Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 40

Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 40
52 MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 Minning: Gísli Gestsson safnvöröur Fæddur 6. maí 1907 Dáinn 4. október 1984 Nú í lok sumars lézt Gísli Gestsson, fyrrverandi safnvörður við Þjóðminjasafn íslands, eftir nokkurra mánaða vanheilsu. Þar með hafði síðasti safnmaðurinn af gömlu kynslóðinni kvatt, fjölhæf- ur starfsmaður og fjölvís fræði- maður, sem íslenzkir menningar- fræðingar eiga margt gott upp að inna. Gísli fæddist að Hæli í Gnúp- verjahreppi 6. maí 1907, sonur hjónanna þar, Gests Einarssonar og Margrétar Gísladóttur. Hann var elztur sex systkina og lézt fyrstur þeirra, en Einar bróðir hans, bóndi á Hæli, lézt aðeins tíu dögum síðar. Gestur á Hæli var þekktur mað- ur á sinni tíð, athafnasamur bóndi og frömuður um samtök bænda, en hann dó ungur árið 1918. Mar- grét ekkja Gests hélt áfram búi á Hæli þar til synir hennar tóku við og þar lézt hún í hárri elli. Hún var músíkölsk, kirkjuorganisti og kenndi á orgel. Þau Hælssystkinin tóku söng- og hljómlistaráhuga að erfðum og þar á Hæli var löngum menningarheimili í fremstu röð. Þarna ólst Gísli upp við hin venjulegu sveitastörf, gekk síðan í Menntaskólann i Reykjavík og lauk stúdentsprófi vorið 1926. Síð- an stundaði hann nám við Poly- teknisk Læreanstalt í Kaup- mannahöfn og lagði stund á efna- verkfræði allt til ársins 1930, er hann hvarf heim. Árið 1931 kvæntist Gísli Guð- rúnu handavinnukennara Sigurð- ardóttur, skólastjóra við Miðbæj- arskólann Jónssonar. Hún lifir mann sinn ásamt fjórum börnum þeirra, önnu íþróttakennara, Margréti forverði við Þjóðminja- safnið, Sigrúnu lyfjafræðingi og Gesti jarðfræðingi. Árið 1931-1951 var Gísli starfsmaður Landsbanka íslands, en þá gerðist hann safnvörður við Þjóðminjasafn íslands og þar starfaði hann síðan alla tíð þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir í lok ársins 1977. Hér í Þjóðminjasafninu var því drýgstur hluti starfsdags Gísla Gestssonar. Mun ekki ofmælt að hann hafi átt stóran þátt í að skapa yfirbragð og útlit safnsins, það er að almenningi snýr, og móta ýmsa þætti í starfsemi þess. Gísli kom í þjónustu safnsins á miklum breytingatímum þess, er það var að flytjast úr þrengslun- um upp á Safnahússlofti og í ný- reista safnhúsið á Melunum. Þá beið mikið starf við skipulag og uppsetningu í sýningarsölum, sem þeir unnu mest að Gísli og Krist- ján Eldjárn ásamt Stefáni Jóns- syni. Naut sín hér hagleikur og sinekkvísi Gísla. Er það trúa mín, að hér hafi Gísli Ient á réttri hillu í lífinu, því að þótt hann lærði ekki til safnstarfa varð hann brátt mjög fjölhæfur starfsmaður, afl- aði sér staðgóðrar og alhliða þekk- ingar í menningarsðgu og hafði umfram allt þá skörpu dómgreind og góðu þekkingu á landi, sögu og þjóð, sem notadrýgst verður safn- manninum í hans daglega starfi og enginn kemst í rauninni neitt án. Það var víst nánast tilviljun, að Gísli réðst að safninu. Hann greip í verk með Kristjáni Eldjárn aust- ur í Þjórsárdal við rannsókn bæj- arins í Sandártungu, og því varð úr að hann réðst safnvörður er starf losnaði árið 1951. Gat Kristján þess oft hvert happ það hefði verið sér og safninu að fá Gísla til starfa, svo fjölhæfan og áhuga- saman mann, sem gat gert nærri því hvað sem gera þurfti. Var enda ekki vanþörf á. Starfsliðið var fámennt, safnið mjög í mótun og starfsmenn þurftu að geta gripið í nánast hvaöa verk sem var Einkenni á störfum Gísla hér í safninu voru einkum þau að allt sem hann lagði hönd að var af mikilli smekkvísi og hagleik gert. Hann var þá þegar þekktur áhugaljósmyndari og hafði tekið mikið af myndum víða um landið, svo sem menn sjá t.d. í Árbókum Ferðafélagsins, en í Ferðafélaginu var Gisli mjög virkur félagsmaður og í stjórn þess um langt árabil, enda þrautreyndur ferðamaður. Það kom því skjótt á herðar Gísla að annast að mestu leyti alla ljósmyndavinnu Þjóðminjasafns- ins, bæði myndatökur við rann- sóknir og þó ekki sízt myndatökur af gripum safnsins, sem ævinlega þurfti að vera að ljósmynda, bæði vegna beiðni um myndir annars staðar frá svo og vegna rannsókna safnmanna sjálfra og skrifa þeirra um gripi safnsins. Má t.d. sjá árangur þess í bókum dr. Kristjáns Eldjárns, Kuml og haugfé, og þó einkum Hundrað ár í Þjóðminjasafni, en myndirnar þar eru flestar eftir Gísla. Mark- aöi Hundrað ár í Þjóðminjasafni í rauninni tímamót vegna glæsilegs og vandaðs frágangs og fór saman snilldarlegur texti Kristjáns og ljósmyndir Gísla, sem voru hreint frábærar á þeim tíma, er litmynd- ir sáust enn ekki í bókum að neinu marki. Og vart hefur komið svo út bók um íslenzka menningarsögu síðari árin, að þar væru ekki fleiri eða færri myndir eftir Gísla. Er ómetanlegur sá forði, sem hann skildi safninu eftir í myndum og munu fræðimenn lengi njóta góðs af honum. Þekking Gísla á efnafræði kom sér vel við forvörzlu safngripa. Hann var nánast hinn eini, sem gat fengizt við forvörzlu, þar til nú hin síðari ár að komnir eru sér- lærðir forverðir að safninu. Það voru einkum hlutir úr málmi og tré, sem hann hreinsaði og styrkti, og eyddi hann framan af árum mikilli vinnu og tíma í slíkt björg- unarstarf. Hann sótti námskeið í því efni og hélt uppi góðu sam- bandi við forverði og safnmenn í nágrannalöndunum, sem allir mátu Gfsla mikils. Starf sitt vann Gísli ekki ein- ungis í Þjóðminjasafninu eða á þess vegum, heldur vann hann einnig mikið fyrir byggðasöfnin. Hann setti upp að miklu leyti söfnin á Selfossi, á Isafirði og Reykjum í Hrútafirði. Og eins og í Þjóðminjasafninu var þetta unnið af smekkvísi og natni, þar sem áhugi og staðgóð þekking hans á menningarsögunni og gildi safngripa naut sín vel. Auk ljósmyndanna munu forn- leifarannsóknirnar halda nafni Gísla hvað lengst á lofti, því að hann var bæði nákvæmur og vandvirkur og dró fram í dagsljós- ið áður lítt kannaða hluti, einkum með rannsóknum miðaldabæja. Hann vann fyrst með Kristjáni Eldjárn í Gjáskógum og síðar á Bergþórshvoli. Hann tók mikinn þátt í hinum viðamiklu rannsókn- um í Skálholti svo og á Reyðarfelli og í Hvítárholti, og einnig í L’anse aux Meadows á Nýfundnalandi. Þá rannsakaði hann ýmis fornkuml og gerði aðrar athuganir, mældi upp og myndaði fjölda staða um landið til að afla heimilda og bjarga vitneskju um það sem óþekkt var fyrir eða eyðingu und- irorpið. Gisli stóð sjálfur fyrir tveimur mjög umfangsmiklum og merki- legum rannsóknum, annars vegar á miðaldabæ í Gröf í Öræfum, sem fór í kaf í gjósku í Öræfajökuls- gosinu 1362, og á stórbæ með kirkju í Kúabót í Álftaveri, sem farið hefur í eyði á síðmiðöldum. Hann skrifaði mjög ítarlega og merkilega ritgerð um Gröf, sem kom f Árhók fornleifafélagsins 1959, en ekki auðnaðist honum að ljúka ritgerð sinni um Kúabótar- rannsóknirnar. En þetta eru eink- um merkilegar rannsóknir fyrir það, að fátt hefur verið rannsakað miðaldaminja og því eru þessar rannsóknir eins og stiklur í eyð- urnar um það tímabil. Báðar þess- ar rannsóknir stóðu yfir I mörg sumur og tókst Gísla að ljúka Kúabótarrannsóknunum, að svo miklu leyti sem lokið mátti verða, þótt hann væri þá ekki lengur heill heilsu. Og þá naut hann eins og oftar styrks af Guðrúnu konu sinni, sem dvaldist mörg sumurin þar eystra og ráðskaði fyrir upp- graftarliðið. Að auki annaðist Gísli eftirlit og viðgerðir ýmissa gömlu bygg- inganna, sem safnið á. Þannig sá hann um endursmíð bænhússins á Núpsstað og bæjarins í Selinu í Skaftafelli, sauðahúss í Álftaveri og veiðimannakofa við Veiðivötn, og hann var fulltrúi safnsins i byggingarnefnd Þjóðveldisbæjar í Þjórsárdal og formaður bæjar- stjórnar þar síðan. Þannig var aragrúi verkefna, smárra og stórra, sem Gísli vann safninu utan veggja þess og innan og má sjá nokkurn árangur þess í fjöl- mörgum greinum hans í Árbók fornleifafélagsins og víðar, en margt annað eru svo verk, sem maður veitir stundum lítt athygli daglega, en tæki eftir ef óunnin væru. Gísli var skemmtilegur og þægi- legur samstarfsmaður á vinnustað og fróður og frásagnaríkur ferða- félagi. Hann var léttur í lund, spaugsamur og smáglettinn stundum og brást alltaf vel við er til hans var leitað. Lét hann oft erindi annarra ganga fyrir sinum eigin og var oftast fljótur að greiða úr, ef einhvern vantaði mynd eða ef leita þurfti uppi hlut, sem hann vissi kannske helzt deili á, hvar komið hefði verið fyrir á sínum tíma. Hann var mjög stofn- unarhollur og gat þykkzt við, ef honum fannst hallað á Þjóðminja- safnið eða starfsemi þess að ósekju. Frá 1970 var Gísli fyrsti safn- vörður og staðgengill þjóðminja- varðar. Naut ég hans í mörgu og var gott til hans að leita um ráð og úrræði. Eftir að Gísli hætti störfum í Þjóðminjasafninu var hann tíður og oft daglegur gestur í safninu. Bæði vann hann meira og minna að frágangi rannsókna sinna i Kúabót, svo greip hann í að ljós- mynda eða í ýmsar smáathuganir, og einnig var hann féhirðir forn- leifafélagsins um langt árabil og átti margt erindið þess vegna. A stundum var það þó aðeins erindið að heilsa upp á gamalt samstarfs- fólk. Sl. sumar fékk Gísli hjartaáfall öðru sinni. Hann lá alllengi á sjúkrahúsi en þótt hann kæmist þaðan fékk hann ekki starfsþrek á ný. Hann hélt þó andlegri heilsu og var léttur í sinni að vanda er ég heimsótti hann síðast í Stigahlíð- inni. En ljóst var þó, að vart yrði framar lagt í gönguferðir eða úti- legur og ekki framar grafið í haug eða bæjarhól til að krefja sagna um hætti fortíðar. Gísli Gestsson lézt að heimili sínu 4. október og var jarðsettur 13. sama mánaðar. Honum fylgdi fjöldi vina og samstarfsmanna, sem allir söknuðu góðs félaga og hollvinar. Þór Magnússon Kveðja frá Ferða- félagi íslands Gísli Gestsson fæddist á Hæli í Gnúpverjahreppi 6. maí 1907. For- eldrar hans voru hjónin Margrét Gísladóttir og Gestur Einarsson bóndi þar og um skeið mikill um- svifamaður um verslunar- og fé- lagsmál, en hann andaðist á góð- um aldri úr spönsku veikinni 1918. Þau Hælishjón voru bæði af grón- um og gegnum bændaættum i uppsveitum Árnessýslu. Gísli var ungur settur til mennta og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykjavík 1926. Sigldi siðan til Kaupmanna- hafnar og nam verkfræði um fjög- urra ára skeið en hvarf þá frá námi og gerðist starfsmaður i Landsbankanum. Varla mun það á almanna vitorði hvað olli þessari ráðabreytni, en varla fer þvi fjarri að bágar atvinnuhorfur verkfræð- inga um þær mundir komi þar við sögu. Ungum verkfræðingi stóð þá varla annað til boða en léleg tima- kennsla og harla óvissar snapir. Gísli gegndi bankaritarastarfi í tuttugu ár, en réðst sem safnvörð- ur að Þjóðminjasafninu árið 1951 að frumkvæði Kristjáns Eldjárns, sem hann hafði unnið með um hrið að fornleifarannsóknum i sumarleyfi sínu. Þeirri stöðu gegndi Gísli svo til ársins 1978, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir og hin siðari ár var hann varaforstöðumaður þess. Þótt Gísli léti af störfum hélt hann áfram fornleifarannsóknum með- an heilsa og þrek entist. Siðasta meiri háttar verk hans var að grafa upp fornar bæjarrústir austur í Álftaveri. Hafði hann lok- ið rannsókninni, en ekki unnið úr þeim að fullu. Gísli ritaði fjölda ritgerða um fornminjarannsóknir sinar og birtust þær flestar í Árbók Forn- leifafélagsins og þóttu vandaðar að efni og úrvinnslu. Þótt hann væri ekki fornleifafræðingur að námi er ekki að efa, að verkfræði- námið kom honum að góðu haldi við rannsóknir og önnur þau verk- efni er tengdust fornminjavörsl- unni. Auk þess var Gísli hagleiks- maður ágætur, sem oft kom sér vel í fámennri og vanbúinni stofn- un. Hann var kjörinn félagi í Vís- indafélagi íslendinga. Gísli kvæntist 1931 Guðrúnu Sigurðardóttur handavinnukenn- ara, dóttur Sigurðar Jónssonar skólastjóra Miðbæjarskólans og konu hans, önnu Magnúsdóttur kennara. Eignuðust þau hjón fjög- ur börn, einn pilt og þrjár stúlkur, sem öll eru á lífi. Siðustu árin var Gísli nokkuð farinn að heilsu, en á liðnu vori varð hann fyrir alvar- legu hjartaáfalli og andaðist snögglega að kvöldi hins 4. októ- ber, 77 ára að aldri. Útför hans fór fram frá Dómkirkjunni 13. októ- ber að viðstöddu fjölmenni. Þau Guðrún og Gísli voru miklir náttúruunnendur og hófu snemma ferðalög víða um landið, ekki sist um öræfi og fjallvegu. Gerðist Gísli nú brátt mikill áhugamaður um ljósmyndagerð og var um hríð með kunnustu ferðagörpum og áhugaljósmyndurum landsins. I þá daga var um fátt annaö að ræða en að taka poka og tjald á bakið og þramma úr hlaði fót- gangandi, þó að nú þjóti bilar þessar sömu slóðir þverar og endi- langar. Hér var það sem leiðir Gísla og Ferðafélags íslands mættust. Hann var kosinn í stjórn félagsins 1939 og sat þar til 1976 eða í 37 ár. Aðeins einn maður annar hefur átt þar lengri setu. Gísli ritaði eina af árbókum fé- lagsins. Fjallar hún um Árnes- sýslu milli Hvítár og Þjórsár og kom út 1956. Auk byggðarinnar lýsir Gísli hálendinu inn til jökla og hinni fornu Sprengisandsleið að vaði á Þjórsá við Sóleyjarhöfða eða inn til Arnarfells. Er bókin meðal hinna bestu árbóka og koma þar glöggt fram gerhygli höfundarins og vönduð vinnu- brögð. En auk þess átti hann drjúgan þátt í gerð annarra árbóka, því að löngum sat hann í nefnd þeirri er annaðist öflun mynda og val þeirra, og sjálfur hafði hann tekið ýmsar þeirra. Auk þess á hann nokkrar smærri greinar í nokkr- um árbókanna. Á stjórnarfundum hafði Gísli sig að jafnaði ekki mikið i frammi en var tillögugóður og flaustraði ekki að neinu og vannst drjúgum á i málflutningi, og eðlislæg hóg- værð aflaði honum trausts sam- verkamanna sinna. Gísli var fjölhæfur gáfumaður með fjölþætt áhugamál á sviði fræða og lista. Þannig var hann mikill músíkunnandi og sögumað- ur ágætur, glaður og reifur í hópi kunningja og vina, maður sem ávinningur var að kynnast og starfa með. Ferðafélag íslands kveður nú einn af sínum traustustu og elstu félögum og sendir nú síðbúna samúðarkveðju til eiginkonu hans, barna og annarra aðstandenda. Endurminningin merlar æ í mánasilfri hvað, sem var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi fjarlægðar, gleðina jafnar, sefar sorg, svipþyrping sækir þing í sinnis hljóðri borg. (Gr. Th.) Þegar ég var barn, sagði amma mín mér einhverju sinni frá því, að sér væri það ógleymanlegt, er hún leit i fyrsta sinn í augu elsta barnsins sins, hans Gisla. „Þessi augu voru svo róleg og skýr, þegar þau horfðu á mig, fannst mér þau geta sagt mér frá einhverju óþekktu, einhverju merkilegu, sem við dauðlegar manneskjur kunn- um ekki skil á.“ Þetta sagði amma. Við lát Gísla frænda mins og velgjörðarmanns er sem tíminn hafi stöðvast andartak — minn- ingarnar leita á hugann ein af annarri. — Það er að áliðnu sumri, ég er barn heima á Hæli. Eftir- vænting liggur i lofti. Mér hefur verið sagt, að í dag eigi að drekka töðugjöldin, en þó ekki fyrr en áætlunarbíllinn sé kominn. Með honum er von góðra gesta úr Reykjavík. Gunna og Gisli eru væntanleg. Við krakkarnir ein- blínum fram i Vonarskarð. Að lok- um bólar á gangandi fólki, og þá megum við hlaupa á móti því. Heima bíður rjúkandi súkkuíaði og lummur, og svo er hægt að fara að syngja, því að nú er Gísli kom- inn. Bræðurnir syngja fyrst einir gamlan töðugjaldabrag, sem Gísli gerði áður en hann fór að heiman: Taðan hirt og túnið autt, tððugjöldin kalla. Þrátt fyrir sumar þurrkasnautt, þrátt fyrir storma alla. Svo var stælt í strákum þel að stormurinn varð að gjalti. Við höfum unnið allir vel, allir, líka Hjalti. Við hlustum öll hrifin, amma ljómar af gleði og vöknar örlitið um augu. Svo tekur Gísli fjárlögin og spilar á orgelið, og nú syngja allir með: Heiðstirnd bláa hvelfing nætur, Þú stóðst á tindi Heklu hám, Vængjum vildi ég berast og jafnvel latínu, Gaudeamus igitur. — Já, þetta er hátið. Það er ann- ars skrftið að það skuli oftast vera hátíð heima, þegar þau koma Gunna og Gísli. Hann Gísli segir ekki alltaf margt, og stundum er ég feimin við hann, en samt er hátíð þegar hann er. Það er kannske af þvi að hann getur bæði búið til lög og vísur, og svo getur hann spilað á orgelið. — Næsta dag er svo gengið upp i Grófarás. Ég fæ alltaf að dinglast aftan í Önnu, Möggu og Sigrúnu, þegar þær fara eitthvert með mömmu sinni og pabba. 1 Grófarásnum eru bæði tré og blóm, sem Gísli vill líta eftir. Hann kann nöfn á þeim öllum og segir okkur þau ef við spyrjum. Síðan er gengið upp á Langhamra, inn i Smjörvörðuás og jafnvel upp á Hlíðarkistu. Gísli er oft þögull, en maður veit, að það er sama um hvað hann er spurður: örnefnin nær eða fjær, blóm, grös, steina, öllu getur hann leyst úr, og það gleður hann að finna áhuga samferðafólksins fyrir því sem fyrir augu ber. Mér finnst, þegar ég lít tíl baka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.