Morgunblaðið - 09.11.1984, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
15
Sigurður Skúlason leikur Böðvar eiginraann Guggu.
reyndist mér því notadrjúgt," seg-
ir hún.
I Ólafsvík lék Edda Heiðrún
með áhugaleikfélagi staðarins i
gamanleiknum Leynimelur 13.
Um haustið var hún svo komin í
leiklistarskólann.
Fyrir utan leik sinn hjá stóru
leikhúsunum og nemendaleikhús-
inu, hefur hún starfað með leik-
hópnum Svart og sykurlaust.
„Það er frábært að fást við leik-
list sem er sprottin hjá manni
sjálfum, texti, leikur, búningar,
leiktjöld, lýsing og allt sem til
þarf. Við fórum meðal annars á
vinnustaði og lékum þar. Við feng-
um misjafnar undirtektir, sumir
sögðu: Af hverju farið þið bara
ekki inn á Klepp; aðrir hrópuðu:
Frábært, frábært.
Núna er ég að kenna upp í
Kramhúsi, ungum krökkum. Þetta
er eins konar leiksmiðja og ætlum
við að setja upp sýningu í desem-
ber á götum úti í miðri jólaösinni."
Og allra nýjasta hlutverk Eddu
Heiðrúnar er svo í söngleiknum
„Little Shop of Horror" þar sem
hún leikur Auði, sem er „dum
blond typa“, eins og Edda Heiðrún
orðar það.
„Auður og Gugga eru algjörar
andstæður, en það sem er svo
spennandi við leiklist er að fá að
fást við ólíkar persónur," segir
hún.
HE
Jón E. Guðmundsson innan um hluta af brúðum sínum.
Sýnir brúður og
vatnslitamyndir
í Norræna húsinu
JÓN E. Guðmundsson opnar á
morgun, laugardag, kl. 14 sýningu á
brúðum úr helgileikjum og öðrum
leikjum í kjallara Norræna hússins.
Jón sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að hann kæmi ekki öllú safni
sínu fyrir með góðu móti í sýningar-
salnum, en sagðist reikna með að
gripirnir á sýningunni yrðu um 100
talsins. Auk þess verða 64 vatnslita-
myndir í öðrum sýningarsalnum.
Brúðurnar eru unnar á síðustu
15 árum, en vatnslitamyndirnar
spanna lengra tímabil, eða allt frá
árinu 1946 til þessa árs. Á sýn-
ingartímanum verða leiksýningar
með brúðum. Sýningin verður opin
frá 10.—25. nóvember frá kl.
14—18 mánudaga til miðvikudaga
og kl. 14—22 fimmtudaga til
sunnudaga. Sýningin er haldin I
tilefni af 70 ára afmæli Jóns E.
Guðmundssonar.
Framkvæmdastjórn SÁÁ 1984—1985. Neðri röð frá vinstri: Valgerður Bjarnadóttir, Hendrik Berndsen formaður, Óthar
Örn Petersen varaformaður, Ragnheiður Guðnadóttir. Efri röð frá vinstri: Þórarinn Þorkell Jónsson, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Ragnar Aðalsteinsson, Friðrik Theodórsson og Einar Kristinn Jónsson framkvæmdastjóri.
Aðalfundur SÁÁ:
7.600 sjúklingar hafa leitað
NÝVERIÐ var haldinn aðalfundur
SAÁ. Í skýrslu stjórnar kom m.a. fram
að sjúkrastöðin Vogur, sem tekin var í
notkun um sl. áramót, hefur verið
fullnýtt frá því í aprfl. Þrátt fyrir fjölg-
un sjúkrarúma úr 38 í 60 með tilkomu
nýju sjúkrastöðvarinnar hefur ekki
verið hægt að anna óskum um sjúkra-
dvöld og jafnan verið langur biðlisti
eftir meðferð.
Um 7.600 sjúklingar hafa komið
til meðferðar hjá SAÁ frá upphafi,
þar af 1.350 á þessu ári. Hlutfall
kvenna fer vaxandi, nú um 25% og
meðalaldur sjúklinga fer lækkandi.
Hjá SÁÁ starfa nú um 70
starfsmenn á fjórum stöðum: Á
sjúkrastöðinni Vogi er rúm fyrir 60
sjúklinga i 10 daga afvötnun og/eða
afeitrun. Þar starfa 39 starfsmenn;
Á Sogni í Ölfusi er rúm fyrir 30
sjúklinga i 28 daga eftirmeðferð.
Þar starfa 9 starfsmenn; I Síðu-
múla 3—5 er starfrækt víðtæk
fræðslu- og ráðgjafarþjónusta i
samvinnu við Áfengisvarnadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Hátt í 500 einstaklingar á mánuði
notfæra sér þá þjónustu sem þar er
í boði. í framkvæmdastjórn SÁÁ
aðstoðar SÁA
voru kjörin: Hendrik Berndsen,
formaður, Othar Örn Petersen,
varaformaður, Ragnheiður Guðna-
dóttir, ritari, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, gjaldkeri, Ragnar Aðal-
steinsson, Friðrik Theodórsson,
Valgerður Bjarnadóttir og Þórar-
inn Þorkell Jónsson.
í aðalstjórn SÁÁ (36 manna)
voru kjörin í stað þeirra sem hættu:
Björn Þórhallsson, Davíð Sch.
Thorsteinsson, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Jóhannes Magnússon og
Stefán Benediktsson.
NY
FRJÁLS
FATA-
TÍSKA