Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
7
„Gott mannlíf er
undirstaða alls“
— segir Einar Guðfinnsson, Bolungarvík, en 60 ár eru nú liðin
frá því hann stofnaði fyrirtæki sitt, Einar Guðfinnsson hf.
ÞAKKLÆTI til samferðamannanna,
hlýhugur og ánægja í garð afkom-
cndanna og síðast en ekki sízt bjart-
sýni á nútíð og framtíð Bolungar-
víkur, auk lands og þjóðar, er ríkj-
andi í huga hins aldna athafna-
manns, Einars Guðfinnssonar í Bol-
ungarvík, á merkum tímamótum í
lífi hans. Sextíu ár eru liðin frá þvl
hann stofnaði fyrirtæki sitt, Einar
Guðfinnsson h/f, og ræddi blaða-
maður Mbl. við hann í því tilefni á
hcimili hans í Bolungarvík á afmæl-
isdeginum sl. fimmtudag, 1. nóv-
ember.
Einar er 86 ára og þrír synir
hans, Guðfinnur, Jónatan og Guð-
mundur Páll, hafa mörg undan-
farin ár annazt daglegan rekstur
hins umfangsmikla fyrirtækis, en
Einar fylgist daglega með, þó
heilsunni sé farið að hraka. Að-
spurður sagði Einar, að sér liði vel
að undanskilinni sjóndeprunni.
„Ég sé ekki framan í ykkur," sagði
hann, snéri sér við og leit út um
stofugluggann, „en útlínur fjalls-
ins hinum megin við víkina sé ég.“
Einar bætti því við, að sjóndepran
skerpti hugann, þvi hennar vegna
yrði hann að muna símanúmer
barnanna, númerið á vigtinni o.fl.
Reisn er enn yfir allri framkomu
Einars, þrátt fyrir háan aldur,
viðmótið alúðlegt og stutt er i
kímnina í glettnum tilsvörum.
Þrátt fyrir að hann hefði sjálfur á
orði að hann væri farinn að kalka
stóð ekki á svörum og auðheyrt að
atburðir líðandi stundar fara ekki
fram hjá honum.
Saga Einars og þar með Bolung-
arvíkur er ævintýri líkust. Hefur
henni ítrekað verið gerð skil, bæði
hér á síðum Mbl., t.d. itarlega í
tilefni af fimmtíu ára afmæli
fyrirtækisins 1. nóvember 1974, og
með ævisögu hans, sem kom út ár-
ið 1978. Verður sögu hans því ekki
gerð skil hér, en okkur lék hins
vegar hugur á að kynnast hug og
skoðunum þessa reynsluríka
manns á ævikvöldinu.
Staða þjóðmála kom fyrst til
umræðu og viðurkennist að spurn-
ingar voru ekki lausar við svart-
sýnistóntegund. Einar minnti á að
verkföll og verkalýðsbarátta hefðu
ætíð verið hluti af atvinnurekstri.
Varðandi nýyfirstaðin verkföll og
kjarabaráttu sagði hann: „Ég hef
alltaf verið bjartsýnismaður. Ég
trúi því að þetta leysist, en hvaða
afleiðingar það hefur er önnur
saga. Þá kemur að því að leysa úr
því, en þetta er allt ákaflega líkt
og fyrrum."
Sú saga er sögð af Einari, að eitt
sinn er útgerð og fiskvinnsla var
sögð á heljarþröm var hringt í
hann af einu dagblaðanna, auk
annarra útgerðarmanna landsins.
óskað var yfirlýsinga um hið ægi-
lega ástand. Einar er sagður hafa
svarað fáu til og er hann var í
„Ég hef alltaf verið bjartsýnismaö-
ur,“ segir hin aldna kempa, Einar
Guðfinnsson, og er þar áreiðanlega
ekki ofmælt, eins og fram kemur í
viðtalinu.
lokin spurður, hvort gjaldþrot
blasti ekki við honum eins og hin-
um mun hann hafa svarað: „Éf við
förum á hausinn, þá gerum við það
steinþegjandi og hljóðalaust."
Uppgjöf er enn fjarri Einari, —
það mátti greina í öllum svörum
hans, eins og þeim hér að framan.
Einar hefur í gegnum tíðina
verið einn sterkasti máttarstólpi
einkaframtaksins og dyggur
stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins. Hann rifjaði upp með
auðheyranlegri ánægju störf á ár-
um áður í þágu flokks í héraði og
sýslu, enda Bolungarvik sögð eitt
órjúfanlegasta virki sjálfstæðis-
stefnunnar á landinu. Hann var i
umræðunni um flokkinn spurður,
hvort rétt væri, sem margir af
hans kynslóð héldu fram, að flokk-
urinn væri i dag aðeins svipur hjá
sjón miðað við leiðtogatíð ólafs
Thors og Bjarna Benediktssonar.
„Nei, ég hef trú á flokknum og
forustu hans i dag, og ég veit að
þeir munu standa sig,“ sagði hann.
Við spjölluðum nokkuð um sögu
Einars og aðkomuna i Bolungar-
vík fyrir 60 árum, en þá voru þar
aðeins fáein hús á fjörukambi. 1
dag er Bolungarvik eitt myndar-
legasta pláss á Vestfjörðum og þó
víðar væri leitað og má sjá merki
Einars á velflestu, sem til heilla
hefur horft. En hver er galdurinn
eða uppskriftin að slíkri vel-
gengni? Gefum Einari orðið: „Gott
fjölskyldulíf. Ég tel það mína
mestu gæfu í lifinu að hafa átt
góða konu, Elísabetu Hjaltadóttur
(hún lézt í nóvember árið 1981,
innskot Mbl.), og góð börn,
tengdabörn og barnabörn. Ég tel
þau mína mestu gæfu og þau eru
styrkjandi í ellinni.“ Einar og
Elísabet eignuðust átta börn og
eru niðjar þeirra orðnir samtals
74 í dag, en það sjötugasta og
fjórða, bamabarnabarn, fæddist
þennan sama dag sem viðtalið var
tekið, afmælisdaginn 1. nóvember
sl. Einar vildi sjálfur nota hærri
tölu. „Ég vil telja tengdabörnin
með. Eg hef alltaf litið á þau sem
börnin mín,“ sagði hann, þegar
spyrill benti á staðreyndir ætt-
fræðinnar.
Í Bolungarvík búa um 1.300
manns. Af þeim vinna hátt á
fjórða hundrað hjá fyrirtæki Ein-
ars Guðfinnssonar. Einar er heið-
ursborgari Bolungarvfkur og eftir-
tektarverð er sú virðing í garð
gamla mannsins, sem fram kemur
í viðtölum við starfsmenn fyrir-
tækisins. Var Einar m.a. hylltur
með langvarandi lófataki, er hann
yfirgaf veizlu, sem fyrirtækið
efndi til að kvöldi afmælisdagsins
í félagsheimilinu í Bolungarvík.
Verkstjórar fyrirtækisins heim-
sækja hann daglega á heimili
hans, gefa honum yfirlit yfir afla-
brögð og nýjustu tíðindi í atvinnu-
lifinu. Einari er tíðrætt um sam-
starfsfólkið og segir m.a., að eitt
af því sem hann þakki hinni góðu
Frá Bolungarvík.
samvinnu sé, að hann hafi ætíð
stuðlað að því að eiga atvinnutæk-
in í félagi við starfsmennina, allt
frá bátunum — með formönnun-
um — upp í íshúsfélagið. — „Þá
hef ég aldrei ráðið fólk vegna
stjórnmáIaskoðana,“ bætti hann
við og rifjaði upp nöfn góðra
starfsmanna sinna, sem öndverðir
voru í pólitík, og með fylgdu
nokkrar góðar sögur. „Gott mann-
líf er undirstaða alls,“ sagði hann
til ítrekunar í lok viðtalsins.
Einar ólst upp í stórum systk-
inahópi við lítií efni. „Mín mennt-
un er 12 mánuðir í barnaskóla hjá
farkennara. Hann bauðst til að
koma mér i gagnfræðaskóla á Ak-
ureyri, en ég varð að svara honum
á þá leið, að ég yrði að fara að
vinna.“ — Hefði skólaganga
breytt einhverju um feril Einars?
„Ég mundi endurtaka þetta allt, ef
ég væri að byrja upp á nýtt,“ svar-
aði hin aldna kempa — og við-
stödd dóttir hans, Halldóra, skaut
inn í: „Og ég er ekki viss um að
löng skólaganga hefði gert þig far-
sælli, pabbi minn.“
Fyrirtæki Einars Guðfinnsson-
ar, sem er eitt hið stærsta á land-
inu, var gert að hlutafélagi fyrir
tuttugu árum og þá skráð eign
Einars, Elísabetar, eiginkonu
hans, og þriggja sona, þeirra Guð-
finns, Jónatans og Guðmundar
Páls. Auk þess að annast eigin
starfsemi annast fyrirtækið rekst-
ur tshúsfélags Bolungarvíkur h/f,
Baldurs h/f og Völusteins h/f.
Sextíu ára afmælisins var minnzt
i Bolungarvík með þeim mynd-
arskap, sem einkennir allan af-
rakstur ævistarfs hins aldna
brautryðjanda. Verður hátíða-
höldunum gerð skil í Mbl. síðar.
FP
Fiskeldi í
Kleifarvatni?
PÓLARLAX hf., sem rekur fisk-
eldLv og hafbeitarstöð í Straums-
vík, hefur sótt um leyfi til Bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar til að setja
pramma með 10 til 12 nótum í
Kleifarvatn til geymslu á seiðum.
Stjórnendur fyrirtækisins hafa hug
á að gera síðar tilraunir með fisk-
eldi í vatninu.
Bæjarstjórnin hefur ekki
svarað erindi Pólarlax. Pólarlax-
menn hugsa sér að geyma full-
vaxin seiði i nótum i vatninu til
að þurfa ekki að geyma þau i
húsi sínu í Straumsvik. Þá hefur
Pólarlax einnig sótt um leyfi til
að auka við starfsemi sína i
Straumsvikurhöfn en laxeldis-
tilraunir sem fyrirtækið hefur
verið með þar hafa gengið vel.
| E RA kæliskápar
TILB0D!
HLJOMBÆR
- -w
HUOM • HEIMILIS* SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGOTU 103
SiMI 25999
J