Morgunblaðið - 06.11.1984, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 06.11.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 51 „Hagfræði og stjórnmál" — eftirJónas Pétursson Verkföll, verkföll! Þetta haust hefir talsvert borið merki slíkra fyrirbæra. Blöðin hættu útkomu fyrir miðjan september vegna verkfalls „bókagerðarmanna"! En rétt í þann mund kom frétt í út- varpinu frá Bretlandi þar sem sagt var frá því að „verðbólga" þar hefði vaxið síðasta mánuð um 0,5%, úr 4,5 í 5%! Og ástæðan? Jú, hún fylgdi fregninni: Aðalástæðan var hækkun vaxta í Bretlandi skömmu áður! Það væri sanngjörn ósk til hagspekinga Seðlabankans hér að þeir kynntu íslenskum al- menningi í hverju villa Bretanna er fólgin! Allir vita viðleitni og til- burði Seðlabankans hér að hækka vextina og ekki um neitt smáskítti til að halda niðri verðbólgu! Eða er það ekki markmið? En út frá þessum vaxta- og verðbólgumálum vil ég minna á bók dr. Magna Guðmundssonar, Hagfræði og stjórnmál, er út kom sl. sumar. A þeirri bók var mikil þörf fyrir þá sérstaklega sem í at- vinnurekstri standa, fyrir þá at- hafnamenn, sem vita hvar skórinn kreppi að. Bók dr. Magna er ekki stór, um 130 blaðsíður, en þétt sett og letursmá. Hún skiptist í þrjá aðalkafla, auk inngangs um stjórnmál, svo sem kjördæmaskip- an. Kaflarnir heita: 1. Verðlags- stjórn, 2. Stjórn peningamála, 3. Skattakerfið. Að lokum eru álykt- unarorð og nokkrar töflur og línu- rit í viðauka. Allir eru þessir kafl- ar athyglisverðir og áhugaverðir, líka fyrir áhugasama alþýðumenn um efnahagsmál. Nefni ég þá fyrst kafla 2: Stjórn peningamála. Fjöldi manna hlýtur á liðnum árum að hafa veitt Magna Guð- mundssyni athygli fyrir fjölda blaðagreina og erindi um daginn og veginn í útvarpinu, þar sem ef- nahagsmálin hafa verið aðaluppi- staða umræðunnar. Þorri íslend- inga ætti að vita að rödd hans hef- ir verið gagnrýnin á þær aðferðir, sem beitt hefir verið við stjórn efnahagsmála um langa hríð og jafnframt bent á leiðir og aðgerð- ir, sem skilað hefðu íslenskri þjóð Jónas Pétursson á farsælli braut á liðnum árum en raun ber vitni. Þess vegna hvet ég alla þá er hleypidómalaust vilja kynna sér efnahagsmálin í víðri merkingu að lesa vandlega þessa bók dr. Magna: Um hagfræði og stjórn- mál. Hún hefir furðu lítið verið kynnt, en væntanlega fæst hún í einhverjum bókaverslunum. Hér á Austurlandi fæst hún í Bókaversl- un Sigurbjörns Brynjólfssonar við Lagarfljótsbrúna, svo dæmi sé nefnt. Jónati 1‘étursson er tyrnenndi nl- þingismaður. Bókun gerö á fundi stjórnar Landsvirkjunar Eftir ÓlafRagnar Grímsson Olafur Kagnar Grímsson, fulltrúi Alþýóubandalagsins í stjórn Lands- virkjunar, hefur beðið Mbl. að birta eftirfarandi bókun, sem hann lét gera á stjórnarfundi í fyrirtækinu 1. nóvember sl.: Þegar Alþýðubandalagið undir forystu fyrrv. iðnaðarráðherra hóf baráttu fyrir hærra orkuverði til Alusuisse og sýndi fram á svik fyrirtækisins í viðskiptum við ís- lendinga, voru margir aðstand- enda ISAL-samningsins andvígir þessari stefnu. Þeir töldu gildandi samning góðan og vöruðu við ásökunum i garð Alusuisse. Niðurstaða viðræðnanna við Alusuisse nú felur í sér fulla við- urkenningu á því að krafan um endurskoðun var rétt. Alusuisse hefur nú samþykkt að tvöfalda orkuverðið og játar sekt sína með því að fallast á 100 m.kr. sektar- greiðslu. Þessum áfanga í barátt- unni ber því að fagna. Hann er ávöxtur þess mikla undirbúnings- starfs sem fyrrv. iðnaðarráðherra hafði forystu um. Engu að síður er fyrirliggjandi niðurstaða í upp- kasti að nýjum samningi engan veginn viðunandi. Helstu ástæð- urnar eru þessar: 1. Orkuverðið til Alusuisse yrði samkvæmt hinum nýja samn- ingi töluvert undir kostnaðar- verði á framleiddu rafmagni í núverandi virkjunarkerfi Landsvirkjunar. Orkuverðið samrýmist því ekki þeim arð- gjafarkröfum sem gera verður ef eðlileg uppbygging Lands- virkjunar á heilbrigðum fjár- hagsgrundvelli á að verða að veruleika. 2. Með þessum samningi er Landsvirkjun að halda inn á þá hættulegu braut að tengja orkuverð afkomu stóriðjufyr- irtækjanna og heimsmarkaðs- verði á málum. Engin alvarleg umræða hefur farið fram í stjórn Landsvirkjunar um slíka stefnu f sölumálum þótt undir- ritaður hafi á sl. 12 mánuðum ítrekað óskað eftir að hún færi fram. 3. Nýlega hafa verið gerðir samn- ingar og felldur gerðardóms- úrskurður um orkuverð til ál- vera í Grikklandi og Ghana sem gefa mun hærra verð en þessi samningur. 4. Orkuverðið til ÍSAL yrði áfram verulega minna en orkuverðið sem Alusuisse þarf að greiða í öðrum löndum. 5. Endurskoðunarákvæðin í samningnum eru mjög óljós og fslendingum óhagstæð. Þau veita ekki vonir um að hægt verði að hækka orkuverðið eftir 5 ár. 6. Áhrif verðbólgu og gengis- breytinga eru mjög vanmetin í samningum og munu, ef ekki fæst veruleg bót við endurskoð- un eftir 5 ár, gera samninginn í framtíðinni verulega óhagstæð- ari en hann er nú. Auk þessara sex ástæðna er óhjákvæmilegt að geta þess að Alusuisse er sleppt við að hlíta úr- skurði gerðardóms í deilumálum fyrri ára. Fyrirtækið fær að sleppa með 100 m.kr. sekt, þegar krafa Islendinga um endurskoðun var þrisvar sinnum hærri, enda sýna nýjar upplýsingar um árið 1983, að Alusuisse heldur áfram fyrri svikum. Einnig á eftir að semja um ný skattaákvæði og bendir ýmislegt til að þar geti Alusuisse fengið til baka hluta af þeirri orkuverðshækkun sem felst í hinum nýja samningi. Til viðbót- ar kemur svo hagnaðurinn sem launastefna ríkisstjórnarinnar hefur fært fyrirtækinu í gegnum fjórðungsskerðingu á launa- greiðslum til starfsmanna ÍSAL. Því er Ijóst, að reikningsuppgjör íslendinga og Alusuisse er enn í ósamræmi við hagsmuni og eðli- legar kröfur íslendinga. Með tilvísun til fyrrgreindra at- riða greiði ég atkvæði gegn hinum nýja samningi og legg til að stjórn Landsvirkjunar hefji umræður um ný vinnubrögð og aðrar leiðir í samningum við stóriðjufyrirtæki. Ólafur Kagnar Grímsson Flugskýlió Egilsstaðir: Flugklúbbur byggir yfir farkosti sína Egilastöðum, 31. oktöber. FYRIR nokkru fognuðu félagar í Flugklúbbi Egilsstaða því að þeir höfðu lokið við að byggja yfir vélar sínar hið ágætasta fiugskýli. Af því tilefni buðu þeir til sín gestum, sögðu frá starfsemi klúbbsins, röktu byggingarsögu skýlisins, báru fram veitingar og buðu gest- um síðan í útsýnisflug yfir Egils- staðL Flugskýlið er að öllu leyti reist í sjálfboðavinnu félaga Flugklúbbs Egilsstaða og ann- arra velunnara hans — en nærri lætur að efniskostnaður við skýl- ið nemi um 120 þús. krónum. Skýlið er járnklætt stálgrind- arhús á steyptum grunni — og nálgast gólfflöturinn 150 fm svo að nóg rými er í hinu nýja flugskýli fyrir þá tvo farkosti er klúbburinn á nú. f sumar efndi Flugklúbbur Eg- ilsstaða til sérstaks flugdags á Egilsstöðum sem tókst með af- brigðum vel — og varð hagnaður slíkur að klúbbfélagar gátu reist flugskýlið fyrr en ella. Félagar í Flugklúbbi Egils- staða eru nú um 30 talsins. For- maður klúbbsins er Þórhallur ÞorSteinsson, gjaldkeri Sigurþór Steinarsson og ritari Broddi Bjarnason. - Ólafur Flugvélar Flugklúbbs Egilsstaða. Ljósm. Mbl./Ölafur. F0TSKEMILL AF FULLKOMNUSTU GERÐ fótskemillinn er hannaður í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara og skrifstofufólk, stöðugur og auðveldur í meðförum. Þú stillir hallann sjálfur, velur honum hentugan stað framan viö stólinn og finnur fljótt muninn á að hvíla fæturna á stöðugu gúmmíi í þægilegri hæð. VERÐ AÐEINS KR.1.100 Hringið í síma 8Z420 og fáið allar nánari upplýsingar. 7 UNDlRSTftÐR skrSfustarfs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.