Morgunblaðið - 16.11.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. NÓVEMBER 1984
3
Hraðatakmark-
anir á Vesturgötu
Morgunblaðið/ Júlfus.
Farseðlarnir teknir upp — íslenzku skákmennirnir sem árdegis f dag halda utan á Ólympíuskákmótið í Grikklandi
hafa æft vel að undanförnu og f vikunni tólni þeir upp farseðlana til Grikklands.
Sterkasta skáklandslið frá
upphafi á Ólympíuleikana
SAMÞYKKT hefur verið í Umferð-
arnefnd Reykjavíkur og borgarráði
að komið verði fyrir tveimur hraða-
talunörkunum á Vesturgötu, annars
vegar við Ægisgötu og hins vegar við
Bræðraborgarstíg.
Guttormur Þormar, yfirverk-
fræðingur Umferðarnefndar
Reykjavíkurborgar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hraða-
takmarkanirnar yrðu með þeim
hætti að gatan yrði þrengd á sama
hátt og gert hefur verið t.d. á öld-
ugötu. Enn hefur ekki verið ákveð-
ið hvenær hafist veður handa við
framkvæmdir þessar. Sem kunn-
ugt er nú 30 km hámarkshraði á
Vesturgötu, en Guttormur sagði
að menn virtust æði oft gleyma
því og væri nú ráðgert að fjölga
umferðarmerkjum þar að lútandi í
götunni, ökumönnum til áminn-
ingar.
í gær tóku gildi nokkrar breyt-
ingar á umferðarrétti samkvæmt
auglýsingu lögreglustjóra. Göt-
unni Háaleiti, sem gengur i gegn-
ENGIN niðurstaöa hefur fengist í
rannsókn á orsökum þess að skut-
togarinn Klakkur VE valt á hliðina
við sjósetningu í skipasmíðastöð í
Cuzhaven. Fulltrúar Samtogs og
Tryggingamiðstöðvarinnar sem verið
hafa í Cuxhaven vegna þessa máls
eru nú á beimleið, en þeir telja eng-
an vafa leika á því að ábyrgðin sé
skipasmíðastöðvarinnar. Þýskur
lögfræðingur mun gæta hagsmuna
félaganna í málinu.
Tryggingamiðstöðin hefur eins
og kunnugt er metið tjónið á 20 til
22 milljónir. Gert verður við skip-
ið í skipasmíðastöðinni þar sem
um Kringlumýrina, hefur verið
breytt í aðalbraut og sett hefur
verið stöðvunarskylda á Bústaða-
vegi við Háaleitisbraut. Að sögn
Guttorms hefur óhöppum þar
fjölgað mjög á síðustu árum og er
ráðgert að koma þar fyrir umferð-
arljósum þegar brúin yfir
Kringlumýrarbraut verður full-
gerð.
Þá er búið að afnema stöðvun-
arskylduna i Suðurhlíð sem geng-
ur út á Kringlumýrarbraut fyrir
sunnan Nesti en í staðinn hefur
verið sett biðskylda. Akbrautin
sem liggur frá götunni inn á
Kringlumýrarbraut hefur nú verið
lagfærð þannig að ekki þótti rétt
að hafa þar lengur stöðvunar-
skyldu. Við götuspottann sem
liggur milli Skógarhliðar og
Vatnsmýrarvegar, áður Reykja-
nesbraut og gamli Laufásvegur,
hefur nú verið bannað að leggja
bílum en áður lokuðu kyrrstæðar
bifreiðir oft allri umferð um göt-
una.
óhappið varð og verður byrjað á
verkinu allra næstu daga. Raf-
magnskerfi skipsins verður allt
endurnýjað. Búið er að taka úr því
alla rafmótora, gert verður við þá
stærstu en skipt um þá minni.
Matsalur, eldhús og íbúðir stjórn-
borðsmegin i skipinu verður allt
endurnýjað. Vélar skipsins verða
teknar upp i svokallaða 12 ára
skoðun sem hvort eð er var farin
að nálgast. Einnig verður gert við
ýmsa smærri hluti. Skipasmíða-
stöðin áætlar að viðgerðin taki 30
til 40 vinnudaga þannig að skipið
ætti að komast heim á þessu ári.
ÍSLENZKA landsliðið í skák heldur
utan árdegis f dag til þátttöku f
Ólympíuskákmótinu, sem haldið
verður í Þessalóníku f Grikklandi.
Fullyrða má að aldrei hafi ísland
telft fram jafnsterku landsliði í skák
og nú; fjórir efstu menn eru allir
með yfir 2500 Elo-stig.
Helgi ólafsson teflir á 1. borði,
Margeir Pétursson á 2. borði, Jó-
hann Hjartarson á 3. borði og Jón
L. Árnason á 4. borði. Guðmundur
Sigurjónsson stórmeistari er
fyrsti varamaður og hinn ungi og
efnilegi Karl Þorsteins hlýtur sína
eldskírn i Ólympíuskákmóti, verð-
ur annar varamaður. Þess má geta
að Karl Þorsteins verður fulltrúi
íslands á Evrópumeistaramóti
unglinga i skák, sem fram fer i
Groningen i Hollandi, en sem
kunnugt er hlaut Karl bronzið á
heimsmeistaramóti unglinga i
sumar. Liðsstjóri er dr. Kristján
Guðmundsson.
tslenzka kvennalandsliðið teflir
einnig á Ólympíuskákmótinu.
Fyrir Íslands hönd tefla Guðlaug
Þorsteinsdóttir á 1. borði, ólöf
Þráinsdóttir á 2. borði og Sigur-
laug Friðþjófsdóttir. Þráinn Guð-
mundsson er liðstjóri kvenna-
sveitarinnar. Þorsteinn Þorsteins-
JÓHANN Hjartarson er stigahæstur
íslenzkra skákmanna samkvæmt ís-
lcnzka skákstiganum sem er nýkom-
inn ÚL Jóhann hefur 2550 skákstig,
en Helgi Ólafsson fylgir fast á eftir
honum með 2545 stig. í þriðja sæti
er Friðrik Ólafsson með 2530 og þeir
Jón L Árnason og Margeir Péturs-
son eru í 3.-4. sæti með 2510 stig.
Tuttugu stigahæstu skákmenn-
irnir, samkvæmt nýja íslenska
skákstiganum, eru:
Stig Skákir
Jóhann Hjartarson 2550 420
Helgi ólafsson 2545 363
Friðrik ólafsson 2530 125
son forseti Skáksambandsins mun
sitja þing FIDE. ólympíuskák-
mótið hefst 17. nóvember og lýkur
5. desember.
Jón Loftur Arnason 2510 306
Margeir Pétursson 2510 348
Guðm. Sigurjónsso 2475 164
Karl Þorsteins 2430 259
Jón Kristinsson 2390 173
Ingi R. Jóhannsson 2380 67
íngvar Ásmundsson 2370 168
ólafur Magnússon 2335 57
Elvar Guðmundsson 2330 331
Haukur Angantýss. 2315 162
Sævar J. Bjarnason 2310 429
Björn Þorsteinsson 2305 416
Bragi Kristjánsson 2295 140
Jóhannes G. Jónsson 2280 223
Ásgeir P. Ásbjörnss. 2275 185
Björgvin Jónsson 2265 284
Jón Torfason 2265 137
Kemur Klakkur
heim fyrir jól?
Ný íslenzk skákstig:
Jóhann stigahæstur
Sérstaklega plægö tréborð
notuö til klaeoningar*
Víð hjá Völundi eigum sérstakt úrval sérstaklega plægðra
tréborða til klæðningar.
Gagnvarin og veryuleg fura til klæðningar utanhúss.
Einnig fura oggreni til klæðningar innandyra, blindneglt
að sjálfsögðu.
Nargar gerðir og mismunandi verðflokkar.
Við plægjum einnig allar mögulegar gerðir og stærðir
eftir pöntun.
Sérstaklega plægðu tréborðin notuð til klæðningar
eru afgreidd á Klapparstígnum en sýnishom eru einnig
í Skeifunni 19.
liagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar.
TIMBURVERZLUNIN VÖLUNDUR HF.
KLAPPARSTlG 1, S(MI 18430 - SKEIFUNNI 19, SlMI 687999
* ( orðabók Menningarsjóðs, annarri útgáfu Reykjavík 1983 bls. 726, er
orðið panill skýrt á þennan hátt: „sérstaklega plægð tréborð notuð til
klæðningar".
WIQA IWÐ