Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 57

Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 31 Barátta og harka í frá- köstum styrkleiki íslenskra körfuknattleiksmanna — spjallað við Bill Kotterman fyrrum leikmann UMFN og eiginkonu hans á heimili þeirra í Ohio í Bandaríkjunum þannig aö þegar samningstíma lýkur getur viökomandi leikmaður alltaf „selt sig“ sjálfur. Liöiö kemur þá ekki nálægt sölunni og leik- maöurinn stingur aurunum í eigin vasa. „Þetta er eitt af því góöa viö aö leika hér í Frakklandi," sagöi Teitur. Síöastliöiö vor vildu nokkur fé- lagsliö fá Teit í sínar raöir, þ.á m. vestur-þýska liöiö Mannheim, franska liðið Bastia og öster, liöiö sem hann geröi garöinn frægan meö á sínum tíma í Sviþjóö. „öster geröi mér freistandi tilboö, ég heföi getaö gert tveggja til þriggja ára samning, og mér var boðin góö atvinna, en Cannes vildl ekki aö ég færi. Meiöslin settu einnig strik í reikninginn. Eins og ég sagöi áöur er meiddur knattspyrnumað- ur einskis viröi, ekkert félag fjár- festir í slíkum leikmanni." 15 bolta leikmadur! Er Teitur fór í víking til Svíþjóöar var þaö ekki algengt aö íslenskir leikmenn færu erlendis. „Ég held aö aöeins Ásgeir og Matthías Hall- grímsson hafi verið erlendis á þeim tíma, og ég man hve gáttaöir for- ráöamenn Jönköping voru er Ak- urnesingar fóru ekki fram á neina greiöslu fyrir mig. Þeir spuröu mig hvernig þeir gætu hugsanlega hjálpaö ÍA og eftir aö hafa íhugaö máliö mundi ég eftir því aö boltar voru rosalega dýrir heima, og bolta var alltaf bras aö fá. Jönköp- ing sendi þá 15 bolta til ÍA. Þetta varö frægt," sagöi Teitur og hló. Haföi greinilega gaman af aö rifja upp upphaf ferilsins á erlendri grund. Heiðursborgari Ein myndanna sem prýddu vegg stofunnar var „táknræn fyrir þetta," sagöi Teitur. Mynd af bolta. „Hana fékk ég aö gjöf frá Jön- köping-liöinu er ég fór frá Svíþjóö, eftir að hafa veriö hjá öster. Ég minnist þess aö er ég fór til Frakk- lands var haldinn kveöjuleikur fyrir mig; og þangaö komu allir þeir sem höföu veriö mér svo ógleym- anlega velviljaöir þar í landi. Ég vissi ekkert um aö þetta stæöi til. Þetta er mér allt saman mjög eftir- minnilegt," segir Teitur, einn heiö- ursborgara Vaxjö í Svíþjóö. „Já, viö vorum allir geröir aö heiöurs- borgurum, leikmennirnir, eftir þriðja Svíþjóðarmeistaratitilinn." Kvörtuöu sáran Hann var í fjögur og hálft hjá liöinu og þrír meistaratitlar unnust á meöan. Vissulega glæsilegur árangur, enda kvörtuöu Svíar oftlega sáran undan því aö Teitur væri ekki Svíi. Þaö var þegar broddinn vantaöi í sókn landsliös- ins þeirra. En sem betur fer var hann ekki Svíi, því viö Islendingar vildum nota hann í okkar landsliö. „Ég man nú alltaf eftir þvi, áöur en ég fór til Svíþjóöar, aö Ellert Schram, formaöur KSÍ, þakkaöi mér sérstaklega fyrir frammistöðu mína í landslíöinu fram aö því, þvi landsliösferillinn væri nú sjálfsagt aö enda kominn. 2. deildarleik- maöur í Svíþjóö yröi varla kallaöur í landsleikil En svo fór þó, og ég átti eftir aö leika talsvert af leikjum með liöinu eftir þettal" Margt annaö ræddum viö sem ekki þarf endilega aö setja á prent. Textinn gæti eflaust oröiö helmingi lengri, en einhversstaðar veröur aö setja punkt. Dísa kona Teits kom heim, og komst ég þá aö því að heimurinn er þrátt fyrir allt ekki svo stór. Hún er þá Akureyringur eins og óg. Og hún hélt svo sannarlega uppi heiöri akureyrskra matargeröarlista- manna, sjaldan hef ég farlö eins mettur úr nokkurri heimsókn. Þaö var ánægjulegt aö sitja meö fjöl- skyldunni aö snæöingi úti í sól- skininu. Bowling Qnin, Ohk>, f NptMnbw. í NOKKUR ár voru bandarískir leikmenn og þjálfarar mjög áberandi í íslenskum körfu- knattleik. í fyrstu voru aöeins örfá félög í Reykjavík sem fóru út í þaó fyrirtæki aö ráöa bandaríska leikmenn. Þegar síöan kom mikill uppgangur í körfuknattleiksíþróttina, fjölg- aöi sífellt þeim fólögum sem réöu tíl sín leikmenn og þjálfara frá Bandaríkjunum. Þau réöu þá ýmist í gegnum umboösmenn erlendis eöa gegnum persónu- leg sambönd sem þau höföu komíö sér upp. Fyrir u.þ.b. fjór- um árum má segja aö öll Úr- valsdeildar- og 1. deildar félög- in hafi haft bandaríska leik- menn á sínum snærum og höföu þá nokkur þeirra þá þeg- ar haft reynslu af mörgum slík- um á undangengnum árum. Svo kom þó aö vegna fjár- hagslegra erfiöleika margra höf- uöborgarfélaganna uröu félögin innan KKÍ aö hætta þessum inn- flutningi á bandarískum leik- mönnum og fyrir rúmu ári sam- þykkli ársþing KKf aö erlendum leikmönnum skyldi óheimilt aö leika i íslenskum körfuknattleik. En hvaö varö svo um þessa bandarísku leikmenn þegar þeir sneru heim? Þessarar spurningar hafa margir körfuknattleiksunn- endur spurt sín á milli nú undan- farin ár, enda eignuöust þessir strákar marga góöa vini heima á islandi. Undirritaöur komst i kynni viö allnokkra þessara leikmanna og nú fyrir stuttu átti ég því láni aö fagna aö hitta einn almestan heiöursmann þessara Bandaríkjamanna, Bill Kotter- man. Bill lék meö UMFN keppn- istímabiliö 1982—83 og var hann ákaflega prúöur leikmaöur, svo mjög aö umtalað var á íþrótta- síöum íslensku dagblaöanna helgi eftir helgi. Ég hitti hann á býli hans í aðal kornræktarhéraöi þeirra Banda- ríkjamanna, Ohio. Bill stundar þar korn- og baunarækt á 1500 ekrum lands í samvinnu viö fööur sinn. Og þótt nú sé kominn sept- embermánuöur í Ohiofylki er hit- inn rúmlega 30 gráöur á Celsíus og loftiö rakt og óþægilegt. Viö komum okkur því fyrir inni í loft- kældu húsi kappans á meöan grillkolin hituöu nægilega fyrir „barbecue“-steik sem hann og kona hans, Tami, voru aö undir- búa. Ég lagöi nokkrar spurningar fyrir hann á meöan: Hvernig komst þú í samband vió UMFN á íslandi? „Hilmar Hafsteinsson hafði haft samband viö þjálfarann hjá háskólaliöinu sem ég lék meö og spurst fyrir um mig. Ég haföi síö- an samband beint viö Hilmar og féilst á aö koma upp tíl islands nær strax. Ég haföi líka samband viö Brad Miley, sem haföi leikiö á islandi, eftir aö annar aöili haföi bent mér á hann. Brad bar landi og þjóö vel söguna, svo viö hjónin ákváöum aö slá til, þar sem uppskerutím- inn var búinn og viö höföum eng- in ákveöin áform þann veturinn. Svo undarlega vildi til aö aöeins skömmu seinna skorti Keflvík- inga leikmann og fengu þeir ein- mitt Brad Miley til sin. Fyrsta skiptiö sem ég hitti hann svo í eigin persónu var í upphitun fyrir leik UMFN og IBK í einum af fyrstu leikjunum mínum!" Hvaóa hugmyndir hafðir þú gert þér um íalenskan körfu- knattleik áóur en þú fórst til is- lands? „Brad haföi gefiö mér nokkrar upplýsingar um þaö. Hann sagöi gæöin í úrvalsdeildinni svipuö og hjá minni háskólaliöunum hér i Bandaríkjunum. Þetta yröi því góöur skóli fyrir mig." Hvernig fannst þér svo gæói körfuboltans á íslandi þegar þú byrjaóir aó spila? „Þiö islendingar spiliö nokkuö ólíkt því sem viö höfum gert í skólakeppnum fram aö þessu, þó leikurinn sé aö breytast núna hér í Bandaríkjunum. Þiö setjiö ekki eins mikiö upp af leikkerfum og viö gerum; leikurinn hjá ykkur er hraöari og mun meiri harka i fráköstum. En ég get sagt ykkur Islendingum þaö til hróss, aö þiö eruð mjög áhugasamir um aö læra af öörum og þaö bjargar miklu." Hver er þá helsti styrkleiki annars vegar og mesti veikleiki hins vegar í körfuboltanum á ís- landi að þinu mati? „Helsti styrkleikinn hjá ykkur felst í baráttu leikmanna og hörku í fráköstum. Aöalveikleiki i íslenskum körfubolta er hins veg- ar skortur á valdi yfir undirstööu- atriöunum í leiknum, þ.e. knatt- reki, sendingum og aö setja tálma (screen). Inn í þetta bland- ast líka aö nokkur harka kemur oft upp í leikjum, sem skapast fyrst og fremst af því aö þiö eigið alltof fáa dómara." Nú er þaó kerfi sem vió is- lendingar höfum á þjálfun og keppni hjá ungum krökkum nokkuð ólíkt því sem er hér í Bandaríkjunum. Hvernig lýst þér á skipulag þessara mála á Islandi? „Mesti munurinn á þessum kerfum felst í minni-boltanum á islandi. Þetta er mjög góö hug- mynd og þaö er ekkert slikt skipulag hérna fyrir krakka á þessum aldri (10—12 ára). Þetta aö lækka hæö körfunnar og aö nota minni knetti leiöir til þess aö krakkarnir eiga mun auöveldara meö aö ná valdi á undirstööuat- riöunum. Þaö atriöi ætti því aö fara aö batna hjá ykkur. Þiö ætt- uö því aö leggja áhersiu á þessa þjálfun." Nú ver kappanum farió að veróa umhugaó um grillkolin góóu úti í garói, svo við gerðum smá hlé á samtalinu. Mér þótti þá vió hæfi aó spyrja þau hjónin bæói hinnar sígildu íslensku spurningar þegar þau komu aft- ur: Hvaó finnst ykkur um island og Íslendínga? Bill varö fyrst fyrir svörum: „Viö vissum ákaflega lítiö á hverju viö ættum von þegar viö kæmum til Islands. En þaö var vel séö um okkur og okkur leiö ákaflega vel þarna. Landiö ykkar er ákaflega fallegt, en því miöur tókst okkur ekki aö feröast mikiö um þarna yfir veturinn." Tami sagöist hafa tekiö sér- staklega eftir því fyrst hversu ólíkir íslenskir krakkar væru i klæöaburöi miöaö viö bandarisk. „Þetta á þó sennilega viö um flest önnur lönd Evrópu líka. En annars áttum viö von á þvi aö á Islandi væri allt í snjó og miklir kuldar. En svo reyndist nú ekki vera, þvi hér í Ohio er oft ansi kalt á veturna." Hvað hafiö þió aóhafst síöan þið fóruó frá íslandi? „Viö hjónin eignuöumst okkar fyrsta barn, Mat, sl. vetur. Þá festum viö kaup á þessum bæ hérna og ég rækta hér korn og baunir í samvinnu viö fööur minn," sagöi Bill. „Ég vinn líka í glerverksmiöju hér í nágrenninu. Á veturna spila ég körfubolta i deild hérna í Ohio. Þaö er mikiö af fyrrverandi háskólaleik- mönnum í þessari deild, svo þetta er ákafiega skemmtileg keppni." Einhver góó ráó til islensks körfuknattleiks aó lokum? „Þiö eruö á réttri leiö, finnst mér aö mörgu leyti. Þiö þurfið greinilega aö fjölga dómurum, þvi leikmenn þreytast á því aö fá sífellt sömu dómarana helgi eftir helgi. Annars er mikilvægast fyrir ykkur aö þjálfa undirstööuatriöin vel og minni-boltinn er svo sann- arlega vettvangurinn til þess. Leggiö áhersluna á hann og haldiö áhuganum gangandi, þá kemur þetta allt saman." Þá voru grillkolin oröin nægi- lega heit og steikin tilbúin, svo viö slitum viötalinu hér. Þau hjónin sögöust hafa eignast marga góöa vini á islandi og báöu kærlega aö heilsa þeim öll- um. Þegar ég kvaddi þau hjónin var sólu farið nokkuö aö halla. Samt var enn 27 gráöu hiti úti. Á hlaöinu leit ég yfir endalausa kornakrana hér á flatneskjunni i Ohio. G.Val. — Skapti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.