Morgunblaðið - 06.11.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
23
Frí bálfor Indira Gandhi, sem fram fór í laugardag. Til hliðar ?ið bálköstinn stendur fjölskylda hinnar látnu. Maðurinn með hvítu húfuna er Rajiv Gandhi,
sonur frú Gandhi, sem tekið hefur við af móður sinni sem forsætisráðherra Indlands.
Morðið á frú Gandhi þáttur
í umfangsmiklu samsæri?
Nýju Delhí, 5. nóvember. AP.
RAJIV Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, fór í morgun að kulnuðum
bálkesti móður sinnar, Indiru
Gandhi. Eftir að hafa stökkt heilögu
vatni úr Ganges-fljóti á öskuna af
jarðneskum leifum hennar safnaði
hann saman öskunni og tók hring
móður sinnar. Fór þetta fram við há-
tíðlega athöfn að indverskum sið.
Einn maður beið bana í óeirðum
í Nýju Delhí í dag. Meiri kyrrð er
samt að komast á i landinu eftir
morðið á frú Gandhi, en í óeirðun-
um undanfarna fjóra daga er talið,
að yfir eitt þúsund manns hafi beð-
ið bana, flestir síkhar.
Við sérstaka athöfn í dag var
ösku Indiru Gandhi komið fyrir I
þar til gerðum öskjum, sem síðan
verða sendar til allra 22 fylkja
Indlands, þar sem efnt verður til
minningarathafnar um hinn látna
leiðtoga. Öskunni verður síðan
safnað saman aftur og hinn 11.
nóvember nk. verður henni dreift
yfir Himalajafjöll, sem frú Gandhi
unni mjög.
Orðrómur um, að morðið á Ind-
iru Gandhi forsætisráðherra hefði
verið þáttur í umfangsmiklu sam-
særi innan indverska hersins, fékk
byr undir báða vængi á sunnudag,
en þá staðhæfðu ýmis blöð á Ind-
landi, að valdarán hefði staðið fyrir
dyrum.
Blaðið Hindustan Times, eitt út-
breiddasta blað Indlands, sem gefið
er út á ensku, hélt því fram í gær
að Satwant Singh, annar þeirra
tveggja síkha, sem sakaðir hafa
verið um morðið á frú Gandhi,
hefði gefið upplýsingar um víðtækt
samsæri er hann var yfirheyrður
af starfsmönnum indversku leyni-
þjónustunnar. Þá hefði kona hans
verið handtekin í Punjab-fylki, þar
sem síkhar eru áhrifamestir og er
henni gefið að sök að hafa átt
hlutdeild í samsærinu.
„Einhver hershöfðingi úr hern-
um var aðalmaðurinn að baki
morðsamsærinu," sagði i Hindust-
an Times. Jafnframt var þó tekið
fram að kona Singhs hefði ekki get-
að tilgreint þann, sem skipulagði
samsærið, frekar en maður hennar.
Blaöið „Indian Express", sem er
stærsta óháða dagblað Indlands,
hélt því fram í gær, að síkhar bú-
settir erlendis hefðu átt þátt i
morðsamsærinu í siðustu viku.
Sagði blaðið að maður, sem gengi
undir nafninu „Giani" væri talinn
einn af helstu samsærismönnun-
um, en hann hefði farið frá Ind-
landi fyrir 10 dögum. Framburður
Satwant Singhs, sem getið var hér
að framan, væri hins vegar um
margt villandi. Hann hefði í yfir-
heyrslum hvað eftir annað nafn-
greint menn sem þátttakendur í
samsærinu er væru látnir eða
hefðu aldrei verið til.
Singh er nú i sjúkrahúsi, en hann
hlaut þrjú skotsár er lífverðir frú
Gandhi reyndu að hindra hann í að
myrða hana. Hann er þó ekki sagð-
ur í neinni hættu.
Hindúar og síkhar taka höndum saman. Hindúar og síkhar fjölmenntu f
göngu um götur Nýju Delhí á sunnudag til þess að sýna einingu og eindrægni
sín á milli. Trúarleiðtogar úr báðum trúflokkunum stóðu að þessari göngu í
von um að binda með því enda á ofbeldisaðgerðirnar, sem orðið hafa um
gjörvallt Indland í kjölfar morðsins á frú Gandhi.
Ríkarður III
sýknaður
Loadoa, 5. nóvember. AP.
BRESKUR kviðdómur hefur hreinsað
Rfkarð þriðja af 500 ára gamalli
„ákæru“ um morð á frændum hans
tveimur, en frændurnir voru barnungir
er atburðir þessir urðu og stóðu þeir
frændur í vegi fyrir, að Ríkarður hlyti
konungstign.
„Kviðdóm" þennan kallaði bresk
sjónvarpsstöð, London Weekend
Television, saman og kvað hann upp
úrskurð sinn eftir fjögurra stunda
vitnaleiðslur í „réttarsal".
Dómari og lögfræðingar í „rétt-
arhöldunum yfir Ríkarði þriðja**
voru allir þekktir lögmenn og vitnin
sagnfræðingar og réttarfarsfræð-
ingar. Var sjónvarpaö frá atburðin-
um á rás fjögur á sunnudagskvöld.
Það hefur ævinlega verið
mönnum ráðgáta og deiluefni hvað
kom fyrif prinsana, Edward V, 12
ára gamlan og ókrýndan, og 10 ára
gamlan bróður hans, Ríkarö. Og í
þvi sambandi hefur sagan farið
ómjúkum höndum um frænda
þeirra, Ríkarð þriðja, en hann tók
völdin 1483, þritugur að aldri, og
ríkti í tvö ár. Hann féll svo fyrir
hermönnum Hinriks sjöunda, fyrsta
konungsins af Tudor-ættinni, í
orustunni um Bosworth, en í þeirri
orustu lyktaði Rósastríðunum
svonefndu.
Shakespeare, sem var þegn Eliza-
bethar fyrstu, skrifaði leikrit, þar
sem hann lýsir Rikarði þriðja sem
ágjörnum, skapillum og oft huglaus-
um kroppinbak.
Filippseyjar:
Ver og 26
aðrir ákærðir
Muila, FilipfMejjum, 5. nóvember. AP.
Ákænivald Filippseyja tilkynnti í
dag, að ákærur hefðu verið lagðar
fram á hendur Fabian Ver, fyrrum for-
seta herráðs landsins, og 25 öðrum.
Eru þeir sakaðir um að hafa myrt tvo
menn, Benigno Aquino, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, svo og raeintan
banamann hans.
Manuel Herrera, einn þriggja
saksóknara, sagði að mönnunum 26
hefði verið gert að skila málsvörn
sinni innan 10 daga. Munu saksókn-
ararnir taka ákvörðun um framhald
málsmeðferðar á grundvelli þess,
sem þar kemur fram, og með tilliti
til annarra gagna. Þeir geta einnig
vísað málinu frá.
‘f'ircstonc
______AUKIN______________________
______SIYFNA,____________________
_______BEIRI_____________________
HEMLUN
Firestone vetrarhjólbarðar veita öfluga spyrnu, örugga
hemlun og þeir hafa frábæra endingu.
Þú ert í fararbroddi með örugga og endingarmikla
Firestone hjólbarða.
____FIRESTONE — ÖRYGGI OG ENDING_
Útsölustaðir um land allt.
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2
KOPAVOGI
SIMI42600