Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
63
Ný leið í kjarasamningum:
Vinnustaðafélög
í gær tók Málfríður Sigurðardóttir
sæti á Alþingi. Hún er fyrsti vara-
þingmaður landskjörinna þing-
manna Samtaka um kvennalista.
Hún gegnir þingmennsku í forföll-
um Guðrúnar Agnarsdóttur.
Vinnustaðafélög
launafólks heimiluð
KRISTÓFER MÁR KRIST-
INSSON (BJ) mælti í gær í neðri
deild Alþingis fyrir frumvarpi
Bandalags jafnaðarmanna um
breytingar á lögum um stéttarfé-
lög og vinnudeilur. Meginefni
frumvarpsins er að heimila starfs-
mönnum eins og sama fyrirtækis
að stofna vinnustaðarfélag til að
gæta og semja um kjaramál, ef
tveir þriðju hlutar starfsmanna
óska þess. Þetta er í fimmta sinn
sem þingmenn Bandalags jafnað-
armanna flytja þetta frumvarp.
Framsögumaður tók skýrt fram
að frumvarpið skyldaði engan til
eins eða neins, fæli hinsvegar í sér
heimild til þessa vinnulags í hags-
munagæzlu og kjaramálum, ef
starfsfólk svo kysi. Sá háttur i
kjarasamningum, sem lengi hefur
viðgengizt, hafi ekki tryggt kjara-
stöðu launafólks nægilega, allra
sízt láglaunahópa. Reynslan af
vinnustaðasamningum bendi hins-
vegar til meiri árangurs og meiri
launajöfnunar en nú viðgangizt.
Samningar með þessum nýja
hætti byggist og á meiri þekkingu
á stöðu og getu viðkomandi fyrir-
tækis. Samtíma samningar við
alla starfsmenn fyrirtækis auki á
starfsöryggi þess og getu þess til
að gera vel við starfsfólk sitt.
HALLDÓR BLÖNDAL (S) sagði
hér hreyft athyglisverðu máli. Það
væri að vísu ekki nýtt af nálinni
og meira en tímabært væri að
skoða það vel og taka afstöðu til
þess á þessu þingi. Reynslan af
verkfalli bókagerðarmanna hafi
sýnt að ótímabært verkfall einnar
starfsstéttar geti sett öryggi ann-
arra starfshópa í hættu. Þing-
nefnd þurfi hinsvegar að færa
orðalag til betri vegar.
KARVEL PÁLMASON (A)
taldi framsögu Kristófers og
greinargerð flutningsmanna sýna
mikla vanþekkingu á starfi og
uppbyggingu verkalýðssamtaka í
landinu. Frumvarpið væri gjör-
samlega óraunhæft. Smærri ein-
ingar þýddu veikari stöðu launa-
fólks.
ELLERT B. SCHRAM (S) sagði
frumvarpið allrar athygli vert og
þess virði að vera skoðað með
opnum huga.
GUÐMUNDUR EINARSSON
(BJ) taldi frumvarpið viðleitni til
að færa ákvörðunartöku nær fólk-
inu sjálfu og dreifa valdi, sem
væri og ætti að vera þróunin hér
sem erlendis. Það skyldaði engan
til breytinga, fæli aðeins í sér
heimild, ef starfsfólk eins og sama
vinnustaðarins sæi sér hag í að
fara nýja leið í kjaravörzlu sinni.
SVAVAR GESTSSON (ABL)
talaði hart gegn frumvarpinu.
Hann staðhæfði að frumvarpið
veikti samtakamátt verkalýðs-
stéttarinnar. í annan stað þyrftu
mál af þessu tagi að eiga rætur
hjá aðilum vinnumarkaöarins. Al-
þingi ætti ekki að fyrirskipa sam-
skiptareglur á almennum vinnu-
markaði.
Ólöglegar útvarps-
stöðvar í lokun RÚV
í efri deild héldu þingmenn
áfram að ræða tillögu til þings-
ályktunar um „rannsóknarnefnd
til að rannsaka afskipti ráðherra
og embættismanna af rekstri
ólöglegra útvarpsstöðva".
ÁRNI JOHNSEN (S) sagði
Sjálfstæðisflokkinn enga hlut-
deild hafa átt að starfsemi út-
varpsstöðva, sem skutu upp kolli
er starfsmenn RÚV gengu út úr
stofnun sinni og öll fréttamiðlun
og skoðanaskipti um fjölmiðla
lagðist af í landinu. Fullyrðingar
einstakra þingmanna um þetta
efni hefðu ekki við rök að styðjast.
Þessi atburður hafi hinsvegar leitt
enn betur í ljós en áður að nauð-
syn bæri til að endurskoða einka-
rétt RÚV til fjölmiðlunar á þess-
um vettvangi.
Eftir nokkrar orðahnippingar
milli þingmanna var málinu sfðan
vísað til nefndar.
Bflbelti — vidurlög
KARL STEINAR GUÐNASON
(A) mælti fyrir frumvarpi sem
menn úr öllum þingflokkum
flytja, þess efnis, að sektarákvæði
verði upp tekin gegn brotum á
skylduákvæði um notkun bilbelta.
Það væri eina leiðin til að gera
bílbeltanotkun almenna og nægi-
lega gildandi sem fyrirbyggjandi
aðgerð í umferðaróhöppum.
Miklar umræður fóru fram og
vóru menn ekki á eitt sáttir. Sum-
ir töldu að þótt bílbelti veittu ör-
yggi í yfirgnæfandi tilfellum um-
ferðaróhappa, væru þó til slysa-
tilfelli þar sem hið gagnstæða
væri upp á teningnum.
Veiðileyfastjórn
KJARTAN JÓHANNSSON (A)
o.fl. þingmenn Alþýðuflokks flytja
tillögu um mat á leiðum við veiði-
leyfastjórn á fiskveiðum. Gerir
hún ráð fyrir að Alþingi kjósi 7
manna nefnd „til þess að gera í
samráði við sjómenn, útvegsmenn
og fiskvinnsluaðila úttekt á leið-
um við veiðileyfastjórn á fiskveið-
um og leggja á þær mat með tilliti
til þess að full og hagkvæm nýting
fáist á íslenzkum fiskimiðum og
hagstæðustu útgerðarstaðir fái að
njóta sín... “
Ný flugstöð rís í Stykkishólmi
Stjkkisbólmi 30. okL
FLUGFERÐIR milli Stykkishólms og Reykjavíkur hafa í haust gengið
eftir áætlun. Er þetta góð samgöngubót í viðbót við hina ágætu þjónustu
áætlunarbíla Helga Péturssonar sem hafa daglegar ferðir hingað. Und-
anfarið hefir verið unnið að góðri flugstöðvarbyggingu við flugvöllinn og
er hún langt komin og verið að mála hana að innan. Skapast þarna ágæt
aðstaða fyrir flugrekstur hér í framtíðinni. Fréttaritari
Salome um tillögu kvennalistans:
Stuðningur við
sjónarmið ráðherra
„Efni þessarar tillögu tii þings-
ályktunar, sem hér er til umræðu,
um endurmat á störfum kennara,
er vissulega tímabært að taka til
meðferðar,“ sagði Salome Þor
kelsdóttir (S) er tillaga þingmanna
Samtaka um kvennalista um það
efni kom til umræðu í Sameinuðu
þingi fyrir nokkrum dögum. „Það
hafa þær umræður um kjör kenn-
ara hér á Alþingi að undanförnu
beint sannað. Það ber vissulega að
fagna þeim stuðningi sem hv.
menntamálaráðherra fær hjá
Kvennalistanum með þessari til-
lögu, en eins og fram hefur komið
m.a. í þessum umræðum hefur ráð-
herra lýst þeim vilja sínum að
endurmat á störfum kennara verði
framkvæmt.
Salome Þorkelsdóttir
Síðar í ræðu sinni sagði Sal-
orae:
„Sú öra þróun sem átt hefur
sér stað í þjóðfélaginu undanfar-
inn áratug, t.d. með fjölgun
kvenna á vinnumarkaðinum og
þá um leið breyttar aðstæður á
heimilum af þeim sökum, hefur
ekki sízt raskað þessum mál-
um ... Skólarnir verða í auknum
mæli að taka á sig gæzlu- og
uppeldishlutverk, auk fræðsl-
unnar, og það kallar á enn meiri
ábyrgð og álag á kennarana. Við
þessu verður að bregðast. Þetta
er einn af þeim þáttum sem
tengist nauðsyn þess að koma á
betri tengslum milli heimila og
skóia... þessara aðila sem verða
að vinna saman að því að ala upp
og mennta islenzka æsku.“
Jón Páll Halldórsson, varafiskimálastjóri:
Ekki hægt að fara
eftir tillögum
fiskifræðinga
„ÞAÐ er Ijóst að sjávarútvegurinn
verður ekki rekinn sem atvinnu-
grein í þessu landi ef miða á þorsk-
afla við 200.000 lestir ár eftir ár. Ef
við ætlum að stunda sjávarútveg hér,
Gullver seldi í
Bremerhaven
SKUTTOGARINN Gullver frá Seyð-
isfirði seldi í gær afla sinn, mest
karfa og ufsa í Bremerhaven. Með-
alverð var 23,01 króna fyrir hvert
kfló og að sögn Jóhönnu Hauksdótt-
ur hjá LÍÚ var þar um afbrags fisk
að ræða.
Gullver seldi alls 167,3 lestir.
Heildarverð var 3.850.100 krónur,
meðalverð 23,01. Mikið framboð á
fiski er nú í þýzkum höfnum og er
afrakstur Gullvers því mjög góður
að sögn Jóhönnu. Á fimmtudag
seldi Karlsefni RE 148,2 lestir af
karfa og ufsa í Cuxhaven. Heildar-
verð var 3.120.600 krónur, meðal-
verð 21,05.
er ekki hægt að fara eftir tillögum
fiskifræðinga um hámarksafla eins
og gert hefur verið til þessa. I fram-
tíðinni verður að draga úr þeim
miklu sveiflum, sem verið hafa f afl-
anum á undanförnum árum,“ sagði
Jón Páll Halldórsson, varaftskimála-
stjóri, í samtali við blm. Morgun-
blaðsins.
Jón Páll sagði ennfremur, að
öllum, sem fylgdust með þessum
málum, væri ljóst, að ætisskilyrði
fyrir fisk hér við land væru allt
önnur en fyrir ári síðan. Þá hefðu
verið afskaplega slæm skilyrði
umhverfis allt landið. Nú hefði
orðið gjörbreyting á, sem meðal
annars kæmi fram i stórauknum
linuafla. Mætti i því sambandi
nefna að í síðustu viku hefði einn
línubátanna við Djúp, Orri ÍS, afl-
að 90 lestir, mestmegnis bolta-
þorsk. Á sama tíma i fyrra hefðu
línubátar verið með þriðjung
þessa afla og hefði þorskurinn þá
verið grindhoraður. Hann hefði
því allan fyrirvara á niðurstöðum
Hafrannsóknastofnunar að þessu
sinni.
Ekkierallt
sem sýnist
Sparifjáreigendur eiga nú fleiri kosfi en nokkru sinni fyrrtil að ávaxta pening-
ana. Og um leið verður allur samanburður á innlánsformum flóknari og
erfiðari.
Gylliboðin með lýsingarorðum í hástigi birtast úr öllum áttum, en pegar að er
gáð þá er ekki allt sem sýnist. Hvað þarf til að ná hœstu ávöxtun? Hvaða
áhrif hefur úttekt?
Boð okkar er hœkkun vaxta á 6 mánaða reikningum. Þannig fœst
27,2°/o ársávöxtun
sem er sambœrileg við hámarksávöxtun hjá peningastofnunum almennt.
Einfalt mál. Fáið samanburðinn í Sparisjóðnum.
5PARI5JÚÐUR
HAFNARFJARÐAR
Hagur heimamanna