Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Lér
Síðari laugardagskvikmynd sjón-
varpsins að þessu sinni reyndi tölu-
vert á augnlok árrisulla, því henni
lauk ekki fyrr en klukkan hálf tvö
um nóttina. 0 þó, Lér kóngur eftir
Shakespeare er ekki beint svefnmeð-
al áhugamönnum um Shakespear-
es-efni, en undirritaður telur sig í
hópi þeirra manna, þótt brauðstritið
skyggi nú nokkuð orðið á fræði-
mennskuna svona uppá síðkastið. En
sá tími er ekki gleymdur, þá setið
var yfir Arden-útgáfu King Lear,
milli þess er hlýtt var á fyrirlestra
sérfróðra um Shakespeare-heiminn.
Sá sem eitt sinn hefur ratað inn í
þann heim, á nefnilega vandratað út
aftur, því það er engu líkara en
Shakespeare hamfletti samfélagið
og sýni okkur innviði þess, slíka er
aðeins opinberast hversdags-
mönnum í styrjöldum, langvinnum
vinnudeilum, náttúruhamförum eða
annarri óáran.
Fangí valdsins
Lér kóngur var einn slíkur hvers-
dagsmaöur, að vísu í æðstu valda-
stöðu, en orðinn blindur á hin dýpri
svið veruleikans, sökum smjaðurs
undirsátanna. Aðeins hans yngsta
dóttir Cordelia, hirðfíflið og jarlinn
af Kent segja honum sannleikann.
En Lér er þá orðinn fangi valdsins,
og það er ekki fyrr en hann rekur sig
á óheilindi eldri dætranna, Regan og
Goneril, að hann sér í gegnum þann
blekkingarhjúp, sem samfélagið er
hjúpa sveipað hvunndags. Þegar svo
er komið, fer hinn aldni kóngur
hamförum og afklæöist sínum tigna
persónuleika, uns hann er orðinn
nánast eins og ómálga barn. Þá er
eins og hann skynji lífið uppá nýtt
og unir sér best í faðmi náttúrunnar
innan um dýr merkurinnar.
Hér kemur fram afar merkilegur
skilningur Shakespeares á samfélag-
inu, því með algerri niðurlægingu
Lés og síðar sáttum hans við Guð og
menn útí náttúrunni, gefur Shake-
speare skít í tignarstöður og há-
timbraöa yfirbyggingu samfélags-
ins. Aðeins heilindin og hin sdanna
vinátta skipta máli í mannlegu
samfélagi, og það er jafnvel verra að
vera kóngur umkringdur smjöðrur-
um en eignalaus maður umkringdur
vinum í jarðholu.
Það hlýtur að teljast djarft teflt af
Shakespeare að draga þannig dár að
valdhafanum, sérstaklega þegar haft
er í huga að King Lear var fyrst
sýndur á jólahátfð hjá James I
Bretakóngi 1606. En Shakespeare
hafði vaðið fyrir neðan sig i þessu
efni, því skömmu fyrir aldamótin
1600 hafði leikverk er nefndist The
True Chronicle History of King Leir
birst á ensku leiksviöi og raunar var
arfsögnin um Lé kóng vel þekkt á
þessum tíma, kom fyrst fyrir í ann-
álum Geoffrey of Monmouth: Hist-
oria Britonum 1135. Shakespeare
sækir hinsvegar efnið í Annála Hol-
insheds, í Mirror for Magistrates
(1574-útgáfuna), í Faerie Queene
Edmund Spenser og Arcadiu Philip
Sidney.
Að mínu viti hefur úrvinnsla
Shakespeare úr téðum heimildum
ekki gengið sem skyldi, persónulega
finnst mér hann ofmeta arfsögnina
og gera illmennin nánast að ófreskj-
um, en góða fólkið að englum. Einnig
finnst mér meistarinn skjóta yfir
markið f lokaatriðinu, þegar helstu
persónur verksins eru stráfelldar, á
nokkrum mínútum, ekki nema von
að Lér hafi fengið „happy end“ á
ensku leiksviði allt frá 1681 til 1838,
að William Macready endurvakti
frumtextann. Annars er heimur Lés
svo forn og ógnvænlegur, að þar get-
ur allt staðist, sérstaklega þegar til-
lit er tekið til þess, að þarna er
kannski fyrst og fremst verið að Iýsa
innri heimi aldraðs vonsvikins
manns. Sir Laurence lýsti þessum
heimi á full fágaðan hátt á laugar-
dagskvöldið var enda nýtur Lér sín
ekki í kvikmyndarlíki nema í
svart/hvítu á breiðtjaldi.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Á THE STORYOF a
AfricA
Fimmti þáttur
myndaflokks-
___ins Saga Afr-
íku er á dagskrá sjón-
varpsins í kvöld og nefnist
hann Biblían og byssan. f
þessum þætti fjallar
stjórnandinn, Basil
Davidson, um þrælaversl-
un, landkönnun og
kristniboð Evrópubúa í
Afríku. Hann greinir frá
því hvernig þrælaverslun-
in breytti þjóðfélags-
mynstrinu, ættbálkaerjur
hófust og mikil fólks-
fækkun átti sér stað.
f kjölfar þrælaverslun-
arinnar varð Afríka fyrir
ýmsum nýjum áhrifum
frá Evrópu. Fyrst komu
landkönnuðirnir, m.a.
Stanley og Livingstone,
sem lögðu mikið á sig til
þess að kanna leyndar-
dóma hinna miklu fljóta
og vatna Afríku. Síðan
komu trúboðarnir í hund-
raða tali, ákveðnir í því að
breyta lífi negranna til
„batnaðar". Þeir fluttu
ekki eingöngu inn trúna,
heldur einnig lyf og
menntun. Einnig komu til
Afríku menn sem höfðu
meiri áhuga á auðæfum
álfunnar, svo sem gulli og
demöntum, en sálum íbú-
anna. Þeirra á meðal var
Cecil Rhodes.
Þýðandi og þulur þátt-
anna er Þorsteinn Helga-
son.
f kvöld flytur
útvarpið fyrsta
þátt fram-
haldsleikrits fyrir börn.
Leikritið nefnist „Anti-
lópusöngvarinn" og er eft-
ir norska rithöfundinn
Ingebricht Davik. í leik-
ritinu segir frá landnema-
fjölskyldunni Hunt, sem á
miðri síðustu öld er á leið-
inni þvert yfir Bandaríkin
til að finna sér nýjan
samastað. f fyrsta þætti
kynnast hlustendur
Hunt-hjónunum, börnum
þeirra tveimur og frænku.
Þau hafa slegið upp tjöld-
um í eyðimörkinni áður en
þau leggja á fjallagarðinn
mikla, sem skilur þau frá
Gósenlandinu. Eins og
aðrir landnemar óttast
þau mjög árásir indíána-
flokka, sem hafa aðsetur
sitt á þessum slóðum.
Leikstjóri „Antilópu-
söngvarans" er Þórhallur
Sigurðsson, en þýðinguna
gerði Sigurður Gunnars-
son. Með stærstu hlutverk
fara Steindór Hjörleifs-
Saga Afríku
„Antilópusöngvarinn
son, Kristbjörg Kjeld, Há-
kon Waage, Jónína H.
Jónsdóttir, Stefán Jóns-
son, Árni Benediktsson og
Þóra Guðrún Þórsdóttir.
Tæknimenn eru Friðrik
Stefánsson og Hörður
Jónsson.
NJOSNARINN REILLY
Sidney Reilly
Sam Neill
2f«.
í kvöld verður
sýndur 5. þátt-
ur breska
framhaldsmyndaflokksins
um njósnarann Sidney
Reilly. Hann var talinn af
mörgum, m.a. breskum
blöðum, mesti njósnari
sögunnar og hugrakkasti
maður þeirra tíma.
Reilly er sagður fæddur
í Odessa árið 1874. Sem
ungur maður komst hann
að því að hann var óskil-
getinn. Móðir hans hafði
staðið í leynilegu ástar-
sambandi við lækni nokk-
urn, Rosenblum, og var
hann ávöxtur þeirra
funda. Þetta olli honum
miklum vonbrigðum.
Hann lét líta svo út sem
hann hafði framið
sjálfsmorð og sigldi til
Suður-Ameríku. f Brasilíu
uppgötvuðu nokkrir
breskir leyniþjónustu-
menn tungumálahæfi-
leika Reillys og var það til
þess að hann fór að starfa
í leyniþjónustu Breta.
f síðasta þætti var
Reilly í París þar sem
hann deildi við fulltrúa
Frakka um rétt Breta til
olíuvinnslu í Persíu. Þar
hitti hann Önnu hálfsystu
sina.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDkGUR
6. nóvember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leiktimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregn-
ir.
Morgunorö: — Þorbjörg
Danielsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Breiðholtsstrákur ter i
sveit" eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharösdóttir
les (5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
tregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr).
10.45 „Ljáðu mér eyra“
Málmfrlöur Sigurðardóttir á
Jaöri sér um þáttinn
(RÚVAK).
11.15 Hljóðdósin
Létt lög leikin af hljómplöt-
um. Umsjón: Ólafur Þórðar-
son.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.20 Barnagaman
Umsjón: Gunnvör Braga.
13J0 Gösta „Snoddas"
Nordgren, Vestmenn frá
Færeyjum, Les Paul, Mary
Ford og fl. leika og syngja.
14.00 „A Islandsmiðum" eftir
Pierre Loti
Séra Páll Pálsson á Berg-
þórshvoli les þýöingu Páls
Sveinssonar (9).
14J0 Miðdegistónleikar
„Moldau", sinfónlskt Ijóö eft-
ir Bedrich Smetana. Fllharm-
ónlusveit Berllnar leikur;
Herbert von Karajan stj.
1445 Upptaktur
— Guðmundur Benedikts-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurtregnir.
16.20 Islensk tónlist
a. Þrfþætt hljómkviöa op. 1
eftir Jón Leifs. Sinfónlu-
hljómsveit íslands leikur;
Bohdan Wodiczko stj.
b. Lög eftir Pétur Sigurðsson
frá Sauðárkróki. Svala Niel-
sen og Friðbjörn G. Jónsson
syngja. Guörún Kristinsdóttir
leikur á planó.
19.25 Mika.
Ellefti þáttur. Sænskur fram-
haldsmyndaflokkur I tólf
páttum um samadrenginn
Mlka og ferö hans með
hreindýrið Osslan til Parfsar.
Þýöandi: Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
Þulur Helga Edwald.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20J0 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Saga Afrlku 5. Bibllan og
c. Lög ettir Eyþór Stefáns-
son og Sigurö Agústsson.
Ólafur Þ. Jónsson og Guö-
mundur Jónsson syngja.
d. Sónata fyrir fiölu og planó
eftir Hallgrlm Helgason.
Howard Leyton-Brown og
höfundur leika.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veöurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson sér um þáttinn.
20.00 Barna- og unglingaleikrit:
„Antllópusöngvarinn" eftir
Ruth Underhill
1. þáttur: Hver var N jmml?
Þýðandi: Sigurður Gunn-
arsson.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurös-
son. Persónur og leikendur:
Kristbjörg Kjeld, Steindór
ÞRIÐJUDIkGUR
6. rtóvember
byssan. Breskur heimilda-
myndaflokkur I átta þáttum. I
þessum þætti fjallar Basil
Davidson um þrælaverslun-
ina, landkönnun og kristni-
boð Evrópubúa.
Þýðandi og þulur: Þorsteinn
Helgason.
2145 Njósnarinn Reilly.
5. Baráttan um bryndrek-
ana.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I tólf þáttum. Aöal-
Hjörleifsson, Jónlna H.
Jónsdóttir, Hákon Waage,
Anna Einarsdóttir, Þórhallur
Sigurösson, Stefán Jónsson,
Þóra G. Þórsdóttir og Arni
Benediktsson.
20.30 Horn unga fólksins
I umsjá Þórunnar Hjartar-
dóttur.
2040 Kvöldvaka
a. Spjall um þjóðfræöi
Dr. Jón Hnefill Aöalsteinsson
tekur saman og flytur ásamt
Guörúnu Bjartmarsdóttur.
b. Ur Ijóöahandraðanum
Rannveig Löve velur og les.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.10 Planóleikur
Robert Szidon leikur Sónötur
i gls-moll og es-moll eftir Al-
exander Skrjabin.
21.30 Utvarpssagan: „Hel“ eft-
ir Sigurö Nordal
Arni Blandon byrjar lesturinn
hlutverk Sam Neill. I slðasta
þætti bitust Rothschild bar-
ón fyrir hönd Frakka og
Reilly fyrir Breta um rétt til
olluvinnslu I Persiu og höfðu
Bretar betur.
I Parls hitti Reilly Önnu, hálf-
systur slna.
Þýöandi: Kristmann Eiðsson.
22.35 Þingsjá. Umsjón: Páll
Magnússon.
23.25 Fréttir I dagskrárlok.
(1). Páll Valsson flytur for-
málsorð.
22.00 Tónlist
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldtónleikar
Anton Rubinstein og Henryk
Wieniawski, ferill þeirra I tón-
um og tali. Kynnir: Knútur R.
Magnússon.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS 2
ÞRIÐJUDKGUR
6. nóvember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Múslk og meðlæti
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Asgeir Tómasson.
14.00—15.00 Vagg og velta
Létt lög at hljómplötum.
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Með sinu lagi
Lög leikin af fslenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Komið viö vltt og breitt I
heimi þjóðlagatónlistarinnar
Stjórnandi: Kristján
Sigurjónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eövarö Ingólfs-
son.
SJÓNVARP