Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
61
\féL?AKANDI
SVARAR j SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
wr/JAiwaæ'uu
Eru allir „jafnir“
í skólum landsins?
„Ekki-skólamaður" skrifar:
Ágæti Velvakandi.
Á undanförnum dögum hefur
mikið verið talað um skólamál
og þar borið ýmislegt á góma,
sem þyrfti að ræða betur. Ég er
ekki kennari heldur bara venju-
legur borgari. Nú bárust þær
fréttir að í einhverjum skóla
hefðu kennarar tekið bækurnar
af börnunum og læst þær inni
þegar þeir fóru sjálfir í verkfall,
að mér skilst til þess að koma í
veg fyrir að börnin gætu litið í
bók og fræðst sjálf á meðan. Mér
þótti þetta dálítið skrítið, því
hingað til hefi ég alltaf haldið að
þeim mun meira sem börnin
lærðu og fræddust þeim mun
betra. Hélt ég satt að segja að
það væri í þeim tilgangi sem við
gerum börn skólaskyld og höld-
um uppi dýru skólakerfi. Sem
sagt að það væri til þess að börn-
in lærðu. Það var það að minnsta
kosti þegar ég var í skóla.
Nú er mér sagt að þetta hafi
verið gert af „kennslufræði-
legum" ástæðum. Til að mis-
muna ekki þeim sem ekki mundu
líta í bækurnar þó þau hefðu
þær. Og nú spyr ég: Eru þá kenn-
ararnir farnir að líta á sig sem
einhverja varðhunda til að
tryggja það að börn sem geta
lært meira en hin geri það ekki?
Og að þau börn sem gætu fengið
hjálp af einhverju tagi utan við
skólann fái hana ekki? Ánnars
geti þau orðið duglegri í skólan-
um eða fari fróðari út í lífið en
börnin sem ekki geta eða vilja
læra? Og ef að þetta er að mis-
muna börnum, hvar á þá að
draga mörkin? Á þá að draga af
öllum sem eru duglegri eða betur
að sér en einhver í bekknum eða
skólanum. Þá væntanlega þann-
ig að enginn fari fram úr þeim
sem minnst getur. Það sé skað-
legt. Ég skil satt að segja ekkert
í þessari „hugmyndafræði" og
þætti gaman að vita hvar mörk-
in liggja ef allir eiga að koma
hnífjafnir og nákvæmlega jafn-
fróðir út úr skólunum.
Jafnrétti
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Hefur karlmaðurinn gleymt því,
að í flestum tilfellum er konan
betri parturinn og í mörgum til-
fellum fjölhæfari? Hún fæst oft
við vandasamari störf en hann og
má þar nefna uppeldisstörf. Einn-
ig eru heimilisstörfin erfið og út-
heimta mikla vinnu, sem karlmað-
urinn skilur oft ekki nægjanlega
vel. Ofan á þetta bætist svo að
margar konur þurfa að vinna úti.
Ég hef oft haft samúð með kven-
þjóðinni, því mér finnst að við
karlmennirnir séum ekki nógu til-
Sadofoss
LÍM OG ÞÉTTIEFNI
ft
Rubboraoal 1K
(ttturinn
Síðumúla 15, sími 84533.
karla og kvenna
litssamir gagnvart henni.
Karlmaðurinn verður að bíta í
það súra epli, að kvenþjóðin er
betri og skal ég nefna nokkur
dæmi því til sönnunar Hvenær
hafa konur barið eiginmenn sína
til óbóta og hvenær hafa þær
drepið þá? Ekki veit ég til þess, að
konur fari um með ránshendi,
fremjandi innbrot með stórþjófn-
aði fyrir augum. Hvenær hafa
konur nauðgað? Allt þetta hafa
karlmenn gert og margt fleira,
sem of langt mál yrði að telja upp.
Öll þau dæmi, sem ég hef nefnt,
sanna, að konan er betri partur
mannsins. Og fyrst ég er farinn að
tala um stöðu konunnar í þjóðfé-
laginu, langar mig að fjalla lítil-
lega um stöðu kvenna gagnvart
þjóðmálum og stjórnmálum. Ég
vil þá byrja á að skora á Kvenfé-
lagasamband Islands að beita sér
fyrir því, að konur snúi sér meira
að stjórnmálum en verið hefur.
Ær gætu sjálfar átt sinn stjórn-
málaflokk og valið sér þar með
sína fulltrúa á þing. Margir þing-
manna, karlkyns, eru orðnir svo
staðnaðir, að það er mál til komið
að hleypa inn nýju blóði, sem best
væri gert með því að fá á þing
ungar konur. Konur eiga nú full-
trúa í ríkisstjórn, Ragnhildi
Helgadóttur, sem ekki skilar sínu
starfi síður en meðráðherrar
hennar. Það er einnig mjög
ánægjulegt, að f< rseti landsins
skuli vera kona, enda er Vigdís
Pinnbogadóttir landi sinu til mik-
ils sóma. Fleiri kvenmenn í efstu
sætum framboðslista yrðu til mik-
illar gæfu fyrir þjóðina.
Karlmenn hafa oft sagt, að
hlutverk konunnar sé að eiga börn
og sjá um heimilið. Ég vil benda
þessum mönnum á, að við værum
illa settir, ef hjálpfúsar hendur
konunnar hefðu ekki farið út fyrir
ofangreint verksvið. Ég er hrædd-
ur um, að líf okkar hefði annars
orðið heldur bágborið og við yrð-
um eins og vængbrotnir fuglar,
sem bærust með stormum lífsins
og ættu sér ekkert athvarf. Ég
skora því á alla karlmenn i land-
inu, að veita konum meira braut-
argengi en hingað til. Ef við ber-
um gæfu til þess, er ég ekki í vafa
um, að við eignumst betra líf og
þjóðfélag okkar verður öðrum
þjóðum fyrirmynd. Þá fyrst hefur
frelsishugsjón sú, er við höfum
ávallt barist fyrir náð tilgangi sín-
um. Lítum upp til kvenþjóðarinn-
ar, virðum hana og metum. Hún er
stoð og stytta karlmannanna. Án
hennar værum við lítið peð á
taflborði lífsins. Gerum allt, sem í
okkar valdi stendur til að gera
störf hennar og lífshamingju að
máttarstólpa þjóðlífsins.
Waxoyl
RYDVÖRN
ENPURBÝPVÖRH
^ hjá okkur og við ^
LANUM ÞER
ANNAN BIL
á meðan!
RYÐmB^ARSTÖÐIN h.f.
Bíldshofða 14 ÍIO Reyk|avík Sími: 68 77 55
E BESTI
KENWOOD chef
KtNWOOOj
Saicr-inn'
annaö
Kynniö ykkur
hennarog
möguleika
EMW00D
K Innifalið í kamunu
■k nrærar, nnooan,
_ ■ M * ■■ • < í> #
IC kvörn, plasthiíf yfir
ndi úrvai auka
sem: hakka'
grænmetisrifjárn
grænmetis- og ávaxtapressa,
hýöari, dósahnífur ofl.
Eldhússtörfin verda leikur
KENWOOÐ