Morgunblaðið - 06.11.1984, Side 34
46
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Fjölbreyttar
fræðslukröfur
Þeir sem hafa starfað að
fræðslu- og skólamálum í meira
en hálfa öld gleðjast á hverju
hausti, þegar skólar taka til
starfa. Jafnvel þótt horft sé
þangað úr fjarlægð verður
margs að minnast, margs að
sakna og óska.
Þarna er sjálfur grunnur og
hornsteinar þjóðmenningar til
umhugsunar.
Margt er breytt frá því sem
áður var og er þá auðvitað hægt
að gleðjast yfir allri fjölbreytni
einkum á sviði iðnaðar og tækni.
Og eitt skyldi ekki gleymast,
að þakka og gleðjast yfir, sem er
alveg sérstætt til menningar og
þroska einmitt hér á þessu litla,
erfiða og fjölbreytta landi. Það
er hið langa sumarleyfi, sem er
jafnframt nær ósjálfrátt hinn
ágætasti skóli og mikið nám til
eflingar verktækni og skilnings
á samfélagsháttum og afkomu
sinnar eigin framtíðar og ætt-
jarðar um leið og unnið er.
Um allt slíkt skyldi staðið
helgan vörð hjá þessari frjálsu,
gáfuðu þjóð á friðarvegum.
Mikið er einnig hægt að gleðj-
ast yfir fjölbreytni skólastarfs-
ins sjálfs nú í samanburði við
nær einhliða bóknám í gamla
daga. Oft var sárt og fátæklegt,
að hafa fátt eða ekkert viðfangs-
efni handa þeim nemendum, sem
féll ekki bóknámið og gátu orðið
því fjarlægir og andsnúnir, því
meir, sem meira var krafist úr
námsbókum. Stundum gátu
þetta verið stórgáfaðir og góðir
nemendur, ef þeir fengu að njóta
sín. Nú geta víst flestir eignast
þarna eitthvað nær hæfi í hinum
svonefndu fjölbrautaskólum og
er það vel.
Ekki skyldi þó gleymast, að
„örskammt er öfganna milli".
Nokkrar bóknámsgreinanna
má aldrei fela í skuggum og
fylgsnum að baki hins hvers-
dagslega tæknináms, þótt sjálf-
sagt sé. En einmitt á síðastliðnu
vori urðu nokkrar umræður um
víxlspor í þá átt.
Vonandi hafa þær orðið til að
vekja og hvetja til hugsunar og
framkvæmda gagnvart þeim
námsgreinum, sem allt annað
vió
gluggann
eftirsr. Árelíus Nielsson
verður að hafa að bakhjalli til að
skapa gróandi þjóðlíf.
Þær eru annað meginatriði
skólastarfsins og nefnast: Móð-
urmál, kristinfræði og saga., En
fyrst og síðast er svo auðvitað
fólkið sjálft í skólunum: Nem-
endur og kennarar.
Sú aðstaða, sem veitir hverj-
um ráðrúm til þroska og áhrifa,
eftir sínum gáfum, hæfni og
menntunarþrár. Ekkert verkefni
er vandasamara og um leið æðra
hverri þjóð, en það að þekkja
sjálfa sig, viðurkenna gáfur og
hæfileika, þroska þær eftir föng-
um og veita þeim viðfangsefni.
Einmitt þannig skapar frjálst
fólk forlög sín og frama allan í
nútíð og framtíð.
Þar má enginn gleymast, eng-
inn verða út undan og um leið
olbogabarn sinnar frjálsu móð-
ur, þjóðarinnar, og glatast henni
um leið að gáfum og atgjörvi.
Þess vegna verður samfélagið,
sem heild að koma öllum til að-
stoðar. Og um leið hverjum ein-
stökum, finna ráð til að upp-
götva hans sérstöku hæfileika og
skipa honum sinn sess meðal
samferðafólks á lífsleiðinni, án
þess að skerða eða eyðileggja
hans sérstaka persónuleika.
Nú heyrist oft rökrætt, hvern-
ig haga þurfi fræðslunni eftir
„magni” og „gæðurn", eins og
hægt væri að orða það.
Að baki þeirri umræðu felst sú
skoðun, að hvert samfélag verð-
ur að velja um, hvort veita skuli
nokkrum tiltölulega fáum frá-
bæra menntunaraðstoð eða öll-
um fjöldanum sæmilegan
þroska.
Það mætti því ætla, að ekki
væri unnt að sameina og sam-
ræma hvort tveggja.
En þroskað þjóðfélag þarf ein-
mitt að eiga það að takmarki.
Hver einstakur þarf að eiga kost
á að þroskast að fullu, án tillits
til þess hvort gáfur hans eru
smáar eða miklar. Oft er rætt
um jöfnuð manna á meðal. En
aldrei verður unnt að fullyrða
alla jafna á persónulegu sviði
gáfna og hæfni. „Þar er hver sér
um sefa.“
Við erum fædd misjöfn og með
sérstætt gáfnafar og náum því
aldrei öll jafnlangt á þroska-
braut.
Þarna verður því að miða við
jöfnuð hið ytra, jafnar aðstæður
og stuðning, sem einmitt sé mið-
að við þá staðreynd, að engir
tveir eru eins frá náttúrunnar
hendi, og ná því mislangt á
námsbraut og starfshæfni.
Þar verður að veita hverjum
einstaklingi sitt frelsi og svig-
rúm á sínu sviði. Það er einmitt í
krafti þessa frelsis einstakling-
um til handa, sem heppnast hef-
ur að skapa hið stærsta og æðsta
meðal mannkyns á jörðu.
í slíkri viðleitni kemur margt
til greina, sem aldrei má gleym-
ast á sviði fræðslu og náms.
Þar má fyrst og fremst minna
á aðstoð til lista og vísinda,
hvort sem það nefnist heim-
speki, hljómlist, handíðir, tækni
eða skipulagsstarfsemi og upp-
götvanir.
Þar verða meðfæddar gáfur og
listfengi einstaklingsins að eiga
samleið og átak með stuðningi
stjórnenda og samfélags til að
njóta sín. Það mega teljast und-
ur hve langt slíkt samstarf getur
komizt jafnt við íþróttir og erfiði
sem uppgötvanir, vísindi og list-
ir. En síðast og fyrst má aldrei
gleymast að mismunur að gáfum
og atgjörvi er ekki hið sama og
mismunur á manngildi og
manngöfgi og efling þess.
Þess vegna verðnr að hafa í
huga að undirstaðan sé réttleg
fundin. Það varðar mest til allra
orða, svo sem kveðið var í ár-
daga.
Þar eru í skólanum hornstein-
arnir þrír með nöfnum hvers-
dagslegra námsgreina, svo sem
nefnt var hér í upphafi um fjöl-
breyttar fræðslukröfur: Móð-
urmál, kristinfræði og saga.
Sé þetta fært til nútímahátta,
vil ég bæta einum við, því
hornsteinar hárra sala verða
helzt að vera fjórir: Það er verk-
tækni. Þeir verða þvi:
Móðurmál, kristinfræöi, saga og
verktækni, með öllum sínum fjöl-
þættu undrum.
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
2. og síöasta á b/v Óskari Magnússyni Ak 177 eign Útgeröarfélags
Vesturtands hf„ fer fram aö kröfu Gytfa Thorlaclus hrt. o.fl. og hefst á
skrifstofu efmbættisins aö Suöurgötu 57, Akranesi, föstudaginn 9.
nóvember nk. kl. 14.30.
Bœlarfógellnn A Akranesl.
Kópavogur — Spilakvöld
— Kópavogur
Okkar vinsælu spilakvöld halda áfram þriöjudaglnn 6. nóvember i
Sjálfstæöishúsinu Hamraborg 1 kl. 21 stundvíslega. Góö kvöld og
heildarverölaun. Kaffiveitingar. Fjölmennum.
Stlórn Slálfstæólsfélags
Kópavogs.
Vörður FUS Akureyri
Aðalfundur
veröur haldinn 8. nóvember í húsnæöi flokksins í Kaupvangi vtö
Mýrarveg kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjórnln.
Stefnir —
Hafnarfirði
Akureyri
Aöalfundur kjördæmisráös Sjálfstæðisflokksins í Noröurlandskjör-
dæmi Eystra veröur haldinn dagana 10. og 11. nóvember 1984 aö
Kaupangi viö Mýrarveg, Akureyri.
Fundurinn hefst laugardaginn 10. nóvember kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf
2. Halldór Blöndal alþingismaöur, ræöir stjórnmálaviöhorfln.
3. Björn Dagbjartsson alþingismaöur, ræöir atvinnumál.
4. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leggur fram breytingar á prófkjörsregl-
um flokksins.
5. Svanhildur Björgvindóttlr kynnlr störf landssambands sjálfstæö-
iskvenna.
6. Kynning á starfsseml ungra sjálfstæölsmanna.
7. Formaður stóriöjunefndar Birgir isleifur Gunnarsson alþingismaö-
ur, ræöir stðöuna i stóriöjumálum.
8. Stjórnarkosningar.
9. Önnur mál.
Stjórn kjördaamlsráös.
bátar — skip
Hvöt — aðalfundur
Aöalfundur
Bátar til sölu
Aöalfundur Hvatar fólags sjálfstæöiskvenna í Reykjavík veröur hald-
inn í Valhöll þriöjudaginn 13. nóvember 1984 kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Ræöa: Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráöherra
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar. Fundurstjóri veröur Ingibjörg Rafnar.
Félagskonur fjölmennió.
St/órnin.
Aóalfundur Stefnis. fólags ungra sjálfstæöismanna í Hafnarfiröi, verö-
ur haldinn i Sjálfstæöishúsinu, þriöjudaglnn 6. nóvember nk. kl.
20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aóalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Gestur fundarins veröur Friörik Frióriksson f. varaformaöur SUS og
framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæöisflokksins.
Stjómln.
140 tonna stálskip, 57 tonna eikarbátur, 42
tonna eikarbátur, 15 tonna plastbátur, 11
tonna súöbyröingur, 10 tonna súöbyrðingur,
9 tonna súðbyröingur, 7 tonna plastbátur.
Fasteignamiöstööin,
Hátúni 2B, sími 14120.
0% DREGIÐ 9
IDAG @Iqg Happdrættí 84- 85
i-------------------------r------------------------1------------------------:-------------------------r