Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
\JOTOS PARA PRESIDENrt V VICÍ PRfSIDiNTI
/OTOS PAB
mmm
vsum-*
Eþíópía:
Flýtt verði fyrir
matvæladreifíngu
Atkvæðin talin í Managua.
iyad AP.
Sandinistar fagna sigri
Bretland:
En stjórnarandstaðan sat heima
Nir»ragua, 5. nóvember. AP.
JAFNVEL áður en kjörstöðum í Nic-
aragua var lokað efndu stuðnings-
menn sandinista-stjórnarinnar til
mikillar hátíðar í höfuðborginni þar
sem þeir fögnuðu sigri i kosningun-
um með flugeldum og öðru „fírverk-
eríi“. Einn leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar sagði um kosningarnar, að þær
væru „skrípaleikur".
Fyrstu tölur, sem yfirkjörstjórn
lét frá sér fara, bentu til að sandin-
istar myndu vinna með miklum yf-
irburðum og hafði Daniel Ortega,
leiðtogi herstjórnarinnar, sam-
kvæmt þeim fengið um 68,1% at-
kvæða. Ekkert var hins vegar sagt
um hvernig atkvæði hefðu skipst
milli hinna smáflokkanna fimm,
sem buðu fram. Helstu stjórnar-
andstöðuflokkarnir tóku ekki þátt í
kosningunum vegna ofsókna, sem
margir frambóðendur þeirra urðu
fyrir og vegna margskonar tak-
markana á tjáningarfrelsi í land-
inu.
Blaðið Barricada, sem styður
sandinista, sagði í dag að kosn-
ingarnar hefðu verið „ein þjóðhátíð
um landið allt“ og stjórnarblaðið
Nuevo Diario sagði „Fólkið vann“ í
sérstakri aukaútgáfu í dag. End-
anlegar niðurstöður úr kosningum
verða þó ekki kunnar fyrr en á
fimmtudag. í Nicaragua eru allir
kosningabærir menn skyldir til aö
skrá sig en ekki til að kjósa.
Enginn efast um, að sandinistar
muni sigra í kosningunum, en
vegna fjarvistar stjórnarandstöð-
unnar er ekki víst, að þeim takist
að afla sér þess trausts, sem þeir
stefndu að.
„Það var aðeins tvennt, sem
sandinistar vildu með kosningun-
um. Að fá löglegan stimpil á bylt-
inguna og koma alþjóðlegum stofn-
unum og öðrum þjóðum til að
hætta að fylgjast með þróun mála í
landinu," sagði vestrænn sendi-
maður í Managua. „Svo virðist þó
sem þeir hafi hvorugu takmarkinu
náð og ég held, að þeir átti sig á
því.“
Washington, 5. nóvember. AP.
STJÓRNVÖLD í Eþíópíu hafa heit-
ið því að flýta sem mest fyrir því, að
matvælasendingar frá vestrænum
þjóðum berist sem fyrst til svelt-
andi íbúa landsins. Tilefnið er fyrst
og fremst þær áhyggjur, sem
bandaríska stjórnin hefur látið í
Ijós um, að matvæla- og lyfjasend-
ingar til þeirra 6 millj. íbúa lands-
ins, sem berjast við hungurvofuna,
berist of seint.
Eftir tveggja daga viðræður við
fulltrúa þeirra hjálparstofnana,
sem skipuleggja matvæladreif-
inguna, hafa stjórnvöld í Eþíópíu
nú lofað að leggja fram miklu
fleiri vörubifreiðir en þær 300,
sem áður höfðu verið útvegaðar i
þessu skyni. Hefur þessi bílakost-
ur reynst allt of naumur og er
talið að hann þurfi að vera helm-
ingi meiri. Þá hefur uppskipun á
matvælasendingum frá Vestur-
löndum þótt ganga allt of hægt í
höfnum Eþíópu og því verið ha-
ldið fram að aðrar vörur, eins og
sement, hafi verið látnar hafa
forgang um uppskipun. Hafa
stjórnvöld heitið því að ráða bót á
þessu, þannig að matvælum verði
skipað upp fyrst.
Jafnframt hafa stjórnvöld lof-
að því að dreifa matvælum og
öðrum nauðsynjum til allra hluta
landsins. Ásakanir hafa komið
fram um að fólk í Eritreu og á
Tigran-svæðinu hafi verið skilið
út undan, sökum þess að á þess-
um svæðum hafi aðskilnaðar-
sinnar haldið uppi baráttu gegn
stjórnvöldum árum saman.
ERLENT
Eru námamenn búnir að
fá nóg af löngu verkfalli?
Lundúnum, 5. nóvember. AP.
ÞAÐ TALDIST til tíðinda í Bret
landi í dag, að alls 710 kolanámu-
verkamenn héldu til vinnu sinnar á
ný, en það voru 18 verkamenn í
Suður-Wales, þar sem verkfalls-
menn hafa til þessa átt sitt sterkasta
vígi, sem tóku af skarið. Þeir fengu
lögreglufylgd til vinnu sinnar og
kom til smávægilegra ryskinga er
verkfallsverðir reyndu að skipta sér
af.
Talsmaður bresku kolanámu-
samtakanna sagði að allt að 53.000
hinna 178.000 námuverkamanna
landsins ynnu i trássi við verkfall-
ið og því benti brotthvarf manna
til vinnu í Suður-Wales til þess að
Margar skýringar á
Moskvuför Svetlönu
Til fundar við son sinn eða vegna fyrir-
hugaðrar endurreisnar Stalíns, fóður hennar?
London, 5. nóvember. AP.
Svetlanda Alliluyeva Peters,
dóttir Jósefs Stalíns, sem sneri aft-
ur til Sovétríkjanna eftir 17 ár á
Vesturlöndum, reifst heiftarlega
við 13 ára gamla dóttur sína, Olgu,
nóttina áður en - þær mæðgurnar
fóru. Er það haft eftir einum ná-
granna þeirra.
Peter Mansfield, sem býr í
íbúðinni fyrir ofan mæðgurnar í
háskólabænum Cambridge,
heyrði um nóttina hávært rifr-
ildi milli þeirra en gat þó ekki
alltaf greint orðaskil. Hann
heyrði þó Olgu hrópa: „Hvers
vegna sagðirðu mér ekki frá því?
Hvers vegna hefurðu ekkert tal-
að um það við mig?“ og telur það
gefa til kynna, að móðir hennar
hafi þá í fyrsta sinn verið að
segja henni, að hún ætlaði aftur
til Sovétríkjanna. „Það hlýtur að
hafá verið erfitt fyrir 13 ára
gamlan ungling," sagði Mans-
field.
Donald Denman, prófessor við
Cambridge-háskóla og nánasti
vinur Svetlönu, sem hann hefur
lýst sem „140% Bandaríkja-
manni“, sagði um frásögn Mans-
fields, að hún væri heldur
óhugguleg og engu líkara en hún,
Olga, hefði verið neydd til að
fara. Hann benti á, að hún væri
bandarískur ríkisborgari og gæti
því sjálf ráðið því hvar hún
dveldist hvað sem móður hennar
liði.
Breska blaðið The Sunday
Times sagði frá því um helgina,
að Svetlana hefði skrifað vini
sínum bréf og kvartað undan því
við hann, að starfsmenn banda-
rísku leyniþjónustunnar færu
með hana eins og hún væri
þeirra „einkaeign“ og „kjöltu-
rakki". Blaðið Observer hefur
það eftir enskum vini Svetlönu,
að það hafi helst vakað fyrir
henni með því að snúa aftur til
Sovétríkjanna að finna son sinn,
Jósef, sem hún skildi eftir fyrir
austan þegar hún flúði. Hann
hafði verið alvarlega veikur en
er nú aftur kominn til heilsu.
Tass-fréttastofan sovéska
sagði frá því sl. föstudag, að
Svetlana væri komin til Moskvu
og að borgararéttindi hennar,
sem hún var svipt árið 1969,
hefðu verið endurvakin. Auk
þess hefði æðsta ráðið ákveðið,
að Olga, dóttir hennar, væri full-
gildur, sovéskur þegn.
John Woods, skólastjóri skól-
ans, sem Olga sótti í Cambridge,
segir um hana, að hún hafi verið
„hamingjusamur og eðlilegur
unglingur", vel gefin, vinsæl og
góður sellóleikari. Olga stundaði
nám í frönsku og þýsku en talaði
enga rússnesku. Faðir hennar,
William Wesley Peters, mikils
metinn arkitekt við Frank Lloyd
Wright-stofnunina, var þriðji
eiginmaður Svetlönu. Þau skildu
árið 1973 eftir þriggja ára hjóna-
band, en hún hélt áfram að nota
nafn hans.
I breskum blöðum hafa verið
miklar vangaveltur um hvers
vegna Svetlana hafi kosið að
snúa aftur til Sovétríkjanna.
Daily Mail segir t.d. að það hafi
að sumu leyti ekki komið á óvart,
að hún hyrfi aftur. „Sumir sov-
ésku útlagarnir, sem tilheyrðu
mjög þröngum og útvöldum hópi
í landi sínu, komast seinna að
því, að þeir geta ekki lifað utan
þessa samvalda hóps.“
Svetlana Stalín
Guardian er með aðra kenn-
ingu og styðst í því efni við frétt-
ir frá Moskvu. „Þegar Svetlana
snýr altur til Sovétríkjanna á
sér stað þar mikil endurskoðun á
sögu síðustu áratuga," segir
blaðið. „í undirbúningi er meiri
áróðursherferð en dæmi eru um
áður og ástæðan er sú, að i maí á
næsta ári verða 40 ár liðin frá
ósigri Hitlers. Hápunktur
hátiðahaldanna verður endur-
reisn Stalíns sem hins mikla
hershöfðingja styrjaldarinnar
og leiðtoga Sovétmanna."
þolinmæði verkfallsmanna kunni
að vera að bresta, enda hefur
verkfallið staðið í 8 mánuði og tíu
tilraunir til að ná sáttum í deil-
unni hafa farið út um þúfur.
„Þessir menn sjá ekki fram á ann-
að en dimman og kaldan vetur,“
sagði hinn ónafngreindi talsmað-
ur. Vitað er að það freistar
margra kolanámumanna tilboð
fyrrgreindra samtaka, að veita
hverjum þeim er snýr aftur til
vinnu veglegan Jólabónus“.
Til tíðinda dró í breska sjón-
varpsþættinum „Good Morning
Britain", þar sem hinn kunni sjón-
varpsmaður David Frost ræddi við
Arthur Scargill, hinn baráttu-
glaða leiðtoga kolanámumanna.
Er Frost spurði Scargill um fjár-
stuðning Líbýumanna við verk-
fallsmenn hljóp stífni í samtalið,
Frost sakaði Scargill um að fara í
kring um hlutina og svara loðið,
Scargill sagði Frost ekki kunna
sitt fag. Vakti þátturinn mikla at-
hygli.
Túnis:
Bourguiba for-
seti á spítala
Túnisborg, Túnis, 5. nóvember. AP.
Í DAG var Bourguiba forseti lagður
inn á sjúkrahús og settur í hjarta-
gæslutæki, að sögn hinnar opinberu
fréttastofu í Túnis.
Bourguiba er 81 árs að aldri og
hefur verið forseti landsins frá því
að það hlaut sjálfstæði. Ekki var
nánar getið um jíðan forsetans,
aðeins sagt að hann hefði verið
lagður inn til að tryggja að hann
hlyti bestu hugsanlega umönnun.
t opinberri fréttatilkynningu
seinna í dag sagði að Bourguiba
hefði verið fyrirskipað að fara vel
með sig í nokkra daga „vegna lít-
ilsháttar lasleika og ofþreytu".
Gjalddagi eignatrygginga
l.okt
Takiö ekkiáhættu
-geriðskilsemfyrst.
var
HACTRYCGING HF
Suóurlandsbraut 10,105 Reykjavik, simi 85588.