Morgunblaðið - 06.11.1984, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
47
Jón Karl Helgason skrifar frá ísrael:
Hriktir í stoðum
Yitzak Shamir Ariel Sharon Yoran Aridors
Loks eftir sjö vikna stjórnar-
kreppu er ísraelskur almenningur
búinn að fá úrlausn úr kosningum
sínum. Mynduð hefur verið stjórn
sem öðru fremur byggist á jafn-
réttháu samstarfi tveggja stærstu
flokkanna, Herud-Likud og Verka-
mannaflokksins. Það kom þó í ljós
á fyrstu dögum stjórnarinnar að
innan Likud-flokksins eiga sér nú
stað miklir flokkadrættir sem
gætu i framtíðinni haft alvarleg
áhrif á stjórnarsamstarfið.
Herut-Likud flokkurinn á sér
langa en nokkuð einhæfa sögu að
baki. Hann var sköpun Menachem
Begins í lok fimmta áratugarins
og laut forystu hans um 35 ára
skeið uns Begin dró sig skyndilega
og óvænt í hlé fyrir rúmu ári. Síð-
astliðin sjö ár hefur flokkurinn
haldið um stjórnartaumana i ísra-
el, nú síðast undir forsæti Yitzhak
Shamirs sem tók við af Begin i
fjarveru hans. Samband flokks-
formannsins við flokksmenn sfna
hefur alla tíð átt sér tilfinninga-
legri rætur en gengur og gerist I
öðrum flokkum. Hann hefur þann-
ig höfðað til þeirra sem „Banai",
sona sinna, og þeir kallað hann
„Hamefaked", leiðtoga. Flokkur-
inn hefur haft sömu formreglur og
aðrir stjórnmálaflokkar, en sú
hefur verið raunin að Begin gat
farið í kringum þær að vild sinni.
Þannig frestaði hann flokksþingi
ítrekað svo flokkurinn vinnur enn
samkvæmt niðurstöðu flokks-
þingsins frá 1978 en næsta þing
átti upphaflega að fara fram 1982.
Þær þrengingar sem flokkurinn
gengur í gegnum núna eru í raun I
beinu framhaldi af fráhvarfi Beg-
ins. Sumir vilja taka þannig til
orða að Herut hafi hent ein verstu
örlög sem hent geta stjórnmála-
flokk, þau örlög eins manns flokks
þegar eini maðurinn yfirgefur
hann.
Baráttan um brauðiö
Kapphlaupið um formannssætið
er því hafið. Áskorendur Shamirs
eru þeir Ariel Sharon og David
Ley, sem báðir gegna ráðherra-
embættum í hinni nýju stjórn auk
Yoram Aridors fyrrverandi fjár-
málaráðherra. Þeir, ásamt fjöl-
mörgum flokksmönnum, sætta sig
engan veginn við forystu Shamirs.
Hefur Shamir, sem gegnir emb-
ætti varaforsætisráðherra og
utanríkisráðherra, sætt frá þeim
mikilli gagnrýni fyrir skipan í
embætti þau sem Herut hefur um-
sjón með innan stjórnarinnar; þar
sem hann sé hvorki raunverulegur
flokksformaður né forsætisráð-
herra hafi hann ekki umboð til
slíkra skipana.
ólgan lét fyrst á sér bera í
ítrekuðum árásum Aridors á
Shamir. Honum hafði verið lofað
lykilembætti innan stjórnarinnar,
en þegar ráðherralistinn var birt-
ur varð ljóst að Aridor sat utan
stjórnar. Árásir hans á Shamir
báru því mjög persónulegan blæ
og er hann sagður njóta vissrar
samúðar innan flokksins meðan
mestur hluti landsmanna furðar
sig á, að sá sem talinn er bera
mesta ábyrgð á núverandi stöðu
efnahagsmála (yfir 400% verð-
bólgu), skuli telja sig svo verðan.
Shamir hefur svarað með því að
láta í það skína að hann vilji leysa
Aridor frá embætti sínu innan
flokksins, en þeir Levy og Sharon
hóta hörðum viðbrögðum, fari svo.
Aðalágreiningsefnið hefur und-
anfarið verið skipan fulltrúaráð-
herra. Tillögur Shamirs í þeim
efnum hafa leitt til þess að hann
hefur verið sakaður um að koma
fram sem fulltrúi þröngs hags-
FRISKk
/MÍN
Nýr heilsuvökvi
fyrir böm og fulloröna.
Frískamín er blanda rík af A-, B-, C-
og D-vítamínum. Hæfilegur
skammtur uppfyllir vítamínþörf
allraaldurshópa. Dagleg notkun
Frískamíns kemur í veg fyrir
vítamínskort á vaxtarskeiöi barna
og unglinga.
Frískamín meö fersku ávaxta-
bragði fæst í næstu matvöruverslun.
munahóps, fremur en flokksins í
heild sinni, en „kandidatar" hans í
fulltrúaráðherraembætti varnar-
málaráðuneytisins og
utanríkisráðuneytisins, þeir
Michael Dekel og Ronnie Milo, eru
báðir nánir stuðningsmenn hans.
Það veikti stöðu Shamirs nokkuð
þegar kom í ljós að næstum helm-
ingur Herut-þingflokksins studdi
Dr. Eliyatu Ben-EIissar í fyrr-
nefnda embættið frekar en Dekel.
Shamir heldur því sjálfur fram
að ástæðurnar sem leiddu til þessa
„misskilnings" séu af lítt mikil-
vægum toga spunnar, þær réttlæti
ekki innanflokksstríð. Hann segir
ólguna ekki í neinu sambandi við
stjórnarsáttmálann. Þetta sé ein-
ungis rifrildi um störfin, sem
hefði jafnauðveldlega getað átt
sér stað þó Herut sæti einn að
völdum. Viðbrögð hans við ásök-
unum um klíkuskap voru á þann
veg að hann taldi ósanngjarnt að
þeir Dekel og Milo þyrftu að
gjalda fyrir kunningsskap sinn við
hann, þeir væru vel kostum búnir.
Niðurstaða málsins varð sú að
flokkurinn fól þeim ráðherrum,
Shamir, Sharon og Levy, að kom-
ast að samkomulagi um umrædd
embætti ásamt fjórða ráðherra
flokksins, en alls hefur Herut sex
ráðherra í hinni nýju stjórn.
Flokksþing á næsta leiti
Nú er loks ákveðið að næsta
flokksþing skuli fara fram
snemma á næsta ári en þar verður
kosið I miðstjórn og nefndir.
Binda menn vonir við að þinginu
auðnist að staðfesta nýtt jafnvægi
í flokknum. öruggt er talið að
Begin hafi endanlega yfirgefið
sviðsljósið, hann hefur átt við
veikindi að stríða og gekkst nú ný-
verið undir uppskurð. Spurningin
er hvort Shamir haldi einn velli
sem höfuð flokksins. Sýnist sitt
hverjum.
T.a.m. lét David Magen, þing-
maður Herut, sem álitinn er einn
dyggasti stuðningsmaður Shar-
ons, þau orð falla fyrir stuttu að
ferli Shamirs væri lokið. Á hinn
bóginn líta menn Shamirs með
bjartsýni til flokksþingsins en
ljóst er að við ramman reip er að
draga.
Togstreita síðastliðinna vikna
hefur staðfest að þeir Ley og
Sharon ætla að gera Shamir eins
erfitt fyrir og þeim er mögulegt.
Sjálfur viðurkennir hann að hann
sé enginn Begin, og veikari staða
hans innan flokksins slævði stöðu
flokksins í stjórninni.
Meðan þetta sálfræðistríð geis-
ar blasa vandamálin við hinni
nýju ríkisstjórn. Mikil uppstokkun
í forystu Herut-Likud getur auð-
veldlega valdið úrsögu flokksins
úr stjórn þannig að þessar svipt-
ingar snerta ekki einungis framtíð
hans heldur þjóðarinnar allrar.
J.K.H.
Bferða
MIÐSTOÐIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133