Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 30
42 MORGUNBLAÐID, ÞRIDJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 Fjórir ungir myndlistarmenn Myndlist Bragi Ásgeirsson í eystri sal Kjarvalsstaða, sem kenndur er við sjálfan meistar- ann, sýna fjórir ungir myndlist- armenn nýjustu framleiðslu sína. — Fjórmenningarnar, sem allir hafa látið heillast af hinu svonefnda »nýja málverki" ásamt ýmsum tiltektum í rúm- taki, sem stefnunni fylgir, eru þeir Árni Ingólfsson, Daði Guð- björnsson, Kristján Steingrímur og Tumi Magnússon. Fátt eiga hinir ungu menn sameiginlegt annað en að vinna eins og guð blæs þeim í brjóst hverju sinni — láta allt flakka á myndflötinn, er þeim dettur í hug, og útkomuna ráðast af geðslagi og hughrifum einum hverju sinni. Þetta eru fullgild viðhorf og einkum ef viðkomandi hafa að einhverju leyti mótað með sér ákveðinn persónuleika og stíl- einkenni, jafnvel þótt flakkað sé á milli hinna ólíkustu stílbragða — eins og sumir aðalforgöngu- menn stefnunnar gera. Listrýnirinn skoðaði fyrst framlag Daða Guðbjörnssonar, sem kom honum á óvart, því að hér virðist um mikla framför að ræða frá því sem áður hefur sést frá hendi hins unga manns. Myndir Daða eru margar hverj- ar í senn frjálslega vel unnar og mjög lífrænar fyrir augað. Helst að þær minni á köflum á vinnu- brögð Paul Klee í tónrænni ljóð- rænu sinni. Myndir Daða eru all- ar unnar í grafík og vinnur hann af merkilegri fjölbreytni, sé tek- ið mið af einhæfni margra ís- lenzkra grafík-listamanna f tæknibrögðum. Það er mjög heil- brigt að einskorða sig ekki of mikið við ákveðin tæknibrögð og þrengja þar með að sér um list- ræna breidd, þótt myndirnar verði fyrir vikið ekki jafn sam- stæðar. Hressilegt framtak hjá Daða Guðbjörnssyni. Næst skoðaði ég hinar stóru og umbúðalaust máluðu myndir Tuma Magnússonar. Hér er um nokkuð stórkarlalegar og glannalegar myndir að ræða er virka ekki sérlega mótaðar og eru tæknilega frekar máttlausar í útfærslu. Til að slíkar myndir geti orðið voldugar og sterkar þarf viss tæknibrögð, svo sem ég ef sannfærst um við skoðun ný- bylgjumálverksins ytra. — Krafturinn skín úr mynd- um Kristjáns Steingríms og hinn ungi myndlistarmaður virðist í mikilli sókn. Hann not- ar mikið dökka litatóna á móti hvítri birtu — hvell umskipti frá ljósi í myrkur, sums staðar leiftra hvítir ljósglampar, dopp- ur eða línur á dökkum fletinum og nær hann hér sterkum áhrif- um. Ég nefni hér einkum tvær hrifmiklar myndir, sem eru þær „Irisarvor" (4) og myndin nr. 6,1 myndaröðinni „Yggdrasill“. Hér er um ört vaxandi málara að ræða. Framlag hins hugmynda- ríka Árna Ingólfssonar er ekki eins sterkt og stundum áður — hann virðist hafa sprengt sig í viðleitni sinni til að vera frum- legur. Maður er hér einfaldlega ekki með á nótunum. En Árni hugsar stórt í myndum sínum og ætlar sér mikinn hlut og vísast á hann eftir að mæta sterkari til leiks. Þessi sýning er skemmtilega frábrugðin hinum tveim að Kjarvalsstöðum, Septem- og glermunasýningunni og á vissu- lega fullan rétt á sér. Bragi Ásgeirsson Sigurmars flónskunnar Erlendar bækur lllugi Jökulsson Barbara W. Tuchman: The March of Folly From Troy to Vietnam 447 bls. — Michael Joseph 1984 Hinir fagurbrynhosuðu Akkear eru loks horfnir frá Príamsborg — að því er virðist. Eftir stendur á ströndinni hross eitt mikið; það er úr tré og ýmislegt bendir til þess- að ef Trjójumenn draga það inn i borg sína muni þeim hlotnast allra handa gæfa. Ymislegt, en þó er miklu fleira sem gefur til kynna að innan í hrossinu leynist úr- valssveit Akkea undir forystu hins ráðsnjalla ódysseifs og muni það verða banabiti Tróju ef þessari sveit tekst að opna borgarhliðin svo hersveitir Atreifssona geti ruðst inn. Stjórnendur Trjóju taka fyrri kostinn og kalla yfir sig ógn og dauða. Hvers vegna? Það er von spurning af þessu tagi hafi leitað á Barböru Tuch- man. Hún hefur þegar skrifað nokkrar bækur þar sem ótal stjórnvöld gera sífellt hverja rós- ina á fætur annarri — þó vænlegri kostur ætti að vera öllum augljós. (Flestallir áhugamenn um út- lenska sagnfræði hljóta að þekkja bækur Barböru Tuchman: The Guns of August, The Proud Tower, A distant Mirror o.s.frv. Henni hefur með sjaldgæfum hætti tek- ist að sameina fyrirtaks fræði- mennsku og afburða stíl.) Tuch- man fann fjögur dæmi í sögunni þar sem stjórnvöld hafa, að henn- ar mati, látið stjórnast af fíflsk- unni einni saman; ekki flotið sof- andi að feigðarósi heldur beinlínis tekið stefnu upp í brim og boða. Hún tekur í þessari nýju bók sinni aðeins dæmi þar sem önnur leið, og viturlegri, lá ljós fyrir þegar stjórnvöld hófu sinn fíflamars — í fyrsta lagi segir hún frá því uppá- tæki Trjójumanna að toga hrossið innantóma í borg sína, í öðru lagi er greint frá sex Endurreisnarpáf- um sem auðveldlega hefðu getað komið í veg fyrir Siðskiptin á sex- tándu öld, þá segir frá því þegar forráðamenn breska heimsveldis- ins ollu því að þrettán nýlendur í Ameríku stofnuðu sjálfstæð Bandaríki, og loks fordæmir Tuch- man allan framgang þeirra sömu Bandaríkja í Víetnam. Syndalist- inn er langur. Ekki kemur á óvart að bókin er stórskemmtileg aflestrar, en kafl- arnir eru þó misgóðir. Trjójuþátt- urinn er vitaskuld fyrst og fremst með til gamans, og gaman er að honum. Umfjöllun Tuchman um Endurreisnarpáfana er nytsamleg endursögn tímabils sem gífurlega mikið hefur þegar verið skrifað um — þar kem ég auga á fátt frumlegt. Hins vegar sé ég ekki betur en skrif hennar um aðdrag- andann að stofnun Bandaríkjanna séu hin mætustu enda þekkir hún þar greinilega afar vel til, fer á kostum eins og sagt er. Sama er uppi á teningnum í lokakaflanum um Víetnamstríðið en þar tekst henni eiginlega að vera á m'óti öll- um málsaðilum og heggur ótæpi- lega á báðar hendur! Gagnlegur kafli, ekki síst vegna þess að það sem lá að baki Víetnamstríðinu hefur viljað gleymast að baki frá- sögnum af skæruhernaði, loftár- ásum, mótmælagöngum o.s.frv. Fyrirtaks bók, en vantar eitt- hvað? Niðurstaða getur víst engin orðið, nema sú sem litlaus Banda- ríkjaforseti — John Adams — setti fram fyrir margt löngu að „stjórnsýsla nú á dögum er litlu betur af hendi leyst en fyrir þrjú eða fjögur þúsund árum“. Svona niðurstaða kemur ekki á óvart. Illugi Jökulsson Den onde lykke eft- ir Tove Ditlevsen Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Tove Ditlevsen: Den onde lykke, noveller Útg. Gyldendal Tove Ditlevsen var ákaflega dáð með löndum sínum fyrir ritstörf. Um það þarf ekki að fara mörgum orðum. Rithæfni hennar er óum- deilanleg og skilningur hennar á manneskjunni dýpri en flestra. Henni tókst að koma næmi sínu á tilfinningum sínum og annarra til skila í fjöldamörgum bókum, sem eftir hana standa. Viðfangsefni hennar, hvort sem er í ljóðum eða sögum, er jafnan manneskjan og innstu hugrenningar hennar. Oft er myrkt yfir frásögninni, þó aldr- ei svo að raunsæi skorti á að ekk- ert er alvont og ekkert algott. í sjálfsævisögu sinni sem spannaði raunar yfir margar bæk- ur fer þó undir hið síðasta að gæta beizkju og vonbrigða sem á stund- um, og kannski sérstaklega í „Vil- helms værelse" tóku af henni ráð- in. Den onde lykke kom fyrst út fyrir um það bil tuttugu árum og í henni eru ellefu smásögur, sumar öldungis meistaralega gerðar. Undirtónninn er óttinn og kúgun- in í yfirfærðri merkingu oftast. Hér er heldur ekki átt við þá kyn- ferðislegu kúgun sem dönskum skáldkonum hefur orðið tíðskrifað um, kúgunin er af tilfinninga- legum toga, mannréttindalegum toga, eiginlega öllu öðru en þvi hinu kynferðislega. í sögunum laðar hún fram magnað andrúmsloft, sem verður minnisstætt. Hvort sem er í fyrstu sögunni um litla drenginn sem Tove Ditlevsen týnir hnífnum sínum og óttast reiði föðurins, í sögunni um systk- inin tvö sem vitja föður síns á banabeði, sektartilfinningu þeirra gagnvart móðurinni og sektina vegna þess að þau fá ekki afborið að leggja það af mörkum, sem móðirin krefst af þeim tilfinn- ingalega. Ég hef ekki lesið þessar smásög- ur Tove Ditlevsen áður, enda hafa þær ekki verið endurútgefnar fyrr en nú. Tove Ditlevsen varð einnig kunn fyrir stormasamt eigið líf. Viðkvæmt blóm sem stóð lengi af sér veður, sem aðrir hefðu stælzt í, enn aðrir látið bugast. Og brotn- aði að lokum. En allt sem hún hef- ur að segja okkur er mannbæt- andi. Nu og aldrig eft- ir Jytte Borberg Jytte Borberg: Nu og aldrig, skáld- saga. ÍJtg.: Gyldendal. Þetta skyldi þó ekki vera bók um stööu konunnar í nútímaþjóð- félagi rétt ein enn? Ó, jú raunar. Og bara liðlegri og gædd meiri kímni og sjarmerandi firð en margar sem ég hef lesið lengi. Ketty er fráskilin og er auðvitað hálffertug. Maðurinn hennar átti verslun og misnotaði Ketty og var hvumleiður. Hún hefur komið sér fyrir á nýjum stað og vinnur ekki í byrjun bókar. Hún og nágranni hennar Betty verða miklar vin- konur. Betty er átján ára og alltaf að upplifa eitthvað mjög spenn- andi, að mati Kettyar. Til dæmis heldur hún sambandi við mann sem þarf alltaf að byrja á því að berja hana áður en hann getur sofið hjá henni. Sonur Kettyar býr í kommúnu, hann hugsar ekki, vinnur ekki, vill ekkert. Leiðinlegt a tarna. Með þeim Ketty og Betty tekst kyndugur kunningsskapur. Gömlu lummurnar — 2 Besti vestrinn Árni Þórarinsson „Do not forsake me oh my darl- ing“ (farð’ekki frá mér ó’mín kæra), syngur Tex Ritter í lagi Dimitri Tiomkio, seiðandi og angurværu leiðarastefi High Noon, hinnar sí- gildu kvikmyndar Fred Zinneman og í mínum huga besta vestra sem gerður hefur verið. Þetta undariega kyrrláta lag slær rétta tóninn frá upphafi og vegur þungt í rafmögn- uðu andrúmslofti myndarinnar með þvf aö vera andstæða þeirrar ytri spennu sem myndmálið tjáir. Lagið lýsir þeim tilfinningum sem bærast innra með aðalpersónu myndarinn- ar og ekki eru látnar uppi með öðr- um hætti. Að ýmsu leyti minnir High Noon á lögmál íslenskra forn- bókmennta þar sem allt tilfinn- ingaflæði er beygt undir harða stað- reyndafrásögn. Enda eru vestrar, eins og menn vita, sögur af sköpun nýs þjóðfélags alveg eins og okkar fornbókmenntir. Gary Cooper sýnir hér sársauka- fullan, hófstilltan leik (Oscarsverð- launaleik reyndar) í hlutverki lög- reglustjóra sem á efri árum ákveður að draga sig í hlé og gifta sig. Hann er búinn að „hreinsa" þorpið; óþjóðalýðurinn er flúinn og borgar- arnir geta um frjálst höfuð strokið. Myndin gerist öll á einum degi, — brúðkaupsdegi Coopers og Grace Kelly. Hún gerist eiginlega á um tveim- ur klukkutímum, þ.e. þeim tíma sem myndin tekur í sýningu, og há- punktinum er náð á hádegi, eins og nafn hennar gefur til kynna. Þá er von á fjórum alræmdum byssubóf- um sem snúa aftur til þorpsins og ætla að hefna harma sinna á lög- reglustjóranum sem bolaði þeim burt. Gagnvart þessu stendur Coop- er þegar hlutverki hans er í raun lokið. í stað þess að fara burt með brúði sinni eins og til stóð ákveður hann að mæta ribböldunum. Og þá ganga þeir úr skaftinu sem síst skyldu. Þorpið snýr við honum bak- inu og brúðurin með. í handriti Carl Foreman og leik- stjórn Zinneman eru þessir atburðir byggðir upp með hnitmiðuðum hætti, þar sem klukkur eru í megin- hlutverki: Myndin hefst klukkan hálf ellefu um morguninn og spenn- an eykst jafnt og þétt eftir þvf sem dregur að hádegi. Sfðasti hálftfminn er afburða vel saman settur þar sem Zinneman klippir milli lögreglu- stjórans, vígamannanna og hinna ýmsu þorpsbúa sem eru að undirbúa sig fyrir styrjöld í bænum. High Noon er í svart-hvítu, gerð 1952. Hún er til á flestum mynd- bandaleigunum. Því miður eru spól- urnar unnar eftir danskri útgáfu, þar sem tekið er neðan af myndflet- inum og íslenskur texti þrykktur ofan í þann danska á svartri rönd. Þótt allri tæknilegri tjáningu á blóðsúthellingum hafi mjög fleygt fram síðan 1952 hefur tilfinning fyrir frásagnartækni myndmáls ekki aukist að sama skapi. Ég get varla mælt með betri spennumynd, þar sem jafnframt er borin virðing fyrir fólki og miðli. Þetta er einföld mynd í sjálfu sér, stundum kannski barnaleg, en hún er aftur á móti til marks um alvöru kvikmyndagerð. Ekki fiff og gróðahyggju og hug- myndaleysi Hollywood-iðnaðarins núna. Stjörnugjöf: High Noon Gary Cooper fékk Óskarsverðlaunin fyrir afbragðs túlkun á hinum hrjáða lögreglustjóra í High Noon. ar með fornbókasalanum Sten, þau kynni þróast síðan hægt og rólega í að vera meira en bara hjólreiðar. En það ævintýri endar heldur ömurlega, þegar fornbóka- salinn fer að renna hýru auga til Bettyar. Þar með er vináttan þeirra Ketty og Betty enn fyrir hendi, en hún verður ekki rækt áfram. Ketty leitar á náðir systur sinnar og sambýlismanns, tveir furðufuglarnir enn. Svo fær hún vinnu í bókasafni, eftir nokkra hrakninga á lífsins ólgusjó. Hún flytur á brott, reynslunni ríkari en í öllu hjónabandi sínu. Hún sýnist ætla að vera sterk og þrátt fyrir ýmsa auömýkingu, áætlanir sem eilíflega voru að fara út um þúfur, telur hún sig hafa meira að byggja á en fyrr. „Eitthvað hlýt ég að hafa lært, þótt allt sé einum of raunverulegt til að ég geti haft stjórn á því öllu,“ segir í niður- lagsorðum bókarinnar. Nu og al- drig er verulega læsileg bók, auð- mýkt Kettyar og einfeldni í upp- hafi er að vfsu á mörkunum. En höfundurinn hefur tak á sínu fólki og skilur við Ketty í bókarlok, vænni manneskju og við sjálfa sig sáttari en í upphafi ferðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.