Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 16
til frönsku eða austurrísku Alpanna
Efskíðafiðringurinn er farinn að kitla þig getur Úrval veittþér tímabundna lausn, en því miður
er engin von um endanlega lækningu - allra slst eftir dvöl í frönsku eða austurrísku ölpunum.
COURCHEVEL
Sérhannaður skíðastaður í Frakklandi, og einn stærsti og besti skíðastaður í heimi. Courchevel er
svo ásetinn að við getum ekki boðið nema tvær ferðir, 15. og 29. mars (páskaferð). En við
ábyrgjumst að tvær vikur á þessum draumastað verða hápunktur skíðaiðkana ársins enda er
Courchevel í 1850 m hæð.
Verð 15. mars kr. 36.100,- Verð 29. mars kr. 37.900.-
Innifalið: Flug til Genfar, rútuferðir, gisting í tvíbýli á Hotel Crystal2000, íslensk fararstjórn,
snjór, stórkostlegt útsýni og hálft fæði.
BADGASTEIN
Óskastaður skíðaunnenda á besta vetraríþróttasvæði austurrísku Alpanna.
Óþrjótandi skíðabrekkur, stórkostleg þjónusta, fjölbreytt skemmtiaðstaða
og margbrotið umhverfi, sem á eftir að heilla þig upp úr skíðaskónum.
Badgastein er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna - það er bara
verst að þú hefur ekki nema tvær vikur til umráða.
Brottfarir: 26/I, 9/2, 23/2 og 9/3.
Verð og gististaðir:
Leimböck m/morgunverði frá kr. 21.360.- Gletschermiihle
m/morgunverði frá kr. 21.360.- Krone m/hálfu fæði frá
kr. 23.975.- Griiner Baum m/hálfu fæði frá kr. 31.475.-
Wildbad m/hálfu fæði (sérpantað) frá kr. 32.190.-
Innifalið: Flug, rútuferðir, gisting í tvíbýli með baði,
snjór, stórbrotio umhverfi og íslensk fararstjórn.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Fyrsta fjölbýlishús-
ið risið í Vogum
Vrun.m ..L'-----^
Vognm, 29. október.
ÞAÐ VAR flaggad að góðum íslensk-
um sið á nýbyggingu í Vogagerði 1,
lostudaginn 19. september sl. Þann
dag var lokið við að reisa þakið i
fyrsta fjölbýlishúsinu sem byggt hef-
ur verið í Vogum.
Húsið er tvær hæðir, og í því eru
fimm íbúðir. Á efri hæðinni eru
þrjár íbúðir, þar af tvær þriggja
herbergja, og ein tveggja her-
bergja. Á neðri hæðinni eru tvær
þriggja herbergja íbúðir.
Byggingaraðili er fyrirtækið
Lyngholt g.r. Allar íbúðirnar eru
seldar.
E.G.
Víkingur AK kemur til Akraness drekkhlaðinn, með 1350 tonn af loðnu.
Moryunblaöið/ J6n Gunnlaugsson.
Innilegar þakkir fyrir auösýndan hlýhug og velvild
okkur til handa á gvJibrúökaupsdegi okkar 29. septem-
ber si sem veröur okkur ógleymanlegur.
Lifið heil, kær kveðja.
Marta Eiríksdóttir og Ólafur Ingibersson.
Miðtúni 1, Keflarík.
Akranes:
Mikil atvinna í fiskvinnslu
Akranesi 2. nóvember.
MIKIL atvinna hefur verið í fisk-
vinnslufyrirtækjum á Akranesi að
Hressingarleikfimi
kvenna og karla
Kennsla hefst fimmtudaginn 8. nóv. nk.
• Kennslustaðir: Leikfimissalur Laugarnesskólans
íþróttahúss Seltjarnarness.
• Eingöngu Framhaldsflokkar starfræktir fyrir jól.
• Fjölbreyttar æfingar — músik — dansspuni
— þrekæfingar — slðkun.
Innritun í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
og
undanförnu, en fyrst í haust leit illa
út í atvinnumálum fiskvinnslufólks.
Togararnir fjórir hafa aflað vel og
eins er mikil vinna við sfldarsöltun
og loðnubræðslu.
Tveir togarar lönduðu í gær,
Haraldur Böðvarsson 150 tonnum
og Skipaskagi 60 tonnum, og fyrr í
vikunni landaði óskar Magnússon
60 tonnum.
Búið er að salta í röskar 5160
tunnur af síld á þessari vertíð. Að-
eins ein söltunarstöð er á Akra-
nesi, H.B. & Co hf. Tveir bafar
stunda síldveiðar frá Akranesi,
Skírnir og Sigurborg, og hafa þeir
hvor um sig tvo aflakvóta. Hafa
veiðar þeirra gengið mjög vel.
Skírnir landar í dag 180 tonnum
og Sigurborg landaði í gær 120
tonnum.
Fjórir loðnubátar eru gerðir út
frá Akranesi, Rauðsey, Höfrung-
ur, Víkingur og Bjarni Ólafsson.
Veiðar þeirra hafa gengið vel og i
dag landar Bjarni Ólafsson 1100
tonnum og Víkingur bíður með
1350 tonn. Alls hefur Síldar- og
Fiskimjölsverksmiðjan á Akra-
nesi tekið á móti 8000 tonnum þeg-
ar búið er að landa úr fyrrnefnd-
um skipum.
Mikil smábátaútgerð er frá
Akranesi og hefur afli þeirra verið
mjög góður þegar gefið hefur. Afl-
inn er aðallega ýsa og eru flestir
bátarnir á veiðum hér skammt
undan kaupstaðnum. jq
Leiðrétting
í GREIN um ferðaþjónustubænd-
ur varð sú ritvilla að sagt var að
það kostaði 4.000 krónur að leigja
sumarbústaðinn að Hraunum i
Fljótum á sólarhring, það rétta er
að það kostar 4.000 krónur að
leigja bústaðinn i heila viku.
Smelltu þér f skíðaskóna og hafðu samband.
Síminn er 26900.