Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 36
48
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Afmæliskveðja:
Guðrún Ásmunds
dóttir kaupkona
Að þú skulir vera orðin 80 ára,
elskulega vinkona mín, Guðrún, er
harla ótrúlegt, en þetta er víst rétt
í kirkjubókunum, fædd 1. nóvem-
ber 1904 og bókstafurinn blífur.
Þegar ég lít til baka, er svo
ótrúlega stutt síðan við hjónin,
nýgift, fluttum inn í íbúð uppi á
lofti í Kaupfélaginu. Þar bjuggu
líka þið Einar Ólafsson ásamt
kornungum syni, Einari Jóni,
einnig Asmundur Gíslason og fjöl-
skylda og Halldór Backmann og
Jóhanna. Þarna ríkti elskulegt
viðmót og gleði og friður. Mikið
var nú oft kátt á ganginum í
Kaupfélaginu. Þá var setið í stig-
anum opið inn í bæði eldhúsin hjá
Ingu og Gunnu, rabbað saman og
borðaðar upprúllaðar pönnukökur,
sem Gunna hafði bakað, og þær
pönnukökur voru alveg sérstakar,
því þær áttu helst að fljóta í sykri,
þannig voru þær bestar. — Eða
þá, þegar það voru bitaðir ofaní
mann þessir líka fínu saltkjötsbit-
ar og baunasúpa hjá Gunnu og
Einari. Hún var í sérflokki, hún
var engu lík. Á þessum tímum
þurfti nú mannskapurinn aldeilis
ekki að hugsa um línurnar. Það
var nú eitthvað annað. Ég veit, við
munum þetta allt, vinkona. Rausn
ykkar. Það var svo sem allt í lagi
þó hún Gunna léti heldur meira í
pottinn, því unglingarnir við hlið-
ina myndu ábyggilega ekki lasta
það, sagði Einar. Svona var nábýl-
ið á þeim bæ og ekki slæmt fyrir
okkur, sem vorum að byrja lífið og
búskapinn að fá þessa fyrirmynd í
starfinu.
Nokkrum árum seinna urðum
við aftur nágrannar, er þau Guð-
rún og Einar byggðu íbúðar- og
verslunarhús á Skagabraut 9. Ég
held að ekki hafi á byggðu bóli
verið liðlegra og almennilegra
verslunarfólk en þau Guðrún og
Einar. Verslunin var auðvitað
opin á eðlilegum timum, en ótrú-
legu ónæði urðu þau hjón fyrir frá
okkur fólkinu í kring og fleirum,
sem höfðu gleymt sér fram yfir
lokunartíma. Má mikið vera að
þau hafi setið ótrufluð að matar-
borði, en aldrei heyrðist óvildar-
orð frá þeim vegna ónæðis, enda
voru þau hjón afar vinsæl og öll-
um hlýtt til þeirra. Sonurinn, Ein-
ar Jón ólafsson, er fyrir löngu
tekinn við versluninni og rekur
hana og nýtur sömu vinsælda og
foreldrar hans. Er verslun Einars
Bókin „Næring
og vinnsla
nAtnplnnnn
— eftir Bjarna
Þjóðleifsson
Næring og vinnsla.
Höfundur dr. Jón Óttar Ragnarsson.
Helgafell september 1984.
í bók Halldórs Laxness, Ungur
ég var, er að finna lýsingu á mat-
arsmekk tslendinga fyrr á öldinni.
H.L. er að koma í fyrsta skipti til
útlanda og kemur á heimili Scheu-
ermann hjónanna í Kaupmanna-
höfn. „Maturinn var kominn á
vendilega dúkað borð. Þar var hin
dægilegasta nautakjötssúpa á
borðum, soðin með allskonar garð-
jurtum, sem ég bar ekki kennsl á.
þar á meðal seljurót og blaðlauk. í
körfu á borðinu stóðu flöskur með
Gamlakarlsberg, sem ég þekkti í
sjón frá því ég var lítill áður en
bjórbannið kom á ísland 1912. Er
þar skemmst frá að segja að ekk-
ert var hér á borðum sem ekki
vekti mér hroll þegar í stað; jafn-
vel nautakjöt hafði ég aldrei getað
látið innfyrir mínar varir. Ég
reyndi að taka til mín þessa ný-
stárlegu fæðu og láta sem ekkert
væri, en þegar ég hafði tuggið
fyrsta bitann af þessu kjöti sem
bragðlaukum mínum var ókunn-
ugt, um leið og lyktin af þessum
voðalegu matjurtum í súpunni lék
um vit mér vissi ég ekki fyrr til en
ég var byrjaður að kúgast." Og
síðar segir: „Þegar farið var að yf-
irheyra mig um matarvenjur og
talinn upp fjöldi krása sem ég
þekkti ekki og bauð við að heyra
nefndar. Þá kom uppúr dúrnum að
ég gat helst ekkert hugsað mér að
borða nema kindakjöt."
Nú eru breyttir tímar og Islend-
inga klígjar ekki lengur við fram-
andi kræsingum. Þeir hafa sest að
veisluborði heimsins og tekið vel
til matar. Þessa sjást merki á
mörgum sviðum. Fjöldaferðir til
sólarlanda hafa útsett þá fyrir
matarvenjum framandi þjóða.
Framboð á matvöru innanlands
hefur margfaldast. Lambakjöt
heldur ennþá velli sem algengasta
kjöttegundin, en aðrar kjötteg-
undir vinna sifellt á. Seljurót og
garðlaukar nálgast nú að vera
dagleg fæða og vekja ekki lengur
athygli í ávaxtadeildum kjörbúða.
Nýir og framandi ávextir eins og
kiwi, avocado, ugli, papaya og
mango vekja hinsvegar forvitni og
er ekki aö sjá annað en þeir gangi
vel út þó dýrir séu. Skýrasta dæm-
ið um vaxandi matarmenningu er
að finna í hinum fjölmörgu mat-
sölustöðum, sem upp hafa sprottið
víðsvegar um landið og framreiða
fjölbreyttan og ágætan mat.
Tilefni þessara hugleiðinga er
lestur nýútkominnar bókar hjá
Helgafelli, Næring og vinnsla eftir
dr. Jón óttar Ragnarsson, en áður
er komin út bókin Næring og
heilsa eftir sama höfund. Báðar
þessar bækur fjalla um hina
fræðilegu hlið matarins þ.e. nær-
ingarfræði og matvælafræði. ís-
lendingar hafa ekki þurft fræði-
bækur til að breyta mataræði
sínu, þar hafa bragðlaukarnir ráð-
ið ferðinni eftir að fjötrar fátækt-
ar og einangrunar voru brotnir. Á
seinni árum hefur komið fram
mikill áhugi meðal almennings á
hollustu matar. Ekki hafa verið til
á íslensku aðgengileg fræðirit og
lítil skipulögð kennsla er í skóla-
kerfinu um þessi mál. ÝMislegt
hefur einnig skort á þekkinguna
varðandi samband fæðu og heilsu-
fars, en mikið hefur áunnist á
seinustu árum. Það var reyndar
sögulegt slys að matvælavinnsla
þróaðist á undan næringarfræð-
inni og þannig urðu fæðutegundir
eins og hvítur sykur og hveiti stór
þáttur í daglegri fæðu og mótuðu
matarsmekk áður en vitað var um
40 manns á tölvunám-
skeiði hjá Bókaskemmunni
AknuieM isepL "
Að undanförnu hefur Bóka-
skemman á Akranesi staðið fyrir
tölvunámskeiðum á Akranesi. Mikill
áhugi er á tölvum á Akranesi, sem
trúlega er tilkominn vegna tölvu-
kennslu í Fjölbrautaskólanum á
Akranesi á undanförnum árum en
þar hefur fjöldi manns numið tölvu-
fræðL
Það er Guðmundur Ragnar
Guðmundsson tölvukennari hjá
Tölvumennt sem annast hefur
kennslu á þessum námskeiðum,
annars vegna grunnnámskeiði og
hinsvegar Basic-námskeiði.
Bókaskemman starfrækir sér-
staka deild þar sem seldur er
tölvubúnaður, þar fást nær allar
helstu tegundirnar eða BBC, El-
ectron, Sinclair Spectrum, Comm-
andore 64, Dragon 32, Sharp MZ
700, Spectra video og BIT 90.
Einnig eru til sölu bækur og blöð
um tölvur.
Að sögn Braga Þórðarsonar sem
sér um tölvudeild Bókaskemm-
unnar var áhugi bæjarbúa fyrir
tölvum það mikill að honum þótti
full ástæða til að efna til þessara
tölvunámskeiða. Alls hafa nær 40
manns sótt þessi námskeið. Þar er
um að ræða fólk á öllum aldri og
úr fjölmörgum starfsgreinum, allt
frá unglingum upp í fram-
kvæmdastjóra fyrirtækja. Bragi
sagði að lokum að eftir því sem
best er vitað muni nú vera fleiri
heimilistölvur á Akranesi en í
hliðstæðum bæjarfélögum utan
Reykjavíkursvæðisins. Verslunar-
stjóri Bókaskemmunnar er Elín
Þorvaldsdóttir. j(j
hollustugildi þeirra. Nú eru mat-
vælafræðin og næringarfræðin
meir í takt en áhrifa frá misvægi
þessara greina fyrr á öldinni gæt-
ir enn í mataræði okkar.
Við lestur þessara bóka sést
margt í nýju samhengi, sem sér-
stakt er fyrir matarvenjur og
matarvinnslu íslendinga fyrr á
tímum. Það er vel þekkt að skyr-
gerð er séríslenskt fyrirbrigði, en
skyremysan var síðan notuð við
súrsun á matvælum, einkum
sauðfjárafurðum. Nú kemur í ljós
að súrsun er ein hagkvæmasta og
hollasta vinnsluaðferð sem til er;
jafnvel beinin nýtast. Þessi aðferð
gerði mögulegt að gjörnýta sauð-
kindina til matar og hafa fáar
þjóðir náð lengra í þeim efnum,
enda lá lífið við fyrr á öldum. Það
er vonandi að smekkur fyrir skyri,
mysu og súrsuðum mat glatist
ekki í því veisluhaldi sem nú geng-
ur yfir.
Það er góðra gjalda vert að
kunna skil á hollustu og vinnslu
matar þegar setið er við veislu-
borð, en það eru reyndar mun
veigameiri ástæður fyrir íslend-
inga til að kunna góð skil á þess-
um fræðum; Lífsafkoma okkar
byggist á útflutningi matvæla. í
þeim öru breytingum, sem nú
ganga yfir á neysluvenjum, mat-
vælavinnslu og vöruþróun þá
stenst engin þjóð samkeppni nema
vel sé staðið að þessum málum.
Þurfa þar margir þættir að koma
til eins og rannsóknir og kennsla á
háskólastigi og náið samband
framleiðslu og háskólagreina og
ekki síst góð almenn þekking.
Jón Óttar er dósent við Háskóla
íslands í matvælafræðum og eftir
hann liggur mikil vinna við rann-
sóknir á íslenskum matvælum.
Meðferð efnisins í bókunum Nær-
ing og heilsa og Næring og vinnsla
ber þess vott að höfundur hefur
gott vald á fræðunum. Það er
sjaldgæft að sjá fræðibækur sem
skírskota jafnt til hins almenna
lesanda og henta til kennslu á
menntaskóla- og háskólastigi.
Það er verðugt verkefni fyrir
háskólakennara að skrifa um sín
fræði fyrir almenning, en í grein-
um, sem byggja á raunvísindum
krefst það nýsköpunar á íslensku
máli og hefur það tekist lipurlega
hér. Það er fengur að svo góðum
bókum um efni sem varðar bæði
lifsnautn og lífsafkomu okkar ís-
lendinga.
Bjarni Þjódleifsson er læknir.
Olafssonar hin glæsilegasta á
Akranesi.
Mín kæra vinkona er mikil
hamingjumanneskja. Hinn dá-
samlegi sonur hefur fengið í arf
það besta frá foreldrum sínum,
tendadóttirin yndisleg og sonar-
synirnir, Einar Gunnar og Guðni,
hinir elskulegustu. Þannig er Guð-
rún, vinkona mín, umvafin ást
þeirra allra og umhyggju. Guð
hefur gefið henni góða heilsu og
létta lund. Unga fólkið hefur hún
stutt með prýði alla tíð. Það er ósk
min og bæn um leið og ég sendi
þér og fjölskyldunni að létt lundin
og góð heilsa megi fylgja þér uns
yfir lýkur.
Þín Ásta
Ein af mörgum vinkonum sem
ég sá eftir að fara frá, þegar við
hjónin fluttum búferlum af Akra-
nesi fyrir 22 árum, var hún Guð-
rún mín í Einarsbúð.
Við höfðum búið í nágrenni við
hana í um 20 ár. Og það var ekki
aðeins að maður gæti sótt í búðina
hennar allar nauðsynlegar vörur
til líkamlegra þarfa, heldur fékk
maður andlega fóðrið í kaupbæti
og oft vel úti látið, því stundum
var maður að hlæja alla leiðina
heim með vöruna og fór að hugsa
þegar heim kom hvort maður
hefði nú ekki einhverju gleymt, til
að eiga erindi aftur þangað, því
Einarsbúð var miðstöð gleði og
góðvildar. Þar var oft glatt á
hjalla, rædd voru stundum dæg-
urmál og ekki allir alltaf á sama
máli og alltaf var Gunna hrókur
alls fagnaðar. Þetta var líka á
þeim árum þegar fólk gaf sér tíma
til að stoppa og tala saman og ekki
voru allir að flýta sér. Flestar
konur voru þá heimavinnandi hús-
mæður, til að hugsa um börnin sín
og passa að hafa nú matinn til
þegar blessaður bóndinn kæmi
heim, því allir komu þá heim í
matartímunum. Allir i götunni
héldu uppá Gunnu, bæði konur og
karlar, allir leyfðu sér að banka
uppá hjá henni ef eitthvað
gleymdist og allir mættu sömu
elskulegheitum. Einn, sem stund-
um vantaði tóbakið sitt, sendi
henni eitt sinn þessa vísu í skeyti:
„Alltaf er á þig að treysta
þó ekki sé pundið gefið
að opnir þú eftir lokun
ef mig vantar í nefið.”
Allir gátu leyft sér að grínast
við Gunnu og ekki spillti hennar
ágæti eiginmaður fyrir hlýlegheit-
unum og hjálpseminni. Hann hét
Einar Olafsson og ber verslunin
nafn hans. Viðskipti mín við hana
Gunnu mína heyra nú fortíðinni
til, en lífið heldur áfram og þróun-
in, nú er Einarsbúð nýtísku stór-
verslun sem einkasonur hennar
rekur með fjölskyldu sinni. Og nú
er hún 80 ára, þessi síunga og
elskulega kona.
Ég sendi henni og fjölskyldu
hennar mínar innilegustu ham-
ingjuóskir og bið þeim allrar
blessunar í framtíðinni, með
hjartans þakklæti fyrir gömlu
góðu árin.
Rut Guðmundsdóttir
U-BIX120
HENTAVÍÐA EFAÐ ER GÁÐ
ll'BÍX 120 Ijósritunarvélar eru fjölhæfar, ódýrar og taka lítið pláss.
Samt skila þær frábærum Ijósritum og henta þvl einstaklega vel I
fyrirtækjum með litla Ijósritunarþörf — eða í stærri fyrirtækjum þar
sem þörf er á litlum Ijósritunarvélum í einstökum deildum.
Gerð vélar Vinnmluhraði Þyngd
Boröliggjandi vél, með hreyfanlegri 12 Ijósrit A4 á mínútu. U.þ.b. 30 kg.
plötu og myndtromlu. _
litM rned
\okin\A !
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
w
Hverfisgötu 33 — Sími 20560
Pósthólf 377