Morgunblaðið - 06.11.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
49
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir EDWARD STEEN
Austur-Þjóðverjar eru iðnaðarstórveldi og lífskjör eru þar jafnbetri en annars staðar í Austur-Evrópu. Líklega
mun þó Berlínarmúrinn verða til að halda nafni stjórnvalda lengst á loft, hvort sem þeim líkar það betur eða
verr.
Austur-Þýskaland:
„Olnbogabörn Evrópu“ minnast
35 ára afmælis ríkisstofnunar
í fyrra mánuði var þess minnst í Austur-Þýskalandi, að 35 ár voru liðin
frá formlegri ríkisstofnun undir stjórn kommúnista. Að sjálfsögðu var þar
mikið um dýrðir, hersýningar og skrúðgöngur og mikil ganga „Hinnar
frjálsu, þýsku æsku“ þar sem unga fólkið hélt á kyndlum og ítrekaði
eindregna andstöðu sína við fasismann. 131 þjóð viðurkennir tilveru
austur-þýska ríkisins og erlendar sendinefndir voru margar viðstaddar
hátíðahöldin. Þrátt fyrir það var undarlega fátt um háttsetta menn,
jafnvel forystumenn annarra kommúnistaflokka í Austur-Evrópu létu sig
vanta. Það var helst, að flaggað væri með Henry Winston, formann
bandaríska kommúnistaflokksins, mann, sem sjaldan er getið fyrr en
hann kemur austur fyrir járntjaldið.
Eftir stanslausan áróður i
hálfan fjórða áratug er for-
vitnilegt að velta þvi fyrir sér
hvort þær 16 milljónir manna,
sem landið byggja, líta nú frem-
ur á sig sem Austur-Þjóðverja
en „hina Þjóðverjana". Hvort
þeir séu ánægðir með lífið og til-
veruna? Já, segja sumir og
benda á ókeypis læknisþjónustu
og öryggið, sem þeir búa við,
lifskjörin, sem eru þau bestu í
Austur-Evrópu, og ekkert at-
vinnuleysi.
3% horfa á austur-þýsku
fréttirnar
Einn meginþátturinn í opin-
berum áróðri í Austur-Þýska-
landi er atvinnuleysið á Vestur-
löndum og vestur-þýska sjó-
nvarpið leggur honum gott lið. Á
það horfa nefnilega 90% Aust-
ur-Þjóðverja. í leynilegri könn-
un, sem kommúnistaflokkurinn
lét gera og smyglað var úr landi,
kemur fram, að á fréttatíma
austur-þýska sjónvarpsins,
„Aktuelle kamera", horfa 3%
þjóðarinnar þegar hann hefst.
Einni mínútu síðar eru aðeins
0,1% enn að horfa á hann. Þess
er jafnvel gætt að flokksfundum
ljúki tímanlega til að menn geti
horft á „Dallas" í vestur-þýska
sjónvarpinu.
Andleg firring Austur-Þjóð-
verja er næstum alger — þeir
eru miklu betur að sér um
vestur-þýsk málefni en það, sem
fram fer í þeirra eigin landi. Það
er að segja að undanskildum
þeim, sem búa í Dresden-dæld-
inni, „Dal yfirgefna fólksins"
eins og hann er kallaður því að
þar sést ekki vestur-þýska sjón-
varpið. Venjulegt félagslif er
óhugsandi i Austur-Þýskalandi.
Stóri bróðir fylgist stöðugt með
þegnunum og ógjörningur að
vita hver er uppljóstrari og hver
ekki. Vinafagnaður og gálaus
galsi getur komið mönnum illi-
lega í koll.
Olnbogabörn Evrópu
„Er ég Austur-Þjóðverji?“
spyr mig 54 ára gamall leiðsögu-
maður í Austur-Berlín og svarar
sér sjálfur: „Nei, ég er Þjóðverji.
Ég á allt sameiginlegt með
Vestur-Þjóðverjum, sama tung-
umálið og sömu menningu. Það
hræðilega er bara, að við erum
Þjóðverjarnir, sem hafa verið
skildir eftir úti i kuldanum. Nú
orðið fer ég aldrei til hinna
kommúnistaríkjanna. „Ertu
Þjóðverji?" er ég spurður þar.
„Áustur- eða Vestur-? ó, Aust-
ur-, æ, æ.“ Ég þoli ekki að sjá
vonbrigðin lýsa sér út úr andlit-
unum. Við erum olnbogabörn
Evrópu.“
Austur-Þjóðverjar virðast
ekki láta sig dreyma um lýðræði,
heldur um betri íbúðir og bíla,
sem menn verða nú að bíða eftir
í 10 ár. Austur-þýska „lýðræðið“
er líka bara skrítla, eða hvers
vegna skyldi annars þurfa að
gæta þess með sjálfvirkum flísa-
byssum og alls kyns morðtólum
öðrum, sem upphaflega voru
smíðuð til að gæta útrýmingar-
búða nasista?
„Svo þú ert að skrifa um
Austur-Þýskaland," segir bresk-
ur sendimaður við mig. „Gættu
þess bara að hafa greinina dálít-
ið leiðinlega. Fyrir NATO-löndin
er skipting Þýskalands bæði
óafturkallanleg og alls ekki svo
slæmur kostur. Og hvers vegna
ekki að láta þar við sitja. Þeir
eru varhugaverðir, þessir Þjóð-
verjar.“ Eða eins og franskur
stjórnmálamaður sagði einu
sinni á sjötta áratugnum: „Mér
þykir svo vænt um Þýskaland, að
ég fagna því, að nú skuli þau
vera tvö.“
Einkennileg uppákoma
Þegar farið er um Checkpoint
Charlie yfir til Vestur-Berlínar
tekur við kapitalískt samfélag í
miðju Austur-Þýskalandi, borg,
sem á allt sitt undir pólitískum
vilja vestrænna ríkja, einkum
Bandaríkjamanna, og fáránlega
óréttlátum samningum við
Austur-Þjóðverja um vatn,
rafmagn og sorpeyðingu. Eitt
föstudagskvöldið býður kunningi
minn mér að koma og sjá dálítið
skrítið. Hátíðafund hjá Vestur-
Berlínardeild vestur-þýska
kommúnistaflokksins i tilefni af
35 ára afmælinu fyrir austan.
Á fundinum eru um 500
manns að hlusta á varaformann
flokksins, Dietmar Ahrens,
flytja með eindæmum leiðinlega
ræðu, nokkurs konar skopstæl-
ingu á trúarjátningu kommún-
ista hinum megin við múrinn.
Hún er að sjálfsögðu aðallega
um frið og ögranir Vesturlanda
og Ahrens hneykslast á því, að
fólk skuli vera að „finna að frels-
is- og lýðræðisskorti í Austur-
Þýskalandi því að hvar annars
staðar hefur farið fram jafn
mikil umræða og þar um nýju
stjórnarskrána?"
Á eftir klappar Ahrens fyrir
sjálfum sér að hætti Austan-
tjaldsmanna. Áheyrendur eru
flestir aldrað fólk, menn, sem
gengu kommúnismanum á hönd
fyrir stríð og sem síðan hefur
ekki rjátlast af þeim.
í næsta húsi við samkomuna
er veitingastaður þar sem
Vestur-Berlínarbúar gæða sér á
öli og „Eisbein", svínakjötsrétti,
sem er mjög vinsæll í borginni,
og virðast ekki hafa hugmynd
um hátíðahöldin hjá „hinum
Þjóðverjunum". Vestur-Berlín-
arblöðin hafa heldur ekki séð
ástæðu til að segja mikið frá
þeim.
„Hinir Þjóðverjarnir eru allt-
af í einhverjum skrúðgöngum,“
segir maðurinn við hóteldiskinn
við mig dálítið kankvís. „Og
núna er það 35 ára afmælið, seg-
irðu. Það er nú það, ég geri lítið
af því að fara austur yfir. Góða
nótt.“
Kdward Steen er frcttamaður hji
breska blaðinu „The Sunday Tele-
grapb".
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miöstöðin getur tekiö viö og sýnt bæöi
frost og hita, t.d. Celcius h-200+850 eöa 0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og meö mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu riö- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast meö afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, fryst-
um, lestum, sjó og fleira.
SötLt»rCmЮ(Uji!’ c=Di&(rii©©®(rti & (S®
Vesturgötu 16. Símar 14680 — 13280.
RiVKJAVIK, ICKLAND
Appleworks
Applework er nýr hugbúnaður fyrir Apple // e og Apple // c
tölvur, sem sameinar í einu kerfi ritvinnslu, töflureikni og
gagnavinnslukerfi. Þannig samtenging kerfa í eina samstæða
heild býður uppá áður óþekkta möguleika við tölvuvinnslu og
er til mikils hagræðis fyrir notandann.
MARKMIÐ:
Á námskeiðinu verður farið yfir öll grundvallaratriði við
vinnu í Appleworks og allar skipanir kerfisins útskýrðar. Til-
gangur námskeiðsins er að gefa þátttakendum góða undir-
stöðuþekkingu á Appleworks, þannig að þeir geti að námskeiði
loknu unnið við alla verkþætti kerfisins hjálparlaust.
EFNI:
— Ritvinnsla.
— Gagnavinnsla.
— Áætlanagerð og útreikningar.
— Flutningur gagna milli verkþátta.
— Útprentun.
— Varðveisla gagna.
— Meðferð búnaðar.
ÞÁTTTAKENDUR
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er áhuga hafa á að kynnast
og þjálfast í notkun Appleworks.
LEIÐBEINANDI:
Ellert Steindórsson, stjórnsýslufræð-
ingur. Lauk prófi frá Uppsalaháskóla
1983 en starfar nú hjá hagdeild Fjár-
laga og Hagsýslustofnunar.
Tími — Staður: 12.-15. nóvember kl: 9-13.
Síðumúla 23.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930.
STJÓRNUNARFÉIA3
ÍSIANDS l»23