Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Fjölmennur fundur um hagsmunamál
heimavinnandi húsmæðra ályktar:
Heimavinnandi
húsmæðrum verði
ekki mismunað
SÍÐASTLIÐINN laugardag hélt
Hagsmunanefnd heimavinnandi
kvcnna, scm starfar á vegum Banda-
lags kvenna í Reykjavík, fund á Hót-
el Sögu undir yfirskriftinni: Umraeó-
ufundur um réttinda- og hagsmuna-
mál heimavinnandi húsmæóra.
Fundinn sóttu um 230 konur hvaó-
anaeva af landinu og var í lok fund-
arins samþykkt ályktun þar sem
skorað er á Alþingi að endurskoða
skatta- og tryggingalöggjöfina með
tilliti til hagsmuna heimavinnandi
húsmæðra og heimila þeirra.
Á fundinum voru flutt fjögur
framsöguerindi. Guðrún Er-
lendsdóttir hrl. talaði um eigna-
og erfðarétt í óvígðri sambúð;
Margrét Thoroddsen, deildarstjóri
hjá Tryggingastofnun ríkisins,
ræddi um rétt heimavinnandi til
sjúkradagpeninga, fæðingarorlofs
og fleira; Sigurbjörn Þorbjörns-
son, rikisskattstjóri, ræddi um
skattamál og Margrét Matthías-
dóttir, húsmóðir, ræddi um stöðu
heimavinnandi húsmííðra í þjóð-
félaginu í dag. Að lo.<num fram-
söguerindum voru síian frjálsar
umræður.
Á fundinum kom meðal annars
fram að heimavinnandi húsmæður
fá í barnsburðarleyfi 5.289 krónur
á mánuði í fæðingarorlof á meðan
konur sem vinna utan heimilis í
fullu starfi fá 15.866 krónur, eða
þrisvar sinnum meira. Heima-
vinnandi konur fá 37,86 krónur í
sjúkradagpeninga á dag og 10,72
krónur með barni á meðan konan
sem vinnur í fullu starfi utan
heimilis fær fjórum sinni meiri
dagpeninga, eða 151,44 krónur á
dag auk 41,10 með barni. Þá kom
fram í sambandi við skattamál að
verulegu máli skiptir hvort annað
hjóna aflar tekna utan heimilis
eða hvort þau gera það bæði. Sett
var upp dæmi þar sem tekjur
tveggja heimila voru 396 þúsund
krónur á ári. Ef annað hjóna afl-
aði teknanna eru skattgreiðslur
tæpar 110 þúsund krónur en ef
hvort hjóna aflaði helmings tekn-
anna eru skattgreiðslur rúmar 84
þúsund krónur. Munar því tæpum
26 þúsund krónur á skattgreiðsl-
um heimilanna eftir því hvernig
vinnutekjur skiptust á milli hjón-
anna.
Jósefína Helga Guðmundsdótt-
ir, formaður hagsmunanefndar-
innar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær: „Okkur þykir þessi
mismunur á tryggingabótagreiðsl-
um ansi mikill þegar litið er til
þess að þetta eru greiðslur af al-
mannafé. Okkur þykir það einnig
hróplegt ranglæti að heimilin
skuli skattlögð svona mismun-
andi. Okkur finnst það opinbera
lítilsvirða störf heimavinnandi
húsmæðra svo augljóslega með
þessu misræmi. Þetta er búið að
brenna á öllum konum lengi og
varð til að farið var af stað með
þessa vinnu. Það kom berlega í
ljós á fundinum að konur gerðu
sér almennt ekki grein fyrir þess-
um mikla mun. Við vonumst til að
þessi fundur, sem svona fjölmenn
samtök standa að, hafi orðið til
þess að opna augu fólks fyrir
þessu og geti orðið til þess að
mynda þann þrýsting sem nauð-
synlegur er til að breytingar fá-
ist.“
í ályktun fundarins var þeim
tilmælum beint til Alþingis að
skatta- og tryggingalöggjöfin
verði endurskoðuð, þannig að
heimavinnandi húsmæðrum og
heimilum þeirra verði ekki lengur
mismunað miðað við aðra skatt-
þegna og tryggingabótaþega eins
og raunin er nú. Dæmin erij í
hrópandi andstöðu við þá megin-
reglu að allir skuli vera jafnir
fyrir lögunum, segir í ályktuninni.
Eins og aður segir voru 230 konur
á fundinum og komu þær af Suð-
urlandi, Akranesi og Akureyri,
auk höfuðborgarsvæðisins. For-
Revkjavík^erljnnur Schram^Ág- M hinum fjölmenna fundi Hagsmunanefndar heimavinnandi kvenna, sem starfar i vegum Bandalags kvenna í
ústsdóttir Reykjavík, sem haldinn var i Hótel Sögu um helgina.
Nú seljum við síðustu bílana af
SUZUKI SWIFT árgerð 1984 og bjóðum
25.000
9
KR
verðlækkun og góð
lánakjör
SUZUKI SWIFT GL m/útvarpi.
Verð aðeins KR. 265.000 (áður kr. 290.000).
SUZUKI SWIFT GL m/stereo útvarpi,
kassettutæki og snúningshraðamæli.
Verð aðeins KR. 273.000 (áður kr. 298.000).
SUZUKI SWIFT er rúmgóður, kraftmikill og ótrúlega
sparneytinn - eyðir aðeins 4.2I á 100 km.
SVEINN EGILSSON HF. b\/°SUZUKI
Skeifunni 17. Sími 685100.