Morgunblaðið - 09.11.1984, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
53
fólk í
fréttum
Maggie Eastwood býr nú fyrrum fylgisveini Liz
Taylor, bílasalanum Henry Wynberg, og börnun-
um Alison og Kyle, börnum þeirra Clints.
Clint yfirgaf Maggie fyrir leikkonuna Sondru
Locke.
„Nú er ég loksins ég sjálf“
— segir fyrrum eiginkona Clints Eastwood
+ Maggie Eastwood, konan,
sem í 24 ár var gift leikaranum
Clint Eastwood, segist hafa orö-
iö þeirri stundu fegnust þegar
upp úr hjónabandinu slitnaöi.
„Áður var ég alltaf dóttir ein-
hvers, kona einhvers, móöir ein-
hvers. Ég var nafnlausa, skyldu-
rækna konan, sem brosti með
eiginmanninum og fjölskyldunni
á uppstilltum myndum," segir
Maggie, sem er 51 árs aö aldri.
„Nú er ég loksins ég sjálf."
Clint Eastwood fór frá Maggie
fyrir fjórum árum til aö taka sam-
an viö unga leikkonu, Sondru
Locke, sem hann lék með í
myndinni „The Gauntlet" og
samdist um með þeim hjónun-
um, aö Maggie fengi 15 milliónir
dollara fyrir hjúskaparrofiö.
„Sambúöin meö Clint var ekki
alltaf slæm. Ekkert hjónaband er
alltaf slæmt. Þaö voru bæöi góö-
ar og slæmar stundir," segir
Maggie, sem nú býr meö bílasal-
anum Henry Wynberg, sem einu
sinni var svo frægur aö vera
fylgisveinn Elizabeth Taylor.
Erfitt aö vera Boy George
+ Boy George hefur aö undan-
förnu veriö að færa mjög út kví-
arnar í bókstaflegum skilníngi,
þaö er aö segja hann er aö
hlaupa í spik.
Nýjasta ástin hans Boys eru
sjávarréttir alls konar og hann
er ekkert aö halda í við sig þeg-
ar þeir eru annars vegar. Sagt
er, aö hann láti sig ekki muna
um aö sporðrenna fjórum
humrum í mál og er þá verið aó
tala um aörar og stærri skepnur
en veiöast við íslandsstrendur.
Vegna þessa hefur Boy
George bætt á sig um 12 kílóum
siöasta áriö og vegur nú um
80—90 kíló. Segist hann þó ekki
hafa af því neinar áhyggjur, held-
ur vera hreykinn af því.
„Ég þoli ekki spengilegt fólk
og ég held mér hafi tekist aö
koma feitu fólki í tísku," segir
hann.
Kunningjum Boy George líkar
ekki alls kostar hvaöa stefnu lík-
amsvöxturinn á honum hefur tek-
iö og eru farnir aö kalla hann
„kleinusnúöinn" sin á milli.
Þaö er kannski engin furöa
þótt Boy sé farinn aö hugga sig
viö átiö þvi hann segist vera aö
gefast upp á því aö vera Boy
George.
„Síöan Culture Club varö
svona fræg hef ég oröið aö
ganga í gegnum sannkallaöa
martröð á hverjum morgni. Setja
boröa í háriö, faröa mig, setja
upp hattinn og klæöa mig og allt
tekur þetta rúma þrjá klukkutima
áöur en ég get horft framan í
heiminn. Þaö þýöir aö ég verö aö
fara á fætur klukkan sex á hverj-
um morgni og ég held þaö ekki
út,“ segir Boy George.
Boy segist raunar vera búinn
aö finna dálitla lausn á þessu
vandamáli því aö nú hefur hann
komiö sér upp nýrri hárgreiöslu í
stíl viö þá gömlu og góöu leik-
konu Jean Harlow. Hún er svo
fljótleg, aö hann getur sofiö fram
til átta.
COSPER
+ Bandaríska rokksöng-
konan Linda Ronstadt
hefur heldur betur söölaö
um í músíkinni. Hún tek-
ur nú þátt í uppfærslu á
óperunni „La Boheme",
sem um þessar mundir
er á fjölunum í New York.
Arnarbakarí Hafnarfirði kynnir í dag frá
ki: 4-8 framleiðslu sína í Vörumarkað-
inum Eiðistorgi 11.
MATARBRAUÐ
Fjölmargar gerðir
KRAN SAKÖKUR
TERTUR
... í öllum stærðum og gerðum
RJÓMAKÖKUR
nammmmmmmmmmmmm
SMÁKÖKUR
....semsagt, mikið af girnilegu
brauði og bakkelsi-, og bakararnir verða
sjálfir á staðnum og baka smákökur í
GAGGENAU blástursofnum.
...eitthvað skemmtilegt verður upp á
teningnum... en vonandi bakar það ekki
vandræði...!
FRAMHALD
Kynningin er hka á Laugardag og
Sunnudag frá 1-4 e.h.