almennar þing- kosningar voru haldnar í Nicar- agua um helgina, þær fyrstu síð- an ad hinir vinstri sinnuöu sand- inistar steyptu Somoza af stóli. Þrír stærstu stjórnarandstöðu- flokkarnir tóku ekki þátt í kosn- ingunum, sögðu þær „farsa“ og einungis nokkrir litlir miðflokk- ar öttu kappi við sandinista, en fylgi þeirra er lítið. Tölur lágu ekki fyrir í dag, talning var í fullum gangi og ekki var búist við að talningu yrði lokið fyrr en í fyrsta lagi á fimmtudaginn. Samkvæmt því sem talið hafði verið, benti þó ailt til þess að sandinistar hefðu unnið öruggan sigur, þeir höfðu hlotið rúmlega 70 prósent atkvæða og sögðu þeir kjörsóknina hafa verið góða. Stjórnarandstaðan sagði hana hins vegar hafa verið lélega. Sjá nánar um kosningnrnu á blaðsíðu 22. Daniel Ortega, leiðtogi sandin- ista. Mondale boðar „óvænt úrslit“ Washington. Sacramento og Loo Angelen. 6. nóeember. AP. „ÉG GENG ekki fram fyrir skjöldu og lýsi mig sigurvegara nú, en fari ég með sigur af hólmi mun ég beita mér fyrir heimsfriði, afvopnun og uppbyggingu efnahagslífsins," sagði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti í ræðu sem hann flutti i Sacramento í Kaliforníu í gær, mánudag, en með þeim degi má segja að kosningabar- Chile: Stjórnin öll sagði af sér Snntiago, Chile, S. nóvember. AP. ALLIR ráðherrar í ríkisstjórn Chile hafa sagt af sér embætti í kjölfarið á óeirðarviku í landinu þar sem 14 manns létu lífið. Alfonso Marques De La Plata, forsætisráðherra, greindi frá afsögn ráðherranna og sagði ástæð- una þá að „ástandið í innanlandsmál- um væri slíkt að betra væri að Pino- chet forseti hefði frjálsar hendur um úrbætur". De La Plata sagði afsagnirnar ekki endanlegar, ráðherrarnir væru tilbúnir að taka ráðherrasæti á ný ef Pinochet teldi sig geta notað krafta þeirra. Innanrikisráðherr- ann, Sergio Onofra Jarpa, mun þó líta á uppsögn sína sem endanlega. Hann hefur oftar en einu sinni greint á um veigamikil mál við Pinochet og hann er sagður hafa ákveðið að hætta ráðherrastörfum er Pinochet íhugaði að koma á her- lögum í síðustu viku meðan óeirð- irnar voru sem mestar. áttunni hafi lokið í Bandaríkjunum, því kosning hefst í dag. Keppinauturinn, Walter Mon- dale, frambjóðandi Demókrata- flokksins, hélt ræðu í Los Angeles á sama tíma og Reagan flutti ofangreinda tölu. Hann sagði m.a.: „Repúblikönum og því fólki sem framkvæmir og fer eftir skoðana- könnunum á eftir að bregða heift- arlega í brún, ég finn það nefni- lega á mér að við vinnum þetta kjör.“ Þrátt fyrir kokhreysti Mondales, voru skoðanakannanir ekki á sama máli, niðurstöður nokkurra voru birtar í gær, á síð- asta degi kosningabaráttunnar, og voru þær allar á þá leið að Reagan hefði alls staðar örugga forystu nema í Minnesota og District of Columbia. Þó voru kannanir sam- dóma um að meirihlutafylgi Reag- ans hefði dvínað nokkuð. Tugmilljónir Bandaríkjamanna munu ganga að kjörborðinu í 50. forsetakosningunum og verður þá úr því skorið hvor hefur betur, Reagan eða Mondale. í kosningun- um verður ekki aðeins valinn for- seti, heldur einnig 33 þingmenn öldungadeildarinnar, sem skipuð er 100 mönnum, allir 435 þing- menn fulltrúadeildarinnar, 13 af 50 ríkisstjórum og fjöldinn allur af embættismönnum í bæ og borg. Bandaríkin eru víðlend og tíma- munur því mikill. Kjörfundur hófst fyrst í Dixieville, litlu þorpi í New Hampshire, klukkan 5 í morgun, en lýkur síðast á Hawai- i-eyjum og í Alaska, í 8000 kíló- metra fjarlægð, klukkan 6.00 I fyrramálið. Popieluzsko pyntaður fyrir morðið: Kirkjan þagði um krufn- ingu af ótta við uppþot VarNjá, 5. nóvember. AP. Andófsmaóurinn og sagnfræóing- urinn Jan Jozef Lipsky sagði vest- rænum fréttamönnum í dag, að hann hefði fyrir satt að kirkjunnar menn í Póllandi hefðu vísvitandi stungið upplýsingum varðandi krufningu Popieluszkos undir stól. „Skýrslan var svo hroðaleg að klerkarnir töldu efni hennar betur geymt, sérstak- lega þar sem andrúmsloftið er enn svo rafmagnað eftir morðið," sagði Lipsky. Hann sagði að áverkar á prestinum, sem var mjög grannvax- inn, hefðu verið þess eðlis að Ijóst væri að hann hefði verið pyntaður. Voru hendur hans og höfuð þakin Ijótum áverkum og auk þess hafði blætt inn á lungu prestsins. Dánar- orsökin hafi hins vegar verið kyrk- ing. Krufningsmenn stjórnvalda staðfestu ekki framburðinn, en nokkrir háttsettir guðsmenn, sem ekki vildu láta nafns getið staðfestu þetta þó í öllum aðalatriðum. Útlor Popieluszko fór friðsamlega fram. Yfirvöld í Póllandi hafa hand- tekið ofursta að nafni Adam Pi- etruszka, embættismann við inn- anríkisráðuneytið, og gefið honum að sök að hafa verið í vitorði með þeim sem þegar hafa verið hand- teknir og sakaðir um að hafa rænt og myrt prestinn Jerzy Popiel- uszko sem jarðsettur var á laug- ardaginn. Pietruszka er fjórði og hæst setti aðilinn sem handtekinn hefur verið til þessa. Fyrir helgina var jafn háttsettur maður yfir- heyrður og leystur frá störfum, en ekki handtekinn vegna skorts á sönnunargögnum. Jerzy Urban, talsmaður pólsku stjórnarinnar, sagði það ekki ljóst enn sem komið væri hvort hinir handteknu yrðu sakaðir um morð- ið sjálft þó ljóst væri að þeir væru viðriðnir mannránið. Einn hinna handteknu hefði nefnilega játað á sig morðið, en síðan dregið fram- burð sinn til baka og neitaði nú öllu. Stjórnvöld hafa til þessa ekki gert nákvæma grein fyrir því við hvaða deild innanríkisráðu- neytisins fjórmenningarnir starfa, en ónafngreindar heimildir hafa þó fullyrt að um kirkjudeild ráðuneytisins sé að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.